Heimskringla - 18.09.1940, Blaðsíða 7

Heimskringla - 18.09.1940, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 18. SEPT. 1940 HE.IMSKRINGLA 7. SÍÐA “HIN FRAMRÉTTA HÖND HITLERS” Ummæli Alþbl. um síöasta írið■ artilboð Hitlers, 22. júl. “Prússland er mett”, sagði Bis- marck, þegar Danmörk, Austur- ríki og Frakkland höfðu verið barin niður í blóðugum styrjöld- um á árunum 1864—1871 og kúg- uð til þess að láta lönd af hendi við hið upprennandi þýzka keis- aradæmi, sem hið gamla Prúss- land var kjarninn í. Það gat því boðið frið'í allar áttir, frið á kostnað nágrannaríkjanna. Þýzkaland er mett í bili, mun Hitler á sama hátt hugsa í dag. Þess vegna getur hann slegið um sig með fullyrðingum um friðar- vilja sinn. Hann er búinn að leggja undir sig Austurríki, Tékkóslóvakíu, meira en helm- inginn af Póllandi, Danmörku, Noreg, Holland, Belgíu, Luxem- burg og mestan hluta Frakklands. Hvaða furða þá, þó að hann bjóði upp á frið við England, og það því heldur, sem hann mun vera farinn að fá eitthvert hugboð um, að það geti verið vafasamt, Kve mikinn ávinning hann hafi af á- framhaldiandi stríði við það? “Ef stríðið heldur áfram,” sagði Hitl- er í ræðu sinni fyrir ríkisþinginu á föstudaginn, “þá mun mikið heimsríki til grunna ganga.” Það sagði véfréttin líka, áður en Krösus fór yfir Halysfljót forð- um. Og Krösus lagði þau orð þannig út, að með þeim væri átt við ríki andstæðingsins. En það fór á aðra leið. Það var ríki Krösus sjálfs, sem til grunna gekk. Það var auðheyrt á ræðu Hitl- ers, að hann er ekki alveg eins viss og Krösus um, að það geti j ekki orðið einmitt hans ríki, sem til grunna gengur í áframhald- j andi stríði við England. Því að “ef stríðið heldur áfram”, sagði hann ennfremur, “þá lýkur því ekki fyr en annaðhvort brezka heimsveldið eða Þýzkaland hefir verið molað.” Það er í öllu falli auðheyrt, að hann telur tryggara fyrir sig, ef hann gæti fengið J friðinn nú, á kostnað þeirra ná- grannaríkja, sem hann er búinn að sölsa undir sig, en að halda stríðinu áfram gegn hinu vold- uga brezka heimsveldi, í fullri óvissu um það, hvernig því myndi ljúka. Hvaða furða þá, þó að fylgis- menn hans og aðdáendur tali með fjálgleik um “hina framréttu hönd Hitlers” og um það “á- byrgðarleysi” Breta, að “slá á” hana, eins og Morgunblaðið gerði í gær? Um hitt tala slíkir herr- ar ekki, hvers konar friður það er, sem Hitler býður upp á, og hvers virði yfirleitt samningar við Hitler eru. Hvers virði reynd- ust Munchensamningarnir fyrir Tékkóslóvakíu? Sagði ekki Hitl- er þá, að hann hefði engar landa- kröfur meira að gera í Evrópu, eftir að hann hafði fengið Súdeta héruðin? Hvers virði reyndist sú yfirlýsing hans? Og hvers virði vináttu- og öryggissamn- ingurinn við Danmörku og hlut- leysi Noregs, Hollands, Belgíu og Luxemburg, sem Hitler hafði upp á æru og samvizku lofað að virða? Það þarf áreiðanlega meira en blint fylgi við þýzka nazismann til þess að lá Bretum það, þótt þeir neiti að semja við svo margfaldan svikara og samn- ingsrofa. Það er auðvelt að skilja það, að blöð í þeim löndum, sem eins jog Danmörk og Noregur eru nú ofurseld harðstjórn Hitlers og jundir ritskoðun hans, þori ekki annað en að syngja lof um þann “friðarvilja” og þá “framréttu hönd”, sem hann hafi sýnt í ræðu sinni fyrir þýzka ríkisþinginu á föstudaginn. En það er óskiljan- legt, að í löndum, sem ekki standa undir ógnarstjórn þýzka J nazismans, skuli finnast svo aum- ir aðdáendur kúgunarinnar, að þeir skuli við hvert tækifæri, sem gefst, vera eins og útspýtt hundskinn til þess að breiða út blekkingar hins þýzka ofbeldis- herra meðal þjóða sinna. Og það er alveg nýtt í sögu okkar ís- lendinga, að heyra kúguninni sungið lof og dýrð á þann hátt, sem nazistar og kommúnistar gera nú í hvert skifti, sem Hitler og Stalin bera fram fals sitt, yfir- gangi sínum og ofbeldisverkum til réttlætingar. Þá er íslenzku þjóðinni illa aftur farið, ef slíkur undirlægju- skapur við harðstjórn og ofbeldi finnur hljómgrunn hjá henni. UMMÆLI AMERÍSKA BLAÐA UM ISLAND í ameríska tímaritinu Times birtist nú nýlega smágrein um