Heimskringla - 30.06.1948, Qupperneq 1
Alwcrys ask for the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BBEAD CO. LTD.
Winnipeq Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
Always ask for the—
HOME-MADE
“POTATO LOAF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeq Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXII. ARGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 30. JÚNÍ 1948
NÚMER 40.
I glampandi sólskini fögnuðu bæjar-
búar fjórða afmælisdegi lýðveldisins
Mannf jöldinn var engu minni nú en á lýöveldishátíðinni
Þjóðhátíðin í Reykjavík tókst
mjög vel. Var þáttaka bæjarbúa
mjög mikil og hegðun þeirra var
Reykjavík til mikils sóma. Annar
eins mannfjöldi hefur ekki sést
saman kominn hér í bænum síðan
á lýðveldishátíðinni 1944. Það,
sem gerði daginn sérlega ánægju-
legan var hið dásamlega veður.
Hægur norðan andvari og glamp-
andi sólskin allan daginn.
Þegar bæjarbúar gengu til
hvílu að kvöldi þess 16. júní,
vörpuðu þeir spurningu fram:
Hvernig skyldi nú veðrið verða
á morgun?
17. júní rann upp heiður og
fagur. Jafnóðum og fólk kom á
fætur dróg það fána sína að hún
Og fyrir hádegi var bærinn allur
fánum skrýddur.
Um klukkan eitt fór fólk að
tínast upp að Háskólanum, en
þaðan lagði skrúðganga bæjar-
búa af stað. Mikill fjöldi fólks
var kominn um hálf tvö er gang-
an skyldi hefjast. Það tók nokk-
urn tíma að skipuleggja svo fjöl-
menna hópgöngu og drógst nú
fram til kl. rúmlega tvö að gang-
an legði af stað. Fyrst gekk
Lúðrasveit Reykjavíkur, síðan
kom all-myndarleg fánaborg, ís-
lenzkir fánar og ýmsir félags-
fánar. Þá komu hinir nýútskrif-
uðu stúdentar, þá skátar, stúlkur
og piltar og síðan borgararnir.
Var þessi ganga mjög fjölmenn
þegar í upphafi. Sem dæmi um
það, skal nefnt, að þegar lúðra-
sveitin gekk yfir Tjarnarbrú, var
síðasti hópurinn að leggja af stað
frá Háskólanum. Gengið var eft-
ir Bjarkargötu og Skothúsveg-
inn, Fríkirkjuveg að Austurvelli.
Alla leiðina bættist fólk við í
gönguna og var talið að um 12 —
14 þús. manns hafi verið í henni,
er komið var að Austurvelli. —
Mikið var af börnum með litla
fána. Börnin voru vel klædd og
settu mjög skemmtilegan svip á
skrúðgönguna, sem vera ber.
Nauðsynlegt hefði verið að
hafa tvær lúðrasveitir í göngunni
Frh. á 5. bls.
Vestur til Banff
FRETTAYFIRLIT 0G UMSAGNIR
Gcrðir ensku
lávarðadeildarinnar
Lávarðadeild brezka þingsins
feldi nýlega aðalliðinn, eða höf-
uðgreinina í frumvarpi um
þjóðernis go þegnréttindi Breta.
Málið lá fyrir þingnefnd, og var
felt með 75 atkvæðum gegn 221
Frumvarpið hafði verið lagt
fyrir þingið, eftir samþykt Can
adiskra borgararéttinda-laga-
greinar 1946. Lagaákvæðis-sam
þyktin var lögð fram fyrir lá-
varðadeildina af nefndarfulltrú-
um samveldanna, að Canada
meðtaldri, í London 1947.
