Heimskringla - 02.01.1946, Side 8
4
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 2. JANÚAR 1946
8. SIÐA
FJÆR OG NÆR
MESSUR t ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Séra Philip M. Pétursson
messar við báðar guðsþjónustur
Sambandssafnaðar í Winnipeg n.
k. sunnudag, kl. 11 f. h. á ensku,
og k.l 7 e. h. á íslenzku. Söng-
flokkarnir korna saman á æfing-
ar á hverju miðvikudagskvöldi
og föstudagskvöldi. — Sækið
messur Sambandssafnaðar.
* ★ *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
heldur fund þriðjudaginn 8. jan.
kl. 8 e. h. að heimili Mrs. B. E.
Johnson, 1059 Dominion St.
*r ★ *•
Hjalti Tómasson flugmaður er
staddur hér í borginni, hann
hefir dvalið í Tulsa, Oklahoma,
um nokkurn tíma, þar sem hann
var að fullnema sig í fluglist.
Áform hans mun vera nú að
hverfa heim til íslands um næstu
mánaðamót, flugleiðis.
* ★ *
Meðtekið í útvarpssjóð
Hins Sameinaða Kirkjufélags
Böðvar Jónsson,
Langruth, Man.--------$1.00
“Vinkona” Banning St.,
Winnipag, Man. ------- 1.00
Mr. og Mrs. I. Sigurðson'
Lundar, Man.. ________ 1.00
Mr. og Mrs. Th. Gíslason,
Steep Rock, Man.------ 2.18
Thorsteinn Bergmann,
Geysir, Man.---------- 1.00
Með kæru þakklæti,
Páll S. Pálsson
—796 Banning St., Winnipeg
Misritaðist í seinasta nafna-
lista: Mr. og Mrs. O. J. Johnson,
Steep Rock, $2.00, átti að vera
Mr. og Mrs. O. J. Olson.
★ ★ ★
Enn er vitinn kyntur
1 fimtíu o^sjö ár hefir Arin-
björn S. Bardal kynt vita á
gamlárskvöld í Winnipeg, hefir
hann gert það sjálfur, að undan-
teknu einu ári, og þá var hann
veikur í rúminu, en fékk son
sinn, ArinJbjörn, — sem betur er
þektur af nafninu “Gerry”, til
þess að tendra vitann. Allir sem
sóttu miðnætur-messu í Sam-
bandski|rkjunni s. 1. gamlárs-
kvöld, horfðu með hrifningu á
bál Arinibjarnar, og mintust um
leið láranna undanförnu þegar
vitinn brann framundan kirkju-
dyrunum, um miðnætti. — Þjóð-
rækni og þjóðsiðir eru marg-
þættir. — Beztu þakkir, Arin-
björn.
★ * *
Jón Sigurðsson félagið heldur
fund á fimtudaginn 3. jan. í Free
Press Board Room 2. Áríðandi
að allir meðlimir sæki þennan
fund. Frekari upplýsingar við-
víkjandi samkvæminu fyrir ísl
hermenn verða lagðar fyrir
fundinn.
* * *
Séra Runólfur Marteinsson
hefir útvarpað þrjá undanfarna
daga morgun - guðsþjónustum
yfir Watrous-kerfið og heldur
því áfram út þessa viku, kl. 9.45
að morgni. Stendur CBC út-
varpsfélagið fyrir þessu og Na-
tional Religious Council.
★ ★ ★
Icelandic Canadian
Evening School
Mr. G. L. Jóhannson flytur
erindi, “Industrial Proghess in
Iceland”, þriðjudagskveldið 8.
jan. kl. 8 e. h. Islenzku kenslan
byrjar kl. 9. Aðgangur fyrir þá
sem ekki eru innritaðir 25c.
* ★ *
Mrs. J. B. Skaptason, 387
Maryland St., sem hér hlefir út-
sölu Hlínar með höndum, biður
að geta þess, að hana skorti 27.
og 28. árgang ritsins, en hún hafi
nokkrar pantanir fyrir þeim. Ef
einhverjir hér hefðu þessa ár-
ganga og vildu selja þá í svip,
þætti henni sér greiði ger með
því að láta sig vita það.
★ ★ ★
Gjafir í námssjóð
Miss Agnes Sigurðson
Dr. og Mrs. S. E. Björnsson $5.00
Mrs. Jón Borgfjörð -----— 2.00
Mr. Böðvar Jakobsson----- 5.00
Mr. Franklin Pétursson — 3.00
Mr. og Mrs. J. J. Swanson 25.00
'Mr. & Mrs. Pétur Anderson 25.00
Dr. og Mrs. S. O. Thompson,
RiVerton, Man 10.00
Þjóðræknisdeildin “Brúin”,
Selkirk, Man Mr. og Mrs. T. L. Hall- 10.00
grímsson 25.00
Samtals $110.00
Áður kvittað fyrir $901.00.
