Heimskringla - 15.09.1948, Side 1
Always ask for the—
HOME-MADE
“POTflTO LOflF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgi
Always aslt for the
HOME-MADE
“POTflTO LOflF”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
##############################^^^
LXII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. SEPT. 1948
NÚMER51.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Til séra Valdimar Eylands
Góðar uppskeruhorfur
Samkvæmt 'skýrslum Winni-
peg Tribune, var s. 1. miðviku-
dag hveiti uppskera vesturfylkj-
anna talin nema 365VÍ miljón
mælum. Skiftist hún milli fylkj-
anna þannig, að uppskera Mani-
toba er metin 60 miljónir, Saskat-
chewan 192 miljónir og Alberta
113 miljónir mæla.
f Manitoba eru að meðaltalij
25.2 mælar af ekru, Sask. 13.3 og
Alberta 18.0.
Hafra uppskera er talin 238.8
miljón mælar í öllu landinu. Þar
af í Man. 60 milj., í Sask. 92 milj.j
og Alta. 86 miljónir.
Bygg uppskera nemur 154
miljón mælum alls. Þar af í Man.
50 milj., í Sask. 44 milj., í Alta.
60 miljón.
Rúg uppskera alls 21 miljón
mælar.
Flax (hör) uppskera nemurj
alls 17 miljón mælum. Þar af
11% milj. í Manitoba, 3% í Sask.,
2 í Alta.
Arið 1947 var öll hveitiupp-
skera 319 miljón mælar.
Slettist upp á vinskapinn
Dr. E. J. Ratlegde, íhaldsmað-
ur, hefir verið þarna þingmaðu:
síðan 1927, en sagði stöðunni ný-
lega lausri.
Þegar John Bracken fyrver
andi forsætisráðherra fylkisins
fór frá völdum, slitu CCF
flokksmenn samvinnu við stjórn-
ina og J. S. Farmer, sagði stöðu
sinni, sem verkamálaráðherra
lausri.
Burtför Garsons getur einnig
haft einhver áhrif á samvinnuna;
fer það eflaust mikið eftir því
hver forsætisráðherra stöðuna
hlýtur.
Tapið á hveitisölunni
Stanley N. Jones, forseti Grain
Exchange skýrði á ársfundi fé
laga sinna nýlega frá tapinu, sen
bændur í Canada hefðu orðið fyr-
ir vegna fyrirkomulagsins í
kornsölu King-stjórnarinnar. —
Núverandi verð, sem er $2 mælir-
inn, kvað hann miklu lægra er
hveitiverð í Bandaríkjunum, og
ennfremur lægra en verðið á
hveitinu, sem Ástralía seldi Bret-
landi í s. 1. desemberj Ástralíu
verðið var $2.72 mælirinn.
f Manitoba-fylki hefir sam-
vinnustjórn verið við völd í átta
ár. Henni hefir farnast mjög vel,
varla aldrei verið sett ofan í við
hana í blöðunum og milli aðal-
flokkanna, íhalds- og frjálslyndra
alt verið í fínasta lagi. Nú er að
því komið að S. S. Garson for-
sætisráðherra taki við stöðu í Ot-
tawa. Ætti það ekki að olla
neinum samvinnuslitum og er
raunar ekki víst að það geri það.
Samt sem áður hefir nú hlaupið
einhver snurða á þráðinn út af
auka-kosningu í Minnedosa og
hefir forseti íhaldsflokksins í
fylkinu, R. D. Guy, Jr., kallað
lið sitt til fundar bráðlega. í á-
minstu kjördæmi hefir kosninga-
nefnd samvinnustjórnar tilnefnt
H. S. Rungay, liberala, en íhalds-
menn eru ekki ánægðir með það,
segja kjördæmið gamalt íhalds-
manna setur. Aukakosning fer
þarna bráðlega fram.
HLJÓMLEIKUR 1
PLAYHOUSE
Agnes Helga Sigurðsson,
Tap þriggja síðustu ára á
hveitisölunni, sagði ræðumaður
nema 784 miljón dölum. Verðið í
Bandaríkjunum hefði verið þetta
| mikið hærra, en verðið, sem
S bændum hér var greitt, sam-
kvæmt samningnum sem King-
stjórnin hefði gert við Breta.
