Heimskringla - 01.10.1941, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 1. OKT. 1941
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
minsta kosti hér áður, að við
værum frændur. Má vera að
þeir hafi nú komist að raun
um, að við séum ekki náskyld-
ir þeim. Að vísu eigum við
sameiginlega forfeður, er uppi
voru fyrir einum 1500 árum, og
þó blóðblöndun hafi verið mik-
il og gagngerð í Mið-Evrópu og
Norður-Þýzkalandi á undan-
förnum öldum, þá mun eima
eftir af einhverjum skyldleika
frá fornöld milli okkar og
þeirra. Það kann að vera að
við getum kallast þrítugmenn-
ingar eða 45-menningar. Sagn-
fræðingar telja þrjá ættliði á
hverri öld, eins og menn vita.
En ekki er að búast við að
frændur í 30. eða 45. lið séu
sérlega likir. Og eftir því sem
stundir liðu fram hefir ættþró-
un okkar farið sitt hvora leið.
A
Það er rétt, að fyrir rúmlega
1000 árum voru það forfeður
okkar sem fóru í hernað til
framandi landa. Þá voru þeir
óþroskaða fólkið, sem rændu
verðmætum frá öðrum, er þeir
sjálfir gátu ekki framleitt,
glöddust yfir því að eiga ráns-
feng og voru hreyknir af að
hafa náð eignum annara. Þá
voru það þeir, sem töldu sér
heiður að því, að aðrir óttuð-
ust þá, því þeir fóru með meiri
grimd en aðrir, og orðum
þeirra varð ekki treyst.
Ættmeiður okkar tók brátt
að vaxa upp úr þessu, en þjóðir
þær, er sunnar bjuggu, héldu
bjargfastri trú á nytsemi lík-
amlegra refsinga og töldu að
blóðsúthellingar væru allra
meina bót. En löggjafir for-
feðra okkar, á miðöldum hurfu j
frá líkamlegum refsingum, og j
aftökur voru lítið í tísku. For-!
feður okkar brendu ekki einu
sinni galdramenn — dauða- j
refsing á báli var þeim einum
ætluð er sviku konung sinn og
fósturjörð.
Það var fyrst eftir að fursta-
ætt frá Norður-Þýzkalandi kom
til valda á Norðurlöndum, að
erlendar hugmyndir og aðferð-
ir komust inn í löggjöf okkar
og lífsvenjur, og kvalahegning-
ar og galdrabrennur komust
hér á.
Hvernig var í Noregi alt
þangað til í fyrra er öllum í
fersku minni. Við vorum horf-
in frá dauðahegningu, sem
einskonar villimensku fyrir 50
árum síðan. Það var vilji okk-
ar, að jafnvel hinir verstu
glæpamenn fengju þá meðferð
sem samviska bauð, með rétt-
læti og mannúð.
Látum okkur aldrei gleyma
að við vorum komin um þús-
und ár frá villimenskunni, frá
kvalafýsn og blóðþorsta. Við
vitum að þetta stafaði ekki af
því, að slíkar kendir væru al-
dauða í hugum vorum, en við
börðumst gegn þessum til-
hneigingum af heilum hug. —
Það átti að útrýma þeim eins
og hverjum öðrum óþverra.
Hetjulund sýndu þeir menn, í
okkar augum, er lögðu líf sitt í
hættu til þess að bjarga öðrum
frá dauða, t. d. er heilar skips-
hafnir vilja fórna lífi sínu til
að bjarga mönnum úr sjávar-
háska, eða bændur gera alt
sem í þeirra valdi stendur þó
ekki sé annað en bjarga búpen-
ingi úr ógöngum í klettum eða
jöklum.
Við vitum að það er erfitt
fyrir þá sem heima eru að
halda fast við alt sem er norskt
hugarfar og menning, hinn há-
leita vilja til rétlætis, fórnfýsi
og virðing fyrir mannréttind-
um, líka meðal þeirra veiku,
lasburða og þeirra sem hafa
glæpahneigð.
