Heimskringla - 14.01.1948, Blaðsíða 1
We recommend for
your approval our
//
BUTTERfNUT
LOAF"
CAMADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend for
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 14. JANÚAR 1948
NÚMER 16.
FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Lánsamningur við
Bandaríkin
Laust fyrir síðustu helgi und-
irritaði Hon. D. C. Abbott, fjár-
málaráðherra Canada, lánsamn-
inga í Washington við “Export-
Import bankann um $300,000,
000 lán er Canada tekur með
2i/o% vöxtum.
Á upphæð -þessi að greiðast
með þremur afborgunum, þrem-
ur, fjórum og fimm árum eftir
lántökuna. Upphæð þessi verð-
ur dregin á einhverjum vissum
tímabilum á þessu ári(1948) og
var gerð heyrum kunn og lög-
gilt áður en canadiska stjórnin
lagði innflutningshömlurnar á,
17. desember síðastliðinn.
Lánsupphæð þessi verður not-
uð til þess að kaupa fyrir hrá
efni frá Bandaríkjunum, og
ýmsar vélar, er nauðsynlegastar
Þykja, til þess að auka fram-
leiðsluna í Canada á ýmsum
sviðum. Um frekari lánsamninga
við Banadaríkin, er hann hefði
'borið upp á þinginu, sagði Mr.
Abbott aðeins það, að þeir for-
kólfar, er hann hefði rætt þau
mál við syðra, hefðu sýnt hina
mestu samúð og skilning.
Mr. Abbott kvað sér mjög um
hugað um það, að nýjir samn-
ingar yrðu víðtækari og um-
fangsmeiri en Geneva-samning-
amir, er nú liggja fyrir þing-
inu.
Ef allir hjálpast að
Frá Lake Success, N. Y.
Hvað geta óbreyttir einstakl-
iugar mannfélagsins gert til þess
að sporna á móti stríðum, og
bjálpa til að koma í veg fyrir
þau?
Tryggve Lie, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, og æðsti mað-
ur á því alþjóðasviði, heldur því
fram að þeirri spurningu
verði svarað með gerðum Sam.
þjóð., stofnun, sem á að vera
umiboðs og fulltrúanefnd al-
mennings, og málsvari fjöldans
til þess að öðlast frið, og gera
heiminn betri stað til þess að lifa
í. i
Mr. Lie heldur að Sam. þjóð.,
geti komið í veg fyrir stríð, með
t>ví að snúa sér að því að eyða
öflunum sem mest tendra ófrið-
anbálið og vinna á móti friði.
Með því að vinna með óaflát-
anlegri elju að vandlega íhuguð-
um almennum félagslegum um-
bótum á hagfræðilegum sviðum,
°g lagfærra þær þjóðfélagsveil-
ur, er valda því, að lýðurinn
grípur til óyndis-úrræða. Mr.
Lie sagði í útvarpsræðu nýlega
aö ef Sam. þjóðirnar ættu að
geta komið áformum sínum í
framkvæmd, yrðu þær að njóta
aðstoðar stjórnarvalda allra
landa. Allar stjómir yrðu að
vera reiðubúnar til allrar mögu-
legrar samvinnu. Stjórnarvöld
aUra heimsþjóðanna mættu til
að vera viðbúin því, að hafa vel-
ferð alls heimsins sem einnar
beildar fyrir augum, og breyta
samkvæmt því — fórna sínum
elgin hagsmunum fyrir þjóða-
beildina; með því eina móti gæti
eitthvað áunnist í friðaráttina.
Almúginn í öllum löndum
m®tti til að sýna trú sína og
traust á hugsjónum Sam. þjóð.,
°S greiða þau fórnargjöld, er
friðarhugsjónirnar og fyrirætl
anirnar útheimtu.
Ráðleggingar Mr. Lie. voru
Þær: Að lesa eins mikið og mögu
legt er um aðrar þjóðir, og ann-
að fólk, og reyna að taka þátt í
kjömum þess með samúð og
hluttekningu.
Að hafa það ávalt í huga, að
neyð og þjáningar sem eiga sér
stað í einihverju landi hversu
fjarlægt sem það er, er blettur
á menningunni í heild, og hlýtur
að snerta mann sjálfan, fjöl-
skylduna, heimilið og alt þjóðfé-
lagið í þínu eigin landi.
Kjötsala fer minkandi
Smásölu-kjötverzlanir í Wpg.
hafa skýrt frá því, að undireins
um síðustu helgi hafi mátt sjá
þess merki, að húsmæður þess-l
arar borgar ætla sér fyllilega að
sýna vanþóknun sína og gremju
yfir íhinu hækkaða kjötverði,
með því að kaupa sem minst af
því sem mögulegt verður af að
komast.