Með þakklæti.
F. h. nefndarinnar,
G. L. JÓhannson, féhirðir
★ ★ ★
Séra Runólfur Marteinsson,
sem guðsþjónustur flutti hjá Ar-
gyle-söfnuðum yfir hátíðirnar,
sagði í viðtal við Hkr., að Argyle
söfnuðir hefðu kallað prest að
heiman, er Robert Jack heitir
og er prestur í Breiðdalsvík á ís-
landi. Hann er skozkrar ættar,
auðmannssonur, er heim til ís-
lands fór sem íþróttakennari. —
Varð hann svo hrifinn af Islandi,
að hann tók að læra íslenzka
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld-
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 5^.
★ ★ ★
Lúterska kirkjan í Selkirk
(Sunnud. 6. jan. — Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Ensk messn
kl. 7e. h. Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
tungu, gekk svo á prestaskóla
Islands og er nú þar þjónandi
prestur og giftur íslenzkri konu.
Hann hefir lofað Argyle-söfnuð-
um að senda fullnaðarsvar í
þessum mánuði.
★ ★ ★
Boðsbréf
Good Templara stúkurna:
Hekla og Skuld, halda upp á sitt
afmæli til samans þ. 7. þ. m
(næsta mánudag).
Þangað er boðið öllum Good
♦ COUNTERSALESBOOKS
Kaupmenn og aðrir sem
þannig lagaðar bækur
nota, geta fengið þær með
því að snúa sér til vor.
Allur frágangur á þessum
bókum er hinn vandað-
asti. Spyrjist fyrir um
verð, og á sama tíma takið
fram tegund og fjölda
bókanna sem þér þarfnist.
The Viking Press Limited
853 Sargent Ave. Winnpieg, Man.
3MÍ
Templurum, og það er ætlast til
þess, að bræður eða systur, komi
með börnin sín, sem hafa komið
heim úr stríðinu, hvert það heyrr
ir til Reglunni eða ekki. Sumt af
því fólki verður á skemtiskránni
m. fl.
Mánudaginn þ. 7. jan. 1946, kl.
8 e. h. Látum oss fagna nýja ár-
inu í Good Templara salnum.
1 Nefndin
★ ★ ★
Sigurður S. Anderson, 800
Lipton St., hefir tekið að sér inn-
köllun fyrir Hkr. í Winnipeg.
Áskrifendur eru beðnir að minn-
ast þessa og frá þeirra hálfu gera
honum starfið sem greiðast. —
Símanúmer hans er 28 168.
★ ★ ★
Heimskringla er beðin að geta
þess, að þriðja bindi Sögu Is-
lendinga í Vesturheimi fáist hjá:
Hirti Hjaltalín, Mountain, N. D.
Guðm. Lambertsen, Glenboro,
Man.
TILKYNNING
Samkvæmi fyrir hermenn
Þess var getið fyrir skömmu
að Jón Sigurðsson félagið, með
aðstoð Icealndic Canadian Club
er að efna til samkvæmis til þess
að heiðra þá af íslenzkum stofni
sem hafa verið í herþjónustu, og
í til þess að bjóða þá vlelkomna
heim. Það er mjög ánægjulegt
hve undirtektir almennings
þessu viðvíkjandi hafa verið al-
úðlegar og uppörfandi á allan
hátt. íslendingum finst sjálf-
sagt að gera alt sem í þeiirra
valdi stendur til þess að láta
þetta fólk finna hlýleikann,
þakklætið og gleðina sem ríkir í
hugum allra við heimkomu
þeirra. Enda er það óefað áform
félaganna og almennings yfir-
leitt að gera þetta mót virðulegt
og ánægjulegt í alla staði, því
“Ekkert er of gott fyrir þetta
fólk sem befiir þjónað og barist
fyrir land og þjóð”, hljómar á
hvers manns vörum.
í fyrstu var ákveðið að halda
samsætið á Marlborough Hotel,
15. jan., en sökum þess hve f jölda'
margir hafa látið í ljósi ósk sína
að taka þátt í þessari heiðurs-
viðurkenningu, hefir nefndin
tekið það ráð að leigja stsarsta
veizlusal Winnipeg borgar. Sam-
kvæmið fer því fram í Royal'
Al'axandra hótelinu, mánudags-1
kveldið 18. febrúar, n. k., en það'
er fyrsta kveldið sem þar var fá-
anlegt. Með því að þessi breyt-
ing var gerð gefst almenningi
tækifæri að koma þetta kveld og
gleðjast með unga fólkinu okkar1
og láta í ljósi gleði sína yfir
heimkomu þess.
