Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.06.1903, Page 2
98
XVII, 25.
En með því að ,,fiskkaupa“-ferð þessi var
gjörð um þetta leyti, svona að eins 2—3 dög-
um á undan kjörfundinum, þá þótti þetta ferða-
lag all-kynlegt, og ekki sizt er þáð kvisaðist, að
kréfin, sem sent var með, voru til .Jðns læknis
Þorvaldssonclr á Hesteyri, Sigurðar Pálssnnar,
Hesteyrar-factors, og síra Kjartans, Grunnvík-
inga-klerks — þ. e. einmitt til aðai-atkvæða-
smala apturhaldsliða í Norður-hreppunum við
undanfarnar kosningar, og lagðist því þegar
grunur á, að eitthvað væri í hruggi, svo sem
síðar varð raun á.
Sendimennirnir komu aptur að norðan aðfara-
nóttina bvítasunnudagsins — mun hafa þótt
líklegast, að síður kæmi þá kvis á —, og sögðu
hverjum söguna um ,,fiskkaupin“(!), Sem heyra
vildi.
Gjörðist þá þegar all-tíðrætt um „fiskkaup-
in“(!) á Hornströndum, og þótti því framsóknar-
mönnum í héraðinu réttast, að eiga það ekki
undir, að sitja heima kjörfundardaginn.
II.
En það var, eins og skrifað væri í örlaganna
bók, að launráð þessi ættu ekki að lánast.
Þegar íhaldsliðar sendu norður, til „fiskkaup-
anna“ á Ströndum, höfðu þeir gleymt gjörsam-
lega „hvítasunnuhretinu11, en það kom — eins
o j lög gera ráð fyrir — á hvitasunnudagiim, og
gerði þeim slæmt strik í reikninginn.
Dyngdi þá niður snjó miklum á Ströndum,
með aftaka-norðanveðri, svo að ferðalög öll voru
ófær.
Hretinu linnti eigi, fyr en annan dag hvíta-
sunnu, og var þá orðið um seinan, að senda
norður á Hornstrandir, þar sem kjörfundardag-
urinn var að morgni, og fórst þvi fyrir öll smala-
mennskan á Ströndum, enda tvisýnt, hvað „fisk-
azt“ hefði, þótt betur hefði viðrað.
Gufubáturinn „Asgeir litli“, er íhaldsliðar
leigðu, og sendu norður, nóttina fyrir kjörfund-
inn, til að sækja norðan-safnið, kom því að eins
með 11 hræður á kjörfundinn.
Það var dýr farmur, — „fiskarnir11 færri, en
ætlast var á um.
III.
Kjörfundardaginn, 2. júní, var veður all-fag-
urt, og fjölmenntu Djúpmenn þá mjög á fundinn.
Úr Nauteyrarhreppi, og úr innri hluta Snæ-
fjallahrepps, mættu kjósendur þó fremur fáir,
enda eiga kjósendur úr hreppum þessum einna
lengsta leið á fundinn, og vissu eigi, að tveir
yrðu í kjöri.
Grunnvíkingar sóttu og fundinn fremur lin-
lega.
Nóttina fyrir kjörfundinn höfðu aflazt nokkr-
ar tunnur af sild, inni í Sevðisfirði, og var hún
komin út i veiðistöðurnar snemma morguns.
Það þótti ihaldsliðum á Isafirði bera vel í
veiði, og hugðu nú vist, að fundurinn yrði fá-
mennur.
En þó að fisktregt hefði verið nokkra hríð
fyrir hvitasunnuna, og afla-von góð á síldina,
létu Djúpmenn það eigi aptra sér frá kjörfund-
arsókninni, en hröðuðu sér á fundinn.
Var það mjög rösklega og drengilega að ver-
ið, og myndu eigi allir hafa gjört ísfirðingum
það eptir.
IV.
