Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.12.1902, Qupperneq 3
XYI, 49.
Þjóðvii.jinx.
19B
CI* árVallt lC><ÐI25't,
og ætti þyí eigi að yanta á neinu heimili
DE FORENEDE BRYGUtERIER
Kjobenliavn.
mæla með livorvetna verðlaunuðum ölföngum sínum.
ALLIANCE POIÍTER (Double brown stout) heíir náð meiri
fullkomnun, en nokkurn tíma áður.
/l‘i( I ri : >1AI /r-IOXrI I l Alvrr frá Kongens Bryghus, er læknar
segja ágætt ineðal við kvefveikindum.
Export Dobbelt 0i- Ægte Krone 01. Krone r*ils>ir\er'?
fyrir neðan alkoholmarkið, og því ekki áfengt.
TUBORG 0L, frá hinu stóra ölgerðarhúsi í Kaupmannahöfn er alþekkt svo
sem hin bragðbezta og nœringarmesta bjórtegund, og heldur
sér afbragðs vel.
TUBORG 0L, sem liefir hlotið mestan orðstyr hvervetna, þar sem það hefir
verið haft á sýningu, rennur út svo ört, að af því seljast
50,000,000 fl. á ári, sem sýnir, hve miklar mætur almenning-
ur hefir á því.
TUBORG 0L fœst nœrri því alls staðar á íslandi, og ættu allir bjórneytend-
ur að kaupa það.
Spánn. Þar hefir brytt á æsingum af
hálfu Carlunga, og hafa því ýmsir af for-
ingjurn þeirra verið teknir fastir.
Ræningjar hafa gert ýmsan óskunda
ný skeð á Spáni, og heitir sá Casanova,
er verstur er talinn, og var i ráði, að
stjórnin sendi flokk hermanna, til þess
að reyna að handsama hann.
Bandaríkin. Kýlapestin hefir i haust
stungið sér niður í San Francisco.
Nýlega fóru fram kosningar til þings
Bandamanna („‘Congressins“), til fulltrúa-
deildarinnar, og gengu þær „demokröt-
um“ heldur í vil, enda þótt „republik-
anar“ ráði meiri hluta á þingi eptir, sem
áður.
Út af kosningasigri „demokrata" aug-
lýsti eigandi blaðsins „New York Jour-
nal“, að hann ætlaði að hafa flugelda
mikla, almenningi til skemmtunar, og
söfnuðust þvi saman um 50 þús. manna,
til að horfa á flugeldana; en er skothrið-
in skyldi byrja, tókst svo ílla til, að ýms
skotliylkin sprungu, og kúlurnar þutu út
í mannfjöldann. Sló þá svo miklum ótta
á menn, að þröngin gjörðist svo mikil,
að margir tróðust undir, og létu nokkrir
menn lifið, en um 150 særðust meira eða
minna. Eigandi „New York Journal“
hefir gefið 1 milj. dollara, til þess að
standast kostnaðinn við lækningu særðra
manna, og handa ættingjum hinna látnu.
Á eyjunni Puertorico urðu i haust all-
miklar politiskar róstur, og hlutu 2 menn
bana, en 15 fengu sár og meiðsli.
Canada. I þorpinu Altona í Mani-
toba gjörðist sá atburður 9. okt. siðastl.,
að alþýðuskólakennari, Henry Torws að
nafni, varð ósáttur við yfirmenn sína,
skólanefndina, og skaut af skammbyssu
á skólanefndarmennina, er voru 3 alls,
og særði þá mjög, svo að tvisýni var á
lifi þeirra. Hljóp hann svo þaðan í skól-
ann, og skaut þar 3 telpur, er voru dæt-
ur skólanefndarmannanna, og var ein
þeirra þegar látin, en hinar mjög hætt
staddar. Að lokum beindi kennarinn
skammbyssunni gegn sjálfum sér, og
skaut sig í höfuðið, en var þó lífa, er
síðast fréttist.
Venezuela. Borgarastyrjöldin þar í
landi heldur enn áfram; 13. okt. réðu
uppreisnarmenn á borgina La Victoría,
en Castro forseti var þar fyrir til varn-
ar, og urðu uppreisnarmenn frá að hverfa,
en borgin eptir full af særðum mönnum.
