Heimskringla - 14.11.1945, Qupperneq 1
■ - I We recommend for
I your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Wmnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LX. ÁRGANGUR
We recommend for
your crpproval our
" BUTTER-NUT
LOAF
//
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 14. NÓV. 1945
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
NÚMER 7.
frettayfirlit og umsagnir
33 um bæjarráðsstöðurnar
. í öæjarstjórnarkosningunum í
Winnip=g 23. nóv., sækja 33 um
fulltrúastöðurnar, en þær eru l^
alls, þrjár bæjarráðs- og 3 skóla-
ráðsstöður í hverri af hinum
þremur kjördeildum borgarinn-
ar.
Kosið verður eftir hlutfalls-
kosninga fyrirkomulaginu.
Á kjósendaskrá eru 162,555
nöfn.
Kjósendur greiða atkvæði um
leið um þrjú mál. Hið fyrsta er
2 miljón dala veiting til full-
komunar á framræslu bæjarins.
Annað er ein miljón dala veiting
byggingar fjögurra nýrra
skóla. En þriðja málið er 650,-
600 dala veiting til byggingar
beimilis fyrir aldraða og ósjálf-
kjarga.
Um bæjarráðsstöðurnar sækja
1 fyrstu kjördeild: C. E. Graham,
Kilda Hesson núv. bæjarfulltrúi,
U. A. Mulligan núv. fulltrúi, C.
E. Simonite núv. fulltrúi, George
A. Wood. í annari kjördeild: V.
K Anderson núv. fulltrúi, Paul
Kardal, James Black núv. full-
trúi, Howard NfcKelvey, John
McNeil, Jack St. John núv. full-
Paul Bardal
1 síðasta blaði birtum vér
myndir af tveimur íslenzkum
fulltrúum, sem um kosningu
sækja í bæjarkosningunum 23.
uóv. Hér kemur mynd af þeim
þriðja, Paul Bardal, sem áður
var hér lengi bæjarráðsmaður og
kosning ætti, vegna góðrar og
glæsilegrar reynslu, að vera vís.
Hon,um var starfið orðið svo inn-
an handar og kunnugt, að borg-
arstjórar fólu honum sæti sitt,
ef þeir þurftu frá að víkja. Hann
er ótrauður framfaramaður og
raunhæfur svo, að mörg þau mál,
'er hann hefir gerst flutningsmað-
ur að, hafa í framkvæmd komist.
Eftir því sem hann hefir fengið
uieiri og meiri reynslu,< hefir
hann gerst stórtækari í umbóta-
tillögum sínum. Og aldrei hefir
hann stungið upp á eins mörgum
°g stórum verkefnum og nú, og
skal í því efni vísað til útvarps-
ræðu hans nýlega, sem birt er á
óðrum stað í þessu blaði.D Fyrir
fslendingum gerist ekki þörf á
að lýsa honum frekar. Hann hef-
lr svo mikið á meðal þeirra starf-
að í félagsmálum og vakið hjá
þeim fögnuð og gleði með söng
sínum, að vér erum vissir um að
'þeir staldra við nafn hans á at-
kvæðaseðlinum og drepa þar
rúður blýantinum. Það væri að
sýna honum ofurlítinn þakklæt-
isvott fyrir hans ágæta félags-
starf.
U Þýðingu áminstrar ræðu
var of seint lokið fyrir þetta blað
eri kemur í næsta blaði.
trúi. 1 þriðju kjördeild: Frank
Baschak, John Blumberg núv.
fulltrúi, Frank L. Chester, Jos.
Forkin núv. fulltrúi, George
Stapleton, Joseph Stepnuk núv.
fulltrúi.
1 skólaráð sækja þessir — í
fyrstu deild: George R. Belton,
E. J. Conway, A. H. Fisher, W. S.
McEwan, Mrs. D. A. P. McKay.
í annari deild: Adam Beck, H. A.
