Heimskringla - 21.11.1945, Side 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 21. NÓV. 1945
SAMVINNA ÞJÓÐANNA
Eftir Jónas Jónsson
Þegar Danir viðurkendu 1918,
að Islendingar væru sjálfstæð
þjóð, settu íslendingar þá yfir-
lýsingu fram í sáttmála sínum
um frelsið, að þeir yrðu hlutlaus
og vopnlaus þjóð bæði í nútíð
og framtíð. Þegar sambandssátt-
málinn féll úr gildi, 17. júní
1944, var bókstafur hlutleysis-
yfirlýsingarinnar numinn úr
gildi, en andi friðarstefnunnar
var óbreyttur í hug þjóðarinnar.
Ekkert var fjær íslendingum en
að hugsa til að koma á vopna-
burði í því skyni að berjast við
aðrar þjóðir.
Vegamót 1940
Vorið 1940 hafði síðari heims-
styrjöldin staðið eitt missiri. Hún
hafði ekki náð til íslenzku þjóð-
arinnar fremur en margar fyrri
styrjaldir Evrópuþjóðanna. En
snemma í apríl barst landsmönn-
um sorgarfregn. — Þjóðverjar
höfðu svikist að Dönum og Norð-
mönnum á einni nóttu, rofið öll
heit um frið og gott nábýli og
sett á stofn ógnarstjórn í báðum
löndum. Litlu síðar kom röðin
að Hollandi og Belgíu. Að því
búnu voru Balkanlöndin öll lögð
undir veldi siðlausra ránsmanna,
markalausri grimd og dýrsæði
við þjóðiir, sem ekki höfðu
vopnamátt til að standast óvina-
árás eins og hinar undirokuðu
þjóðir fengu að kenna á frá
hálfu Þjóðverja.
Hemaðarþýðing íslands
Hernaðartækni var nú svo
breytt, að í stað þess að Island
var áður algerlega utan við bar-
áttusvið stórþjóðanna, þá var
það nú orðið einhver þýðingar-
mesta hernaðarstöð í heimi.
ísland fekk þann vafasama heið-
ur að verða í þsssu efni nefnt um
leið og Gibraltar, Malta og Singa
pore. Eftir að Þjóðverjar höfðu
hernumið Noreg, var þeim leik-
ur einn að taka ísland. Til þess
höfðu þeir nægan herafla á landi
sjó og í loftinu. Ef Hitler hefði
náð Islandi, hafði hann þar hina
æskilegustu aðstöðu til árása á
England og síðar á Ameríku,
bæði með kafbátum og flug-
vélum. Þjóðverjar höfðu beðið
um að mega setja hér upp flug-
stöð 1938, en Alþingi neitaði ein-
um rómi þeim tilmælum. Þegar
svo var komið, að Þjóðverjar og
Engilsaxar háðu baráttu um líf
eða dauða, var engin von að Is-
land gleymdist. Hlutleysisyfir-
lýsingar dugðu ekkert. Gríða-
sáttmáli Dana við Þjóðverja var
ekki virði þess pappírs, sem hann'
var ritaður á. Eftir hernám Dan-
verjar eða Bretar myndu koma
hér fyrr.
Hungurkví með Þjóðverjum.
Ef Þjóðverjar hefðu orðið á
undan Bretum og sett hér á
land lið og vopn, myndi hið
varnarlausa land hafa fallið
fyrirhafnarlaust í hendur hinn-
ar voldugu herþjóðar. Þjóð-
verjar þektu ísland betur en
nokkur önnur þjóð, og erum við
Islendingar þar ekki undan-
skildir. Þjóðverjar myndu í
skyndi hafa komið hér upp flug-
og kafbátastöðvum. — Bretar
myndu hafa lagt hafbann á land-
ið og gert siglingar þangað frá
Noregi ótryggar og erfiðar. Þýzki
herinn hefði þá orðið að lifa af
landinu og notið þar hörku -og
ráðsnildar. Islendingar hefðu
verið hneptir í þrælkun og
látnir afla með vinnu sinni
þeirra afurða á sjó og landi, sem
mest máttu verða að liði hinum
nýju húsbændum. Þjóðin hefði
verið svipt öllu frelsi, öllum
eignum, allri sjálfstæðri atvinnu
og hver sá, sem möglaði undan
hinni nýju skipun verið fangels-
aður, misþyrmt eða kvalinn til
dauða. Undir harðstjórn Þjóð-
verja og hafnbanni Breta hefði
þjóðin veslast upp við verri kjör
heldur en forfeður okkar á tím-
um móðuharðindanna.
Bretar komu fyrst.