fsland. Er ekki laust við að sú lýsing á landinu og þjóðarhögum sé smá- skrítin. Eru hér týndir til nokkrir stað- ir úr nefndri grein. “fsland hefir engan her, engan flota, engar áætlunflugvélar, engar járnbrautir, enga svína- rækt og engar ríkisskuldir. Trjágróður er þar varla nokk- ur eða matjurtarækt, en ágæt beitilönd og 6 sauðkindur á hvern íbúa landsins. En gnægð fiskjar hefir for- sjónin sent hinni iðjusömu vík- ingaþjóð, sem landið byggir”. ▲ Þá er lauslega minst á afstöðu íslendinga til Dana og þá at- burði, sem gerðust 10. apríl, er Alþingi fól ríkisstjórn fslands meðferð konungsvaldsins og lýsti því yfir að utanríkismálin yrðu tekin í hendur landsmanna. í því sambandi segir í grein- inni: “ísland neitaði að ganga í Þjóðabandalagið á sínum tíma vegna þess að Danir voru með- limir í því. Þó verður varla sagt, að um óvináttu sé að ræða milli Reykjavíkur og Kaupmannahafn- ar. fslendingar segja, að Kristj- án konungur sé “minna óvinsæll á íslandi” en nokkur Danakon- ungur hafi verið”. A Þá er rætt um ýmsar ráða- gerðir, sem Þjóðverjar hafi haft um ísland og meðal annars þetta saft: “Síðastl. ár voru auðsæ merki þess að Þjóðverjar hugðu á að geta tekið á einni nóttu þetta litla konungsríói. Við strendur landsins var hóp- ur af þýzkum svokölluðum tog- urum við fiskveiðar, en móður- skip þeirra var,þýzka beitiskipið Emden.” f þessu sambandi er og talað um landfræðirannsóknir Þjóð- verja á íslandi, myndun og starf- semi íslenzks nazistaflokks og samband hans við erlend öfl og jafnvel undirbúning af hans hálfu til byltingar. Um íslenzka forsætiráðherrann er sagt að hann hafi verið “King of Glima” og sé maður mikill á velli og rammur að afli. Það fyrsta, sem íslendingar segi við útlendinga sé þetta: “Gerið svo vel að gera yður þess grein, að við erum ekki Eskimóar”.—Mbl. 3. júlí. Ritstjórinn: Eg er í vafa um þessar skrítlur? Sá, er selja vildi: Þér þurfið ekki að vera í vafa. Þær hafa birst í felstum blöðum landsins, svo að ekki þarf að efast um vin- sældirnar. INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU í CANADA: Amaranth.............................J. B. Halldórsson Antler, Sask........................,K. J. Abrahamson Árnes...............................Sumarliði J. Kárdal Árborg................................G. O. Einarsson Baldur.........................................Sigtr. Sigvaldason Beckyille.............................Björn Þórðarson Belmont..................................G. J. Oleson Bredenbury..............................H. O. Loptsson Brown..............................Thorst. J. Gíslason Churchbridge------------------------H. A. Hinriksson Cypress River............................Páll Anderson Dafoe...................................S. S. Anderson Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson Elfros...............................J. H. Goodmundson Eriksdale..............................ólafur Hallsson Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason Foam Lake................................H. G. Sigurðsson Gimli.................................. K. Kjernested Geysir...........................................Tím. Böðvarsson Glenboro..................................G. J. Oleson Hayland....„.........................Slg. B. Helgason Hecla..............................Jóhann K. Johnson Hnausa.................................Gestur S. Vídal Húsavík................................John Kernested Innisfail.....................................ófeigur Sigurðsson Kandahar...............................S. S. Anderson Keewatin...............................Sigm. Björnsson Langruth............................... B. Eyjólfsson Leslie..............................Th. Guðmundsson Lundar..................................... D. J. Líndal Markerville......................... Ófeigur Sigurðsson Mozart;................................S. S. Anderson Oak Point.............................Mrs. L. S. Taylor Otto......................................Björn Hördal Piney...................................S. S. Anderson Red Deer..........................................