Skýrðu kjötsalar frá því, að
um 20% minna að meðaltali
hefði verið keypt af þeim kjöt-
tegundum, sem hækkuðu í verði
en áður.
Almenningur er óánægður,
ekki aðeins yfir kjötverðshækk-
uninni, heldur yfir sívaxandi
dýrtíð á öllum sviðum. Fyrstu ó-
þreifanlegu merkin um það, að
hin óstjórnlega verðhækkun
manneldis og fæðutegunda hafi
óheillarík áhrif á heilsufar þjóð-
arinnar, er sú yfirlýsing frá al-
menna sjúkrahúsinu í Wpg, að
taka verði til þeirra örþrifaráða
að minka kjötskamt sjúkling-
anna til helminga.
Lýsti yfirmaður sjúkrahússins
Dr. H. Coppinger, því yfir ný-
lega, að sVínakjötskamt (bacon)
verði að minka um helming, og
sömuleiðis aðrar kjöttegundir,|
sökum hins hækkaða kjötverðs.)
Yfirlýsing þessi var borin fram
skömmu eftir að Dr. Coppinger,
hafði skýrt frá því, að spítala-J
vistargjald í almennri sjúkra-
stofu (public wards) yrði hækk-
að um helming, eða úr $2.50 upp
í $5.00 á dag.
Eigandi einnar kjötverzlunar
hér í borg, er talinn að hafa
skýrt frá því, að kjötkaup hefðu
minkað um 50%; kvaðst hann
ennþá selja “side bacon” á 72c|
pundið.
En jafnvel fyrir það verð
gengi það ekki út. Hvað myndi
þá verða þegar hinar nýju birgð-
ir kæmu, er selja þyrfti á 90c.
pundið.
Til dr. S. J. Jóhannessonar og frúar hans
á áttræðisafmæli hans
Þú átt svo marga’ af eiginleikum þeim
sem orka því að bæta þennan heim.
Það voru engin almenn hugðarmál
sem ekki snertu streng í þinni sál. -—
Og meðan í æðum örast rann þitt blóð
var enginn hér sem þér á sporði stóð.
Var ekki utan Islands meiri þörf
og akur betri fyrir líknarstörf?
Og hnekkur sá sem heimaland þitt beið
varð hagur þeim, sem vestur beindu leið. —
1 útlegðinni’ á ókunnugri grund
var engu minni þörf á fórnarlund.
Það sem hjá flestum aðal-takmark er
varð aukagrein og lítils vert hjá þér. —
Að lækna sjúka, það var takmark þitt
það skifti aftur litlu máli um hitt
þó skortsins vegna gjaldið væri’ ei greitt —
þú gætir þá læknað fyrir ekki neitt.
Og ef til vill gekk enginn meðal vor
eins oft og þú í Samarítans spor. —
Það duldist fáum að þú hyltir hann,
en hvorki Prestinn eða Levítann,
því líknarhönd þín hjúkrun öllum bjó
sem hröktust mest á leið til Jeríkó.
Já, löng og grýtt var leiðin sem þú gekkst,
og létt í vösum gjöldin sem þú fékkst.
Um slíkar sakir hirtirðu’ aldrei hót,
en hugljúft finst við þessi tímamót
að hafa lifað áttatíu ár
og átt þess kost að lækna fjöldans sár.
Og þökk sé henni’ er hálfrar aldar skeið
þér hefir fylgt og stutt á æfileið —
sem breiddi yfir alt það tímabil
þá ást, er þekti lítil dægraskil, —
þá ást og trygð er veittu þrek og þrótt
um þungan dag og langa vöku-nótt.
Ragnar Stefánsson
Frumvarp Trumans forseta
Frá Washington — Eftirfylgj-
andi frumvarp eða fyrirætlana-
skrá í 10 liðumjíbar Truman for-
seti fram fyrir þingið nýlega til
staðfestingar:
1. Að lækka tekjuskatta um
$3,200,000,000 með því að veita
hverjum skattgreiðanda ver-
launuðu stéttanna og áhangend-
um hans hlutfallslega $40.00
uppgjöf, eða dýrtíðar-uppbót, en
hækka skattana á auðfélögum.
2. Að hækka grunnkaup, —
minnimum wage — úr 40c upp
í 75c á klukkutímann.
3. Að koma þessu 10 liða end-j
urbótafrumvarpi til leiðar tafar-
laust.
4. Að löggilda greiðslu $6,800,-
000,000 fyrir fyrstu 15 mánuð-
ina, sem tilgreindir eru í Marsh-
alls-fyrirætluninum. I
5. Að koma húsaleigu ákvæð-'
unum í fastara horf.
6. Að veita allsherjar kenslu,
— æfingar — í hernaðar-íiþrótt-
um.
7. Auka styrk til atvinnu-
lausra, gamalmennastyrk, og
koma á tryggingarkerfi í sam-
bandi við sjúkragjöld.