Chappell, James Dunn, séra
Philip M. Pétursson, Roy Shef-
ley. — 1 þriðju deild: Meyer
Averbach, F. W. Browbridge,
Mrs. Jean Danyleyko, George
Dixon, A. Zaharychuk, Joseph
Zuken.
Atom sprengjan enn
Á fundi þeirra Attlee, Kings
og Trumans í Washington um
síðustu helgi, kom sem fyr til
mála hvað gera ætti við atom-
sprengjuna. Sumum virðist hún
svo mikið barnagull, að gefa
ætti öllum heimi hana sem fyrst,
að leika sér að. Á meðal þeirra
er Molotov, sem von var til. —
Öðrum finst Bandaríkin eina
landið, sem fyrir henni sé trú-
andi. Tillaga Attlees, forsætis-
ráðherra Breta, er sú, að nefnd
vísihdamanna úr hópi allra
banaaþjóðanna, sé falin ábyrgð
og eftirlit hennar og allra slíkra
vopna, sem upp verði fundin hér
eftir. Þetta er nú nógu álitlegt,
en ef einhver þjóð skyldi nú ekki
segja frá vopnum sínum, fyr en
hún væri búin að leggja undir
sig heiminn með þeim, hvernig
færi þá? Um atom sprengjuna
vissi enginn fyr en búið var að
vinna japanska stríðið með
henni. Mr. King, forsætisráð-
herra Canada, mun Attlee sam-
mála. Hvernig um þetta mál
fer, er óvíst ennþá.
Séra Philip M. Pétursson
Eins og getið var um í síðasta
blaði, sækir séra Philip M. Pét-
ursson prestur Sambandskirkj-
unnar í Winnipeg, um endur-
kosningu í skólaráð borgarinnar
í kosningunum sem fara fram 23.
nóv.
Séra Philip hefir í þrjú ár set-
ið í skólaráðinu og þó sá tími sé
ekki langur, hefir starf hans þar
af meðnefndarmönnum hans
verið álitið það mikilvægt, að
hann hefir verið kosinn aðstoðar
forseti skólaráðsins.
Þetta er ekki mótvon. Áhuga
og alhliða þekkingu fyrir því
sem gera þarf í skólaráðinu
munu fáir meiri hafa en hann.
Á síðast liðnum þremur árum,
hefir hann tekið drjúgan þátt í
öllum þeim málum sem horft
hafa til hins betra í skólaráðinu.
Hann hefir stutt Kindergarten
hugmyndina með ráði og dáð og
á sinn þátt í að hún er nú í fram-
kvæm komin innan skólanna. —
Hann berst og mikið fyrir endur-
skoðun á öllu starfi skólanna og
vill ekki einungis sjá það endur-
bætt, heldur og sumar skólana
sjálfa ekki sízt þá 50 ára gömlu!
Eitt þeirra mála er hann hefir
haldið fram, er að skólaráðið
hafi sjálft sitt brunabótafélag og
gangi þar á undan bæjarráðinu,
er honum finst að ætti að hafa
vátryggingartekjurnar, eigi síð-
ur en hinn mikla kostnað við
eldvarnir bæjarins.
Það er ekki spursmál um það,
að það er ærið margt sem um-
bóta þarf hér með bæði í skóla-
og bæjarráði. Og það eru hinir
ungu menn með þekkingu og
* Er Ihnr^rrja
/
i.
Er laufskálar hrynja og lundirnir gisna
og ljóminn og ylurinn hverfa,
og söngfuglar kveðja og vorblómin visna
og vetrarspár hugans lönd erfa,
en næturnar lengjast og ljósin öll slokna
á langdegi sólríkrar tíðar,
þá kvöldskuggadísin með haddbylgju hrokna
úr heldimmu myrkvasal smíðar.