Ófeigur Sigurðsson Reykjavík................................. Riverton............................Björn Hjörleifsson Selkirk, Man...........Mrs. David Johnson, 216 Queen St. Sinclair, Man......................K. J. Abrahamson Steep Rock.................................Fred Snædal Stony Hill................................Björn Hördal Tantallon...............................O. G. Ólafsson Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason Víðir..................................Aug. Einarsson Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey Winnipegosis.....................Finnbogi Hjálmarsson Winnipeg Beach.....................................John Kernested Wynyard................................S. S. Anderson í BANDARÍKJUNUM: Bantry................................E. J. BreiðfjörB Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson Cavalier and Walsh Co............... Th. Thorfinnsson Grafton...r...........................Mrs. E. Eastman Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmana Los Angeles, Calif.... Milton.................................. S. Goodman Minneota...........................Miss C. V. Dalmann Mountain........ .....................Th. Thorfinnsaon National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St. Point Roberts....................... Ingvar Goodman Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6728—21st Ave. N. W. Upham...................................E. J. Breiðfjörð The Viking Pfess Ltd. Winnipeg Manitoba NEYÐAR KALL CANADIAN REDCROSS Sjáið auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. TIL FLJÚGANDI YILLIANDAR Eitir Jóhönnu F. Sigbjörnson I. Æ, gef mér vængi að fylgja þín- um flug; Þá frænda þinna er allra sofin bjöð, hví flýgirðu alein yfir næturbug, hví ein að svara þarftu vöku- kvöð ? Þitt vængjahvísl eg heyri á him- in sjó, og hygg mig líta fold sem þekti í sýn, með verum kvika viltum skyld- um þó, sem Verið eitt sinn jörð sú hefði mín! II. Þú hvarfst sem örskot! hljóður skuggi fer, um hábogann, sem áður flug þitt var, þú lézt mig eina á ljósshæð dreyma hér, og langan blígja í sumars stjörnumar, og finna yl af eðlisskyldleiks reynd, mig undarlega töfra sætri kvöl. Sælt stundarbil, er veitti anda eind, þín æ skal geymt, þótt skiljumst tíðarspöl. Lárus Sigurjónsson (Snúið úr ensku). ISLAN DS-FRÉTTIR Nefnd í áíengismálinu Ríkisstjórnin hefir skipað 5 manna nefnd til að athuga og gera tillögur um skipun áfeng- ismálanna framvegis. í nefdninni eiga þessir menn sæti: Felix Guðmundsson og Friðrik Ásmundsson Brekkan, fulltrúar Stórstúku íslands, Sveinn Sæmundsson, yfirlög- regluþjónn, fulltrúi lögreglunn- ar, Árni Benediktsson, fulltrúi Áfengisverzlunar ríkisins og Ragnar Bjarkan, fulltrúi ríkis- stjórnarinnar. Nefndin mun hraða störfum sínum eftir mætti og leggur síð- an tillögur sínar fyrir ríkis- stjórnina. Hún mun taka afstöðu til, hvort á að loka Áfengisverzl- uninni eða koma á skömtum. —Vísir, 15. ág. * * * Leynileg sendistöð finst í Reykjavík í gær fanst í Reykjavík sendi- tæki, sem maður að nafni Sig- urður Finnbogason hefir starf- rækt undanfarið. Var það breska herlögrfeglan, sem fann sendi- stöðina og var Sigurður þegar handtekinn og stöðin gerð upp- tæk. Málið er í byrjunarrannsókn og verður ekki gefin út nein yfir- lýsingar af hálfu setuliðsstjórn- arinnar fyrri en rannsókninni er að fullu lokið. Eftir því sem Vísir hefir heyrt munu bresku yfirvöldin líta mjög alvarlegum augum á þetta mál. —Vísir, 14. ág. 1940. * * * - NAFNSPJÖLD - Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusiml: 23 674 Btundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að íinnl á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 153 Thorvaldson & Eggertson Lögfrseðing-ar 300 Nanton Bldg. TaLsíml 97 024 Orric* Phonb Res Phonx 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MKDIOAL ART8 BtJILDINO Omcx Hours: 12 - 1 4 P.H. - 6 P.M. AND BT APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMtNNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Laetur úti meðöl i viðlöguia Vnstalstimar kl. 2—4 s. h. 7—8 at kveldinu Simi 80 857 643 Toronto St. Dr. S. J. Johannesion 806 BROADWAT Talstml 80 877 Viðtalatimi kl. S—6 •. h. A. S. BARDAL selur likklstur og annaat um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestí. — Enníremur seiur hann allskooar minniavarða og legsteina. 