Til eru vissar tegundir
giæpahneigðar, sem vekur
meðal okkar svo innilegan og
óendanlegan viðbjóð, að ekki
er hægt að hata þá sem þvinga
okkur til þess að horfa upp á
og þola andstyggilega hluti. —
Fyrir ykkur, sem nú verðið að
horfa á að “ríkisráð”, samsett
af vikapiltum útlendinga, vill
stjórna Noregi, leggja niður
fánann okkar sem norsk skip
hafa siglt undir með heiðri og
sóma um öll heimshöf og blakt
hefir yfir sorgum okkar og
gleði alt frá því við vorum
smábörn í 17. maí skrúðgöng-
unni og vill taka upp merki
Ólafs helga, eftir að það hefir
verið atað í forarpollum svika
og lyga, fyrir ykkur er það
erfitt að muna hvað það þýddi
fyrir einu ári, að vera norskur.
En munið orð Runebergs, er
hann minti á, að enn kæmi
dagur, enn væri ekki öll von
úti. Enn berjast Bretar og
högg þeirra verða þyngri með
degi hverjum. Stærsta lýðræð-
isríki heims er nú vaknað og
veit um hvað er barist um
gervallan hnöttinn, barist fyrir
lífsréttindum manna og lífs-
hamingju.
Og fyrir yfirunnar þjóðir Ev-
rópu er vert að muna orð hins
háleitasta andans manns er
Svíþjóð hefir alið, eins þess
mesta manns af norrænni ætt
sem séð hefir dagsins ljós:
“Þeir yfirunnu eiga eftir sin
vopn — þeir áfrýja til Guðs.”
—Lesb. Mbl.
Hennar verður mikils saknað
af öllum sem þektu hana, og
lengi munu vinir hennar, sem
voru margir, minnast hennar.
P. M. P.
‘TÍMARNIR BREYTAST”
(Til Þ. Þ. Þ.)
DÁNARFREGN
Miðvikudaginn 24. sept. fór
fram útför á Mountain, N. D.,
er Anna Jóhannesdóttir (Mrs.
Hannes Björnsson) 70 ára að
aldri, var jarðsungin, og fluttu
líkræður prestur Lúterska
safnaðarins á Mountain, séra
Haraldur Sigmar, og séra Phil-
ip M. Pétursson, prestur Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg. —
Húskevðja fór fram áður en at-
höfnin var haldin í kirkjunni í
Mountain og þar flutti séra
Philip M. Pétursson ræðu, en
séra Haraldur Sigmar bæn. —
Fjöldi vina og ættingja voru
við báðar athafnir.
Anna heitin var dóttir þeirra
hjóna Jóhannesar Magnússon-
ar frá Hóli í Tungusveit í
Skagafjarðarsýslu og Stein-
unnar Jónsdóttur frá Skardals-
koti í Siglufirði, og var fædd
11. júni, 1871.
Systkini hennar voru fimm,
sem öllu eru nú dáin nema
einn bróðir, Jón J. Magnússon,
sem er nú sem stendur í Moun-
tain, N. D., en hefir búið mörg
ár í grend við Akra. Hin syst-
kinin voru: Guðrún. kona
Rögnvaldar (Walter) Hillman
á Mountain; Helga. kona Frí-
mans Hannessonar sem bjó á
Mountain og seinna í Mouse
River; Pétur, sem átti heima i
Árborg, Man., og Asmundur,
sem bjó í Selkirk.
Anna heitin kom til Vestur-
heims árið 1888, og settist að í
íslenzku bygðinni i N. Dak., og
fimm árum seinna, 3. júlí 1893,
giftist hún Hannesi Björnssyni,
sem er ættaður frá Mælifellsá í
Skagafirði. Fyrri kona Han-
nesar dó frá þremur börnum,
og kom nú Anna í móðurstað,
og sá um þau eins og þau væru
hennar eigin. En þau börn eru
nú öll dáin. Börnin sem nú
lifa hana og sVrgja hana, eru
sex, fimm alsystkini og ein
hálfsystir, dóttir önnu, Lauga,
Mrs. G. Q. Kristjánsson, sem
býr á næsta landi við land
móður hennar sál. og stjúpföð-
ur, Hannesar. Hin systkinin
eru: Hannes Jón, í Hensel, N.
