Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1900, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1900, Síða 3
Þjóðviljinn . 39 XIV, 10. að verzlun íslands er ekki auðið fram- fara meðan þessi miklu verzlunarlán eiga sér stað. Viðskiptamennirnir standa ekki kaupmanninum í skilum, svo kaupmað- urinn er neyddur til, að selja vörurnar dýrari en ella, til þess að geta staðist, og láta þannig þá, sem standa í skilum, borga fyrir óskilamennina. Til þess að reyna að laða menn til, að borga skuldir sinar, sperrast kaupmenn hver í kapp við annan að bjóða svo hátt verð í ís- lenzku vöruna, að það er algengt að þeir borgi meira fyrir hana þar, en þeir geta fengið fyrir hana erlendis. Auk þess, sem láns-verzlunin hefur það i för með sér, að útlendu vörurnar eru dýrari en þær eru verðar, og óeðli- lega hátt verð kemst á innlendu vörurn- ar, fylgja henni margir aðrir óskostir. Menn eyða langt um meira en ella, þvi þegar allt er skrifað, gæta menn ekki eins vel að þvi hvað úttektinni liður, og sjá ekki eins vel fótum sinum forráð, eins og ef menn ættu að borga allt jafn óðum og það er tekið. Lánsverzlunar- fyrirkomulagið er skóli, þar sem menn læra óskilsemi og skeytingarleysi, og að vera ávallt upp á aðra komnir, í stað þess að neyta allra krapta sinna til þess, að hjálpa sér sjálfir. Það er fyrirhafnar- minna að fara í búðina og taka upp á lán, heldur en að byrja ekki að kaupa hlutina fyr en maður er búinn að vinna sér inn fyrir þvi, sem þeir kosta. En ætíð kemur að skuldadögunum. Hver ráð eru þá til að bæta verzlun- arástandið ? Fyrst af öllu þarf að takmarka láns- verzlunina, og loks afnema hana með öllu. Það getur látið sig gjöra á þann hátt, að kaupmennirnir kaupi íslenzku vöruna fyrir peninga,- og selji sínar vör- ur að eins gegn peningum. Til þess þarf samtök. En á það stig hlýtur verzl- unin að komast fyr eða síðar. Færeying- ar eru í þessu efni langt á undan oss. En nú þurfa menn að losa sig úr verzl- unarskuldunum, og er það hægt með tvennu móti: með meiri sparnaði, og með því, að afla eða vinna sér inn meira en áður. Hvort tveggja getur látið sig gera sé rétt að farið. Það ólag, sem er á verzluninni hjá oss, á þannig að vorri hyggju rót sína að rekja til lánsverzlunar fyrirkomulags- ins, og getur ekki batnað fyr en hætt er við það, og hver vara er seld og keypt með því rétta verði, sem hún í raun og veru kostar, og menn læra að vera skil- visir og áreiðanlegir, og meta gildi pen- inganna réttilega. J. Útlönd. Með gufuskipinu „Modestau bárust þessi tíðindi helzt frá útlöndum: Af ófriðinum í Suður-Afríku það að segja, að Englendingar hafa upp á síð- kastið farið hverja ófórina á fætur ann- ari fyrir Búum. Eins og áður er getið hér í blaðinu, voru Bretar um miðjan jan. komnin norður að Tugelafljóti, sem er nokkrar mílur fyrir sunnan Ladysmith er Búar sitja um. Einn af hershöfðingj- um Breta, Yarren að nafni, komst skömmu eptir miðjan mánuðinn norður yfir fljót- ið með nokkru liði. og ætlaði að halda til Ladysmith, borgarmönnum til hjálpar. En rétt fyrir norðan fljótið mætti hann hersveitum Búa hjá Spion Kop, og tókst þar orusta með þeim; var barizt af mikl- um ákafa, en svo lauk bardaganum, að Bretar biðu hinn mesta ósigur, og urðu að láta síga undan. Er mælt, að fallið hafi yfir 800 manna og 1500 verið hand- teknir. Auk þessa náðu Búar öllum fall- byssum Breta. Búar biðu aptur á móti mjög litið manntjón. Margar fleiri smá- orustur hafa staðið milli Breta og Búa á ýmsum stöðum, en ekkert áunnist. Þessar siðustu ófarir hafa skotið Bret- um ærinn skelk í bringu, en ekki er nú annað nefnt heima á Englandi, en að halda áfram þangað til yfir taki; fyigjast þar allir stjórnmálaflokkar að málum, og telja veg Bretlands undir því kominn, að Búar verði yfirunnir. Stjórnin hvað vilja fá 20 miljónir pund sterling, eða 360 miljónir króna, veittar af parlament- inu til ófriðarins, og talið er, að ekki muni veita af 100 þús. hermanna þang- að suður í viðbót við það, sem komið er. Það var búizt við, að þeir Kitchener yfirhershöfðingi og Roberts kæmust norð- ur til Ladysmith um miðjan febrúarmán- uð; er talið óvíst, að setulið Englendinga í borg þessari, sem og í Mafeking og Kimberley, er líka