843 8HERBROOKB 8T. Phone: 81397 WINNIPXQ J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Inrurance and Financiol Agents Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—W innipeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Phone 27 989 Fresh Cut Flowera D&ily Plants in Seaaon We speciallze in Wedding St Concert Bouqueta & Puneral Deslgna Icelandic apoken H. BJARNASON —TRANSFER— Bagooge ond Fvrniture Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allakonar flutninga fram og aftur um bœlnn. MARGARET DALMAN TKACHER OF PIANO 854 BANNINO ST. Phone: 26 420 DR. A. V. JOHNSON DENTIST 410 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma 10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h. Skrifstofusími 80 887 Heimasími 48 551 506 Somerset Bldg. Office 88 124 Res. 27 702 Englands. Eitthvað af verzlunarbréfum mun þó hafa verið tekið úr póst- inum og skoðað hér, eins og í fyrra skiftið. (í þetta fyrra skiftið, sem hér er átt við, voru 24 pokar af pósti frá New York teknir á Reykja- víkurhöfn og sendir til Englands til skoðunar. Var þetta þrem vikum áður en sá póstur var tek- inn, sem hér að ofan ræðir um og hann var ekki eftir þann tíma kominn til baka frá Englandi. Á þetta er hér minst til þess að vekja athygli á að póst héðan heim er ekki til neins að senda til New York í von um skjótari flutning. Hann er allur háður ritskoðun á Englandi. — Hkr.) —Vísir, 17. ág. THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwln Diamonds and Weddlng Rings Agents for Bulova Watóhes Marrlage Licenaea Issued 699 Sargent Ave. VITIÐ ÞÉR — að þann 15. maí var opnuð útvarpsstöð í New York, sem er í lögun eins og fiðla? Hljómlist- arsalurinn er eins og fiðla í lög- un og klæddur viði, sem er á- þekkur því efni, sem fiðlur eru smíðaðar úr? Að hljómfegurð- in, er framleiðist, er ætluð áþekk hljómfegurð Stradivarifiðlanna? að Rússar temja elgsdýr og nota þau á áþekkan hátt og við íslendingar notum hesta? Að þeir nota þau til að bera á þeim og líka til dráttar? Að elgsdýrin eru hættuleg mönnum um tímg- unartímann og tömdu elgirnir þjást af meltingarsjúkdómum, sem örðugt hefir reynst að stemma stigu fyrir? —að auk heimskautalandanna eru stór landflæmi í Asíu, Ást- ralíu og Suður-Ameríku Iítið sem ekkert rannsökuð ennþá? myndatökur og setjist ekki á máluð andlit leikaranna meðan á myndatöku stendur? —að samkvæmt upplýsingum sakamáladómara, er 2500 óleyfi- legum skammbyssuskotum árlega hleypt af í París, 4000 í New York og 6000 í Chicago? —að veðhlaupahestur getur hlaupið 1160 metra á mínútu, tígrisdýr ekki nema 850 metra, úlfur 560, en hérinn aðeins 400 metra? —að ungur ungverskur læknir, sem ekkert fékk að gera, en var blómelskur mjög, hófst handa með að lækna sjúkar innanhúss- plöntur — og að nú hefir hann meira að gera á þessu sviði en flestir læknar, sem stunda menn. Mamma hafði komist að raun um, að þörf væri að sannfæra Moniku litlu um nauðsyn þess, að fara snemma að sofa. “Vertu góð”, sagði hún, “eins og litlu hænungarnir. Þeir eru allir farnir að sofa”. “Já,” svaraði Monika, “en mömmuhænan fer að sofa um leið og þeir.” — Hvaða skelfileg hljóð og læti eru þetta þarna inni í hús- inu? — Ekki gott að segja. En lík- legast þykir mér, að annað hvort sé verið að drepa einhvern, elleg- ar þá, að einhver sá að fæðast! Bandaríkjapóstur tekinn í 2. sinn Póstur kom hingað frá Banda- ríkjunum í gær og tóku Bretar hann til skoðunar. Verður hann að öllum líkindum sendur til —að 17 kirkjusóknir í Hol- _______________________ landi hafa kosið sér kvenpresta? —að í Hollywood er það ein at- BORGIÐ HEIMSKRINGLU— vinnugreinin, að gæta flugna, svo þyí gleymd er goldin sltuld að þær eyðileggi ekki kvik-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.