Með annari atkvæðagreiðslu,
54 atkvæðum gegn 28, feldu lá-
varðarnir önnur ákvæði, ' sem
“Marquess of Salisbury” sagði
að þröngvaði niðurlægjandi
skyldu upp á þá þegna Eire á ír-
landi, sem óskuðu eftir því að
halda áfram að vera brezkir þegn-
ar. í lagagreininni var svo á-
kveðið, að þegar frumvarpið
næði fram að ganga, gæti borgari
Eire-landshlutans haldið áfram
að vera brezkur borgari, ef hann
óskaði þess, með því að tilkynna
það í tíma. Hélt Lord Salisbury
því fram, að slíkt væri yfirtroðsl-
ur á sögulegum rétti, og frum-
varpið hefði að líkindum þær af
leiðingar, að baka þeim hluta
Eire, sem hefði fylgt Bretlandi
að málum, þjáningar og örðug-
leika. En hvað mikill hluti íbúa
Eire-landshlutans hefir fylgt
Bretlandi að málum í liðinni tíð?
Það er kannske dálítið önnur
saga!
■ Frumvarpið hefir komið upp
:-:á fyrir lávarðadeildina í annað
skiftið, og er nú í nefnd, áður en
Íllill ^ það verður sent aftur til neðri-
deildar.
Það virðast margháttaðar og
einkennilegar gerðir og ákvæði
Frú V. Björg ísfeld
Frú V. Björg Isfeld píanóleik-
ari, leggur af stað einhvern
fiæstu daga vestur til Banff, Alta.
Stendur þannig á ferð hennar, að;
þar fara fram fundarhöld og'
bljómleikar Félags hljómleika-
kennara í Canada frá 4. til 7. júlí.
^erða þar fulltrúar frá öllum
fylkjum landsins og hefir frú
® jörg verið valin til að mæta þar
af hálfu Manitoba Provincial As-
sociation of the Registered Music
Teachers Association. Er hún
vara-forseti þessa félags í fylk-
Jnu, en forseti þess, Russell
Standing, getur ekki verið þar;
rekur því frú B. ísfeld erindi
þans jafnframt sínu og stjórnar
Samkomu Manitoba hljómsveit-
arinnar sem héðan fer vestur, er
einn daginn lætur þar til sín
þeyra. Eru þar saman komnar
aUar helztu söng- og hljómleika-
dísir þessa fylkis, þar á meðal
Irene Thorólfson og frú Rósa
Hermannson Vernon.
Er sveit þessi ein hin mesta, er
þarna kemur fram. Erindi verða
þarna flutt af mörgum spreng-
lærðum hljómlistar-mönnum og
frægum fyrir eitt og annað, er að
betrun og fágun í hljómleika og
söngkenslu lýtur. Verður frú B.
fsfeld, vegna fjarveru forseta
síns félags hér, að flytja bæði
erindi hans og sitt eigið að þessu
efni lútandi. Ber þetta alt hljóm-
listar hæfileikum frú B. ísfeld
gott vitni eigi síður en það, að
vera bæði vara-forseti Hljóm-
leika-kennara félags Manitoba
og í framkvæmdarráði Hljóm-
leikakennarafélags Canada. Er
þetta ekki aðeins henni frami,
heldur íslendinga yfirleitt.
Góða ferð!
lávarðadeildarinnar í enska þing-
inu í mörgum málum, og bera
flestar með sér aldagömul ein-
ræðiseinkenni, en jafnframt ó-
ljósa kvíðakend um það, að stór-
veldi Breta muni ekki eftirleiðis
standa á eins margþættum og
traustum grundvelli, eins og það
hefir gert í langri liðinni tíð.
Sultarlaun!
Samkvæmt skoðun senator
Felix Quinn, (PC —Nova
Scotia), eru laun og aukabitling-
ar Mackenzie King, forsætisráð-
herra, ($23,000) smánarlega lítil^
upphæð, og alls ónóg. Finnst
honum að forsætisráðherrann
ætti að fá að minsta kosti $50,000
á ári.
Öðrum efrideildar þingmönn-
um kom saman um, að stofna ætti
eftirlaunasjóð fyrir meðlimi
stjórnar ráðuneytisins, og hærri
laun og bústað, sem greitt væri
fyrir af hinu opinbera, handa
öllum fylkisstjórum, (lieuten-
ant-govenors).