eru umsetnar af Búum, muni jafn vel geta þrokað þangað til; voru vistir á þessum tveim síðast nefndu bæjum þegar á þrotum, og auk þess drepsótt meðal setuliðssins. Kitchener lávarður kveður Breta ekki muni veita af heilu ári til að bæla Búa algerlega undir sig, og friða land þeirra; haft er eptir honum, að hann muni breyta allri hernaðaraðferð Breta er hann komi til, draga allan herafla þeirra, sem nú er á víð og dreif, saman í eitt, og berja þannig á Búum. Búar hafa með lögum skyldað alla útlendinga, sem búsettir eru í þjóðveld- inu, að ganga í herþjónustu, og verða Englendingar, sem þar eru búsettir, þar af leiðandi að bera vopn móti löndum sínum. Fregnir hafa borizt um það, að sprengi- kúlu-verksmiðja Búa í Johannesburg, hafi 20. jan. sprungið i lopt upp, er það stór- tjón fyrir Búa, eins og nú er ástatt, ef satt skyldi vera. Frá Kína eru þau tíðindi, að Kwang- sie, keisarinn, er leggja varð niður völd- in 1898 og setið hefur í nokkurs konar varðbaldi siðan, háfi nú fríviljuglega af- salað sér keisaratign, og er í hans stað kominn til valda 9 ára gamall dreng- stauli, er taka átti við ríkisstjórninni 5. febrúar, liann heitir Chikuang. Eru þetta allt rað keisaradrottningarinnar gömlu, er steypti Kwangsie úr völdum, og síð- an hefúr stýrt ríkinu með gæðingum sinum. Eins og kunnugt er, þótti henni Kwangsie of frjálslyndur í stjórn sinni, og fyrir því réðst hún í, að steypa hon- um úr völdum með tilstyrk apturhalds- flokksins, en það eru þeir menn meðal Kinverja, sem öllu vilja halda sem fast- ast í gamla horfinu, og enga nýbreytni taka eptir Norðurálfumönnum í neinu. Þessi flokkur ræður öllu með hinum nýja keisara. Sá kvittur gaus upp skömmu eptir þenna atburð, að gamli keisarinn hefði ráðið sér bana, eða öllu heldur ver- ið myrtur, en borið var það aptur til baka. Prakkar búast í óða önn til sýn- ingarinnar miklu í París, sem bráðum á að opna; hafa þeir boðið til Parísar öll- um þjóðhöfðingjum Norðurálfunnar og ýmsum úr hinum álfunum. í Austurríki er stórkostlegt verk- fall í kolanámum, 70 þúsundir verkmanna höfðu lagt niður vinnu siðast í janúar- mánuði, og þó búizt við, að fleiri myndu koma á eptir; heimta þeir hærra kaup og skemmri vinnutíma, en lítil líkindi til, að þeir hafi sitt mál fram í bráðina. í Danmörku er talið vist, að Hörrings- raðaneytið muni ekki sitja lengur að völdum en fram í apríl; eru margar get- ur um hverjir skipa muni hið nýja ráða- neyti, en allt óvíst. í Noregi hefur í vetur verið ákaf- lega stormasamt, og slysfarir miklar á sjó. Mörg gufuskip farizt, og manntjón ærið. Fiski- og sildar-afli hefur og verið fremur stopull og lítill í Noregi sökum ótíðarinnar. Á Vestur-Indlandi er stórkostlegt hallæri af uppskeruskorti, og þar af leið- andi hungursneyð; var í janúarmánuði talið svo til, að 49 miljónir manna væru bjargarlausar. Sökum ófriðarins í Suður- Afriku geta Englendingar litt snúist við því, að bæta úr neyð þessara skjólstæð- inga sinna; þeir verða að degja drottni sinum úr hungri og harðrétti, af þvi Bretar þurfa að berjast til landa og fjár í Suður-Afríku. Bakteríur í bókum. í ríkinu Michigan i Bandaríkjunum i Vesturheimi fengu 20 bók- haldarar lungnatæringu i fyrra vetur, sam- kvæmt skýrslu heilbrigðisráðsins, og eru nú allir andaðir. Heilbirgðisráðið lét bakteríufræð- ing skoða bækurnar, og fullyrti hann, að rann- sókninni lokinni, að þær vseri fullar af bakterí- um spjaldanna á milli. Er það álit hans, að þeir, sem hóldu bækurnar á undan þessum mönnum, hafi verið tæringarveikir, og bakterí- urnar hafi komizt í bækurnar með þeim hætti. að þeir hafi bleytt fingurgómana í munnvatni sínu þegar þeir voru að fletta blöðunum. Bélusetning við ofdrykkju. Það het'ur lengi verið mikið um það hugsað, hvernig takast mætti að lækna ofdrykkjufýsnina, oða láta of- drykkjumanninn fá viðbjóð á áfenginu. Á drykkjumannaspítötum hefur sú aðferð nýlega verið upp tekin, að gefa drykkjumanninum dá- lítið áfengi i öllu, sem hann neytti, bæði mat og drykk og tóbaki, sem og að láta áfengislykt stöðugt vera fyrir vitum hans. Á þenna hátt hefur tekist að lækna marga. Nú þykjast 3 íranskir læknar liafa fundið nýtt meðal við of-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.