Boðsbréf (sem gilda fyrir tvo
gesti) verða send til allra þeirra
af ísl. stofni sem hafa v'erið í
herþjónustu í hinu nýafstaðna
stríði, og sem staddir verða í
Winnipeg þetta áminsta kveld,
svo framarlega sem n'efndin fær
Hórsnyrting — beztu
aðíerðir
AMBASSADOR
Beauty Salon
257 KENNEDY ST.
sunnan við Portage
Talsími 92 716
S. H. Johnson, eig.
Central Dairies
Limited
Kaupa mjólk og rjóma
Areiðanleg og íljót skil
Telephone 57 237
121 Salter St. — Winnipeg
Eric A. Isfeld, ráðsmaður
vitneskju um nöfn þeiirra og
heimilisfang.
Veitið athygli breytingu á
deginum, og gleymið ekki að
senda nöfnin sem fyrst til Mrs.
J. B. Skaptasón, 378 Maryland
St., Winnipeg.
150 ÁRA MINNING
SKÚLA FÓGETA
Frh. frá 7. bls.
út af einhverju. Skúli þóttist
hafa á réttu að standa, en barn-
fóstran tók hann og sagði faðir
hans að það væri rétt gert: “Því
aðýiann kúgar alla hina krakk-
ana”. — Virðist það fremur
benda til þess, að Skúli hafi verið
meðal yngri systkinanna fyrst
“börnin voru mörg” er hann man
fyrst eftir sér. Af frásögn þessari
má einnig ráða, að snemma hefir
Skúli verið nokkuð ráðríkur, en
einkum kemur þó fram einibeitni
sú, sem einkendi hann svo mjög
í dáðríku æfistarfi.
1 æsku þótti Skúli vtera ódæll
og mikill fyrir sér, er það raun-
ar oft einkenni þrekmikilla ungl-
inga. En af þeim orsökum var
honum, er hann var 10 ára gam-
all, komið í fóstur til afa síns,
séra Einars í Garði. Hugði Skúli
gott til þessarar nýbreytni og
mun hafa talið, að séra Einar,
sem þá var orðinn maður háaldr-
aður, myndi ekki geta haft hemil
á ærslum sínum og bernskubrek-
um. En það fór á aðra lund. —
Heima var hann vanur ströngum
aga, sem ekki hefir átt vel við
hinn tápmikla og geðríka ungl-
ing. — Séra Einar var einstakt
göfugmenni, og tók Skúla öðrum
tökum, var mildur og umburðar-
lyndur, en vandaði um við hann,
með stillingu og festu. Tókst
honum að vinna trúnað og ein-
læga vináttu drengsins, og fékk
Skúli svo miklar mætur á afa
sínum, að hann vildi alt gera að
hans vilja. Einnig mun séra Ein-
ar, hafa kent Skúla bókleg fræði.
Eftir þriggja ára dvöl í Garði,
hvarf Skúli aftur heim til for-
eldra sinna, en fljótt þótti sækja
í sama horfið með óstýrilæti
hans. Ráðlagði séra Einar þá að
halda honum fast að vinnu, tók
Magnús prlestur því feginshendi,
þótti Skúli duglegur til verka,
ÞEGAR BARÐANUM “HERCULES” VAR
HLEYPT AFSTOKKUM
Lady Cripps, kona Sir Stafford Cripps þingmanns í
brezka þinginu, framkvæmdi skímarathöfnina, þegar hinum
tröllaukna barða “Hercules” var hleypt af stokkunum ekki
alls fyrir löngu. Barðinn er sýndur hér á myndinni er hann
rennur í sjó fram.
The SWAN MFG. Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
281 JAMES ST., WINNIPEG
Phone 22 641
Halldór M. Swan, eigandi
Thos. Jackson & Sons
LIMITED
COAL — COKE
BRIQUETTES
Phone 37 071 (Priv. Exch.)
370 Colony St. Winnipeg
"Tons of Satisfaction"
Talsími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfræðingur í augna, eyrna, nefs
og kverka sjúkdómum
704' McARTHUR BLDG.