óvanalegar friðarhorfur
Það virðist velta á ýmsu með
vopnahléið í Palestínu, og sátta-
tilraunir og friðarumleitanir
Folke Benadotte, greifa, stuðla
ennþá lítið að varanlegum friði.
Hefir greifinn sjálfur kannast
við, hve ástandið væri ískyggi--
legt, í fregnskeytum til Sam.,
þjóðanna. (En hann er meðal-
gengill þeirra).
Kvað hann alvarlegt atvik hafa
komið fyrir nýlega er Egypta-
landsmenn rufu algerlega gerða
sætt, með því að ráðast á vöru-
flutningalestir Gyðinga, og einn-
ig hófu þeir atlögur á gæzlu-flug
far Sameinuðu þjóðanna. Greif-
inn hefir lagt þungar ákærur og
umkvartanir fram fyrir stjórnar-
ráðuneyti Egyptalands út af
þessu. -
Þingkosningar Finna
Finnlendingar virðast vera hér
um bil eina þjóðin af þeim sem
búa við vesturlandamæri Rúss-
lands, sem ennþá getur um hönd
haft (leynilegar) og óháðar kosn-
ingar. Efna þeir til kosningu 200
þingfulltrúa 1. og 2. júlí næstk.
Hvernig svo sem útkoman af
kosningunum verður, hefir utan-
ríkjamála-stefna Finna þegar
verið ákveðin, samkvæmt um-
mælum Paasikive forseta. Hefir
hann sagt, að Finnland gæti
aldrei haldist fram neinni þjóð-
eða stjórnmálastefnu, ef hún
stendur eitthvað öfugt í segl
Sovét-s^imbandsins.
Býðst til að segja af
sér konungdómi
Sú fregn berst frá Brussels, að
Leopold konungur hafi nýlega
boðist til að afsafít sér konung-
dómi í Belgíu, ef íbúarnir greiða
þjóðaratkvæði, (plebiscite) á
móti honum. Leopold konungur
hefir, eins og vitað er, búið í út-
legð í Svisslandi síðan á stríðs-
árunum, ritaði hann forsætisráð-
herra Belgíu Paul Henri Spaak,
að hann gerði sig ánægðan með
það ef löglega og réttlátlega væri
farið til verks, og leitað eftir
hver vilji þjóðarinnar væri í
þessu máli. Ef mikill meiri hluti
fólksins væri ekki með því, að
hann væri hyltur aftur sem kon-
ungur, kvaðst hann afsala sér
konungdómi fyrir fult og alt.
Útlegð Leopold konungs staf-
aði af ákærum, sem risu af gerð-
um hans árið 1940, þegar hann
gafst upp með her sinn, fyrir á-
rásarhersveitum Þýzkalands.
Sjálfsagt hefir útlitið verið
skuggalegt fyrir Belgíu, á þeim
dögum, en það, sem þjóð og
stjórnarvöld landsins hafa ekki
getað fyrirgefið Leopold kon-
ungi enn, er það, að hann ráð-
færði sig aldrei við sína eigin
stjórn, áður en hann gafst úpp.
FRÉTTIR í FÁM ORÐUM
Kosningunum í Saskatchewan-
fylki, sem fram fóru s. 1. fimtu-
dag, lauk með því að C.C.F.-
stjórnin sigraði, en með miklu
minni meirihluta en áður. Hefir
hún nú 31 eða í mesta lagi 33
þingmenn, en hafði 47 fyrir kosn-
ingarnar. Liberalar hlutu 18
þingsæti, en höfðu áður 5. Einn
óháður liberali náði kosningu.
Atkvæðagreiðsla fer fram í
tveimur kjördæmum síðar. Tala
þingmanna er 52.
íhaldsflokkurinn og Social
Credit flokkurinn komu öngul-
sárir úr róðrinum; sóttu þó 36 af
hinum síðarnefnda flokki, en að-
eins fimm af hinum fyrnefnda.