8. Að Sambandsstjórn hefjist
handa þegar í stað að vemda
borgararétt einstaklingsins án
tillits til þjóðernis eða trúar-
legrar afstöðu. Um þetta efni
verður þó sérstaklega rætt síðar.
9. Sambandsstjórnar fjárfram
lag til skóla.
10. Ný framkvæmdadeild til
umlbóta heilbrigðismálum, —
mentamálum og félagslegu ör-
yggi-
Frá Lake Success N. Y. berst
það að borgin Amsterdam hafi
gegnlum hollenzk stjórnarvöld
gert hin sterkustu tilboð að
vera bráðabirgða höfuðborg
heimsins, þegar Sameinuðu þjóð
irnar halda sína allsherjarráðs-
fundi einhverstaðar í Evrópu
með haustinu 1948.
Ákvörðun um val staðarins til
þessara mikilvægu funda, veltur
á því að finna nægilega stórt
gistihús og skrifstofurúm fyrir
um 4,000 fulltrúa, skrifstofu-
þjóna og blaðamenn.
Er París talin nú sem stendur
sá staður fyrir þessar miklu ráð-
stefnur, sem líklegastur er til að
verða fyrir valinu.
Frá Rangoon, Burma — Kar-
en veiðimenn hafa fangað hvít-
an fíl (elephant) sem heilagur er
talin í Burma, í frumskógunum
í Salveen-dalnum.
Maj. Saw Sam Po Thin, stríðs-
varnaleiðtogi í Karen, og
fræðslumálaráðherra í stjórn-
arráðuneytinu í Burma lét blaða
mönnum þessa fregn í té.
Sagt er að til mála hafi komið
hjá stjórninni á frakklandi að
lækka gildi gjaldeyris síns
frankans — hafi hún, (stjómin
leitað hófanna hjá Alþjóðlega
skiftimyntar- ráðinu, hvort ráð-
legt væri að gildislækkunin
kæmist á.
Sendiherrastöðvar, sem þessi
orðrómur er hafður eftir, full-
yrða þó ekkert um þessar ráða-
gerðir. 1 skeytum frá París
hefir það þó borist að Robert
Schuman, forsætisráðherra, hafi
borið það upp fyrir ráðuneytinu
hvort lækkun ó gildi franskra
peninga myndi ekki gera kaup
á franskri útflutningsvöru að-
gengilegri, og bæti þannig úr
dollara-gj aldeyrisskortinum. En
ekkert hefir enn verið afgert í
þessu máli.
S. 1. mánudagskv. lýsti Mo-
handas K. Gandhi, hinn andlegi
og veraldlegi leiðtogi á Indlandi
því yfir á bænafundi, að hann
myndi taka til þeirra ráða að
svelta sig til dauðs ef Hindúar
og Múhamedstrúarmenn léttu
ekki nú þegar ófriðnUm, er stað-
ið hefir þeirra milli undanfarið
Voru það meira en hótanir ein-
ar, því í gærmorgun, (þriðjudag)
vísaði Gandhi frá sér morgun-
mat sínum, geitamjólk og græn-
meti, og byrjaði föstuna.
Er óttast um heilsu hans og líf
að þessu sinni, ef hann ætlar að
svelta þangað til yfir lýkur.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson áttræður
Dr. og Mrs. S. J. Jóhannesson
VEGLEGT SAMSÆTI
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson varð
áttræður 9. janúar. Efndi Þjóð-
ræknisfélagið í tilefni af því til
samsætis fyrir hann í Fyrstu
lútersku kirkju í Winnipeg,
laugardaginn 10. janúar. Stjórn-
aði sr. Philip M. Pétursson sam-
sætinu, er var sótt af 400 manns.
Ræður héldu sr. Eiríkur Brynj-
ólfsson, Jón J. Bíldfell, G. F.
Jónasson, dr. Kristján Austman,
sr. Halldór Johnson, A. S. Bar-
dal og Einar P. Jónsson. Frum-
samin kvæði voru skáldinu og
flutt af Ragnari Stefánssyni,
Magnúsi Markússyni, Páli Guð-
mundssyni, B. E. Johnson, H. E.
Johnson og Art Reykdal. Kvæði
hins síðast nefnda, var á ensku.
Með söng skemtu Kerr Wilson
og Mrs. Pearl Pálmason.
Forseti samkvæmisins afhenti
dr. Sigurði peningaávísun og
skrautritað ávarp frá Þjóðrækn-
isfélaginu.
Mesti fjöldi skeyta hafði bor-
ist víðsvegar að með heillaóska-
skeytum til doktors Sigurðar.
Voru þau öll lesin og munum
vér eftir þessum: Frá Stefáni
Jóhannssyni forsætisráðherra
j Islands. Frá stjómarnefnd Þjóð-
ræknisfélags Islands en hana
skipa meðal annara Sigurgeir
Sigurðsson biskup, ófeigur Ó-
feigsson læknir og Hinrik Sv.
