Heimskringla - 03.04.1946, Side 5
WINNIPEG, 3. APRÍL 1946
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
rásarmönnunum nýjar og fljót-
virkar vinnuaðferðir.
Ekki hefir þjóðin eytt einni
krónu í herútbúnað, og ekki
skyldað einn mann til þess að
taka þátt í hildarleiknum, og
það, sem best er af öllu, ekki
bundið sig beint eða óbeint á
hernaðarklafa auðhringanna. —
Geri aðrir betur.
í sambandi við hernámið, dett-
ur mér í hug lítil, en sönn saga
af tveimur frægum píanistum.
Það voru þeir de Pachmann og
Paderewski. Þeir voru báðir
staddir í New York borg og
héldu hljómleika sama kveldið,
sinn í hvoru samkomuhúsi. De
Pachmann hlaut frekar lélega
aðsókn en Paderewski húsfyllir.
Morguninn eftir mættust lista-
mennimir úti á götu, þá segir de
Pachmann: “Good morning Mr.
Paderewski, you got the money
last night, but I gave them the
music.”
Hið sama má segja um ís-
lenzku þjóðina, hún hlaut auð-
inn, en innrásarherinn erfiðið
og óþægindin, og svo náttúrlega
fáeina meyjak.oSsa í kaupbætir.
Vitið er skætt, ef vel er brýnt.
Pólitíkin á íslandi virðist mér
harla lítið breytt frá því, sem áð-
ur var, af heimablöðunum að
dæma. Hún er og hefir ávalt
verið óheil og illvíg. Þessi
myrkra vofa mannkynsins er
altaf sjálfri sér samkvæm í
hvaða landi, sem hún býr, hún
ér alstaðar jafn matgráðug og
mælgisgjörn, og markmið ávalt
það sama: að auðga sig að völd-
um og verðmætum.
Þjóðin á Islandi virðist skift í
tvo aðal flokka, sem kalla mætti
hægri og vinstri flokka. Hægri
menn eru að mun liðfærri, en
standa saman, sem einn maður,
þegar á kosninga vígvöllinn
Icemur.
Vinstri menn aftur á móti
hanga hver í annars hári, og út-
húða hver öðrum út af smávægi-
legum aukaatriðum, en á meðan
að á þessu rifrildi vinstri manna
stendur, rölta hægrimenn hróð-
ugir upp í valdastólana, brosandi
að bjálfaskap hinna. Kannist
þið við myndina, Canada menn
og konur?
Eg var næstum búinn að
gleyma því að veita hinni hátt-
virtu frú: Pólitíkinni, verðuga
viðurkenningu fyrir framförum
hennar og þroska, síðan eg fyrst
kyntist henni.
Nú hefir hún náð miklu meiri
leikni en áður, í því að segja
aldrei það, sem hún meinar, og
meina aldrei það sem hún segir.
Vaninn skapar listina, segir máls
hátturinn. Jónas Pálsson
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
EYÐILEGGIÐ ILLGRESIÐ
MEÐ 2-4-D
HORMONO
HINS NÝJA UNDRAVERÐA
ILLGRESIS EYÐANDA
DAUÐI FYRIR ILLGRESI, GERIR
k GRASI EKKERT MEIN. Lærið alt um
hið nýja undraverða CRVALS ill-
gresis eyðanda. Sendið í dag eftir
myndum prýddum skýringum, sem
segja alla söguna. Þær kosta EKK
ERT. Við höfum fyrirliggjandi 2-4-D
HORMONO, sem sent verður án taf-
ar. Stærðir fyrir 250, 550, $1.00, póst-
frítt. Dollars stærðir hréinsar 2,500
kvaðrat fet. Einnig stærri sendingar,
sem spara enn meira. 96
DOMINION SEED HOUSE
Ueorgetowii, Ontario
*3imiiiiiiiinmiMiiMNCsiiiiiiiiiii[]iiiiiiiiiuiniiuiiiiiiuniiiiiminv
| INSURANCE AT . . .
