Heimskringla - 31.07.1946, Page 11
WINNIPEG, 31. JÚLI 1946
HEIMSKRINGLA
11. SIÐA
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Heimtur úr helju
Golin Gibson, flugmálaráð-
herra, gerði kunnugt í neðri mál-
stofunni í þinginu nýlega, að
Flt. Lt. Bill McKenzie frá St.
Vital, Man., flugstjóri á loftfari
af hinni nýjustu gerð (jet pro-
pelled), er týndist fyrir nálega
mánuði síðan, væri fundinn, og
kominn til mannabygða.
Hann drógst með frekar veik-
um burðum inn í Blind River,
um 60 mílur fyrir vestan Sud-
bury, Ont. Fluttur var hann
loftleiðis til Ottawa, og lagður
inn á sjúkrahús; má geta nærri
að hann hefir þarfnast hvíldar
og styrkingar, þar eð hann hafði
ekki annað haft til matar en lítið
eitt af bláberjum, og alt það
vatn, er hann gat náð í.
Taldi hann, að einkum vatnið
hefði bjargað lífi sínu þennan
langa tíma, (hátt upp í mánuð),
sem hann var viltur og strandað-
ur norður í óbygðunum.
Hafði hann léttst um 47 pund.
Slysið vildi þÆnig til, er hann
var á leið frá Kapuskasing til
Toronto, að súrefni þraut, og eft-
ir það gasólíu, varð hann að
nauðlenda á Helen Bar Lake, 60
mílur fyrir norðvestan Blind
River.
Sökk vélin bráðlega, og bjarg-
aði hann lífi sínu með því að
synda meira en hálfa mílu til
lands.
Gat hann kveikt eld sér til
bjargar, en gekk illa að ha'lda
honum lifandi sökum sífeldra
rigninga, og dó hann með öllu út
að síðustu.
Byrjaði hann þá sína þrauta-
göngu rammviltur, er endaði
eins og áður er sagt með því, að
hann komst hrakinn og illa til
reika til mannabygða, en bar sig
þó hið bezta, og gerði lítið úr
hrakningum sínum.
Móður á hann og eiginkonu í
St. Vital. Má nærri geta hversu
þær hafa fagnað því, að vita að
hann var sloppinn úr greipum
heljar.
Hveitisanmingai’
Hveitisamning'ar milli Canada
og Bretlands voru gerðir heyrum
kunnir um sama leyti í Ottawa
og London. Þeir hljóða þannig:
Canada lofast til að selja nr. 1
hveiti frá Ft. William, Vancou-
ver eða Churohill, fyrir $1.55
mælirinn, fyrstu 2 árin.
Þriðja árið gerir hún kost á að
selja mælirinn fyrir ekki minna
en $1.25; og 4 árið ekki minna en
$1.00. (En samnings-tímabilið er
4 ár).
Samningar um verð hveitisins
tvö síðari ár tímabilsins eru þó
óákveðnir, og verður gengið frá
þeim síðar.
Verkfalla faraldurinn
Dr. Arthur MacNamara, verka-
málaráðherra lét svo ummælt í
bréfi til þingnefndar, að því
lengur sem stálverksmiðju-
verkfallið stæði yfir, því meira
og víðtækari áhrif hefði það, og
því meiri líkindi til, að það
mundi valda almennu verkfalli
Crescent Creamery
COMPANY LIMITED
Verzlar nteð “Beztu efni” mjólkur
framleiðsla yfir 40 ár
MJÓLK * RJÓMI * SMJÖR * ISRJÓMI
ÁFIR * SÚRRJÓMA * GEROST
Símið 37 101 fyrir daglegan heimflutning
QUAUTY PRODUCTS
MODERATELY PRICED
á öllum iðnaðar og framleiðslu-
sviðum um alla Canada.
| Dr. NacNamara benti á, að
árangur og afleiðing af verkföll-
unum í Bandaríkjunum væri
það, að 75% minni innflutt kol
yrðu í Canada þetta ár en 1945.
Þessi eldsneytis-skortur, sem
svo mikil áhrif hefir á stálfram-
leiðsluna þar, hvað þá heldur
þegar stálverksmiðjur hér í Can-
ada hætta framleiðslu, kvað
hann hafa áhrif á, og leggja
hömlur á allar verklegar fram-
farir á öllum sviðum í landinu.
Húsabyggingar yrðu að hætta,
þareð nauðsynlegustu birgðir
byggingarefna gengu til þurðar.
| Steypu-verksmiðjur neyddust
til að hætta framleiðslu með
öllu; þar af leiðandi yrðu akur-
yrkju-verkfæri ekki framleidd,
og járnbrautar-ferðir teptust að
meiru eða minna leyti.