En Social Credit menn stuðluðu
eigi að síður að kosningu nokkra
C.C.F.-sinna.
19 af þingmönnum stjórnarinn-
ar eru kosnir með minni hluta at-
kvæða. Stjórnin í heild sinni
einnig; hún hluat 217,501 at-
kvæði, en andstæðingar 242,117.
Stjórnin vann í öllum bæjun-
um: Regina, Saskatoon, Moose
Jaw, Prince Albert og Yotkton.
Tap hennar var í sveitunum.
★
Thomas E. Dewey, fylkisstjóri
New York-ríkis, verður forseta-
MERK KONA LÁTIN
Frú Guðrún Ásgeirsdóttir
Johnson
Hún andaðist að heimili sínu,
Ste. 14 Thelmo Mansions, hér i
borg 23. þ. m. eftir tveggja ára^
vaxandi sjúkdóm, en aðeins nokk-
urra vikna legu, 80 ára gömul.
Frú Guðrún var fædd að Lund-
um í Stafholtstungum í Borgar-'
firði, 17. febrúar 1868. Foreldr-s
ar hennar voru hin stórmerku
hjón, Ásgeir dannebrogsmaður
Finnbogason, og Ragnhildur
Ólafsdóttir. Naut hún hins ágæt-i
asta uppeldis. Var hún sett til
menta, og nam margt bæði til
munns og handa, er þá var ekki
títt á íslandi.
Sérstaklega var hún þegar á
unga aldri gædd óvenjulega
næmum listasmekk, og varð víð-
kunn fyrir fjölhæfni og list-
fengi í allskonar hannyrðum. Til
Canada fluttist frú Guðrún árið
1893, og staðnæmdist hér í Win-'
nipeg. Árið 1894, 4. nóv. gekk hún
að eiga Finn Johnson, frá Melum
í Hrútafirði, bróður Jóns sál.
prófasts á Stafafelli og þeirra
merku systkina. Reistu þau heim-
ili hér í Winnipeg, og hafa búið
hér ávalt síðan.
Varð þeim þriggja barna auðið,
og lifa 2 móðurina: Anna, Mrs.
John P. Duncan, búsett í Sinclair,
Man., og Jón Ragnar, lögfræð-
ingur og vara-ræðismaður ís-
lands, er býr í Toronto. Ásgeir,
hið ágætasta mannsefni, féll um
i tvítugsaldur í fyrra alheims-
stríðinu. Með frú Guðrúnu er
til moldar gengin ein af allra
merkustu og mikilhæfustu kon-
um úr hópi Vestur-íslendinga.
Lífsstarf hennar var langt.
1 gæfuríkt og merkilegt. Auk þess
að rækja skyldur við heimili, eig-
inmann og börn svo til sannrar
fyrirmyndar var, gekk hún heil
: og óskift að störfum í ýmsum fé-
lagsmálum. Var það einkum hinn
fyrsti lúterski söfnuður hér í
borg er bar gæfu til að njóta
hinna frábæru starfskrafta henn-
ar. Þar vann hún óslitið, og
gegndi mörgum trúnaðarstörfum
í kvenfélaginu og myndun og
forustu kvenfélaga Sambandsins,
nálega fram að siðustu stund.
Enginn kyntist svo frú Guð-
rúnu, að hann yrði þess ekki brátt
áskynja, að þar var engin meðal-
kona á ferð. Hún var fríð og
höfðingleg sýnum, framkoman
prúð og festuleg, seintekin var
hún en vinfestan og trygðin
þess meiri, þar sem hún tók því.