Og inn í hann býður hún öllum þeim lýðum,
sem óttast hinn sárkalda vetur,
og öllum, sem mist hafa í orustuhríðum
sín óðul og bjargráð og setur,
og öllum, sem bera hin ógrónu sárin
og ólæknuð mein sinnar tíðar,
og öll geyma í hjartanu ógrátnu tárin
og ófriðar sorgirnar stríðar.
En aleinn hver berst í þau koldimmu kynni,
er köld eru um daga sem nætur,
og sönglausa ríkir þar einveran inni
með ógoldnar harmanna bætur.
Þar örvænting sérhvern þann drepur í dróma,
sem drápsbyrði þrælsóttans sligar,
og rændur var manndómi, réttindum, sóma
af riddara, er hundunum sigar.
II.
1 stríðsgróða kapphlaupi stórsprengjuára,
hver stund er of dýrmæt að eyða,
en stundum þó mætti án sakar og sára
þann seinförla spottakorn leiða,
og spörkuðum einstæðing liðsyrði leggja,
þann lémagna reisa og styðja,
og ráfandi daufingjann örva og eggja
ien aumingja kenna að biðja.
En starfsríki nútímans: eyðslan og óttinn,
sér eiga mjög djúpsettar rætur,
svo jafnvel á stórríkum níðist mörg nóttin,
og nýríkur valta ber fætur. —
Það örfáir smíða úr andvökum kvæði
með ómþýða tóninum hreina
ef blasir mót hugskotssýn foröð og flæði
á fagnaðarveginum eina.
III.
Öll jörð er í sárum er haustsólin hnígur;
í hungurkví þrælar enn standa;
og sigurinn jafnvel sem særður örn flýgur
í sortann til framtíðarlanda.
Þótt vor komi aftur að vetrinum liðnum,
þá verður samt oflangt að bíða
þess sumars, er jafnréttið færir með friðnum
og fögnuðinn gervallra lýða.
Þ. Þ. Þ.
hornleikaraflokki. Um leið og
vér minnumst alls þessa, þykir
okkur nú sárt að verða að sjá
honum á bak ekki sízt skólasyst-
kinum hans, því hann er að flytja
til Winnipeg til að stunda ann-
ars bekkjar nám á læknaskóla
Manitoba háskóla:
Foreldrar Stuart eru læknis-
hjónin, Dr. C. F. Houston og
Dr. Sigga Kristjánsson Houston,
sem útskrifaðist 1925 af lækna-
skóla Manitoba. Hún hefir
stundað læknisstörf með manni
sínum í Yorkton, Sask., síðan
1926.
SÆKIR UM ENDUR-
KOSNINGU
framfarahug, sem það starf verð-
ur að fela.
Einlægari fulltrúa í velferð-
armálum almennings, en séra
Philip, verður erfitt að benda á.
En hann hefir auk þess reynslu,
bæði sem kennari og prestur, í
því er sérstaklega lýtur að fræð-
slumálum, yngri sem eldri.
Reynslan hefir þegar sýnt, að
hann er þarfur maður í skólaráð-
inu og það ætti að vera kjósend-
um sérstakt ánægjuefni, að hann
getur helgað skólamálum bæjar-
ins að nokkru starfi sitt.
Dagblöð vélrituð
Dagblöðin í Winnipeg hafa í
nokkra daga komið út vélrituð í
staðinn fyrir prenutð og bæði til
samans átta blaðsíður að stærð.
Fyrir prenturum þeirra lá að
gera nýjan samning við blöðin
en fyrir breytingar frá því ssm
áður var, svo sem 40 kl.stunda
vinnu á viku með sama kaupi og
áður fyrir 46 stundir, vildu blöð-
in ekki skrifa undir endurnýjun
verkasamningsins. Blöðin hafa
farið fram á, að málið væri lagt
undir dóm óviðkomandi manna,
eða dómsvaldsins, en prenturum
geðjast ekki að því. Hjá dag
blöðunum má því heita fullkom-
ið verkfall. Samningsumleitan-
ir halda þó áfram, en útlitið misð
að sakir verði jafnaðar, eru litlar
Góður námsmaður
Jack St. John lyf jafr.