REDUCED RATES
a
=
Fire and Automobile |
STRONG INDEPENDENT |
COMPANIES
I I
= 1
= E
j McFadyen j
1 Company Limited |
| 362 Main St. Winnipeg |
Dial 93 444
6 ..........
Tilbúin hús frá Finnlandi.
j Hinn 18 febr. skipaði félags
málaráðuneytið nefnd til þess
|að athuga hvort hagkvæmt sé
að flytja timburhús til landsins.
Vegna auglýsinga í sambandi við
það, hefir blaðinu verið bent á að
hálftilbúin finnsk hús séu einnig
á boðstólnum. Arkitektar og
aðrir byggingafróðir menn, sem
hafa séð og athugað teikningar,
lýsingar og verð, telja þau sam-
bærileg við önnur slík hús.
Þau hafa ekki verið auglýst til
sölu enn, því beðið er eftir svari
við fyrirspurnum um fyrirkomu- J
lagsatriði, en það er væntanlegt
á næstunni.
Firmað L. Andersen h. f., sem
hefir umboð fyrir finnsku fram-
leiðendurna, hefir sótt um inn- j
flutning á nokkrum húsum með'
það fyrir augum að fá re-ynslu ^
um byggingu slíkra. húsa. Þess
skal getið að útfiutningur og fljót
afgreiðsla muni fást ef greiðlega
gengur að fá innflutingsleyfi
hér,—Mbl. 2. marz.
* * *•
Nýr bátur á sjó.
Frá fréttaritara vorum í Kefla-
víg, föstudag.
1 dag var nýju skipi rent á sjó
fram í Dráttarbraut Keflavíkur
|h. f. — Bátur þessi er 53 smá-
lestir að stærð, með 160 hest-
afla Lister-Dieselvél.
Báturinn hefir verið nefndur
Mummi, einkennisstafir GK 120.
Eigandi hans er Guðmundur
Jónsson, útgerðarmaður frá
Rafnkellsstöðum í Garði.
Smíði bátsins hófst í byrjun
maímánaðar s. 1. og var henn:
iokið í s. 1. desember. En frá þeim
tíma hefir staðið á vél bátsins.
Er hann allur hinn vandaðasti
að sjá og fallegur á sjó. Yfir-
bygging hans er að mestu úr
járni.
Yfirmaður við smíði bátsins
var Egill Þorfinnsson, en hann
gerði jafnframt teikningar. Raf-
lögn annaðist Aðalsteinn Gísla-
son og seglabúnað gerði Sören
Valentínusson.—Mbl 2. marz.
* ★ *
Julian Huxley í þjónustu
Sameinuðu þjóðanna.
Prófessor Julian Huxley hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
menningar- og vísindastofnunar
Sameinuðu þjóðanna.
Prófessor Huxley er einn
hinna kunnustu menntamanna
Breta og hefur ritað fjölda alþýð-
legra bóka um vísindaleg efni.
★ ★ *
j “Úrsus” hinn íslenzki —
i Gunnar Salomonsson,
Nýlega hafa borist fregnir af
Gunnari Salomonssyni, sem
kunnastur hefir orðið erlendis
undir nafninu “Úrsus”. Hann
hefir farið víða um lönd og sýnt
aflraunir. Hann tekur upp hesta,
naut og jafnvel fíla, eða rekur
nagla í gegnum járnplötur með
berum höndunum. Járnstengur
og járnhlekki brýtur hann sem
fis væri. — Járnstengur beygir
hann eftir vild með höndunum.
Á planka, sem vegur salt á
hnakka hans lætur hann standa
6 fullorðna menn og oft endar
hann sýningar sínar með því að
lyfta tveimur fullorðnum hest-
um og fjórum fullvöxnum karl-
mönnum í einu.
Lárus Salomonsson, lögreglu-
þjónn, bróðir “Úrsusar” hefir
nýlega fengið bréf frá Gunnari.