Skapgerðin var mild, en þrótt-
mikil og heilsteypt. Hún var
sannkristin kona, í þess orðs
fylstu og fegurstu merkingu. —
Hún trúði af öllu hjarta á krafta-
verk hins eilífa skapandi máttar í
alverunni; hún trúði á alt hið
bezta og göfugasta í mannlegu
eðli, og að það ynni sigur að lok-
um. Slíka trú, og slíkt sálarþrek,
geta jafnvel ekki boðberar dauð-
ans yfirbugað, enda gekk hún
jafn óskelfd móti hinum síðustu
miklu umskiftum, eins og hún
hafði gengið á móti hverju því
hlutskifti og viðfangsefni lífsins,
sem hún hafði þurft að leysa af
hendi á sinni löngu æfileið.
Sár harmur er kveðinn að hin-
um aldurhnigna eiginmanni
hennar, börnum og barnabörnum,
og háaldraðri systur, en hún er
frú Oddný Johnson, búsett í
Winnipeg, við fráfall hennar.
Jarðarför frú Gúðrúnar fór
fram laugardaginn 26. þ. m. frá
Fyrstu lútersku kirkjunni, og
var mjög fjölmenn og vegleg. Sr.
Eiríkur Brynjólfsson flutti fög-
ur og hjartnæm kveðjumál.
R. St.
efni republika í kosningunum
sem fara fram í haust í Banda-
ríkjunum. Vara-forseti flokksins
verður Earl Warren. Dewey sótti
á móti Roosevelt forseta, sópaði
upp kynstur af atkvæðum, svo
litlu munaði að hann sigraði. —
Þykir nú sigur republika mjög
líklegur.
★
S. 1. fimtudag lokuðu Rússar
öllum vegum fyrir Bretum,
Bandaríkjamönnum og Frökkum
með flutninga inn til þeirra hluta
Berlínar-borgar, er þessar þjóðir
ráða yfir. Er nú því aðeins um
flugleið að ræða til flutninga með
alla fæðu til tveggja miljón íbúa
í þessum hluta Berlníar. Er nú
talið, að svo geti ekki lengur
haldið áfram. í fréttunum í gær-
kvöldi er blátt áfram talað um
að Bandaríkin ætli að segja Rúss-
um að ef loknu veganna verði
ekki undir eins létt af, beri þeir
ábyrgð á afleiðingunum. Banda-
ríkin kváðu hafa fast ákveðið að
brjóta þetta upp á tæki Rússa á
bak aftur, en hvernig, er ekkert
látið uppi um.
★
\
Hnefaleikur stóð milli þeirra
Joe Luois og Jersey Joe Wolcott
s. 1. föstudag í New York. Lá
Walcott í 11 hreðu og stóð ekki
upp. Joe Louis er því enn ósigr-
aður og heimsmeistari eftir bar-
daga við 60 manns. En hann
kvaðst nú reiðubúinn að hætta
hnefaleika-starfi og ætla að gefa
sig við stjórnmálum; hann hefði
meira gaman af því en hnefa-
leikjum nú orðið. Hvaða flokk
hann fyllir, er óvíst um.
★
í Júgóslavíu gengur alt á tré-
fótum. Af Tito vita menn ekki
hvað orðið er, en blöð í Rússlandi
segja hann rekinn úr kommún-
ista-flokkinum. Ástæðan fyrir
þessu er talin sú, að Tito á að
hafa sagt, að það væri að auka á
neyð Júgóslavíu að tilheyra
Rússum í stað að bæta hana, eins
og auðvelt væri með því að snúa
sér að viðskiftum Vestur-Evrópu
þjóðanna eða Marshall-áætlun-
inni.
★
Verkamenn járnbrauta í Can-
ada greiddu atkvæði með því í
gær, að gera verkfall um alt land
15. júlí, ef þeir fengju ekki um-
beðna kauphækkun, 35 cent á
kl.st. Þetta áhrærir 120,000
verkamenn. Þetta mundi stöðva
ferðir járnbrauta um gjörvalt
land.
Egyptskar konur á dögum
Cleopötru drotningar, máluðu
neðri augnalok sín græn, en efri
augnalokin, augnahárin og auga-
brýrnar með svörtum lit!