Heimskringla - 11.06.1958, Blaðsíða 1
CENTURY MOTORS LTD.
247 MAIN—Ph. WHitehall 2-3311
L
&
CENTURY MOTORS LTD.
241 MAIN - 716 PORTAGE
1313 PORTAGE AVE.
LXXII ARGANGUR
WINNIPEG: MIÐVIKUDAGINN 11. JÚNÍ 1958
NÚMER 37.
FRETTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Um kosningarnar
Munit5 að kosningarnar í Mani
toba eru 16 júní. Kjörstaðir opna
klukkan 9 f.h. og loka klukkan
9 e.h.
Ennfremur að nú er ekki kos-
ið með tölum, eins og í síðustu;
íylkiskosningum, heldur með
einu X við nafn eina mannsins
er valinn er. Um annað þarf
ekkert að hugsa. Hlutfallskosn-
ingar eru úr sögunni.
Kosningarétt hefir hver:
—21 árs að aldri.
—'brezkur þegn.
—eitt ár til heimilis.
í Manitoba
—búið hefir þrjá mánuði í
kjördæmi sínu.
•
Frambjóðendur eru um 180,
en þingsætin eru 57. í Winnipeg
eru 20 af þeim. 37 í sveitum og
sveita bæjum.
•
En í kosningum kemur ýmis-
legt til greina, sem ekki er eins
auðvelt að svara og þessu. Til
dæmis spyrja menn, hvern á eg
að kjósa? Hvaða flokkur er lík-
legastur til að ná völdurn?
Báðir eldri flokkarnir sem við
köllum svo, íhaldsmenn og lib-
eralar, eru líklegir að ná völd-
um. Sum blöð hér segja, að um
þá sé aðeins að velja. Þeir hafa
56 þingmannsefni hvor. CCF hef
ir að vísu 43 í vali, sem nægja
mundi til að mynda stjórn, ef
allir væru kosnir. En hvaða flokk
ur gæti gert kröfu til siiks? —
Það eru stundum að vísu mál a
dagskrá, sem öllum kjosendum'
eru áhugamál og veita nálega
allir fylgi- En þáu vilja tínast
í öllum þeim fjölda mála, sem
oftast eru á dagskrá. Það er ó-
kostur eða ófullkomleiki kosn-
inga frelsisins, sem svo oft er
gumað af-, að atkvæði verður að
greiða með því lakara samfara
því góða. Það er að þjóna tveim!
ur herrum. Þegar um flokka er,
að velja, eiga menn oft erf ítt með,
alvin zophanías
SIGVALDASON
að vita hver er beztur, vegna
þessa grauts málanna. Samt
reyna menn það, og er oft furða,
hvað menn geta orðið eínhuga í
því efni, hvernig sem þeir fara
að komast að ákve'ðnum niður-
stöðum. Og svo fór í sambands-
kosningunum síðustu. Ef kjós-
endur hafa þar að góðri raun kom
ist, sem alt útlit er fyrir,
ætti vegur sama flokks að vera
nú greiðastur. Það er að minsta
kosti það líklega, hver sem úr-
skurður kjósenda verður.
Hvað kosningamálin geta orð-
ið erfið oft, er nú gott sýnis-
horn af í Gimli-kjördæmi. Hkr.
hefir að jafnaði drýgt þá synd
að mæla með íslendingi, öðrum
fremur, ef í vali er. En nú eru
þrír íslendingar, sem enginn
munur getur verið á, að trú vorri
þar í vali, og hafa sem sönnun
þess hver, mikið fylgi í sinni
byggð, eins og S. Wopnford, í
APborg, er um mörg ár hefir þar
sveitarstjórn haft og er liinn skýr
asti maður og vér höfum ekki séð
af kappræðuþíngi halda heim
með brotið sverð eða klofinn
skjöld. Og þá er Dr. Sveinn
Thompson, reyndur maður og
ráðagóður yngri sem eldri í
heima-lhéraði sem á þingi og öll
um getur komið í got skap. Og
svo þriðja þingmannsefnið sem
allir segja fallegasta frambjóð-
andann, ágætan mann og læknir.
FRETTIR FRA ISLANDl
Nlr. Sigvaldason var getið í
síðasta blaði og í dagblöðum
Winnipeg-borgar. í baust sem
leið var honum veitt kapteins-
leyfi, en þjónaði stýrimanna-
stöðu (First Mate) á S. S.
Keenora, á Winnipeg vatni. —
Hann var fæddur 19. desember,
^16 í Riverton, Man., og var
sonur Jóns Sigvaldasonar sál og
Sigrúnar Jóhönnu Thorgrímsd.,
Tvær systur lifa hann, Capitóla,
Mrs. Einar Johnson, í Riverton;
og Thorbjörg Áróra, Mrs. H.
