Heimskringla - 16.06.1948, Page 1
Always ask íor the
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeq Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
Always ask for the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Wlnnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXII. ÁRGANGUR
WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN, 16. JÚNf 1948
NÚMER 38.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Húsaskjól Sameinuðu
þjóðanna
Mikið veltur á því að þingið í
Bandaríkjunum samþykki $65,-
000,000 lán til þess að koma upp
fyrirhugaðri byggingu í Man-
hattan, þar sem Sameinuðu þjóð-
irnar hefðu heimili sitt og höf-
uðstöðvar í framtíðinni.
Ef þetta lán nær ekki fram að
ganga, er lítill vafi á því, að þess
verður krafist að þessi alþjóða
dómstóll verði fluttur til Evrópu
með öllu sér tilheyrandi. Er haft
fyrir satt, að fulltrúanefndir S.,
þjóð. hér, séu allkvíðandi um
málið, og hvernig því muni reiða
af.
Sama máli gegnir um forstjór-
ann, Trygve Lie. Þeir (Fulltrú-
arnir) óska þess af alhug, að for-
ustumönnum þingsins skiljist
það með einhverju móti til full-
nustu; hvaða áfalli það myndi
valda, og hve Örlagaríkt það yrði,
ef ekkert yrði úr tryggingu, láns-
ins á þessu þingi.
Fulltrúarnir hér vita ofurvel
að Rússland, og jábræður Sovét-
Sambandsins eru á verði, og hafa
þegar gert tilraunir til þess að
flytja aðalstöðvar Sameinuðu
þjóðanna til Geneva, eða ein-
hverra annara staða í Evrópu.
Og þeir vita einnig, að allstór
hluti fulltrúa ýmsra annara þjóða
sem í raun og veru er vinveittur
hinum vestrænu stórveldum, et
á báðum áttum um það, hvort
framtíðar aðalstöðvar Samein-
uðu þjóðanna, þegar tillit er tek-
ið til alls, yrðu ekki betur settar
í Evrópu.
Engin endanleg úrslit
Úrskurður öryggisráðsins í
Lake Success, um þá tillögu
kjarnorkunefndarinnar að stjórn-
ar-eftirlitskerfi, (atomic control
system) yrði sett á stofn, náði
aldrei fram að ganga á síðasta
fundi, er haldinn var nýlega.
Þrátt fyrir langdregnar hrósræð-
ur um tillögu Bandaríkjanna frá
fulltrúum Canada og Bretlands,
héldu Rússar því ótvírætt fram,
að þeir myndu hafa talsvert til
málanna að leggja á næsta fundi.
Arfurinn
John Bracken, leiðtogi Pro-
gressive-Conservative flokksins,
sagði hátt vöruverð og viðskifta
hömlur, halda öllu til baka í
þessu landi. Það væri arfurinn,
sem King skyldi þjóðinn ieftir,
við fráförina* * frá stjórnar-for-
menskunni.
Bracken kom frá Ottawa s. 1.
fimmtudag til Winipeg, til þess
að sitja fund Prog. Con. flokks-
ins í þessu fylki. Hér skulu til-
færðar nokkrar setningar frá
honum:
Sú stjórn, sem lætur verð rísa
fjöllunum hærra,á sama tíma og
hún tekur í skatt 25% af því,
sem þegnarnir vinna fyrir, getur
ekki búist við að halda hylli al-
mennings.
Ef blöðin herma rétt frá um-
mælum Kings um kosningarnar
undanfarið, verður ekki annað
séð en að hann sé því fyllilega
sammála, að háverið á vörum,
væri orsök úrslitanna.
Um gagnrýni andstæðinga-
flokkanna á stjórnina farast
King orð á þá leið að þeir séu að
sameinast. Að halda fram annari
eins fjarstæðu, myndi sú stjórn
ein gera, sem álítur sig í hættu
stadda.
King líður ekki vel út af auka-
kosningum, er fram hafa farið
síðustu þrjú árin. Hann hefir
tapað fjórum þingsætum í þeim,
Progressive Conservatives einu,
og unnið eitt. Almennings álitið
fer auðsjáanlega þverrandi hjá
Kingstjórninni.