I Rt. Hon. C. D. Howe, bygg-
inga- og umbótamála-ráðherra,
hefir nú þegar ságt þinginu, að
þær birgðir, er til sóu af nöglum,
hafi stjórnin tekið í sínar hendur
, itl bygginga þeirra, er forgangs-
rétt hafa,og innan lítils tíma
muni allar byggingar í Ganada
verða að hætta sökum skorts á
nöglum, haldi stál-verkfallið á-
fram.
I Samkvæmt bréfi Dr. MacNam-
ara rnyndu verkföll í vefnaðar-
verksmiðjum valda stórkostlegri
minkun allskonar fataefna, sem
nú þegar er ált of lítið af.
| Verkfall í efnasamsetningar-
verksmiðjum, hefðu einnig mikil
áhrif á allan canadiskan iðnað.
Stórfenglegur búskapur
Um helgina voru stödd hér í
bænum, ásamt dóttur sinni, Mr.
og Mrs. Eiieifur Stephaifson frá
Eston, Sask., og héldu þau öll
heimleiðis í gær (þriðjudag). Búa
þessi hjón svo stóru búi við
Eston, að leitun mun á öðru eins,
og mun óhætt að fullyrða, að
Eileifur er stærsti íslenzkur
kornyrkjubóndi í víðri veröld.
Hann hefir t. d. nú í ár yfir 3,000
ekrur undir korni. Alt þetta
mibla landflæmi á hann sjálfur
og sér um öll vinnubrögð í sam-
bandi við framleiðsiuna. Alt er
þar unnið með nýtízku akur-
yrkjuverkfærum og þaulvanir
mlenn á hverri vél, enda hæsta
kaup borgað við alla vinnu. —
Hefir landbúnaðardeild stjórnar-
innar tekið búskap hans og fram-
leiðslu sér til fyrirmyndar og
látið taka hreyfimyndir af öllum
hreyfingum er útheimtast við
plægingu, sáðningu, þreskingu
o. s. frv. Eru þessar myndir svo
sýndar víðsvegar um Canada, í
leiðbeinjngarstarfi er stjórnin
hefir með höndum, fyrir bænd-
ur þessa lands. Einnig hefir bú-;
skap þessum verið lýst í búnað- j
arritum Canada, bæði með
myndum og lesmáli svo sómi er j
eigendunum og öllum Islending-
um í heild. Heimskringla óskar
þessum myndar hjónum allra
heilla.
Eileifur er sonur Jóhanns
Stefánssonar er lengi bjó að
Svold, N. D.
Friðar-ráðstefnan í París
Búist er við, að Canada verði
ofarlega og skipi virðulegan sess
meðal þeirra 17 þjóðríkja, er
boðin eru af fjögra stórvelda-
ráðinu til friðar-ráðstefnu þeirr-
ar, er opnuð var í París nýlega.
Mikið er látið með Mr. King,
forsætisráðherra. Virðast París-
ar-búar líta upp til hans, og stór-
menni þau, er ráðstefnuna ætla
að sitja virðast búast við miklu
af honum.
Þar sem forsætisráðherra
Smuts frá Suður-Afríku er ekki
á ráðstefnunni, verður ætlast til
að Mr. King komi fram eins og
leiðtogi brezkra nýlenda í al-
þ j óða-f riðarmálum.
Það getur farið svo, að Mr.
King, Brooke Claxton, heilbrigð-
ismálaráðherra, og aðrir meiri-
háttar canadiskir fulltrúar leggi
ekki áilra manna mest til friðar-
málanna, hvað opinber ræðuhöld
snertir; traust það, er ráðstefnan
sýnilega ber til þeirra, vegur að
öllum líkindum meira, og verða
þeir meira viðriðnir nefndir
ráðstefnunnar í málum þeim, er
miklu þykja skifta.
1 Mikið er látið af viðtökum
þeim, er Mr. King mætti í París,
bæði af Bidault forseta og múgn-
um.
Féll að síðustu í valinn
Dauðinn náði að lokum tökum
á Lizzie Devers í Sapulpa, Okla-
home, er var búin að lifa af 5
stríð, og hélt því altaf fram, að
hún væri of sterk og of vel til-
búin til að deyja. Hún dó nú
samt nýlega.
Hún var 115 ára gömul. Fyrir
tveimur árum varð “Aunt Liz-
zie”, eins og hún var ávalt köll-
uð, fyrir bíl, og braut í sér nokk-
ur rif. Læknar sögðu henni þá,
að hún hefði haldið upp á sinn
síðasta afmælisdag.
Lizzie hreytti í þá, að hún væri
of sterk á svellinu til að verða
dauðanum að bráð, vegna þess að
hún væri “Cherdkee”, sambland
af Ira og Hollendingi, og væri
það einhver hin ákjósanlegasta
blóðblöndun, er hugsast gæti.
Lizzie seldi um nokkurt skeið
skottulækna-meðöl, og stjórnaði
einu sinni 160 ekru bújörð, al-
ein. Alveg nýlega fór hún upp í
flugvél í fyrsta sinni, og féll það
ágætlega.