í bæjarkosningunum í Winni
psg, sem fara fram 23. nóv., sæk-
ir Jack St. John lyfjafræðingur
og núverandi bæjarráðsmaður
um endurkosningu. Hann var
kosinn fulltrúi annarar deildar
fyrir tveim árum. Hefir hann
lengi átt heima í þessari kjör-
deild; rekur hann þar lyfjasölu
og á sívaxandi vinsældum al-
mennings að fagna
Það fyrsta sem kom Mr. Jack
St. John til að láta sig bæjarmál
skifta, var að reyna að kippa
lag því er hér var áfátt í hrein
læti bæjarins. Það >er fyrir hans
ötulleik í þessu máli, að samþykt
hefir verið að kaupa brensluofn
fyrir úrgang; fyrir framkvæmd
um þessa máls mun hann enn
beita sér.
Umbætur á súkrahúsum og
opinberri aðstoð læknisþurfa
eru þungar búsifjar almenningi.
Hann vill finna nýja aðferð til
fjáröflunar en eilífa skattahækk-
un; þó skattar þeir séu lagðir á
viðskifti eða fasteignir, vita all-
ir að almenningur greiðir þá.
Margt af því, sem Mr. Jack St.
John hefir aðhafst í bæjarráð-
inu, bendir til þess að hann unni
framförum. Hann er Ungur mað-
ur og á eflaust ítök sín hjá æsku-
lýðnum. Það er ekki það mik-
ið æskumót á bæjarráðinu, að
við ekki stæðum okkur vel við
að hafa hann þar og þó fleiri
ungir menn væru.
Mr. Jack St. John hefir verið
valinn af Borgarnefnd (C.E.C.)
þessa bæjar til að sækja undir
merkjum hennar í annari deild
Winnipegborgar. Hann er fædd-
ur í Portage La Prairie, en
stundaði háskólanám í Winni-
peg. Núverandi stöðu sína, lyfja-
sölu hefir hann rekið í 12 ár í
deildinni, sem hann sækir nú í
um endurkosningu. Hann til-
heyrir mörgum félögum í bæn-
um svo sem :Isaac Brock Com-
munity Club, West End Lawn
Bowling Club, Thistle Curling
Club og öðrum sport klúbbum,
Ungra manna deild verzlunar-
ráðsins (Board of Trade), United
Commercial Traveller’s Associa-
tion og er í framkvæmdastjórn
Manitoba Retail Druggists Assn.
Sýnir þetta hvað víðkunnur Mr.
Jack St. John er og h.ve félags-
legt starf hans er mikils metið.
Hann er giftur íslenzkri konu,
Rögnu, dóttur Mr. og Mrs. Gísli
Johnson, Winnipeg.
Eftir því sem blaðinu Yorkton sem hana eigi veitt sér nægi-
Enterpris segist frá 25. október, ieg3) vegna efnaleysis, er annað
hefir dreng í Yorkton, sem Stu-1 áhugamál Mr. Jack St. John. —
art Houston heitir, hlotnast sá Hann er og emn þeirra, er ó-
heiður að hljóta medalíu þá, er trautt vinnur að því að hér kom-
landstjóri Canada veitir fyrir á- jst á fót lækninga miðstöð, svo
gæta ástundun og góða náms-;ag bærinn verði sjálfstæðari
hæfileika sýnda af unglingum á þessum efnum en áður og íbú-
miðskólaaldri og sem vonir gefa arnir þurfi ekki til fjarlægari 1
staða að leita sér læknarann
sókna.
um að geta orðið forustumenn
með tíð og tíma í félagslífi borg-
ara landsins.
