Heimskringla - 31.07.1946, Page 14
14. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 31. JÚLl 1946
W. J. Lindal:
MISSIR CANADISKRA
BORGARRÉTTINDA
Fjórða grein
Á tvennan hátt geta menn mist
borgararétt sinn: Með frjálsri
sjálfsákvörðun, og með stjórnar
ráðstöfun þess ríkis sem hann á
heima í, sem ér afleiðing af hans
eigin athöfnum.
Það er sjáanlegt að í fyrra til-
féllinu gerir það engan mismun,
hvernig hann varð borgari, hvort
heldur innfæddur eða með borg-
arabréfi. Afleiðingin er sú sem
hann ætlaði. Hitt er og jafn aug-
ljóst, að þegar ríkið afturkallar
eða ónýtir borgararéttindi ein-
hvers, er einungis um þá að
ræða, sem áður hefir verið veitt
borgararéttindi. Það snertir ekki
innfædda.
í sumum löndum getur þeim,
sem hefir verið veitt borgara-
réttindi, verið hegnt með því, að
svifta hann borgararétti sínum,
og svo endurveita hann fyrir
góða hegðun, en sú aðferð hefir
ekki verið tekin upp í Canada i
nýju lögunum.
Canada, einsog mörg önnur
lönd, vill komast hjá tvöföldu
þjóðerni. Það er þessvegna, að
canadiskir borgarar, fæddur ut-
anlands, verða samkvæmt nýju
lögunum að viðurkenna sinn
canadiska borgararétt er þeir ná
tuttugu og eins árs aldri, sam-
kvæmt því leyfi, sem veitt er í
mörgum löndum.
Canada leggur engar hömlur í
veg fyrir að canadiskir borgarar
afsali sér sínu canadisba þjóð-
erni, og taki sér annað.
Að taka sér annað þjóðerni
Hver canadiskur borgari, sem
á formlegan hátt og af frjálsum
vilja, utan Canada, aðrir en gift-
ir menn, tekur sér þjóðerni ein-
hvers annars lands, hættir að
vera canadiskur borgari. Ef inn-
fæddur Canada-maður fæddur
utan Canada er borgari þess
lands þar sem hann er fæddur,
getur hann hafnað sínum cana-
diska borgararétti þegar hann
verður tuttugu og eins árs. Ef
canadisk kona, með því að giftast
borgara annars lands, verður eft-
ir lögum þess lands, borgari þess,
getur hún einnig hafnað sínum
canadisku borgararóttindum. Ef
hún gerir það ekki, verður hún
borgari tveggja landa. Hermað-
ur, sem er borgari bæði Canada
og einhvers annars lands, hættir
að vera canadiskur borgari, ef
hann gengur í herþjónustu þeirr-
|ar þjóðar.
Ef barn fullveðja foreldra, sem
hafa mist sinn canadi9ka borg-
ararétt á þann hátt, sem tekið er
! fram hér að framan, verða, sam-
i
j kvæmt lögum þess lands borgar-
ar þess, þá hætta þau að vera
canadtókir borgarar. En barnið
er það verður tuttugu og eins árs
gamalt, getur með yfirlýsingu
orðið canadiskur borgari aftur.
Þar er allir canadiskir borgar-
ar eru brezkir þegnar, er viðhöfð
sérstök regla í tilfellum þegar er
einhver hættir að vera canadisk-
ur borgari. Ef hann gerist borg-
ari annars lands, en sem er í
brezka ríkjasambandinu, hættir
hann að vera brezkur þegn.
Missir borgarréttindanna
fyrir dvöi utanlands
Þetta áhrærir ekki innfædda
Canadamenn, né canadiska borg-
ara, sem hafa verið í canadiskri
herþjónustu á styrjaldartímum,
og hafa verið leystir úr herþjón-
ustunni með sæmd.
