Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1900, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1900, Síða 1
Verð árgangsins (minnst 52 a/rkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur.,og í Ameriku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN. -— |= Fjóbtándi ábgangub. , --— _-RITSTJÓEI: SKÚLI THOIIODDSEN. Vppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- : mánaðar, og kawpandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrw blaðið. M 10. ÍSAFIBÐI, 10. MABZ. 19 0 0. Prestar á íslandi, og kjör þeirra fyr og síðar. Eptir alþm- & Stefánsson. V. Á síðasta þingi fluttu þeir síra Jens Pálsson og síra Einar Jónsson frumvarp í neðri deild um breyting á launum presta. Frumvarp þetta fór fram á að afnema preststiund, lambsfóður, dagsverk, offur og lausamannagjald, og greiða prestum jafngildi þessara tekna með peningum úr landssjóði. Upphæð sá, er landssjóður átti að greiða samkvæmt frumvarpi þessu nam 65,200 kr. Frumvarpi þessu var all-vel tekið í neðri deild; var skipuð 5 manna nefnd, til að ihuga það; lót hún upp álit sitt, en sökum tímaskorts varð málið ekki útrætt, með því líka, að ali-mörgum þing- mönnum þótti ekki ráðlegt, að ráða því þá þegar til lykta; var landsstjórninni falið, að undirbúa það til næsta þings. Nefndin í þessu máli var öll samdóma um það, að þörf væri að bæta kjör presta- stóttarinnar, einnig um það, að gjöld þau, er frumv. vildi afnema, væri bæði óviss fyrir prestana og kæmu ranglega niður á gjaldendurna, sem og um, að rétt væri, að losa presta við innheimtu þeirra Um hitt var aptur nokkur meininga- munur, bæði í nefndinni og deilinni, hvort rétt væri, að leggja þessi miklu útgjöld á landssjóð, án þess að sjá honum jafn framt fyrir auknum tekjum, einnig um það, hvort ekki væri róttast, að greiða öll laun presta úr landssjóði, en leggja til hans allar kirkna eignirnar, sömuleið- is, hvort ekki væri ástæða til, að jaíha tekjur prestakallanna meir, en nú er. Að þvi er kemur til innheimtu presta á tekjum þeirra, þá er hún að vísu tals- verðum annmörkum bundin fyrir prest- ana; þó getum vór ekki gjört svo mikið úr þessum vandkvæðum, ef prestsgjöldin væru i sjálfu sór sanngjörn og skýr laga- ákvæði um gjaldskylduna. Það er rang- lætið, róttarovissan og ruglingurinn með gjöld þessi, 8em getur gjört prestum innheimtu þeirra óþægilega og gjaldend- um hvimleiða, og þar af leiðandi spillt góðu samkomulagi milli presta og safn- aða. En eins og að framan hefur verið sýnt, þá virðist ekki annað ráð liklegra til að bæta úr þessum vankvæðum, en að afnema gjöld þessi, og bæta prestum þau upp úr landssjóði. Yór getum því vel verið samdóma flutningsmönnum þessa mals, þótt vór á hinn bóginn hefðum helzt kosið, að prestar fengju laun sín sem mest beint fró söfnuðunum sjálfum. En að fara lengra en frumvarpið, t. d. setja presta að öllu leyti á föst laun úr landssjóði, og leggja allar kirkna-eignirn- ar til landssjóðs, teljum vór mjög varhuga- vert. Þótt landssjóður á þenna hátt fengi nokkrar tekjur, myndu þær hvergi nærri hrökkva fyrir þar af leiðandi útgjöldum. Ættu prestar eingöngu að lifa á launum úr landssjóði, sviptir bújörðum sinum og hlunnindum þeirra, þá myndi brátt reka að þvi, að hinar núverandi launa-upphæð- ir reyndust allsendis ónógar til þess, að prestar gætu lifað sómasamlega af þeim; yrði því að hækka laun þeirra töluvert. Auk þessa væri landssjóðurinn á þenna hátt opnaður upp á víða gátt fyrir sí- felldu launakvabbi prestanna. Þetta sjá lika formælendur þessarar aðferðar, og vilja því sumir forða lands- sjóðnum frá frekari útlátum með því, að fækka prestum að miklum mun; þeir séu, hvort sem er, allt of margir á landinu. En athugavert er þetta i meira lagi. Mikil fækkun prestakallanna frá því, sem nú er, myndi fyrst og fremst valda því, að þjónusta þeirra yrði mjög viða alls- endis ófullnægjandi, en skylduræknir prestar hins vegar slíta sór út á fáum árum, og koma svo á eptirlaunalista lands- sjóðs. í öðru lagi myndu miklar brauða- samsteypur leiða til þess, að söfnuðirnir yrðu óánægðir, og linntu ekki látum að fá því £\ptur sundrað, er sameinað hefði verið; þarf ekki annað, en benda á reynzl- una siðan 1880 því til sönnunar, þar sem hver bænaskráin hefur svo að segja rekið aðra, um að nema úr gildi brauðasamein- ingar þær, sem gjörðar voru samkvæmt prestakallalögunum. Hvað þá, ef enn lengra væri farið í brauðasamsteypum ? Þvi hefur líka verið varpað fram, sem ástæðu fyrir því, að taka kirkna- eignirnar frá prestum, að þeir færu ekki vel með þær. Þetta hefur reyndar eng- inn borið við að sanna; hitt er hægt að sýna, að kirkjujarðir eru yfirleitt leigðar með betri kjörum fyrir ábúendur, en all- ur þorri bændaeignanna, og að meðferð þeirra er að engu leyti neitt verri; þó telja margir það hið mesta þjóðráð, að fjölga bændaeignum í landinu. Annars væri innan handar, að tryggja með lög- um betri meðferð á jörðum í landinu, ekki einuDgis kirknajarðanna, heldur og bændaeignanna og þjóðjarðanna. En það, sem vór sérstaklega höfum á móti því, að prestar séu sviptir um- ráðum kirkna-eignanna, og að öllu leyti* settir á föst laun úr landssjóði, er það, *) Hvernig hugsa formælendur þessarar hreytingar sér, að fara skuli með tekjur presta af bændakirkjum (prestsmöturnar) ? Ætti sú kvöð 4 einstakra manna eignum, líka að færast yfir á landssjóðinn? að með því er gjörsamlega kollvarpað ævar-gömlu fyrirkomulagi, sem reynzt hefur affarasælt, bæði fyrir presta og söfn- uði. Með þessari aðferð gerði löggjafar- valdið að nauðsynjalitlu, en landinu til stór-aukinna útgjalda, sitt til þess, að fjarlægja prestana sem mest það gæti frá söfnuðunum. Hagur prestanna og lífs- kjör yrði þá litið kominn undir hag al- þýðunnar á íslandi; þeir ættu miklu minna saman við hana að sælda eptir, en áður; myndu láta sig minna skipta, hvernig hagur hennar væri, en hingað til. Þeg- ar þeir þyrftu ekki annað, en sækja laun- in sín i landssjóðinn, myndu þeir láta það minna til sín taka, hvort bændurnir í sóknum þeirra hefðu mikið eða litið að lifa af. Þeir hefðu ekkert til þeirra að sækja, og þættust lika lítið þurfa saman við þá að sælda. Gæti þetta vel orðið til þess, að prestar með tímanum tækju fremur að skoða sig yfirmenn safhaðanna, hátt upp hafna yfir þá, en sem þjóna þeirra. Þeim grundvelli væri þá alveg kippt undan fótum prestanna, sem þeir hafa staðið á um margar aldir sem ein hin frjálslyndasta og þjóðlegasta presta- stétt, sem nokkurt land hefur átt. Þvi er opt varpað fram, að prestar eigi ekki að fást við búskap, eða yfir höfuð gefa sig við nokkrum veraldlegum störfum, svo að þeir geti helgað alla krapta sina prestsskapnum. Þetta getur látið vel i eyrum þeirra manna, sem lítið þekkja hvernig til hagar hér á landi. Það eitt er víst, að verði prestum fyrir- munað þess stuðnings, sem þeir hingað til all-flestir hafa haft af búskap, þá myndi landssjóðurinn verða að láta drjúg- um meira af hendi rakna til þeirra, en nokkur hefur enn gjört sér í hugarlund, ef þeir og fjölskyldur þeirra á annað borð ekki ættu að líða stóran skort, sem flestir munu telja miður heppilegt einn- ig fyrir hina prestlegu starfsemi þeirra; er það kunnugt, hve mikils þeir eru vanalega metnir hjá sóknarbændunum, prestarnir, sem ekki hafa ofan i sig. — Prestarnir hafa, eins og aðrir menn, sín- ar vanalegu þarfir, sem þeir verða að sjá borgið, og til þess myndu hinar núver- andi tekjur hrökkva næsta skammt, þótt þeim væri breytt í peninga úr landssjóði, ef prestarnir hefðu ekki stuðning af öðru. —-. Auk þess, sem búskapur presta hefur hingað til forðað raörgum þeirra frá hrein- um og beinum skorti, þá stuðlar hann mjög að þvi, að gjöra prestana sem sam- rýmdasta sóknarbörnum sínum, og láta sig allan hag þeirra miklu varða. Ef prestaköllin eru ekki gjörð óhæfilega erf- ið, þá þarf venjulegur sveitabúskapur hér ó landi alls ekki að vera því til fyr-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.