Dak.; Hjólmar, á Garðar; Steini
í grend við Hensel; Sigurður
með Canada-hernum á Eng-
landi, og sem bjó í Selkirk,
Man., áður en hann gekk í
herinn; Helgi, í heimahúsum,
og Anna, sem býr einnig á
heimalandinu og sér nú um
heimilið.
Anna heitinn var kærleiks-
rík móðir og góð eiginkona.
Hún var félagslynd mjög, og
tók mikinn þátt i starfi kven-
félags Eyford-safnaðar. Á
heimilinu var hún sívinnandi.
glöð í anda, umhyggjusöm og
einlæg.
Þú ert stiltur, Þorsteinn
—Það er engin lýgi—
þrotlaus þolinmæði
þín—á hæsta stígi.
Einrænn ugludómur
ef mér væri sendur
mundi eg köldum klaka
kasta á báðar hendur.
Veit eg sigursælli
samt er þögn og stilling
meðan framhjá flýtur
fordómanna trylling.
Oft varð þras um “Þyrna”
Þorsteins Erlingssonar:
drengur sá var dæmdur
dómum ýmis konar.
Fordóm fékk að launum
Fjallaskáldið góða
fyrir sál og sannleik
sinna beztu ljóða.
Nú er nafni beggja
nælt á hæstu fána;
þeir, sem þrá að fljúga,
þeirra fjaðrir lána.
Sannleik “Sögu” þinnar
seinni tímar geyma,
blessa bækur þínar
bæði vestra og heima.
Sig. Júl. Jóhannesson
skoða myndina af kerlingunni
frá Perú. Gissur Elíasson.
ÍSLENZKAN 1786
STUNDUM ER BETUR
FARIÐ EN HEIMA SETIÐ
Nýlega var gerð tilraun til
að hrinda í framkvæmd þeirri
hugmynd, að gefa alþýðufólki,
víðsvegar um Canada og
Bandaríkin, kost á að kynnast
opinberlega ýmsum listamál-
verkum úr Vesturálfu heims.
Fyrir þremur árum stofnaði
eitt af voldugustu verzlunarfé-
lögum heimsins “International
Business Machines” að nafni,
til þessarar framkvæmdar með
því að kaupa og safna í eina
heild myndum eftir fræga list-
málara, — tvær úr hverju ríki,
frá Alaska til Cape Horn og frá
Atlantshafi til Kyrrahafs. Fé-
lagið gerði þetta í þeim til-
gangi að auglýsa sig og vörur
sínar sem víðast í landinu og
hefir sú tilraun síðst látið sér
til skammar verða; því fleiri
merkismyndir sem safnið eign-
ast, því meira umtal og aðdáun
vekur það; og stuðlar það
þannig óbeinlínis að vekja
meiri þekking á eigendunum
og vörum þeirra. Auk þess er
forseti félagsins, Mr. Watson,
er hefir umsjón með öllu er að
þessu lýtur, mjög hlyntur list-
málurum, og bendir á í for-
mála fyrir kveri er skýrir
myndirnar, að listin geti átt
verklegan þátt í athöfnum
hversdagslifsins.
Það sem fyrir mér vakir með
þessum orðum er, að draga at-
hygli fólks að myndasafni
þessu, og sem öllum er heimilt
að skoða meðan það er hér í
bænum. Myndirnar eru til
sýnis daglega frá kl. 2.30 til kl.
5.30 og einnig frá kl. 7.30 til
9.30 e. h. í listastofunni í Audi-
torium. Ekki ætti fólk að
draga það að heimsækja þessa
stórmerkilegu sýningu, því
myndirnar verða fluttar til
London, Ont., um þann 8. okt.
n. k. Oft að undanförnu hafa
svipaðar myndasýningar, þó
engin eins stórkostleg og þessi,
staðið fólki til boða, en það er
mikið vafamál hvort Islending-
ar. yfirleitt h-afi notfært sér
slík mentatækifæri sem skildi,
og stafar það mest, ef til vill,
af þvi, að þeim var eigi kunn-
ugt um þau í tæka tíð. — Að-
gangur er ókeypis og geta því
allir farið og skoðað sig um,
þó ekki væri nema fyrir for-
vitnissakir, eða bara til að
í einu tímaritanna íslenzku
(Óðni 5 ár, 3. blað), hefi eg
rekist á bréf það, sem hér fer
á eftir. Það er skrifað á Jök-
uldal og segir manni í Reykja-
vík frá láti sonar hans. Er
bréfið hér að gamni birt. Það
sýnir að því er ætla má, stíls-
máta og stafsetningu sendi-
bréfa á Islandi í lok 18. aldar;
hún mun hafa verið þessu lík
annar staðar en á Jökuldal.