Allir aðrir canadiskir borgarar
missa af sjálfu sér sín canadisku
I borgararéttindi, er þeir hafa
, dvalið utanlands í samfleytt sex
Rjóma Framleiðendur
SENDIÐ RJÓMA YÐAR TIL
Central Dairies Limited
121 SALTER STREET — WINNIPEG
Þar fáið þér fljóta afgreiðslu og bezta verðið.
Hvort sem þér seljið eða kaupið
þá verzlið við oss.
HEILLAóSKIR TIL ALLRA ÍSLENDINGA!
ERIC A. ISFELD, ráðsmaður
Best Wishes to the
lcelandic People
Everywhere
United Grain Growers
Limited
Hamilton Bldg. — Winnipeg i
ár. Sérstakar tímalengdir um
1 dvöl utanlands, eru undanskild-
jar, svo sem stjórnarerindreka,
kaupsýslumanna og vegna
heilsubilunar o. þvl.
í lögunum er veglyndisleg
klausa, sem er öllum þeim til
verndunar, sem í einlægni vilja
hálda sínum canadiska borgara-
rétti, sem leyfir að borgararéttur
canadisks manns, sem dvelur
utanlands, megi vera framlengd-
ur, með því að leggja inn beiðni
um það til hlutaðeigandi ræðis-
manns, innan sex ára, þar sem
það er tekið fram, að burtveran
sé einungis bráðabirgðarleg og
að umbiðjandinn, í ailri einlægni
ætli sér að hverfa aftur til Can-
ada og talka þar upp búsetu sína.
Það er eftirtektarvert, að í öll-
um þessum tilfellum um missir
canadiskra borgararéttinda af
frjál9um vilja, er Canada bara
að uppfylla (verða við) óskum
borgara sinna, sem hafa tekið sér
aðsetur annarsstaðar.
Sum ríki neita að viðurkenna
jafnvel þjóðernis réttindi sinna
eigin borgara í öðrum löndum,
hvað þá heldur búsetu þeirra
utanlands. Borgarar slíkra landa
eru háðir því að vera endurkall-
aðir á stríðsárum, og ef þeir ó-
hlýðnast því kalli, getur illa far-
ið fyrir þeim, ef síðar næst til
þeirra.
Afturköllun canadiskra
borgararéttinda
Hér er mismunur milli inn-
fæddra og þeirra, sem hefir verið
veitt canadisk borgararéttindi.
Það er skilningur 9umra í Can-
ada, að borgarabréf sé óaftur-
kallanleg, nema fyrir svik eða
undirferli, og að ef löglegur
borgari gerist sekur um ilt fram-
ferði, hversu ilt sem það er, skuli
hann vera straffaður á vana'leg-
an hátt, eftir canadiskum dóms-
úrskurði.
Hér verður engin tilraun gerð
til að mæla með eða móti þessari
hugsanastefnu. Til að gera sér
skiljanlegt í hvaða átt stefnu
Canada hefir miðað áfram í
þessu máli, og hve nærri hún er
nú þessari skoðun, er gott að
kynna sér hvernig lögin voru áð-
ur en frumvarpið var lagt fyrir
þingið, og innihald þess eins og
það var að síðustu samþýkt.
Afturköllun undir lögunum
frá 1914
Fyrir 1914 voru engin ákvæði
í borgaralögum Bretlands né
Canada um afturköllun borgara-
legra réttinda. Það ár var bætt
við klausu bæði í brezku og cana-
disku lögin, sem tekur það fram,
að borgarabréf, sem hefði verið
fengið með falskri skýrslu eða á
sviksamlegan hátt, megi aftur-
kalla . Breyting á þessu var sam-
þýkt á Englandi 1918, og tveim
árum síðar í Canada, sem gáfu
meira vald til afturköllunar. —
Samkvæmt þeirri breytingu má
afturkalla borgarálegan heim-
ildarrétt þeirra: 1) sem á stríðs
tímum hefir ólöglega Skift við
óvinina, eða átt þátt í viðskiftum
sem á eihhvern hátt voru þeim
til aðstoðar; 2) fengið heimildar-
bréf á sviksamlegan hátt; 3) hef-
ir síðan hann gerðist borgari,
dvalið utan ríkis Hans Hátignar,
meir en sjö ár; 4) hefir innan
fimm ára frá þeim degi sem hon-
um voru veitt borgararéttindi,
verið dæmdur til ekki minna en
tólf mánaða fangelsisvistar eða
hegningarvinnu, eða fjárSektar
ekki minna en fimm hundruð
dollara (á Englandi 100 sterlings-
pund); 5) hefir sýnt með orðum
og athöfnum, óvild eða ótrúleik
Hans Hátign; 6) hafði ekki óskert
mannorð er honurn voru veitt
borgararéttindi; 7) verandi þegn
ríkis, sem er í stríði við Hans Há-
tign, og að í hverju tilfelli, sem
framhald á borgararéttindum,
miðar ekki til almennings heilla.
Afturköllun borgaralegra rétt-
inda undir nýju lögunum
Þessi var grundvöllurinn fyr-
ir endurköllun þegar upphaflega
frumvarpið var lagt fyrir þingið.
Sumu var haldið óbreyttu, sumt
var felt úr, eða breytt, fleiri og
þýðingarmeiri breytingar voru
gerðar áður en frumvarpið var
samþykt sem lög. Þannig er
brezkur þegn frá öðru landi tal-
inn með. Fyrstu og annari á-
stæðunni fyrir endurköllun hefir
verið haldið. Búsetu tímallengd
utanlands hefir verið stytt, frá
því 9em farið var fram á í frum-
varpinu, til sex ára, en er óbreytt
að öðru. Sjöttu og sjöundu á-
stæðunum var alveg slept úr.
Um fjórðu og fimtu ástæðurnar
urðu skiftar skoðanir. 1 fium-
varpinu voiu þær sem hér segir:
“Að innan fimm ára, eftir að
hafa gerst canadiskur borgari,
verið dæmdur af canadiskum
rétti, til ekki minna en tólf
mánaða fangelsisvistar; hafa í
orði eða verki komið fram sem
ótrúr eða óhlýðinn Hans Há-
tign.”
Þessi klau9a mætti sterkum
mótmælum innan þingsins, og
frá félögum og hópum rnanna
utan þingsins, sem hafði þau á-
hrif, að á hvorttveggja voru
gerðar stórar breytingar. Þeim
var steypt saman í eina klausu,
sem hljóðar þannig:
“Ef utan Canada, hefir í orði
eða verki sýnt óvild eða ótrú-
leik Hans Hátign eða ef í Can-
ada, verið dæmdur fyrir land-
ráð eða uppriesn, af canadisk-
um dómstól.”
Nægrar varúðar hefir verið
gætt, til að koma í veg fyrir að
canadiskir borgarar missi borg-
araréttindi sín, nema fyrir vel-
sannaðar sakir. — Borgaralegt
heimildarbréf er endurkallað
með stjórnarskipun, eftir skýr-
slu frá ríkisritaranum. Áður en
skýrslan er samin, verður ráð-
gjafinn að tilkynna það hlutað-
eigandi manni, sem má æskja
þess að málið sé tekið til ípann-
sóknar, og ef slík beiðni er gerð,
verður að veita hana. Rannsókn-
ina framkvæmir nefnd, undir
forustu manns sem hefir skipað
hádómara embætti, eða hæsti
réttur þess fylkis sem maðurinn
á heima í.
þess er eitthvað sem stjórn og
þing vilja ógjarna raska. Cana-
1 diska þjóðin er sammála um það.
SINCERE AND GOOD WISHES TO OUR MANY
ICELANDIC FRIENDS AND CUSTOMERS
from
Oxford Hotel
‘Meeting Place for Icelanders in Winnipeg’
★ i
VTCTORIA HOTEL LTD.
Joseph Stepnuk, Pres.
S. M. HENDRICKS,
Manager
Varanlegleiki canadiskra
j borgara-réttinda
Canadamenn geta varla fundið
1 að, eða verið óánægðir með, ef
icanadiskur samborgari aðstoðar
jóvini landsins á styrjaldar tím-
um, eða sem hefir fengið heim-
ildarbréf, með svikum, sé vegna
athafna sinna sviftur canadisk-
um borgara réttindum. Hann
| þarf ekki heldur að óttast um sín
borgararéttindi þó einhver Can-
j adamaður, sem býr í öðru landi,
missi borgararéttindi sín, vegna
þess að hann hefir sýnt óvild eða
| ótrúleik Hans Hátign, sem mein-
j ar Canada. Slíkur maður er utan
þess að canadisk lög nái til hans,
j og ætti ekki að vera leyft að vera
I undir vernd canadiskra borgara-
réttinda.
Hinn eini mismunur, innan
Canada, milli réttinda innfæddra
og þeirra sem hefir verið veitt
borgaralegt heimildarbréf, er í
sakaráfelling fyrir landráð og
drottinsvik. Þess ber að gæta,
að fimm ára tímabilið hefir verið
numið burt. Sakaráfelli fyrir
landráð og drottinsvik, geta á-
valt og altaf verið ástæða til að
aftuykalla borgaraleg heimildar-
réttindi.
Þegar canadisk stefna, eins og
hún birtist í lögunum, er höfð í
huga, og ástæðurnar fyrir endur-
köllunum, sem enn eru, er grand-
skoðað, þá verður augljóst að
canadiskt borgara-heimildarbréf
hefir varanlegt gildi, og að helgi
Sunnud. 4. ág. messar sr. H. S.
Sigmar frá Seattle, í Wynyard
kl. 2 e. h. (Standárd Time) og í
Elfros kl. 8 (Daylight Time). —
Báðar messurnar á ensku. Fólk í
Kandahar beðið að aðgæta hvert
að þar verður auglýst heima fyr-
ir ensk messa bl. 11 f.h. (St.)
Sama sunnudag messar séra H.
Sigmar frá Vancouver. í Krist-
nes bl. 11 f. h., í Leslie bl. 3. í
Foam Labe bl. 8 e. h. — Fljóti
tíminn alstaðar. Á ísl. og ensku
eftir því sem óskað er.
Presturinn á sveitasamkom-
unni var bæði hryggur og gram-
ur, er hann horfði á blæðaburð
sumra ungu stúlknanna.
“Lítið þér á þenna ungling”.
sagði hann við einn gestanna við
hliðina á sér, “þennan með stutta
hárið, í reiðbuxunum og með
sígarettuna í munninum. Hvort
er þetta piltur eða stúlka?”
“Stúlka”, var svarið, “Þetta er
dóttir mín”.
“Ó, afsakið þér”, flýtti prest-
urinn sér að segja, “eg hefði
ekki ta’lað svona, hefði eg vitað
að þér væruð faðir hennar”.
“Eg er það ebki”, svaraði
samkomugesturinn. “Eg er móð-
ir hennar”.
★ ★ ★
“Hvað er að, drengur minn?”
spurði vingjarnlegi maðurinn
snáðann litla. “Ertu týndur?”
“Nei”, var hið barlmannlega
svar, “eg er ekbi týndur — eg
er hérna. En mér þætti gaman
að vita, hvert mamma og pabbi
hafa nú flæbst”.
Til lukku með íslendingadaginn!
Verzlum með allar tegundir af
málningavörum og veggjapappír.
Asgeirson’s Hardware
Paint & Wall Papers
698 SARGENT AVE.
SÍMI 34 322
Sendið kveðjur
FJARLÆGUM KUNNINGJUM
OG ÁSTVINUM MEÐ
LONG DISTANCE
TELEPHONE
Iðgjöld væg eftir kl. 6 e. h.
og alla sunnudaga
Raust þín ert þú!