M. Stinson, í Winnipeg. Hann
var ógiftur. Mikill fjöldi manns
var viðstaddur útför hans, sem
fór fram frá Sambandskirkjunni
í Riverton, miðvikudaginn 4. þ.
m. Séra Philip M. Pétursson
jarðsöng. Hann var lagður til
hvíldar í Riverton grafreit.
ALMANNAGJÁ
Það hefur oft á liðnum árum
verið rætt um nauðsyn þess, að
banna alla bifreiðaumferð um A1
mannagjá, og virðist nú loks að
koma skriður á það mál, því að
þingmenn úr öllum flokkum hafa
sameinast um þingsályktunartil-
lögu þess efnis, að allri umferð
eftir veginum um gjána verðP
hætt ,og lagður nýr bifreiðaveg-
ur, sem ekki liggi gegnum gjána.
í greinargerð eru færð rök fyrir
nauðsyn þess, að gjáin verði frið
uð, og segir þar m.a. að illver-
andi sé í, gjánni sakir ryks, í
þurrviðrum, en ennfremur geti
sú hætta komið til, að vegna um
ferðar þungra bifreiða verði hætt
ara við hruni úr veggjunum. —
Ef Almannagjá verður friðuð
yrði það til þess að auka stór-
lega ánægju allra, sem á Þing-
völlum dveljast. Allt sem gert er,
til þess að auka friðhelgi Þing-
valla, á rétt á sér, og friðun gjár
innar er mikilvægt skref í þá
átt.—Vísir
★
FÆST SJÁLFSMORÐ
Á ÍSLANDl
Stavanger Aftenblad í Noregi
hefur birt grein eftir danskan
læknisfræðinema um sjálfsmorð
á Norðurlöndum.
Sjálfsmorð eru tiðari i Dan-
mörku en nokkru landi öðru —
tdttugu á hverja 100.000 íbúa —
og kennir greinarhöfundur það
þeirri staðreynd, hversu margir
Danir búi í borgum—til dæmis
fjórðungur þjóðarinnar í Kaup-
mannahöfn einni. í greininni er
einnig bent á það, að sjálfsmorð
séu hvergi sjaldgæfari í neimin-
um en hér á landi. —Vísir
*.
NÝR FISKIMARKAÐUR
í vetur voru gerðir samningar
um sölu á 2—3000 lestum af verk
uðum saltfiski til Jamaica. Er
þetta fyrsta stórsalan þangað og
greitt fyrir fiskinn í frjálsum
gjaldeyri (stpd). Hér er um 15—
20 togarafarma að ræða og leiðir
af sölunni mikla vinnuaukningu
í landinu.
Mestallur sá fiskur, sem verk-
aður verður vegna þessara samn
inga, verður fiskur veiddur á
Gænlandsmiðum, og verður
hann verkaður á ýmsum stöðum,
en aðallega í Reykjavík. Hér verði
ur um að ræða 15—20 togara-
farma, miðað við meðalafla eða
um 300 lestir. Bæjarútgerð R.-
vík mun vegna þessara samninga
senda 5—6 togara á Grænlands-
mið um eða upp úr næstu mán-
aðamótum, og vænzt er þátttöku
togara úti á landi í veiðum vegna
þessara samninga.
Eins og segir hér að ofan, er
greitt fyrir fiskinn í frjálsum
gjaldeyri. Salan mun auka verð-
mæti fisksins um 8—9 millj. kr.
og munar um minna í sterlings
'pundaskortinum.
Þá hefur Vísir fyrir satt, að
þessi stóra sala hafi reynzt kleif
vegna þess, að breytt var um inn
kaupakerfi á Jamaica. Áður var
við hina og þessa aðila að eiga
til að ná samningum um sölu,
en nú er það ríkið, sem kaupir
SÍF hefur um mörg ár haft
augastað á þeim möguleikum,
sem þarna er um að ræða, og
hafa verið gerðir samningar um
smærri sölur til þessa lands um
nokkur ár, eða allt frá 1951. En
þetta er fyrsta stórsalan þang-
að.
Jamaica, sem er eitt landanna
í hinu nýja Vestur-Indíu sam-
bandsríki þarfnast árlega um
6—7000 lestar af fiski, og hafa
Kanadamenn og Nýfundnalands-
menn lagt til mestan hlutann til
þessa. Hér hefur því unnizt
stærri markaður en áður var um
eð ræða og nokkrar framtíðarvon
ir bundnar um framtíðarvið-
viðskifti. —Vísir 22. apríl.