Eftir þessum samningi verður
hveiti fVá Canada selt til Bret-
lands í 3 ár enn, eða til 1950, að
þess árs uppskeru meðtaldri
Þetta ástand heldur því enn á-
fram um skeið.
Um það leyti sem samningnum
lýkur má telja tap bænda á hon-
um öll árin sem hann hefir verið
í gildi 3— 400 miljón dali.
Uppskera í Bandaríkjunum
Akuryrkjuráðið í Washington
spáði s. 1. föstudag, að hveiti upp-
skera í Bandaríkjunum mundi
nema í ár 1,285 miljón mælum —
það er rúmlega 1biljón mæl.).
Og eftir þessu er flest önnur upp-
skera.
Þetta er svipuð uppskera og á
síðastliðnu ári, en það þótti eitt
mesta uppgrípa ár í sögunni.
Schumans stjórnin fallin
Schuman-stjórnin á Frakk-
landi féll á þriðjudaginn í s. 1.
viku og hafði þá setið 64 klukku-
stundir að völdum.
Enn hefir verið reynt • að
níynda stjórn og heitir sá Henri
Queuille, er nú ræður. Á stefnu
hans og Schumans, er víst lítill
munur. En það virðist vaka fyr-
ir Oriole forseta, að sneiða eins
lengi og hægt er hjá öfgaflokk-
um de Gaulle og kommúnistum.
sem von er til þessa bæjar í dag
eða á morgun, efnir til hljóm-
leiks 14. október í Playhouse í
Winnipeg. Undirbúning og að-
stoð alla hefir Þjóðræknisfélag-
ið tekið að sér að sjá um fyrir
listakonuna.
Þelr sem tryggja vilja sér að-
gang, ættu að gera það sem
fyrst. En þess er kostur með því
að snúa sér til þeirra er aðgöngu-
miða haía, sem eru fyrst og
fremst Þjóðræknisfélagið, ís-
lenzku vikublöðin og eflausl
fleiri. En þetta verður alt nánar
auglýst síðar.
Blöðin fengu fréttina af þessu
i morgun og geta ekki nema að-
eins minst á þennan hljómleik
þessa viku.
Pearson tekur
embættiseiðinn
Eins og gefið hefir verið í
skyn í blaðafréttum, er L. B.
Pearson nú orðinn ráðherra í Ot-
tawa-stjórninni. Hann tók em-
bættiseið sinn s. 1. laugardag.
Það er utanríkismáladeildin
sem hann tekur við, en þar var
fyrir Louis St. Laurent, nú
væntanlegur forsætisráðherra
Canada. King forsætisráðherra,
sem er á förum til Bretland? til
að sitja þar samveldisfund, af-
henti St. Laurent allan undirbún-
ing næsta þings í hendur. Þegar
King kemur til baka, mun hann
afhenda St. Laurent forsætisráð-
' herrastöðuna.
Þú ert kominn heim að heiman
heill og sæll, við fögnum þér.
Ársdvöl þín á ættjörðinni
andans sigurmerki ber.
Þú varst heima góður gestur
gafst það bezt sem áttir til.
Tengdir vora strönd við ströndu
studdur ment og bróður yl.
fslenzk þjóð, í álfum tveimur
ættarstofni gildum frá,
mál þitt, ljóð og sagna sjóður
sæmir stærri þjóðum hjá.
Fáment lið með samúð sigrar
sérhvert þrauta spor á leið.
Norrænt eðli ávalt stefnir
öruggt fram á þroska skeið.
Heill þér Eylands, ástar þakkir,
ávalt tryggur þinni stétt,
æðsta markið okkar daga
er því háð, að stefna rétt.
Lengi megi lýð vorn fræða
lífsins trúar andi þinn.
Giftusólin geisli allan
guði vígðan ferilinn.
M. Markússon
King hefir verið ant utn að
vera á þessum samveldisfundi,
þar sem hann hefir haldið for-
sætisráðherra embættinu til þess.