Við Ontario kosningarnar
sagði Bracken það eftir tektar-
vert, að svo liti út sem Liberal
flokkurinn væri að hverfa úr sög-
unni. Jafnvel þó Drew tapaði
nokkrum sætum í bæjunum, var
sigur stjórnar hans eigi að síður
mikill.
Bracken gagnrýndi kornsölu-
stefnu stjórnarinnar og kvað
hana orsök þess, að bændur
fengju ekki markaðs verð fyrir
korn sitt.
Að því er Hveitisöluráðið á-
hærði, sem íhaldsflokkurinn
hefði stofnað, til að útvega bænd-
um hærra verð fyrir hveiti, hefði
Píanótónleikar Agnesar Sigurðsson
í Austurbæjarbíó
Þau hin fögru ummæli, sem hér fara á eftir um hljómleika Miss
Agnesar Sigurdson í Reykjavík, eru samin af Dr. Páli Isólfssyni, ein-
um, allra merkasta hljómfræðingi íslenzku þjóðarinnar, og jafnframt
hinum strangasta listdómara hennar. Ritstj.
Morgunblaðið, 5. júní 1948
Ungfrú Agnes Sigurðsson hélt fyrstu píanótónleika sína
fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíó í
fyrrakvöld. Var leikur hennar allur mjög athyglisverður og er
síst ofsögum sagt af hinum miklu tónlistargáfum og kunnáttu
þessarar listakonu. — Tæknin er geysimikil og fáguð, og er
auðheyrt, að ungfrúin hefir notið hinnar ströngustu kenslu, og
sjálf hefir hún ekki legið á liði sínu. En hitt er þó ekki síður
umtalsvert, að allur er leikur hennar borirín uppi af sterkri
músiktilfinningu og nákvæmri hljóðfallskend.
Veigamesta verkið á efnisskránni var sónata í A-dúr op.
101, eftir Beethoven, sem ungfrúin lék á sinn hátt vel og af
næmleik fyjir hinum sterku andstæðum og svipbrigðum, sem í
þessu merkilega verki felast. Hafa eflaust margir óskað að heyra
meira af slíkum stórverkum, en máske hefir það verið af ótta
við að reyna um of á þolrif hlustendanna, að öll hin verkin, sem
eftir voru, lí smærri stíl, að vísu mörg yndisleg og hreinar perl-
ur, en varla nokkurt kjarnfóður, ef svo mætti að orði kveða.
En hvað um það. — Leikur ungfrú Agnesar var samur og
jafn, hver sem verkefnin voru, og yfir öllum leik hennar var
kvenlegur yndisþokki, og vil eg þó sérstaklega nefna Fís-dúr
Romance Schumanns og lögin eftir Ravel og Debussy, og'þá
einnig cis-moll Nocturne Chopins, sem ungfrúin lék sém auka-
lag af mikilli snild.
Húsið var þéttskipað og fögnuður áheyrenda mikill og
hjartanlgeur, og var það að vonum, því hér ber góðan gest að
garði, þar sem er ungfrú Agnes Sigurðsson. P. í.
Hugsað heim 17. júní
Hugur flýgur heim í dag,
heim til blárra fjalla.
Vorblítt syngja lækir lag,
land og sær með æskubrag.
Móðurraddir mildar soninn kalla.
Sumarblær um laufgan lund
leikur, hlýr og fagur;
blika roðin sólu sund,
sveipast blómaskrúði grund.
Breiðir vængi bjartur frelsisdagur.
Vermi hann og veki þjóð
vorsins eld í barmi,
hærri sjónar hjartaglóð,
himinborinn siguróð;
þrótt til starfa efli hverjum armi.
Fögur brösi framtíð þér,
föðurlandið kæra!
Hvert sem fley mitt báran ber,
brotni það við yztu sker,
þér skal vígja þökk og strengi hræra.
Richard Beck
það í höndum liberala verið not-
að til að halda niður verði á
hveiti.
Flóðin í vesturlandinu kvað
Bracken hafa verið svo alvarleg,
að sú stjórn sem með valdið færi,
ætti að koma þar til aðstoðar og
að gera það sem hægt væri, að
koma í veg fyrir þau í framtíð
með skipulagðri vörn.