Cor. Portage & Main
Stofutími: 4.30 til 6.30
laugardögum 2—4
Jarðarberja Plöntur
Ljúffengt, sœtt og lystugt
Suðurlanda ávöxt-
ur sem bæði er
ávaxtaríkur og
fagur til hýbýla
skrauts. — Þakin
blómum og ávöxt-
um samtímis. —
Blómin snjóhvít
og angandi. Á-
vöxturinn á stærð
volhnotu, rauður
að lit og lúffeng-
ur, borðist hrár eða í jelly. Vex upp
af fræi, og byrjar snemma að
blómstra.
(Pk. 25<f) (3 pk. 50<) póstfrítt.
FRÍ—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1946
Enn sú fullkomnasta 81
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
og vann öll algeng störf, til lands
og sjávar, um nokkurt skeið.
Framh.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
Bretar tilkynna að þeir hætti að
kaupa frystan fisk frá íslandi
Ríkisstjórn Islands barst í
gærkvöldi fregn frá sendiherra
Islands í London, þess efnis, að
forstjóri fiskideildar brezka mat-
vælaráðuneytisins hefði tilkynt
honum, að vegna þess að horfur
séu á mikilli aukningu fisk-
magns í Bretlandi, hafi ’verið á-
kveðið að hvorki brezka mat-
vælaráðuneytið né einstáka
brezk firmu muni kaupa frosinn
fisk frá Islandi á árinu 1946.
—Mbl. 14. des.
★ ★ ★
Ljóð Káins komin út
Bókfellsútgáfan hefir nú sent
frá sér hina nýju heildarútgáfu
af ljóðum Kristjáns N. Júlíusar,
eða Káins, eins og alþýða manna
nefnir hann. Er útgáfa þessi öll
hin prýðilegasta, bandið mjög
fallegt, pappír og prentun ágæt.
Richard Beck ritar um skáldið,
og sr. Haraldur Sigmar rit'ar
nokkrar minningar um það. Bók-
in er 304 blaðsíður að stærð í
allstóru broti og hefir að geyma
alt sem til náðist af ljóðum þessa
MESSUR og FUNDIR
i kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson,
Ph.B., B.D.
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 t. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: — Hvert
sunnudagskveld kl. 8.30.
Skátaflokkurinn: Hvert mið-
vikudagskveld kl. 6.30.
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju föstu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju miðvikudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 3 e. h.
MINNIS7
BETEL
í erfðaskrám yðar ‘
Sherbrook Home Bakery
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Þar er bezt að panta til jólanna.
Vigfús Baldvinsson & Son,
Sími 37 486 eigendur
vinsæla kímnis- og tregaskálds,
því hvorutveggja er Káinn í
senn og má oft finna að kimni
hans er tregablandin. Það var
okkur Islendingum mikill feng-
ur að vera loks búnir að fá heild-
arútgáfu af ljóðum þessa mjög
svo ástsæla skálds, því hingað
til hafa þau mest gengið mann
frá manni og oft nokkuð afbök-
uð.
Kristján Júlíus var öll sín full-
orðinsár í Vesturheimi, en þang-
að fluttist hann innan tvítugs-
aldurs. Oft hefir hann þó langað
heim, eins og ljóð hans bera
gleggstan vottinn, þótt fyrir hon-
um ætti að liggja að hvíla í fram-
andi fold. Set hér eina vísu úr
bókinni til marks um kærleik
skáldsins til ættjarðar sinnar:
Kæra foldin kend við snjó, —
hvað eg feginn yrði,
mætti holdið hvíla í ró
heima í Eyjafirði.
Þjóð Kristjáns N. Júlíusar hef-
ir unnað ljóðum hans frá því
fyrsta, er þau bárust yfir hafið.
Og nú eru þau öll komin heim.
J. Bn.
Hetjusögur Norðurlanda
(Þýtt hefir Rögnv. Pétursson).
Enn erú nokkur eintök fyrir-
liggjandi af þessari vinsælu bók.
Þeir sem vilja-eignast hana sendi
pöntun til skrifstofu Heimskr.
og 35c, verður hún þá send póst-
frítt.
The Viking Press Ltd.
853 Sargent Ave., Winnipeg
The Fuel Situation
Owing to shortage of miners, strikes, etc., cer-
tain brands of fuel are in short supply. We may
not always be able to give you just the kind you
want, but we have excellent brands in stock such
as Zenith Coke, Berwind and Glen Roger Bri-
quettes (made from Pocahontas and Anthracite
coal), Elkhorn and Souris Coal in all sizes.
We suggest you order your requirements in advance.
MC^URDY Q UPPLY^O.Ltd.
^^BUILDERS'SUPPLIES ^and COAL
PHONES 23 811 — 23 812 1034 ARLINGTON ST.