En hefði hinn nýi stjórnarfor-
maður ekki byrjað vel stjórnar-
tíð sína, með því einnig að sækja
þennan fund?
FJÆR OG NÆR
Heimili þeirra er að 617 Inger-,
soll Street hér í borg.
Eins og vera bar, voru silfur-
brúðhjónin leidd út með verð-
mætum gjöfum, er þau þökkuðu
innilega, ásamt þeirri góðvild er
samsætið í kvöld vitnaði um.
Veitingar voru hinar ríkmann-
legustu.
* * *
Mrs. Sigríður Oddson, Portage
La Prairie, Man., dó s. 1. föstu-
dag; hún var 73 ára. Hana lifa
ein dóttir, Mrs. A. H. Bryson í
Portage. Með líkið var farið til
Edinburg, N. Dak., og var jarðað
þar s. 1. mánudag. Hin látna átti
skyldfólk í Dakota, þar á meðal
systur, Mrs. Önnu Jóhannsson,
konu Árna Jóhannssonar á Akra.
Hún var skagfirsk að ætt og bjó
faðir hennar, Björn á Sleitustöð-
um.
* * *
Silfurbrúðkaup
Á miðvikudagskv. þann 8. þ.m.,
var þeim mætu og vinsælu hjón-
unum, C. O. Einarssyni og
Björgu konu hans haldið veglegt
samsæti í fundarsal Fyrstu lút.
kirkju, í tilefni af fjórðungs ald-
ar hjúskapar afmæli þeirra;
veizlustjórn hafði með höndum
Mr. J. J. Swanson.
Auk Mr. Swansons tóku til
máls séra Valdimar J. Eylands,
Mr. F. Friðfinnsson, Mrs. Bald-
win, Mr. H. Pálmason, Mr. Jakob
Kristjánsson, séra Philip M. Pét-
ursson og Mr. Paul Bardal.
Þau Mr. og Mrs. Einarsson
eiga tvær dætur, Mrs. Lynn Watt
og Geraldine í heitnahúsum. —
Mrs. Emily Palsson, frá New
Westminster, B. C. ekkja Jónas-
ar Pálssonar hljómleika-kennara
er í heimsókn hér eystra hjá
tengdafólki og skyldmennum
sínum og dvelur hjá Mr. og Mrs.
P. S. Pálsson, Winnipeg.
* * *
Friðrik Kristjánsson M. Sc.,
frá Minneapolis kona hans og
dóttir, sem verið hafa hér nyrðra
um tveggja mánaða skeið í sum-
arfríi, lögðu af stað suður síðast
liðna viku. Friðrik, sem meist-
arastig tók á s. 1. vori ætlar á
komandi vetri að ná sér í dokt-
ors hattinn. Hann er eyfirskur að
ætt, sonur Mr. og Mrs. Jakobs F.
Kristjánssonar í Winnipeg, og er
fæddur hér vestra.
* * *
Gifting
Sigurjón Tate Sigurðsson og
Lillian Charlotte McKeown voru
gefin saman í hjónaband s. 1.
laugardag, 11. sept. af séra Phil-
ip M. Pétursson. Þau voru að-
stoðuð af Mr. og Mrs. Edwin S.
Derby. Brúðguminn er sonur
Bárðar heitins Sigurðssonar og
Kristínar Tateson, konu hans, en
brúðurin er af enskum ættum.
Giftingin fór fram á prestsheim-
ilinu, 681 Banning St. Viðstadd-
Fundur Prog.-Cons. í Ottawa
Landsfundur Progressive Con-
servative flokksins hefst í Ot-
tawa 1. október og er áætlað að
hann standi ekki yfir nema tvo
daga.
Aðalefni þessara allshrejar
flokksfunda, er að yfirvega
stefnuskrána og breyta þar sem
þörf gerist og bæta í hana tillög-
um, ef álitið er, að starfið á
næstunni krefjist þess.