Björnsson. Frá Stórstúku Is-
lands, Ungmennafélagi íslands
og Félagi Vestur-lslendinga í
Reykjavík.
I þessu landi bárust skeyti frá
Rt. Hon. W. L. Mackenzie King,
forsætisráðherra Canada, Hon.
J. T. Thorson og fleiri ráðherr-
um Kings, frá Bandaríkjunum
frá Vilhjálmi Stefánssni, Gunn-
ari Björnssyni og fleirum. Enn-
fremur frá nefndum utan úr
bygðum Canada, einkum þeim,
er læknirinn hafði átt heima í,
eins og frá Wynyard og Lundar.
Er mikið af kvæðunum og nokk-
uð af ræðum og ávörpunum
flutt í þessu blaði. Að skemti-
skrá í kirkjunni lokinni, var
drukkið kaffi í neðri sal hennar.
Samsætið var hið ánægjuleg-
asta og fór hið bezta fram.
ÁVARP LUNDAR-
BYGÐARBÚA
Til Dr. Sigurðar Júlíusar
Jóhannessonar á áttugasta
aldursafmæli hans
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til spilasomkamu í neðri
sal kirkjunnar laugardagnin 31.
jan. Allir boðnir og velkomnir.
Ágætar veitingar og verðlaun.
Byrjar kl. 8.30 e. h.
* ★ *
Hreiðar Skaftfell, Winnipeg,
lagði af stað í vikunni sem leið
vestur til Vancouver, B. C. —
Hann fór aðallega til að sjá bróð-
ur sinn, Magnús, sem vestra býr,
en hann frétti að væri veikur.
Við íbúar Lundar-þorps og
bygðar árnum þér og þínum til
allrar hamingju, nú og í fram-
tíðinni.
Við erum minnugir þeirrar
þjónustu sem þú, sem læknir,
veittir voru fólki um sjö ára
skeið. Þú barst þá ekki einungis
lífsgrös þíns læknisdóms að
mannlegum meinum, heldur
jafnframt hjarta styrkjandi sól-
bros bróðurkærleikans inn í
döpur heimkynni sóttþjáðra
manna. Við minnumst þíns
mikla mannkærleika, sem um
langa æfi hefur geislað um þig
og útfrá þér til okkar allra. Er
árin líða mun þín ávalt minst
sem hins mikla mannvinar sem
öllum vildir gott gera.
Við hyllum þig sem hið hug-
ljúfa skáld er auðgað hefur ís-
lenzkar bókmentir með »ótal
fögrum ljóðum, þýddum og
frumsömdum. Þinn hlýi vinar-
hugur ásamt sannleiksást og
framsóknarþrá leiftrar, í þmu
sbálda-máli frá ljóðrænum hend-
ingum.
Börnin eru þér þakklát fyrir
Sólöld og Baldursbrá. Þú kunnir
manna bezt að mæla hjartans
mál svo æskan skildi. Sú þekk-
ing og sú virðing, sem sumt af
okkar unglingum og fullorðnir
ennþá bera fyrir móðurmáli sínu
og feðralandi er að mjög miklu
leyti þér að þakka.
Vér heilsum þér sem hinum
góða ættrækna föðurlands vini,
sem í einu og öllu hefur aukið
heiður og sóma vors feðrafróns
og kynstofns. Vér þökkum þér
fyrir alla þínu miklu og góðu
þátttöku í flestum vorum félags-
málum og alla þá aðstoð er þú
hefur veitt sérhverri tilraun til
mannl'ífs bóta.
Nefndin: N
H. E. Johnson, V. J. Guttorm-
son; Helga Thorgilson; L. Svein-
son; D. J. Lindal.
Þann 9. janúar voru gefin
saman í hjónaband á prestsheim-
ilinu í Selkirk, af séra Sigurði
Ólafssyni, Norman Leifur Shaw,
Killarney, Man., og Leona Mae
McKenzie, Selkirk, Man. Við
giftinguna aðstoðuðu Mr. og
Mrs. Michael Sedik, systir brúð-
arinnar og tengdabróðir. Brúð-
guminn er af skozkum ættum,
en brúðurin er dóttir Mrs. Olga
McKenzie, og látins eiginmanns
hennar, Herbert McKenzie.
* * *
Mrs. Gordon Josie, (Svanhvít)
frá Ottawa, dóttir Dr. og Mrs.
S. J. Jóhannesson, er stödd hér
í borg, eins og annarstaðar er
getið.
Kom hún til þess að sitja sam-
kvæmi það hið fjölmenna, er
haldið var síðastl. laugdagskv.
í tilefni af áttræðisafmæli lækn-
isins.