I stað hinna miklu kúgara,
frændþjóðar af sléttum Þýzka-
lands, komu Bretar, þjóðin, sem
hefur átt mestan þátt í allra
stórþjóða að skapa frelsi nútíma-
þjóðanna, og sú þjóð, sem um
þetta leyti stóð ein að kalla mátti
móti ógurlegasta herveldi megin-
landsins. Bretar brutu að vísu
hlutleysi landsins, en hétu að
virða lög þess og hverfa héðan,
að stríðinu loknu, frá frjálsu
landi. Ári síðar komu Banda-
ríkjamenn hingað með mikinn
her, samkvæmt samningi við Al-
þingi og ríkisstjórnina. Eftir það
hafa bæði stórveldi Engilsaxa
haft hér aðstöðu fyrir-her og
flota. Báðar þjóðirnar komu
hingað í sínum erindum, til að
verja sín lönd og til að tryggja
það, að Þjóðverjar hefðu ekki
vígstöð móti Englandi og Ame-
ríku. En nærvera Engilsaxa frá
vordögum 1940 hefir orðið örugg
vörn fyrir land og þjóð. Her-
vernd Engilsaxa á íslandi hefir
verndað íslenzku þjóðina frá hin-
um hörmulegu örlögum Dana
og Norðmanna, svo að ekki séu
nefndar nema þær þjóðir, sem
skyldastar eru Islendingum, en
lentu undir járnhæl þýzku naz-
istanna.
Spor Engilsaxa á íslandi
Mjög hefir skift um verald-
lega giftu í stríðinu milli okkar,
sem búum mitt í úthafinu, og
frændþjóðanna á meginlandinu.
Danir og Norðmenn hafa búið
við mestu grimd og siðleysi, sem
sögur fara af. Hernámsþjóðin
hefir rænt og ruplað öllu, sem
fémætt var í landinu. Nazistarn-
ir hafa lifað í þessum löndum
eins og blóðsuga á þjóðunum. —
Vilt dýr merkurinnar hafa ekki
sýnt jafnmikla hugkvæmni við
bráð sína eins og þýzka þjóðin í
klóm nazistahreyfingarinnar.
Island var hernumið frá Bret-
landi, og síðan með frjálsum
samningi við stjórn Bandaríkja
falið vernd þess ríkis, meðan
þetta stríð stendur. Hvergi get-
ur meiri mun en á kjörum okk-
ar og frændþjóðanna tveggja á
Norðurlöndum, eins og málum
er nú komið. Her Engilsaxa
gerði sér sín eigin heimili, og
flutti hingað allar nauðsynjar,
sem ekki voru á boðstólum í
landinu sjálfu. 1 stað þess að
Þjóðverjar tóku fólk hvarvetna
í sínum hernumdu löndum í
nauðungarvinnu og greiddu ann-
aðhvort ekki kaup, eða þá í seðl-
um, sem þeir létu prenta í nafni
hinnar kúguðu þjóðar, þá
greiddu Bretar og Bandaríkja-
-nenn alla vinnu og állar vörur,
sem svifust einskis um grimd
eða skipulagða kvala- og kúgun- merkur og Noregs var ekki vafa-
artækni. Aldrei fyr hefir vest- mál að ísland myndi koma næst.
ræn mentaþjóð beitt jafn tak- Það eitt var vafamál hvort Þjóð-
KEYRSLUMENN!
Ný lög
er öðlast gildi 1. desember
Samkvæmt hinum nýju Manitoba Ör-
yggis ábyrgðarlögum, eru allir eigendur
eða ökumenn, sem hlut eiga í bílslysum,
sem leiða til dauðs eða meiðsla, eða
skemda er nema $25, verða geta sýnt
skírteini fyrir efnalegu sjálfstæði. Ann-
ars verður vagnleyfi og ökuleyfi af þeim
tekið og bifreiðin tekin föst.
Efnalegt skírteini má fá með því að hafa
Public Liability og Property Damage
Insurance, eða með því að afhenda skrá-
haldara viðunandi verðbréf, eða með því
að leggja inn hjá Fylkisféhirði peninga
eða trygging sem nemur $11,000.
Upplýsinga bæklingur, er gefur allar
greinar af hinum nýju lögum, er gefin á
hverri olíustöð í Manitoba eða Motor
Branch, Revenue Building, Winnipeg.
Náðu í þinn strax.
Motor Vehicle Branch
PROVINCE OF MANITOBA
No. 17—VETERANS’ LAND ACT (continued)
Benefits and ObUgcrtions (Section 9 of Act)
The maximum amount which the Director may spend on an
individual establishment, whether full time farming, small hold-
ing, or small houlding coupled with commercial fishing, is
$6000., of which up to $1200., may be spent on livestock, farm
equipment and fishing gear, but the maximum of $1200., avail-
able for livestock and equipment is correspondingly decreased
as the cost to the Director for land and permanent improvements
increases above $4800, up to the maximum of $6000. For example,
when the cost of land and buildings is $5400. only $600. remains
for the purchase of livestock and equipment. When the cost of
land and buildings is $6000. nothing remains for the purchase of
livestock and equipment.