Hjá fjármálavandræðum eins
og fyrir hefði komið á þessu ári,
sagði Bracken að í framtíð yrði
að stýra. En það væri vonlaust
um, að núverandi sambands-
stjórn gerði það. (Eftir Wpg.
Tribune)
Flýja menninguna
Mennónítar eru að flytja í stór-
hópum frá Canada. Um 1500 af
þeim, eru frá Manitoba. Þeir eru
afkomendur fyrstu innflytjend-
anna. Þeim hefir farnast vel,
enda búnubbur góðir. En ástæð-
an fyrir brottflutningi þeirra, er
sú, að þeim þykir þeir orðnir of
innilokaðir hér af menningunni.
Þeir eru að tapa æskunni út í
heiminn umhverfis sig, er týnir
þar sjálfri sér brátt, sem Menn-
onítar. Úr einu bezta héraði í
þessu fylki, eru þeir því að flýja
og ætla að reyna að ryðja sér
braut í skógum Paraguay í Suður
Ameríku. Þeir munu búa fyrst
um sinn í tjöldum, höggva við og
hreinsa af landinu, eins og hér
varð að gera og semja sig yfir-
leitt að frumbyggja lífi. í staðinn
fyrir að stunda hér kornrækt,
ætla þeir að leggja fyrir sig bóm-
ullar og sykurrækt, þegar þeir
hafa rutt skóginum burtu af .sínu
nýja búlandi.
Unga fólkið úr héruðum þeirra
hér, sótti í bæina og hefir tekið
upp sömu siði og aðrir íbúar
landsins. Þeim hefir farnast vel
og munu ekki héðan hverfa. En
það er að tapa æskunni, sem
Mennonítunum vex svo í augurn
að þeir eru nú að flýja héðan.
Þeir segja Canada gott land og
þjóðina hina beztu nágranna. En
þeir verða ofmikið fyrir áhrifum
hennar. Þá fýsir að vera ein-
angraða.
Það getur verið að þeim takist
að einangra sig frá allri menn-
ingu og menningar áhrifum í
svip syðra, en yfirleitt virðist
það vonlaus barátta.
Við skulum segja, að þeim
farnist vel með tíð og tíma í
Paraguay. En hvað kemur þá
fyrir? Mun ekki aðra fýsa að
setjast þar einnig að og verða ná-
búar þeirra? Og vofir þá ekki
sama hættan yfir frelsi (?) þeirra
og hér?
FRÉTTIR í FÁM ORÐUM
Winnipeg Electric félagið varó
við kröfum þjóna sinna s. 1.
mánudag um að veita þeim llc
kauphækkun á kl.st., sem svarar
til eins dollar á dag. Um leið
hefir félagið farið fram á ein-
hverja fargjaldahækkun við bæ-
inn.
★
Verð á góðu kjöti (sirloin)
var fyrir þremur mánuðum 45 til
50 cents. Nú er það milli 75 og
80 cents og þykir víst, að hækk-
andi fari fram á haust. Almenn-
ingur talar um að hætta að kaupa
kjöt.
★
Flóðin í Frazer-árdalnum hafa
minkað. Ætluðu bændur sem
flúðu að fara í gær að flytja aft-
ur á jarðir sínar og heimili, en
voru stöðvaðir frá því af heil-
brigðisráði, vegna ótta við sýki,
er af vatnsaganum gæti leitt.
★
Danskt skip með 450 farþega,
sigldi á sprengju í Kattegat í
gær og sökk. 150 manns fórust.
★
143 þingmannsefni. sækja um
kosningu í Saskatchewan-fylki
24. júní; sækja 50 af hálfu C.C.F.-
stjórnarinnar, 40 liberalar, 36
Social Credit sinnar, 5 Progres-
sive-Conservatívar. — Þingsætirx
eru 50. Douglas-stjórnin hefir
nú 47 þingsæti. Enginn hefir
verið kosinn gagnsóknarlaust.
★
Walter Tucker, foringi liber-
ala í Saskatchewan, hefir höfðað
mál á móti T. . Douglas, forsæt-
isráðherra fylkisins fyrir meið-
yrði. Tucker krefst $100,000
skaðabóta fyrir snúð sinn, en um-
mælin, sem stefnt er fyrir áhræra
Rosthern Investment Co., sem
Tucker er félagi og lagavörður
fyrir og lúta að því, að félagið
hafi látið greiða sér 15% í rentu.