Þriðja málið sem Mr. Jack St
Segist nefndu blaði svo frá, að John hefir ekki einungis látið
þetta komi þeim ekki á óvæntjsig miklu skifta, heldur
sem Stuart Houston þekki og hefir gerst forustumaður að
telja hann í fylsta máta verð- bæjarráðinu, er að koma hér
skulda heiðurinn. Við sem skóla-^ upp miðstöð í fimleikum og í-
ferli hans höfum fylgt, vitum þróttum, sem minnismerki yfir
hve framarlega í hópi nemenda fallna hermenn í síðasta stríði
hann hefir þar staðið. En við Liggur hér fyrir sem annars
vitum einnig, að hann hefir oft staðar að reisa þeim minnis
sýnt hve hæfileikar hans eru merki. Og það mun flestra mál
alhliða og að þeif hafa eigi síður ag minningu þeirra verði ekki
utan skóla en innan notið sín. með öðru betur á lofti haldið en
Við munum öll eftir Rotary því, er styrk og táp vekur hjá
Hobby Fair skemtuninni á s. 1. j æskunni. Þessi borg er enn
ári, er hann stjórnaði og sem al-|undra gamaldags í þessum efn-
menna aðdáun vakti. Hann hefir! um og afturhaldssöm. Það var
um skeið verið ritari náttúru -' einmitt þetta uppeldi, sem grísku
sögufélagsins og ritstjóri blaðs þjóðina gerði til forna að fremstu
þess, The Blue Jay. Ennfremur þjóð heimsins.
hefir hann aðstoðað við útgáfu Mr. Jack St. John er á móti
blaðs þeirra The Spoke. I leik- hækkandi sköttum. Hann álítur
sýningum hefir hann hér tekið ef ekki sé neitt taumhald þar,
þátt og hann vann tvisvar sigur j leiði af því, að heimiliseigendur
í Bryan mælskukeþni í skólan-jtapi eignum sínum; skattar
um. Hann spilaði hér einnig íjStjórna í hvaða mynd sem eru,
FRá sendiráðinu
í WASHINGTON
Herra ritstjóri:
Eg^vil hér með skýra yður frá
því, að breytingar hafa nýlega
orðið á starfsliði íslenzka sendi-
ráðsins í Washington.
Þórhallur Ásgeirsson hefir
nýlega látið af starfi sínu sem
sendiráðsritari og tekið við full-
trúastöðu í utanríkisráðuneyt-
inu í Reykjavík.
Þórhallur Ásgeirsson starfaði
við sendiráðið frá því í júlí 1942,
fyrst sem Attache, en síðar sem
sendiráðsritari. Þórhallur er
farinn til íslands ásamt konu
sinni og barni.
Nýlega hefir verið skipaður
Attache við sendiráðið, Ólafur
Björnsson. Ólafur er sonur
Sveins Björnssonar forseta og
frú Georgiu Björnsson. Hann
lauk lagaprófi frá Háskóla Is-
lands 1943 og var aðstoðarmaður
utanríkisráðuneytinu frá árs-
byrjun 1944 til júlíloka s. á., er
hann var skipaður Attache við
sendiráð íslands í London. Því
starfi hélt hann þar til hann var
skipaður Attache við sendiráðið
í Washington.
Virðingarfylst,
Thor Thors
Nehru, foringi Congress-
flokksins á Indlandi, sagði á
sunnudagskvöldið, að það væri
skylda Indverja, að gera nú upp-
reist. Ef þjóðin væri ekki und-
ir íþað búin, væri hún sama sem
dauð.
* * *
George S. Patton hershöfð-
ingi, hefir verið settur yfir her
Bandaríkjanna í Evrópu, meðan
Eisenhower yfirhershöfðingi er í
heimsókn til Bandaríkjanna.
*■ k *
París hefir verið valin af
Bandaþjóðunum sem höfuðból
deildar þeirrar, er umsjón hefir
mentamála, vísinda og menning-
arstarfsemi í heiminum.