Áður en fundurinn hefst, verð-
ur unnið að því í nefndum sem
200 manns alls starfa í, að gera
þessar tillögur úr garði. Þær
fjalla um búnaðarmál, verka-
mannamál, utan- og innanríkis
viðskifti, starfrækslu auðslinda,
félagslegt öryggi, skatta og
margt fleira. Þessar tillögur ræð-
ir svo fundurinn og samþykkir
eða fellir eftir atvikum.
En það málið sem mesta at-
hygli mun þó vekja á þessum
fundi, er kosning leiðtoga flokks-
ins.
Eftir að fundur hefir verið
settur, mun fráfarandi formaður
flokksins, John Bracken, kveðja.
Og síðari daginn, er val foringj-
ans hefir farið fram, mun sá er
kosinn verður hafa orðið.
Tala fulltrúa víðsvegar að úr
landinu, er sögð yfir 1300.
Um hver hinn nýi foringi verð-
ur, er engu hægt að spá. í blöð-
um hafa aðallega tveir verið
nefndir, þeir Drew forsætisráð-
herra Ontario og Diefenbaker
þingmaður. En þeir geta og verða
eflaust fleiri, er á fundinn kem-
ur.
ir voru nokkrir vinir og ættingj-
ar auk móður brúðgumans og for-
eldra brúðarinnar. Framtíðar
heimili Mr. og Mrs. Sigurðsson
verður í Winnipeg.
*■ * ★
Svein Thorvaldson kaupm. frá
Riverton var staddur í bænum s.l.
föstudag. Hann sagði uppskeru
á hveiti eina hina mestu í sögu
norður - Nýja-f slands - bygða og
mundi víða nema frá 35 til 50
mælum á ekru. í stað einnar korn
lyftu í Riverton þyrfti þrjár nú.
ef vel væri, sagði Mr. Thorvald-
son.
* * *
Viglundur Vigfusson frá
Gimli og Jónína Sigurðson Vig-
fusson kona hans, voru stödd í
bænum s. 1. föstudag. Þau voru
hin hressustu og Viglundur, sem
nýlega varð að fara undir upp-
skurð á sjúkrahúsinu á Gimli,
virðist orðin alheilbrigður. Hann
biður Heimskringlu að færa
Kjartani lækni Johnson á
Gimli sitt bezta þakklæti fyrir
skjóta lækningu meina sinna og
mikla rögg og umhyggju sér
sýnda í því sambandi.
* * *
Mrs. J. Sigmundsson og
Margrét hjúkrunarkona, dóttir
hennar eru nýkomnar heim úr
skemtiferð vestur til Vancouver.
Þær ferðuðust flugleiðis og voru
rúma 5 klukkutíma hvora leið.
Vestra dvöldu þær hjá syni
Mrs. J. Sigmundsson, Sig. Sig-
mundsyni og konu hans, er sáu
vel um, að þeim yrði ferðini til
sem nestrar skemtunar. Þær voru
tvær vikur vestra og láta hið
bezta af því. — Þótti Mrs. J.
Sigmundson mikið koma til hins
óðfluga og þægilega loftferða-
lags.
“VAKNIÐ ÞIÐ SEM
SOFIД
Eg veit ykkur muni ekki þykja
þetta sérlega kurteist ávarp, og
jafnvel ekki sæmandi.
En sjáið þið nú til!
Þann tuttugasta september
næstkomandi, er ákveðið, að árs-
fundur íslendingadagsins verði
haldinn í Góðtemplara húsinu
við Sargent Ave., og nefndin
óskar eftir, að allir sem láta sér
ant um íslendingadags hátíðá-
haldið, komi á þennan fund.
Næsta ár er sextíu ára afmæli
fslendingadagsins og það er hug-
mynd nefndarinnar, að kosta
talsvert miklu til fyrir það há-
tíðarhald og gera það þannig úr
garði, að það verði öllum fslend-
ingum hér til sóma eða ósóma,
eftir því hvernig því verður ráð-
ið og hagað. Það getur ekki geng-
ið vel með því, að láta nefndina
eina standa fyrir öllu án þess að
hún viti nokkuð um hvað fjöld-
inn af fólkinu vill.