Segist hann vera feginn er hann
fær bréf að heiman. Hann reyndi
að síma heim um jólin, en síma-
tíminn var upppantaður löngu
fyrir fram. Hann hefir nú leigl
Árósahöllina til 12 febr. og í
marsmánuði býst hann við að
sýna í K. B. höllinni" í Kaup-
mannahöfn. í bréfi sínu segist
Gunnar hafa æft sig í mörgum
nýjum aflraunum. M. a. sviftir
hann sundur tvenn spil með einu
handtaki. Orðrétt segir Gunnar:
“Mín heilsa er góð og líðan og
lífsgleðin stór, en bak við er al-
vara, grunur og efi og furða, yfir
mínu æfintýralífi. Oft dreymir
mig heim og sé vini mína, land j
og þjóð í misjöfnu ljósi og lit og
römm er sú taug er rekka dreg-
ur föður túna til”. — Að lokum 1
biður hann að heilsa öllum sín-
um kunningjum
Heimilisfang hans er Rödd- J
inggate 8, Köbenhavn.
Morgunbl. 2. febr.
FJÆR OG NÆR
Gifting.
1. marz s.l. voru gefin saman í
hjónaband að heimili Isaks og
Jakobínu Johnsons í Seattle þau
Inga Eiríksson og John L. John-
son. Giftinguna framkvæmdi
séra Harold Sigmar, en viðstadd-
ir voru um íimmtíu manns.
Brúðurinn er dóttir Halldórs
Eiríkssonar í Reykjavík, og hef-
ir dvalið við nám í Bandaríkjun-
um undanfarandi þrjú ár.
Brúðguminn er sonur Jóna-.
tans og önnu Johnsons í Seattle.
Hann hefur farið víða um Aust-
urlönd sem ljósmyndari í Banda-
ríkjahernum, en er nú laus úr
herþjónustu og stundar iðn sína
hér í borginni.
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður í Seattle.
★ * ★
Vinir Barnaheimilisins á
Hnausa, Man., sem ekki hafa
tekið eftir breyting á utanáskrift
minni, áður auglýst í þessu blaði,
eru mintir á að hún er 676 Ban-
ning St., Winnipeg, Man.
Sigríður Árnason,
fjármálaritari heimilisins
* * *
Gifting
Miðvikudagnin 20. marz, s. 1.
voru gefin saman í hjónaband
Fjóla Jóhanna Sólmundson og
Michael Olender. Giftingin fór
fram á heimili foreldra brúðar-
innar, Mr. og Mrs. Guðmundar
Sólmundsonar, að Gimli. Brúð-
guminn er af hérlendum ættum.
Svaramenn brúðhjónanna voru
þau Mr. og Mrs. Pétur Sólmund-
son, sem er bróðir brúðarinnar
Eftir giftinguna var framreiddur
rausnarlegur kvöldverður á
heimili foreldra brúðarinnar. —
Framtíðar heimili brúðhjónanna
verður að Gypsumville, Man. —
Séra Skúli Sigurgeirsson gifti.
* ★ ★
Icelandic Canadian Club News.
The Icelandic Candian Club
held an open meeting on
Wednesday night, March 20,
with the new president, Mr.
Carl Hallson in the chair. The
meeting was well attended and
the members displayed keen int-
erest throughout a lively dis-
cussion of the clubs projects, The
meeting responded favorably to
a plea presented by Mrs. Daniel-
son on behalf of the combined
Scandinavian organizations of
the city for assistance at a tea
to be held on April 18th. in aid
of the “Save the Children Fund’
for the 75,000 refugee children
in Sweden. Several ladies offer-
eU their services.
A short program followed the
business meeting. Mr. Jerry Bar-
dal entertained with a cornet
solo, accompanied by Mr. Gunn-
ar Erlendson. Capt. Neil Bardal
was to have been the speaker
of the evening, but he was un-
albe to be present, a fact which
was regretted by everyone.