A veteran so established must pay in advance 10% of the
amount expended by the Director for land and permanent im-
provements plus any cost over $6000., and contract to repay two-
thlrds of such cost on amortization basis within twenty-five
years, with interest at the rate of 3*4%.
If the veteran complies with the terms of his contract for ten
years, the Dominion thus absorbs approximately 24% of the cost
of land and permanent improvements plus the total cost of the
livestock and equipment or fishing gear supplied to him.
This space contrlbuted by
THE DREWRYS LIMITED
MD140
sem þeir fengu, með dýrtíðar-
verði. Á þennan hátt óx eftir-
spurn eftir vinnu hér á landi
fram úr hófi, og skapaði full-
komna ringulreið í öllu atvinnu-
lífi landsmanna. En hinu má
ekki gleyma, að Bandamenn
borguðu alla vinnu, sem í té var
látin, og allar afurðir, sem þeir
keyptu til neyzlu hér eða í Eng-
landi, með svo háu verði, að á
stríðstímunum eignaðist Island
stórar innstæður erlendis í stað
skulda sem þar voru áður. Allar
stéttir og nálega allir einstakl-
ingar á Islandi hafa á stríðsárun-
um greitt skuldir og bætt hag
sinn fjárhagslega. Innstæður
hafa myndast erlendis, sem geta
orðið undirstaða mikilla'umbóta
á atvinnulífi landsmanna. Þjóð-
in hefir slitið síðustu böndin við
Danmörku og endurreist lýð-
veldið í skjóli við her banda-
manna hér á landi og sigra þeirra
á vígvöllum erlendis. Þegar þess
er gætt, að langflestir hermenn
Engilsaxa höfðu komið hér fram
með mikilli prúðmensku, og
yfirmenn hersins lagt megin-
stund á, að Islendingar hefðu
ssm allraminst óiþægindi af veru
setuliðsins hér á landi. Þá má
öllum huesandi mönnum vera
lióst, hvílík gæfa það var fyrir
ísland og Islendinga að eiga
heima út í Atlantshafinu, og að
vera varin fyrir böðlum megin-
landsins af liðsafla þeirra
tveggja þióða, sem méstan þátt
hafa átt í því að skapa frelsi
menningarþjóðanná. Spor Engil-
saxa á íslandi í núverandi heims-
styrjöld munu lengi verða sýni-
leg. ísland hefir um stund eign-
ast nokkur efni, aukið verk-
menningu sína, kynst á fjöl-
margan hátt erlendum fyrir-
myndum til hagsbóta og fáein-
um sér til skaða. Að síðustu hefir
þjóðin öðlast pólitískt frelsi fyr-
ir aðgerðir Engilsaxa, um leið
og Þjóðverjar hafa svift Dani og
Norðmenn frelsi, en Rússar lagt
samáþjóðirnar við Eystrasalt
undir alsherjarkúgun sína.
ísland og ítalía
Þegar Cavour vann að samein-
ingu Itala og frelsun þjóðarinn-
ar úr margra alda áþján, sá hann
að ekki var annars kostur en að
vingast við vestuxveldin Eng-
land og Frakkland. Hann réði
því, að hið litla ríki, Sardinia,
bauð Bretum og Frökkum lið-
veizlu móti Rússum í Krímstríðr
inu. Smáþjóðin megnaði ekki að
veita mikið lið, en hún sýndi
hvað hún vildi. Forusta íslenzkra
stjórnmála á undangengnum ár-
um er ekki sambærileg við fram-
sýni Cavours, en í framkvæmd-
inni hefir íslenzka þjóðin fetað
í hans spor. Bretum og Banda-
ríkjamönnum var höfuðnauðsyn
að hafa í þessu stríði herstöðvar
á Islandi. Mikill meirihulti ís-
lenzku þjóðarinnar skildi þessa
nauðsyn og tók möglunarlaust á
sig að vera með vissum hætti í
fremstu skotgröf. Enginn gat
sagt fyrirfram, hvort íslenzk
bygð, brýr og kaupstaðir yrðu í
rústum eða lítt skaddaðir eftir
stríðið. En frá sjónarmiði frels-
iskærra íslendinga var lífið ekki
þess vert, að þyí væri lifað, ef
nazisminn legði helgrímu sína
yfir menningarlönd heimsins. —
Bandamenn höfðu ómetanlegan
stuðning af flugvöllum og höfn-
um á Islandi. Auk þess fram-
leiddi íslenzka þjóðin tiltölulega
mjög mikinn hluta einnar stær-
stu daglegrar neyzluvöru hinnar
innibyrgðu ensku þjóðar. Þó að
nokkuð megi gagnrýna með rök-
um ýmsa þætti í framkomu
ýmsra Islendinga á yfirstand-
andi styrjaldartíma, þá verður
hinu ekki neitað, að landið og
þjóðin voru eftir því sem við
mátti korna, til stuðnings þeim
málstað, sem átti skilið að sigra.