*
RÍKISSTJÓRNIN TEKUR 49
MILLJ. KR. LÁN VESTAN
HAFS
Laugardaginn 3. maí var gerð
ur samningur við Bandaríkin um
kaup á bandarískum landbúna'ð-
arafurðum gegn greiðslu í ís-
lenzkum krónum. Samninginn
undirrituðu Gylfi Þ. Gíslason,
settur utanríkisráðherra, og
Theodore B. Olson, sendifulltrúi
Bandaríkjanna.
Hér er um að ræða samskonar
samning og gerður var í apríl
1957, en samkvæmt honum hafa
verið keyptar til landsins land-
búnaðarafurðir frá Bandaríkjun-
um fyrir um 44 milljónir króna.
í nýja samningnum er eftirtald-
ar afurðir fyrir 3 millj. dollara
eða 49 milljónir króna:
Hveiti,
Bómull,
Maís, maismjöl,
Bygg,
Tobak
Þurrkaðir og niðursoðnir
ávextir,
Andvirði afurðanna ver'ður að
talsverðu leyti varið til lánveit-
inga vegna innlendra fram-
kvæmda, aðallega til greiðslu á
innlendum kostnaði við virkjun
Efra-Sogs. Bandaríkjamenn geta
einnig varið nokkrum hluta fjár
ins til eigin þarfa hér á landi.
—Vísir
NYJA POSTHUSIÐ OPNAÐ
ÍSLENZKA TÍMATALIÐ
í dag er 11. júní, sem kallaður
var á íslandi nóttleysumánuður,
því þá er lengstur dagur og nótt
in björtust, og sumstaðar Norð-
anlands á íslandi gengur sól ekki
í æginn alla nóttina nokkurn
hluta mánaðarins.
Juníus er latneskt nafn og á
líklegast rætur að rekja til guðj
unar Junó, þó fleiri nöfn séu
nefnd 1 því sambandi. í dag eru
7 vikur af sumri.
í Winnipeg var opnað nýtt
pósthús s.l. föstudag, sem hér
hefir 3 til 4 ár verið í smíðum.
Er það talið hafa margt til síns
ágætis, vera bæði stærsta og full
komnasta pósthús í Canada, með
flugstöð á þaki uppi fynr þyril-
vængjur að lenda á (Helicopter)
með póst og taka hann burtu, og
nýungum margvíslegum í fyrir-
komulagi og starfi innan húss.
Stærð pósthússins er sú, að heila
ferspildu —iblock— þekur milli
fjögra gatna. Það kostaði 15
miljón dali.
í fyrstu þyrilvængjunni sem á
þaki pósthússins lenti, var Gor-
don Churohill viðskiftamálaráð-
herra Canada. í henni voru einn-
ig Gordon Aikman, myndtöku-
maður Tribune, og Bob Preston
fregnriti, og öfluðu sér frásagna
í lesmáli og myndum af því er
þarna var að heyra og sjá.
Við opningu pósthussins var
og William Hamilton yfir-póst-
meistari Canadastjórnar. Kom
hann i vagni, |kröltandi með f jór
um hestum fyrir til að minna á
fyrstu póstflutninga hér. En
Ghurchill ráðherra kvað þetta
sýnishorn af hvað vestrið væri
langt á undan austrinu í póst-
flutningum. Hamilton ráðh. er
Austur-Canada maður. í ræðu
sinni mintist Hamilton þess, að
Winnipeg væri í eiginlegasta
skilningi miðstöð Canada, ekki
aðeins fordyri vestur landsins
eins og hún væri kölluð. Hún
væri á hraðri leið að verða aðal-
miðstöð verzlunar, menningar
og framfara.
í ræðuhöldum tóku auk þess-
ara borgarstjóri Stephen Juba,
Winnipeg póstmeistari og fleiri.
—Tribune photo by ERNIE F.INARSSON
Sem dæmi af vexti Winnipeg
borgar, var á það minst að frí-
merkjasala hér hefði aukist 40%
frá 1950 til 1958 eða úr
$5,700,000 í $7,800,000.
Um 25,000 manns væri í starfi
og útbýttu 10,000,000 bréfum á
aag.
Milli pósthús og Stevenson
flugvallar, hefðl póstur verið
fluttur á 27 mínútum áður, en nú
í þyrilvængjunni á 8 minútum.
Myndin sem hér birtist af póst
húsinu, var tekin úr öðru flug-
fari en þyrilvængjunni, af Emie
Einarsson, Winnipeg Tribune
myndatökumanni og sýnir bæði
þyrilvængjuna lenda og mikinn
hluta Winnipegborgar.
Bygging þessa nýja pósthúss,
verður ávalt talið eitt af hinum
stærri framfaraskrefum þessarar
bæjar.
FLOKKSFORINGJAR MANITOBA
Lloyd Stinson —CCF
Duff Roblin — Conservativa D. L. Campbell — liberal