As a substitute, a picture from
the National Film Board was
shown, entitled: “Iceland on the
Prairies”, a panoramic view of
the life and custom of the peo-
ple of Icelandic descent who in-
habit the prairies, showing
scenes from Argyle, Gimli, and
Winnipeg. Familiar scenes and
faces enhanced the interest cre-
ated by the running commen-
tary. Following this a picture
featuring a musical selection was
shown. Refreshments brought
to a close a very profitable and
interestnig evening.
L. Guttormsson, Sec.
Bjargið börnunum
Það er ómögulegt fyrir okkur
að gera nokkuð þessu viðvíkj-
andi; hvað ætli það muni um eitt
einstaklings tillag; viðfangsefnið
er alt of stórt, stjórnirnar eiga að
líta eftir þessu! Svona tala ein-
staka menn er þeir heyra óminn
af neyðarópum hinna nöktu,
allslausu aumingja er eigra um
rústir Evrópulandanna; og sem
munu deyja úr hungri og alls-
konar drepsóttúm sem núver-
andi ástand þar mun leiða af sér.
Nýlega er komin hingað frá
London, Capt. G. F. Gracey,
skrifari sambandsins er nefnist:
Save the Children Fund; og hef-
ir hann skýrt frá starfi þess á
mörgum opinberum fundum.
Félagið var stofnað skömmu
eftir fyrra heimsstríðið og er nú
26 ára gamalt. Það hefir starfað
í 36 löndum og hefir því mikla
reynslu í því að leita að, og lið-
sinna hungurmorða fólki, sér-
staklega börnum. Það var fyrsta
sjálfboða félagið sem sendi mat
til Hollands og Póllands, og eitt
af þeim allra fyrstu sem byrjaði
líknarstraf í Tékkóslóvakíu,
Grikklandi og Italíu.
Um þessar mundir eru í Ev-
rópu, segir Capt. Gracey, 40.-
000,000 börn yngri en 15 ára sem
þurfa hjálp. 4,000,000 eru móður
og föðurlaus. Eftir 5 ára hörm-
ungar eru flest af þessum böm-
um orðin aumingjar og geta ekk-
ert viðnám veitt allskonar sjúk-
dómum er steðja að. Ef við
bregðum ekki fljótt við til þess
að bjarga þeim, segir hann,
steypast hryllilegar drepsóttir
von bráðar yfir alla Evrópu, og
þar af leiðandi einnig yfir Eng-
land; hundruð þúsundir munu
deyja!
Hvað getum við þá gert? Það
er eitt víst að það eru fáir Is-
lendingar sem daufheyrast við
neyðarópum náungans. Og við
getum mikið gert til þess að
hjálpa, við getum gefið fatnað,
við getum gefið peninga fyrir
mat og meðul, og við getum á
ýmsan hátt aðstoðað þau félög
hér sem gefa sig við þessu líkn-
arstarfi.
Það hefir verið ákveðið að
halda “Silver Tea” og sölu á
heimatilbúnum mat í T. Eaton
Assembly Hall, fimtud. 18. apríl,
frá kl. 2.45 til 5 e. h. Yms félög
Skandinava og Islendinga hér
hafa gert samtök með sér að
hrinda þessu af stað. Arðurinn
af sölunni gegnur til “Save the
Tilkynning
um fulltrúa okkar á íslandi
Umboðsmaður okkar á Islandi er Björn Guðmunds-
son, Reynimel 52, Reykjavík. — Hann tekur á móti
pöntunum á blöðunum og greiðslum fyrir þau.
Heimskringla og Lögberg
Children Fund” og verður sent
beint til Svíþjóðar til viðurværis
börnum sem þar er verið að lið-
sinna. 1 Svíþjóð eru nú um 75,-
000 umkomulaus börn frá 11
löndum; og vona Svíar að þeim
takist með utanaðkomandi hjálp
að bjarga þessum hóp frá afleið-’
ingum illrar meðferðar undan-
farinna ára.
Aðal umsjónarkonur sölunnar
eru: Mrs. A. S. Bardal og Mrs. C.