Ef þið eruð óánægð með starf
nefndarinnar að einhverju leyti,
þá skéllið þið allri skuldinni á
hana, en komið ekki á aðalfund
fslendingadagsins til að kjósa í
nefndina og láta álit ykkar í ljósi
um hvernig þið viljið að nefndin
hagi störfum, hvað hún eigi að
gera og hvað hún á ekki að gera.
í þetta sinn verða fimm menn
kosnir í nefndina í stað þeirra,
sem endað hafa tímabil sitt. Þið
verðið að kjósa þessa menn. Að
þessu sinni verður engin útnefn-
ingar nefnd. Kosningin verður
algjörlega í ykkar höndum. En
hún getur ekki verið það, nema
því aðeins, að þið komið á fund-
inn og sýnið vilja ykkar. Fundur-
inn er hafður svona snemma að
haustinu til þess, að næstkom-
andi nefnd hafi allan þann tíma,
HELDUR HLJóMLEIK
1 NEW YORK
Pearl Pámason
í póstinum í morgun barst
Heimskringlu bréf, er frá því
skýrir, að fiðlusnillingurinn
Pearl Pálmason haldi fiðluhljóm-
leik í Town Hal í New York 19.
sept. Er það í fyrsta sinni sem
ungfrúin býður hljómleik þar.
Piano undirspil annast Snjólaug
Sigurðsson. Frekari upplýsingar
getur ekki í bréfinu af þessu, en
Heimskringla óskar ungu stúlk-
unum, sem báðar eru úr þessum
bæ og kunnar fyrir list sína, til
heilla með hljómleikinn.
sem hægt er að veita henni til
undirbúnings hátíðahaldsins
næsta ár.
Undanfarin ár, hefir fundur-
inn verið svo illa sóttur, að eng-
in leið hefir verið, að kjósa form-
lega menn í nefndina. En það
verður að vera gert nú. Ef þið
sinnið þessu ekki, getið þið ekk-
ert sagt á móti gjörðum nefnd-
arinnar á næsta ári í sambandi
við þetta mikla hátíðahald.
Nefndin getur þá farið sínu fram
og þið verðið þeyjandi að gera
ykkur að góðu það sem hún gjör-
ir, hvað vitlaust sem ykkur kann
að þykja það og hvað margar
þúsundir dollara nefndinni þókn-
ast að eyða. Nefndin hefir nú
talsverða f járupphæð í sjóði, sem
hún hefir verið að safna til und-
irbúnings þessa hátiðahalds. Ef
nefndinni skyldi koma til hugar
að eyða þessum peningum óvit-
urlega, að ykkar dómi, í sam-
bandi við undirbúning hátíða-
haldsins, þá getið þið ekkert sagt
við því ef þið komið ekki á árs-
fundinn þann tuttugasta sept-
ember, 1948.
Það er óhugsandi, finnst mér,
eftir allt sem íslendingar hafa
gert hér vestra til framkvæmda
og góðs í flestum mannfélags-
málum, að þó þeim sé farið að
fækka, sem fremstir stóðu, að
hinir, sem eftir eru, séu orðnir
svo andlega sofandi og kæru-
lausir, að þeir vilji ekki lengur
sinna því sem reynt er að gera til
viðhalds íslenzks þjóðernis hér
í landi, að þeir séu orðnir .svo
værukærir, að þeir vilji bara sofa
á frægðarorði þeirra sem fallnir
eru. Helst virðist líta út fyrir
það, því sannarlega fara engar
frægðar sögur af gjörðum íslend-
inga í Winnipeg síðustu árin. —
Það virðist sem þeir vilji signa
allt og svæfa eilífum dauða.
Um þetta mætti rita meira, og
þörf væri þess einnig, ef það
skyldi geta rumskað við einhverri
sofandi sál, sem hætt er að sjá
dagsmökk íslenzkra áhugamála
og framkvæmda.
Svo vil eg að síðustu aftur
minna ykkur á að sækja fundinn
þann 20. þ. m. Ef þið gerið það
ekki, getið þið engum öðrum um
kennt en ykkur sjálfum, ef illa
tekst til með hátíðahaldið næsta
sumar.
Davíð Björnsson
ritari ísl.-dagsnefd.