Stjómarflokkurinn kennir Bretum um
það, að þeir rói undir, og eggi uppreisn-
armenn, og hefir því stjórnin slegið eign
sinni á eyju eina þar í grenndinni, er
Bretar hafa helgað sér, og verður það á-
greiningsefni að líkindum lagt í gjörð,
þar sem Bandamenn leyfa eigi Evrópu-
mönnum ófrið við ríki þar i álfu, en telja
sig sjálfkjörinn verndara þeirra, samkvæmt
M'm/oe-reglunn i.
Guatemala. Fjallið „Santa Maria“
hefir gosið þar mjög ógurlega, svo að
víða hefir verið 6—7 feta þykkt öskulag
á kaffiökrunum þar í landi, og er mælt,
að um 20 milj. punda af kaffi hafi þann-
ig eyðilagzt. — Eldgos þessi hafa einnig
svipt marga menn lífi.
Brazilía. Þar hefir kaffiuppskeran
orðið talsvert minni, en i fyrra, nú 13
milj. punda, en þá 16 milj.
Afríka. í löndum Þjóðverja i Afriku
hafa fundizt gullnámur, sem taldar eru
enn auðugri, en gullnámurnar i Johann-
isburg í Transvaal.
Eldsvoði varð í nóv. í bænum East-
London, og er skaðinn metinn um 200
þús. sterlingspunda.
Þjóðverjar halda enn kfram að grafa í rústum
Bebylonar, til þess að leita þar fornmenja. enda
hafa þeir ný skeð fundið þar 400 steintöflur, sem
ýmis konar letur er grafið á, og hefir mönnum
þegar tekizt að lesa letrið á tveim þeirra.
Á annari töflunni er eins konar orðabók, sem
talin er mjög mikilsvirði, að því er snertir forn-
tungurnar í Asiu, en á hinni töflunni eru hátíða-
söngvar, er sungnir voru i hofinu Esagíla, þegar
guðinn Marduk vitjaði þessa lielgistaðar.
Guðinn Marduk, eða Merodach, var sonur Eu,
og einn í tölu hinna tólf guða, er Bahylons-
og Assyríumenn tignuðu öðrum guðum fremur,
og var hofið Esagíla mestur helgistaður í ríkinu;
en annað hof var guðinum helgað í Sippar.
Enn fremur hafa menn og fundið hof lækna- I
guðsins, er nefndur var ýmist Ador eða Níneb,
og sömuleiðis verndarhring, er notaður var til
þess, að verjast árásum hins ílla anda Labartu.
Um Ijábartu segir svo, að meinvættur sá
drakk mannsblóð, og var jafnan svartur hundur
í för hans, og fylgdi þeim hvívetna sorg og sút-
í Lundúnum sýndi sig nýlega maður, er gat
hreift hjartað, eptir vild sinni, frá vinstri til
hægri hliðar, og eru slík náttúru-afbrigði fáheyrð.
Alfonso XIII., konungur á Spáni, fæddist
sem kunnugt er, nokkru eptir lát föður síns,
og var eptirvænting manna mjög mikil, því að
eigi var annað sýnna, en að þegar yrði borgara-
styrjöld, ef drottningin fæddi meýbarn.
Ráðherrarnir, og aðrir tignustu menn ríkis-
ins, biðu í næsta herhergi, meðan á fæðingunni
stóð, og þangað var sveinninn borinn á silfur-
fati, jafn skjótt er hann var fæddur, og þótti
ríkið þá leyst úr miklum vanda.
Leo Tolstoi lauk siðastl. sumar við nýja
skáldsögu, er nefnist „Chadschí Murat“, og gjör-
ist sú saga á dögum Nicolaj I.
Samkvæmt skattaskrá Lundúna eru þar 16
menn, er hafa yfir 1 milj. króna í árstekjur, en
184 menn, er hafa 200 þús. til 1 milj. króna í
tekjur á ári, og 400, er hafa 100—200 þúsundir
króna.
——