E. Hoffsten, en fjölda margar
konur eru að vinna að því að
gera þetta fyrirtæki sem arð-
samast.
Islendingar eru vinsamlega
beðnir að taka þátt í þessari til-
raun og styrkja hana með tillög-
um og með því að koma á stað-
inn, og kaupa sér kaffi, og eitt-
hvað af því sem þar verður til
sölu. Takið eftir auglýsingu í
næstu vikubloðum.
Hólmfríður Danielson
★ * ★
Sigurður S. Anderson, 800
Lipton St., hefir tekið að sér inn-
köllun fyrir Hkr. í Winnipeg
Áskrifendur eru beðnir að minn-
ast þessa og frá þeirra hálfu gera
honum starfið sem greiðast. ■
Símanúmer hans er 28 168.
★ ★ *
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 50.
ér ★ 'k
50 ára minningar um
skáldskap Borgfirðinga
Fyrsta hefti er nú komið á
bókamarkaðinn, og er það ákveð
inn vilji útgefandans að ekki
líði á löngu að fleiri hefti komi
fyrir almenningssjónir. — Þetta
hefti er 30 blaðsíður, í góðri kápu
og prentað á ágætan pappír. —
Verð: 50c. — Fæst í Bókabúð
Davíðs Björnsson og hjá Viking
Press Ltd.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku £ttu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
Dominion Seed House
hefir nýlega gefið út afar
vandað og skrautlega verðskrá,
með myndum af jurtum. blóm-
um og ávöxtum, og vildum vér
draga athygli bænda og blóm-
ræktar-manna, að auglýsingum
þessa félags, sem eru nú að birt-
ast í Heimskringlu.
Félag þetta hefir aðal bæki-
stöð sína í Georgetown, Ont. —
Það er þess virði að hafa þessa
verðskrá handhæka.
★ ★ ★
Tilkynning
Eg undirritaður hefi nú tekið
að mér útsölu á öllum þeim
tímaritum sem Magnús sál. Pet-
erson var útsölumaður að. Öll
eru tímaritin ekki komin frá Is-
landi enn. En þau sem eg hefi
nú, eru:
Eimreiðin, 1945, 1—3 h.
Dvöl, 1. h.
Nýjar kvöldvökur, 1—3 h.
Gríma, XX
Gangleri, allur frá 1941
Samtíðin, 5., 6., 7. h.
Vonast eg til, að allir, sem ver-
ið hafa áskrifendur þessara rita
(og annara) frá Magnúsi sál. Pet-
erson, lofi mér að njóta fram-
háldandi viðskifta og láti mig
vita, hvað þeir hafa fengið síðast
af áðurnefndum tímaritum.
Virðingarfylst,
Björnsson’s Book Store
(Davíð Björnsson)
702 Sargent Ave., — Winnipeg
194S... Eitt framfara árið enn!
Þrátt fyrir þungan viðbótar starfskostnað, hefir City Hydro
markað árið 1945 sem annað hepnis ár. Þessar tölur, teknar úr
ársreikningunum fyrir árið 1945, segja stuttlega sögtma:
Af gangur.........................$ 754,424.50
Eignir og orkuver................ 29,703,747.01
LTpprunalegar skuldir............ 16,945,000.00
Beinar skuldir.................... 9,521,242.62
Sala á rafmagni................... 3,769,551.98
Samanlagðar tekjur ............... 4,207,139.69
Kílóvatt tímar notaðir í heima-
húsum árlega (til jafnaðar).. 5,649
Jafnaðargjald (öll þjónusta)...... .649?
Jafnaðargjald til heimila................ .792?
City Hydro lítur til framtíðarinnar í fullu trausti um
áframhaldandi framþróun. Að fullkomna verkið við Slave Falls
heldur áfram með fullum hraða. Það er vonast til að tvö “units”,
með 12,000 hestöflum hvert, verði fullgerð og tekin til starfa í
enda þessa árs.
CIT Y
YDRO
ER YKKAR — NOTIÐ ÞAÐ