★
Jarðarber (Strawberries), eru
komin til Winnipeg frá British
Columbia. En flytja varð þau
hingað loftleiðis.
★
Rússar hafa tekið boði Banda-
ríkjastjórnar, að koma á 10 þjóða
fund 30. júlí til að semja um al-
þjóða siglingar eftir Doná (Dan-
ube).
★
Atkvæðagreiðslan á Ottawa-
þinginu um að veita rauðskinn-
unum atkvæði, var feld í gær.
Atkv. með voru 39, en 58 á móti.
Liberalar að tveimur undantekn-
um voru á móti, en Prog. Con.,
C.C.F. og Social Credit þ.m. voru
með atkvæðisrétti Indíána. Wil-
Fjallkonan á Lýðveldishátíðinni á Hnausum
Photo by Lafayette Studio, Winnipeg
FRÚ S. W. SIGURGEIRSSON FRÁ RIVERTON
liam M. Benidickson, íslenzki
þ.m. frá Kenora, var annar þing-
maður liberala, sem atkvæði
greiddi á móti stjórninni. Liber-
al þingmennirnir sem tillöguna
gerðu, voru báðir við aktvæða-
greiðsluna á móti henni!
Með atkvæðisrétti •• Japana í
þessu landi var rétt áður greitt
jákvætt atkvæði á þinginu.
HITT OG ÞETTA
Það er kunnugra en frá þurfi
að segja, að skálkurinn Hitler
hataði Gyðingana svo mikið, að
hann hafði samið fyrirætlanir um
að þurka út alla Gyðinga í þeim
löndum, sem Þýzkaland þá réði
yfir. Glæpamálaskjöl hafa nýlega
fundist í Nuernberg á Þýzka-
landi er sýna, að þessi vitfirring-
ur var búinn að semja áætlanir
um, að 11,000,000 Gyðingar yrðu
líflálnir með gasi.
Þessar sláturstíðarfyrirætlanir
náðu þó ekki fram að ganga nema
að nokkru leyti, því talið er að
nálega 6,000,000 Gyðinga hafi
verið teknir af lífi, og er það
samt sæmilega há tala.
Jafnvel þeir, sem voru aðeins
Gyðingar í aðra ættina, voru
dæmdir til tortímingar.
Þeir sem voru kynblendingar
að einum fjórða, áttu að fá að
velja á milli lífsláts eða þess, að
vera gerðir ófrjóir, (sterilized).
Þessar þokkafyrirætlanir hafa
þá fundargerningar frá stjórn-
artíð þess góða Hitlers — leitt í
ljós. Það er efalaust töluvert
margt athugavert við Gyðinga-
þjóðina eins og aðrar dauðlegar
mannskepnur, en hún ætti þó að
njóta almennra mannréttinda.
» ★
í jarðkolanámuiðnaði, og fram-
leiðslu á hvern mann, fara Banda-
ríkin svo langt fram úr öðrum
löndum, að þar er enginn saman-
burður.
Á Englandi var kolafram-
leiðslan á árinu 1947 miðað við
MISS CANADA
Ungfrú Borga Sigurðsson
dóttir Kristjáns Sigurðssonar,
Geysir, verður Miss Canada á
Þjóðveldishátíðinni 19. júní á
Hnausum.
framleiðslu eins manns á dag,
1.2 (net) tonn; á Þýzkalandi
1.02 tonn: Frakklandi, 0.66 tonn.
En í Bandaríkjunum framleiddi
hver jarðkolanámumaður að með-
altali 6.7 (net) tonn á dag, með
styttri vinnutíma.
★
Bandaríkin hafa ákveðið að
senda herskip og loftför til Pal-
estínu, til þess að styðja að
vopnahlé, ef það kemst á. Er það
gert eftir ströngum áskorunum
meðalgengils Sameinuðu þjóð-
anna, Folke Bernadotte, greifa.
★
Capetown — Eyjarnar sem
liggja út frá Zanzibar og Pamba,
framleiða meira en 80 per cent af
öllum krydd, (hegulnagla) birgð-
um heimsins. Er uppskeran í
meðal ári yfir 14,400 tonn.