I síðastliðinni viku sparkaði
kýr í aumingja Lizzie gömlu, og
varð hún að fara á Tulsa-spítal-
ann. Einn daginn fanst hún svo
önduð í húsi því, er hún bjó í al-
ein. Níu sinnum hafði hún giftst,
og var búin að missa alla sína
eiginmenn. Hún var mjög á móti
hjónaskilnaði.
Þingsályktun
Islenzka þing-ráðaneytið öðl-
ast fulla heimild og vald til að
sækja um upptöku í Þjóðabanda-
lagið. Það var ákveðið eftir að
þingið hafði felt breytingartil-
lögu, sem hefði gert umsókn um
inntöku í Þjóðabandalagið vafa-
sama og tvíræða, þar sem það
var um það leyti, að mest af setu-
liði Bandaríkjanna var kallað
heim.
Eldri maður tók að verða
heyrnarsljór og hræddist það
mjög, að hann myndi tapa allri
heyrn. Dag nokkurn, er hann
sat á befek í skemtigarði borgar-
innar, settist annar gamall borg-
ari við hlið hans. Sá heyrnar-
áljói sá að hinn nýkomni talaði
í sífellu, og þó gat hann ekki
greint nokkuð hljóð. Hann hlust-
aði og hlustaði, en árangurslaust.
Hann lagði hendina að eyra sér
— efekert hljóð. Að síðustu sagði
hann aumkvunarverðri röddu:
“Það er komið að því sem eg
hélt. Eg veit að þér hafið verið
að tala til mín nú um stund, en
eg hefi ekki heyrt eitt einasta
orð”.
Honum stórlétti, er sá, sem
við hlið hans sat, svaraði bros-
andi:
*‘Eg hefi efeki sagt nöfekurn
skapaðan hlut. Eg er að bruðla
á tyggigúmmí”.
BLUE RIBBON
TEA
Always Dependable
and Delicious
BLUE RIBBON
COFFEE
Rich
and
Flavory
BLUE RIBBON
BAKING POWDER
Ensures Baking Success
Save The Coupons
For War Saving Stamps
Islendingadagurinn
í Seattle, Wash.
HALDINN AÐ SILVER LAKE
Sunnudaginn 4. ágúst 1946, kl. 2 e.h.
SKEMTISKRÁ, kl. 2 e. h.
Forseti: H. E. Magnússon — Söngstjóri: Tani Bjömson
The Star Spangled Banner
Ó guð vors lands -------- ..... Fjöldinn syngur
Ávarp forseta ----------------H. E. Magnusson
Einsöngur----------------------Tani Bjömson
Upplestur, kvæði ------- Sigurður Stefánsson
RaéSa--------------------------Merkur gestur
Einsöngur---------------- Dr. Edward Pálmason
Eldgamla Isafold
My Country! Tis of Thee Fjöldinn syngur
Iþróttir og verðlaun. Dans frá kl. 6 til 9 e.h.
Frítt kaffi allan daginn.
★
FORSTÖÐUNEFND:
Jón Magnússon J. J. Middal
Hermann Thordarson Halldór Sigurðsson
Skafti Johnson J. B. Valfell
Fred J. Fredrickson
Complimenti o/
ZELLER’S LIMITED
PORTAGE AVE. (Between Hargrave and Carlton)
MANITOBA BIRDS
COMMON LOON — Great Northern Diver — Gavia immer
Distinctions. The Comrnon Loon is easily distinguished by its
marked caloration. It has a black bill and green reflections on
the throat. Juveniles and summer adults have rather pale bills
and the shape, slightly arched instead of straight culmen is
probably the best distinction.
Field Marks. Ail black head, throat and bill. In juvenility or in
winter plumage, size and unspotted back.
Nesting. On the boggy or rocky shores close to fresh water
where, When alarmed it can slide directly into the water. The
rather bulky nest is built of decaying vegetable matter.
Distribution. Over the whole of Canada, breeding wherever
conditions are suitable and the birds are not disturbed. In many
cases they remain in water as long as the water is open.
(See next week’s space for habits and Economic Status)
This space contributed by
THE DREWRYS LIMITED
MD168
Heillaóskir
til vorra íslenzku vina
The Searle Grain Company álítur að allir
bændur í Vesturfylkjunum eigi fullan rétt
á því að þeim sé borgað hæðsta verð
fyrir hveitið og aðrar korntegundir. Vér
trúum því þessvegna, að stjórn landsins,
í samvinnu við hveitisamlagið, eigi NÚ
ÞEGAR að borga bændum hæðsta verð
heimsmarkaðsins, $2.13 fyrir mælirinn, í
stað hins lága verðs sem nú er í Canada,
$1.55. — Bandaríkja bændur fá þennan
hærri prís. Því þá ekki vorir bændur?
Searle Grain
Company Limited