Virðulege Velforstanduge
Heidurs Man Trigdreinda
elskulege Vin. Drotten gaf
drotten Burtok hans blessada
Nafn vil eg bera í brjoste og
Sleppa ej, Sú hlyfd mun mier
hollust vera, hvort Sem eg lyfe
edur Dei.
Nú fyrir Lyttellra Stúndu,
Hefúr ockar Himneska Födur
þocknast ad biírt-kalla Ydar
Elskulegan Son frá þessú ty-
manlega, til þess Eylyfa lyfs,
Epter þad han hafde uppfilt
mæling Jesú hörmunga og
bored Þolinmódlega Hans
Strídsmerke epter Honum og
ad Hans blessúðum Vilja, Hier
í guds nadarriki, Hann Lyfer
nú hia Synum Endurlausnara
Jesú Ljómar ætyd Sem Skiæra
Söl, Nú í þessu ásigkomúlage
jgiet eg valla Vændt ad Þier
edúr Nockúr Ydar, giete Vered
Nalæger vid Jardarfór ockar
blessada ástvinar (Þo mier
anars Hefde Hugarhægd Ver-
ed). En þar hier um plass er
mióg bagdt til manrads, Vil eg
tilmælast (ef skie Kine) ad
Hrafnkiels Dals bændúr giæd-
úd Vered lykmen, Eg Skrifa Nú
Jone Mínum til ad Koma og
Smide Kistúna, Næsta Ekert
Hefe eg af því Brene Vine Sem
verdt er ad brúka fyrer alþydu,
En þó Vil eg til Sia (Lofe gud)
ad Lykmenerner Verde avarp-
ader, Drotten Jesú giefe oss
óllum ad Drecke nytt gledenar
Vin og mettast af Guds Húss
nægðargiæðum, úm óll ár Ey-
lyfdarenar. Eg Kved Ydúr med
Nalægúm Ástvinum fyrer mig
og mina Astsemdar Kvediu
Kosse Forblifande.
Ydar Heidursamur
elskande vin,
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
FJÆR OG NÆR
Minningarrit
Þeir, sem eignast vilja 50
ára minningarrit Sambands-
safnaðar, geta eignast það með
því að senda 50^ til Davíðs
Björnssonar, 702 Sargent Ave.
Ritið er mjög eigulegt, með
myndum og ágripi af sögu
kirkjunnar á íslenzku og ensku.
* * *
Landnámssögu Islendinga
í Vesturheimi
má panta hjá Sveini Pálma-
syni að 654 Banning St., Dr. S.
J. Jóhannessyni að 806 Broad-
way, Winnipeg og Björnson’s
Book Store and Bindery, 702
Sargent Ave., Winnipeg.
# # *
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 5. okt. 17. sd. e. tr.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Is-
lenzk messa, kl. 12.15 e. h. —
Ensk messa kl. 7 e. h. Allir
boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
# # #
Bœkur til sölu á Heimskringlu
Endurminningar, 1. og n.
hefti, alls 608 blaðsíður, eftir
Friðrik Guðmundsson. Verð
upphaflega $2.50, báðar bæk-
urnar; nú $1.00.
Hetjusögur Norðurlanda, um
200 blaðsíður að stærð, eftir
Jacob A. Riss. Islenzkað hefir
Dr. Rögnvaldur Pétursson. —
Verð 35c.
Upplag þessara bóka er lítið.
Þeir sem eignast vilja þær,
ættu því að snúa sér sem fyrst
til ráðsmanns Hkr.
* # •
Samkoma verður haldin á
Víðir 10. okt. n. k. til arðs fyrir
sumarheimili barna á Hnaus-
um. Þar skemta meðal annars
séra Philip Pétursson með
ræðu og P. S. Pálsson með upp-
lestri gamanvísna.