Frelsistakan
Italía hlaut þjóðlega samein-
ingu og stjálfstjórn, af því að
forustumenn þjóðarinnar gengu
í lið með þeim ríkjum, þar sem
frelsið átti heima. Á sömu leið
fór fyrir Islandi 1944. Lýðveldis-
stofnunin var afleiðing rétt-
mætra óska og mikils undirbún-
ings frá hálfu Islendinga, en
lokasigurinn var unninn 17. júní
síðastliðinn, af því að her Engil-
saxa hafði haldið herafla kúgun-
arríkjanna frá landinu, og af því
að Roosevelt forseti og Churchill
forsætisráðherra vildu unna Is-
landi að slíta til fulls gömul bönd
sem lengi höfðu sært Íslendinga.
Það var raunalegt þjóðaróhapp,
að einn af þeim fáu nazistum,
sem til voru á landinu 17. júní í
vor, gat með nokkrum hætti
komið því til leiðar, að vanþakk-
aður var með ókurteisi einn þýð-
ingarmesti þátturinn í þeirri að-
stoð, sem Engilsaxar höfðu veitt
við frelsi^tökuna.
Þegar stríðið er að fjara út og
nazisminn að fá sitt banasár,
hefir þróunin orðið sú, að þær
tvær frændþjóðir, sem náskyld-
astar eru, Norðmenn og Danir,
hafa við hernám Þjóðverja ver-
ið sviftar nálega öllu því, sem
mentuð nútímaþjóð óskar sér af
andlegum og efnalegum gæðum,
en við Islendingar höfum, sem
bandamenn Engilsaxa, fengið á
sama tíma vernd gegn árásum,
bættan fjárhag og fulla sjálf-
stjórn um íslenzk málefni.
Nú verður að vænta þess, að
þjóðin kunni að meta réttilega
þær góðu og mörgu gjafir, sem
mild forlög hafa nú um stund
veitt henni, þó að þungar raunir
hafi á sama tíma sært og þjakað
flestar þjóðir jarðarinnar.
Hugsjón samvinnumanna
Enginn vafi er á því, að nálega
allir íslenzkir samvinnumenn
hafa unað vel samstarfi við Eng-
ilsaxa, og metið framkomu þess-
ara stórþjóða, bæði í réttlátum
skiftum við smáþjóð eins og okk-
ur og í hinni miklu baráttu um
framtíð frjálsmannlegrar tilveru
mannkynsins. Á sama hátt hafa
íslenzkir samvinnumenn búist
við að geta að stríðinu loknu tek-
ið upp margþætt andlegt og f jár-
hagslegt samstarf við menning-
arþjóðir Vesturlanda. Yfirlýs-
ingar forráðamanna Breta og
Bandaríkjamanna frá Atlants-
hafsfundinum voru í þessu efni
hugðnæmar Islendingum. Þar
var lögð stund á að kynna þjóð-
unum, að eftir að friður næðist í
heiminum yrði lögð stund á að
allar þjóðir gætu lifað frjálsar og
hamingjusamar í bróðurlegu
samstarfi. Hér var túlkuð hug-
sjón samvinnunnar um hin
stærstu verkefni mannkynsins.
LABOR ELECTION
COMMITTEE
FOR ALDERMAN
McNEIL, J0HN
PROPOSES
★ To obtain permission from the
Provincial Legislature to float a
Ten Million Dollar City of Win-
nipeg Bond Issue for such
Housing Projects as:
a. Construction by the City of
1,500 four, five and six-roomed
cottages for sale at cost of cor.-
struction on a low down-pay-
ment and long-terms repay-
ment plan. Such cottages to be
available for rent also, with
option to buy.
b. Construction of ten modern
apartment blocks, each to con-
tain approximately 50 suites of
various sizes, same to be avail-
able for rent at cost.
★ Lower street car fares.
★ Public-owned street car system.
FOR TRUSTEE
SHÉFLEY, R0Y
PROPOSES
* Free transportation for sma
children to and from school.
★ Free school supplies.
★ Meal-a-day plan.
★ Economic security and justice
for teachers and other school
employees.
★ Technical training schools.
Labor Election Committee Rooms, 607 Main St. Phone 98 985
VERZLUNARSKÓLANÁM
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA