Heimskringla - 23.07.1947, Blaðsíða 5

Heimskringla - 23.07.1947, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 23. JÚLl 1947 HEIMSKRIKGLA 5. SIÐA að segja, að þjóðlega hreyíingin okkar 1814 hefði verið óhugs- andi án Snorra.” Drengilega er þetta mælt í garð vor íslendinga, og ummæl- in að því skapi eftirtektarverð- ari, þar sem þau koma frá gjör- hugulum og víðkunnum fræði- manni, sem eigi verður ásakað- ur um skrum eða skjall. En fyrst Norðmenn telja sig, og það með réttu, í slíkri skuld við Snorra Sturluson, hvað þá um menningarlega skuld vor ís- lendinga sjálfra við hinn forna sagnaþul og málsnilling? Það er oss holt að rifja upp fyrir oss í samibandi við þá minningarhá- tíð, sem honum hefir nú verið haldin til heiðurs, á hinu fræga menntasetri, sem jafnan verður tengt við nafn hans. En skuld vora við Snorra Sturluson túlk- aði Jón Magnússon fagurlega og eftirminnilega í kvæði siínu um hann, og sómir vel að ljúka greinarkorni þessu með því prýðilega ^cvæði: “Aldir sjö með báli og brandi brutu hvergi í virkið skarð. Heldur æ þinn haukskyggn andi hæstan vörð um Reykholts garð. Eyðist gu'll og silfursjóðir, sökkva lönd í rogakaf. Helja gleypir heilar þjóðir. Hver er sá, sem lifir af. Það er sá, sem sálarauðinn . setur hærra en valdsins bráð. Andann vinnur aldrei dauðinn, engin hefnd né lokaráð. Þtínir bautasteinar standa steyptir djúpt í Norðurlönd, aðsúgsféndum ögra, granda, orka feigð á níðingShönd. Upp úr gleymdum hetjuhaugum hófstu mikinn sagnaifeng. Þér varð skyggni á andans augum Undirspil frá hjartans streng. Heilagt guðspjall göfgi og snilli gafstu, Snorri, vorri þjóð. Um þig streymir alda milli Islands dýra hjartablóð.” Richard Beck “Inni lá hann hjá mér í nótt fíflið að tarna”. Björn Gunnlaugsson yfir- kennari var, sem alkunnugt er uiiklum gáfum gæddur. Þá er 'hann var orðinn stúdent ferðað- ist hann einförum, úr Húavatns- sýslu norður á Akureyri til ,áð fá þar tilsögn í landmiæilingum hjá mælingameisturum þeim dönskum, er þar voru að mæla landið. Á leið sinni um Yxnadal bar hann laugardagskvöld eitt að bæ þeim er Gloppa heitir og lók þar gistingu að Kristjáni bónda, er þar bjó, og fór að uuorgni leið sína ofan Yxnadal og fann að máli fáa menn. Á sunnudaginn var messað á Bakka. Köm þá Kristján frá Gloppu til kirkju. Hjöduðu bændur sín á milli um ferð Bjarnár og hvar hann mundi Verið hafa um nóttina, viku sér að Kristjáni og spurðu: “Var Bjiörn hjá þér Kristján minn í uótt?” — “Já”, svaraði Kristján, “Inni lá hann hjá mér í nótt, ííflið að tarna. (Úr Isafold) ★ ★ * * Latur eiginmaður: Eg sé að þeir eru að byrja nýtt verkfall. Konan: Já — ef þú værir Uieira en hálfur maður, ætt- irðu nú að geta fengið atvinnu — og gert svo verkfall með þeim. TIL MEÐLIMA ÞJÓÐ- RÆKNISFÉLAGSINS OG ANNARA GÓÐRA ISLENDINGA Lundar, Man., 13. júnií, 1947 Það hefir dregist lengur en skyldi, að skýra frá helztu á- formum og gerðum Þjóðræknis- félagsins. Stafar sá dráttur af annríki mínu vegna demants há- tíðarinnar á Lundar og svo vildi eg heldur ekki skrifa fyr en frá einlhverju verulega markverðu væri að segja. Nú get eg það. Á síðasta þjóðræknisþingi var stjórnarnefndinni falið, að ráða útbreiðslu og fræðslustjóra til að ferðast um og dvelja um stund hjá deildunum í því augna- miði fyrst og fremst, að aðstoða þær við að enduriífga félags starfsemi þeirra, og í öðru lagi að koma skipulagi á kenslumál- in hjá hinum ýmsu deildum. Nefndin gerði sér strax grein fyrir 'því, að vandi myndi að velja þann mann eða konu er heppilegust myndi til þessa mik- ilsverða og erfiða starfs, en þetta tókst þó öllum vonum framar, að þessu sinni. Stjórnarnefndin hefir ráðið Mrs. Hólmfníði Danielsson fyrir þrjá mánuði til starfsins. Mun engum dyljast hugur um að heppilegri fulltrúa hefði Þjóð- ræknisfélagið ekki getað kosið sér. Allir, sem þekkja frú Dan- ielsson þekkja áhuga hennar og dugnað. Hún hefir líka til brunns að bera þá hæfileika og þá ment- un er frekast verður ákosið. Hún er þess utan svo víðsýn og svo vel okkar málum kunnug og öll- um ástæðum, að á betra verður ekki kosið. Má búast við góðum árangri af starfi hennar vilji deildirnar og fólkið í bygðarlög- unum styðja hana í starfinu. — Engin manneskja, hversu dugleg og hæf sem hún kann annars að vera, megnar að gera alt, án að- stoðar og velvilja heimafóliksins. Hér er tækifæri að hefjast handa og Þjóðræknisfélagið, eins og þess er skylda, ríður nú á vaðið. Er það ósk og beiðni Þjóðræknis- félagsins til almennings, að styrkja frú Danielsson í starfinu á allan hátt. Framhaldið fer eftir undirtektum fólksins og á- rangri. Styrki það starfið vel á allan hátt má búast við áfram- haldi og góðum árangri. Eru það tilmæli stjórnarnefndarninar, að deildirnar skrifi ritara Þjóð- ræknisfélagsins, sem fyrst um væntanlega þátttöku þeirra og leiti sér frekari upplýsingar um fyrirkomulagið og tilhögun eins og við í sérnefndinni höfum hugsað okkur hana. í nefndinni eru forseti félagsins, séra V. J. Eylands, J. J. Bíldfell og ritar- inn, séra H. E. Johnson. Annað mál sem hafist hefir verið framkvæmda á er að fá prentaðar og útbúnar hljómplöt- ur til íslenzkunáms eins og þeg- ar eru notaðar víða hérlendis við kenslu annara tungumál. Vinn- ur próf. Stefán Einarsson í Balti- more nú að þessu og er búist við að því verki verði lokið bráðlega. Gætu menn þá keypt þessar hljómplötur og hljómvélar. Verð ur auðvitað nánar skýrt frá þvi þegar þessi tæki koma á mark- aðinn. -Annað mál, sem margir hafa nú hinn mesta áihuga fyrir er að félag vort bjóði einhverjum Til kaupenda Heimskringlu og Lögbergs Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumllunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn og 50^ á eins dálks þumlung fyrir samskota lista; þetta er að vísu ekki mikill tekjuauki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. THE VIKING PRESS LTD. THE COLUMBIA PRESS LTD. merkum Islendingi að heiman til fyrirlestrahalds hér vestra. Þykir mörgum sem nú sé mjög á okkur tekið halla um heimböð- in þar sem frændumir heima bjóða nú á hverju ári svo að segja einhverjum úr okkar hópi heim. Ef af slíku verður er mjög áitíðandi að valið takist vel og væri æskilegt að deildirnar tækju málið til umræðu og létu í ljósi sinn vilja. Þriðja stórmálinu var enn á ný hreyft á þinginu: húsbygg- ingarmálinu. Þykir mörgum full þörf á því að íslenzkt sam- komuhús verði reist í Winnipeg. j Málið hefir verið talsvert rætt svona manna á milli og á síðasta þingi var nefnd sett í málið til frekari athugunar. Er sú nefnd skipuð duglegum áhugamönn- um úr Winnipeg. Kæmist þetta til íramkvæmda mætti búast við, að félagslíf milli íslendinga glæddist stórum í Winnipeg. Sú hefir og raunin á orðið meðal fólks af öðrum þjóðum er eiga slák samkomuhús. Úkranar eiga mörg slík, sömuleiðis Irar frá Ulster, “Orange Halls”; Norð- menn, Svíar og Danir eiga þau mörg 1 ýmsum borgum, en ís- lendingar ekkert, nema þar sem söfnuðirnir sumstaðar hafa sam- komusali til almennra afnota og svo Templarahúsið í Winnipeg, sem er óhentugt og of lítið fyrir stærri samkomur. 1 þessu sambandi má þess geta að Þjóðræknisfélagið á nú skuld- laust húseignina á Home stræti, sem áður var notuð sem skóla- hús meðan Jóns Bjarnasonar skóli var enn við liíði. Fyrir framsýni nökkurra manna í Winnipeg var þetta hús keypt og hefir nú verið borgað að fullu. Ekki er mér kunnugt um alla þá er fyrir þessu gengust, en um einn veit eg þó er miklar þakkir verðskuldar í þVí sam- bandi, Ólaf Pétursson. Hefir hann verið umsjónarmaður byggingarinnar í fjölda mörg ár og honum er það að mjög miklu leyti að þakka, að eignin er nú skuldlaus með öllu. Sumum hefir dottið ií hug hvert ekki mætti nú breyta þess- ari fjölbýlis húseign í samkomu- hús að einhverju leiti. Sjálifsagt að fara hér gætilega í sakirnar iþví sem stendur skilar bygginig- in allgóðum arði, en til félags- þarfa verður hún ekki notuð nema að mjög litlu leiti sem stendur. Það sem vakir fyrir mönnum er að koma sér upp húsi, sem gæti haft tvo samkomusali, ann- an lítinn fyrir fundi, hinn stærri fyrir samkomur. Auk þess her- bergi fyrir bókasafn er væri jafnframt lestrarsalur. Þá her- bergi til að geyma, til sýnis’ þá muni, sem félaginu hefir gefist og vonandi gefst, nokkurskonar þjóðmenja og nýlendu safn. Jú, óneitanlega væri skemtilegt og gagnlegt að eiga þvílíkt félags heimkynni og verðugur minnis- varði gæti það orðið um ís- lenzku hermennina, sem féllu í stbíðinu. Hefur sú uppástunga komið fram hjá sumum. Væri það vel tilfalið því nú eru víða reist sllík hús í bygðum og bæj- um þessa lands, til minningar um fallna hermenn. Sízt má maður greyma náms- meyjunni efnilegu Agnesi Sig- urðson. Hún lýkur nú niámi næsta vetur. Engum er til henn- ar þekkir, blandast hugur um að þar er listakona að námi er mun verða ókkur öllum Islendingum til sóma. Þjóðræknisfélagið hef- ur veitt 200 dollara í Agnesar- sjóðinn. Er nú ekki nema herzlu munurinn að sjá ungfrúnni borgið. Er hugmynd hennar að byrja listaferil sinn í New York en víkja þar næst til íslands. Yrði hún glæsilegur fulltrúi vor á ættlandinu. Síðar myndi hún túlka list siína fyrir þúsundum, sem hugsuðu hlýlega til ætt- lands vors og þjóðar meðan hún seyðir töfratóna úr slaghörp- unni. Eg veit þið neitið ykkur ekki sjálfum um þá ánægju að styrkja hana til náms. 1 umboði Þjóðrækisfélagsins Virðingarfylst, H. E. Johnson (ritari) FJÆR OG NÆR Júlíus Anderson, Jakobína kona hans og dóttir þeirra frá Ghicago, hafa dvalið hér nyrðra rúma viku, að heimsækja skyld- fólk og kunningja. Mrs. Ander- son er dóttir Váglundar Vigfús- sonar á Gimli. Mr. Anderson fór einnig norður til Flin Flon að heimsækja þar skyldmenni sín. Andersons hjónin lögðu af stað suður í byrjun þessarar viku. * * * Gifting Laugardaginn, 19. þ. m. voru þau, Garnet Austin Wooley frá Hólland, Man., og Lillian Anna Johnson frá Baldur, Man, gefin saman í hjónaband, af séra Rún- ólfiMarteinssyni, að 800 Lipton St. Heimili þeirra verður í Flin Flon í Manitoba. * * * Eftirfylgjandi nemendur Mr. O. Thorsteinssonar á Gimli,! Man., tóku próf við Toronlto Conservatory of Music: Grade 1 Piano, First Class Honors: Laura Stefánson, Lor- raine Péturson. i j ______ Grade 2 Piano, First Class | ^ . , , - * x TT „ _. | Fynr nokkru var eg a terð Honors: Donna Mae Einarson,1 ■'. .. . ... T j, f , „ TT , með lestinm til London. 1 einu horninu sat ungur maður sof- andi og við hlið hans gamall maður. Eftir dálitla stund snéri TT _ gamli maðurinn sér að okkur Grade 4 Piano, Honors: Con- 5\ . .*___,____ xt__c " hinum og sagði um leið og hann HALDIÐ H0FÐINU SV0LU "BRAID" STRÁHATTAR Með því að nota þessa hatta getur yður liðið þægilega, jafnvel þegar hitinn er mestur, og altaf litið vel út. Miklu úr að velja bæði hvað tízku og liti snertir. Gisnir eða þétt ofnir, eftir þvi sem hver vill hafa. Mismunandi borðar eftir smekk manna, bæði að li-t og lögun. Stærðir 6% til 7%. Hver $1.95, $2.25 og $2.50 —Karlmanna hatta deildin, Hargrave Shops for Men, Aðalgólfi. T. EATON C° UM4TED SMÆLKI Guðrún Stevens, Frances Krul- itski. Grade 3 Piano, Honors: Alda Narfason. stance Benediktson, Ólaf Narfa- son, Grace Sigurðson. Grade 7 Piano, First^Class Honors: Sylvia Hólm. Grade 8 Piano, Honors: Mar- garet Jones. Grade 4 Violin, First Class Honors: Roland Jones. benti á unga manninn: “Þetta er sonur minn. Hann sefur alltaf þegar hann ferðast, j.afnvel þó hann hafi peninga; t. d. veit eg að hann hefir mörg hundruð pund í veskinu sínu í dag. Nú ætla eg að gera honum grikk. Eg tek veskið hans og þegar w hann vaknar megið þið ekki BRAUTIN segja honum hver hafi tekið Ársrit Sameinaða Kirkjufé- veskið Að því búnu tók gamli agsmS’ er til sölu hjá. -maðurinn veskið upp úr vasa Bjorn Guðmundsson Holtsgata unga mannsins og fór út. Við ’ 6^,^aV1 ’ ce^an(* næstu stöð vaknaði ungi maður- Bokaverzlun Árna Bjarnarsonar, inn Qg ætlag. út> en um leið og Akureyri, Iceland Bókaverzlun Þorsteins M. Jóns- sonar, Akureyri, Iceland Björnssons Book Store, 702 Sar- gent Ave., Winnipeg. Viking Press Ltd., 853 Sargent Ave., Winnipeg, Man. K. W. Kernested, Gimli, Man. Gestur Pálsson, Hecla, Man. F. Snidal, Steep Rock, Man. Guðjón Friðriksson, Selkirk, Man. Björn Björnsson, Lundar, Man. Mrs. Guðrún Johnson, Árnes, Man. B. Magnússon, Piney, Man. Séra E. J. Melan, Riverton, Man. Man. Mrs. B. Mathews, Oak Point, Man. Ingimundur Ólafsson, Reykja- vík, Man. G. J. Oleson, Glenboro, Man. J. O. Björnson, Wynyard, Sask. Jón Ólafsson, Leslie, Sask. Thor Ásgeirsson, Mozart, Sask. E. E. Einarsson, 12 E. 4th Ave., Vancouver, B. C. G. Thorleifsson, Garðar, N. Dak., U.S.A. Thordarson, Blaine, Wash. Ch. Indriðason, Mountain, N. D J. J. Middal, Seattle, Wash. G. B. Jóhannson, Geysir, Man. Tímóteus Böðvarsson, Árborg, Man. w * * Sigurður S. Anderson, 800 Lipton St., hefir tekið að sér inn- köllun fyrir Hkr. í Winnipeg. Áskrifendur eru beðnir að minn- ast þessa og frá þeirra hálfu gera honum starfið sem greiðast. — Símanúmer hans er 28 168. * * * Framvegis verður Heims- kringla fáanleg í lausasölu, hjá hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla vörðustíg 2, Reykjavík, Island. hann stóð upp uppgötvaði hann að veskið var horfið. Samferða- menn hans fóru að hlæja og sögðu honum loks að faðir hans hefði tekið það. “Faðir minn,” hrópaði hann, “hann dó fyrir 10 árum.” * * ★ Kennarinn: “Franlk, hvað er mannæta?” Frank: “Eg veit það ekki.” Kennarinn: “Jæja. Ef þú ætir föður þinn og móður, hvað vær- irðu þá?” Frank: “Munaðarleysingi.” * * * Söfnun í hið fræga Roosevelt frímerkjasafn, sem að Mkindum mun verða selt, hóf Sara Delano Roosevelt, móðir Franklin D. Roosevelts heitins forseta. Siíð- an var safnið stöðugt aukið alla ævi forsetans. , Heimskringla er til sölu hjá hr. bóksala Árna Bjarnarsyni, Akureyri, Island. Kaupendur Heimskringlu og Lögbergs á Islandi Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON, Holtsgata 9, Reykjavík VERZLUNARSKÓLANAM Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein- mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun, og það fólk sem hennar nýtur hefir venju- lega forgangsrétt þegar um vel launaðar stöður er að ræða. Vérhöfum nokkur námsskeið til sölu við fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg. Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu viðvíkjandi, það margborgar sig. The Viking Press Limited Banning og Sargent WINNIPEG :: MANITOBA

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.