# • *
Lítið inn
Enn hefi eg eftir nokkrar
bækur nýkomnar að heiman,
þar á meðal Sólon Islandus,
tvö bindi í bandi, bæði á $6.00
Markmið og leiðir $1.25; —
Mannslíkaminn, eftir Jóh. Sæ-
mundsson, í bandi $1.25 og
ýmsar fleiri bækur. Sendið
eftir bókalista. Á von á nýj-
um bókum að heiman bráð-
lega.
Björnsson's Book Store
702 Sargent Ave., Winnipeg
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO.. LTD.
Birgðir: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ANÆGJA
Hin árlega tombóla Sam-
bandssafnaðar verður haldin
mánudaginn þann 3. nóvember
nœstkomandi. Nánar auglýst
síðar.
* • *
Þakklœtisguðsþjónustur við
Churchbridge o. v. I okt.
í Hólaskóla kl. 11 f. h. þ. 5. 1
Hólaskóla ensk messa sama
dag, kl. 3 e. h. 1 Concordía
söfnuði þ. 12, og í Lögbergs
söfnuði þ. 13, kl. 2 e. h. Við
Winnipegosis þ. 19, kl. 11 í Red
Deer Point skóla og kl. 3 e. h. í
Winnipegosis sama dag. í Con-
■cordía söfnuði þ. 26. S. S. C.
* # #
íslenzk guðsþjónusta
í Vancouver, B. C.
verður haldin, er G. I., kl. 3
e. h. næsta sunnudag, í dönsku
kirkjunn á horni W. 19th Ave.
og Burns St. Komið sjálfir og
látið sem flesta vita.
R. Marteinsson
# * •
Lúterskar messur
í Vatnabygðum
Sunnud. 5. okt.: Mozart, kl.
11 f. h. á islenzku. Wynyard
kl. 3 e. h. á ensku. Kandahar,
kl. 7.30 e. h. á ensku.
B. T. Sigurðsson
# # ♦
BJÖRNSSON'S BOOK STORE
702 Sargent Ave., Winnipeg
Hefir mikið úrval af skóla-
bókum, pappír, bleki, og skrif-
bókum, nótnabókum, strok-
leðri, blýöntum og ýmsu fleira
fyrir skólabörn.
Komið og lítið inn.
Dómarinn: Hversvegna stál-
uð þér?
Sakborningurinn: Neyðin
knúði á dyr hjá mér.
Dómarinn: Þér hefðuð getað
látið vera að ljúka upp.
* • •
— Hversvegna sagðir þú
lúðraþeytaranum upp, Clara?
— Það var altaf málmbragð
af honum.
WINNIPEG
Þörf hans er sú sama
| p STOFNANIR FYRIR BÖRN
■ “ (á öllum aldri og þroska)
HvatSa mun gerir þat5 til hans, hvort atS ó-
hamingjan henti hann í Warsaw . . . Cov-
entry . . . etSa Winnipeg . . . hann et5a
hunórat) hundrut&ir annara er fyrir áfellum
hafa ortHtS hér vor á metSal? Þ*etta eru hin
munatSarlausu börn eöa félaust gamalt fólk,
er blinda, krabbi etSa önnur mein þjá, er
þarfnast lœkninga vit5, en geta ekki veitt
sér þab, vegna þess ab fét5 skortir. Nei, hér
er ekki um aö kenna sprengjuárásum eöa
þesskonar áföllum, en hagur hjálparþurf-
anna er engu síöur sárgrætilegur.
Daginn út og inn vertSur Community Chest
ab halda áfram, og bæta hag þeirra, sem
fyrir áfalli hafa orbiö. ÞaS vert5ur aö finna
þeim skjól, klæba þá og lækna, sem á kom-
andl ári mun kosta $10,000 meira en áöur.
Svo til þess atS ná takmarkinu, $315,000.00,
þarf hver og einn ab gefa dálítib meira
STOFNANIR ER SJA
UM ALDRAÐA
STOFNANIR FYRIR
HEILSUEFTIRLIT
STOFNANIR FYRIR
FJÖLSKYLDUR
STOFNANIR TIL UPP-
ELDISLEIÐBEININGAR
SMBKÍ!
SEPT.22-OCT.4