A kjörfundinum buðu sig fram, svo sem áður
hefir verið skýrt frá hér í blaðinu:
I. Árni kaupmaður Sveinsson á ísafirði, og voru
meðmælendur hans: Jón Laxdal verzlunar-
stjóri, og „Vestra“-prentarinn Kristján H.
Jónssov.
II. Skúli Thorodrlsen ritstjóri, og voru meðmæl-
endur hans: Pétur hreppstjóri Oddsson í Tröð
og síra Sigurður Stefánsson í Vigur.
Auk þingmannaefnanna, er töluðu nokkrum
sinnum, tóku og meðmælendur þeirra allir til
máls, og sérstaklega þvældu þeir Laxdcd, og
„Vestra“-prentarinn, .aptur og aptur upp ýmis
konar ,,Vestra“-vísdóm(!), um stjórnarskrármál
og bankamál, sem hvorugur þeirra virtist hafa
botnað neitt í.
Var það hálf-leiðinlegt verk fyrir ritstjóra
-tr'o OÐ V±y s .
„Þjóðv.“, að leiðrétta verstu vitleysurnar, enda
námssveinarnir hvergi nærri svo fróðleiksfúsir
og skilningsgóðir, sem æskilegt hefði verið, ef
verulegs árangurs skyldi vænta á jafn stuttum
námstima.
Loks kom svo, að kjósendum leiddist svo
þvælan, og skilningsleysið í prentara „Vestra“,
að ýmsir gerðust all-ókyrrir, svo að Htt heyrð-
ist, hvað hann sagði, og þagnaði hann þá loks,
við litinn orðstýr, og þótti mörgum, að fyr hefði
átt að vera, og vh-ðing hans þá meiri.
Búfr. Halldór Jónsson á Rauðamýri beindi
nokkrum fyrirspurnum til þingmannsefnisins
Arna Sveinssonar, og svaraði hann sumum þeirra,
en kvaðst ekki geta lýst skoðun sinni á alþýðu-
menntunarmálinu, nema hann hefði frumvarp á
vasann, sem hann ekki hefði(!)
IJmræður stóðu nær tvo kl.tíma, og að þeim
loknum hófst atkvæðagreiðslan.
V.
Atkvæðagreiðslan fór því næst fram, svo sem
hér segir: Sk. Th. A. Sv.
Hólshreppur .... ... 33 1
Eyrar .... ... 31 2
Isafjarðarkaupstaður ... 41 26
Súðavíkurhreppur . . ... 20 »»
Ogur . . . ... 20
Reykjarfj. . . . ... 10 nn
Nauteyrar . . . . . . 7 í
Snæfjalla . . . ... 4 í
Grunnavík. . . . . . • 7 í
Sléttu . . . ... 13 10
186 42
Kjöríundurinn mátti því yfirleitt teljast mik-
ið vei sóttur.
VI.
Þegar kjörstjórnin hafði lýst yfir kosningar-
úrslitunum, þakkaði Slcúli Thoroddsen kjósend-
um sinum, með nokkrum orðum, gott traust og
fylgi, og gengu menn síðan af kjörfundi.
Kjörfundur Vestur-ísfirðinga.
Kjörfundurinn var haldinn í verzlunarstaðn-
um Þingeyri 3. júní síðastl.
Kjörfundurinn var mjög vel sóttur úr Þing-
eyrar- og Suðureyrar-hreppum, en miður úr hin-
um hreppunum. — Súgfirðingar áttu lengst á
kjörfundarstaðinn, en höfðu þó fjölmennt mest,
næst Þingeyrarhreppi, að tiltölu við kjósanda-
fjöldann, og var það mjög vasklega að verið.
Meðmælendur síra Sigurðar Stefánssonar voru:
Kr. Alhertsson á Suðureyri, og síra Þórður ó)lafs-
son á Gerðhömrum, en meðmælendur Jóhannesar
hreppstjóra Ólafssonar voru: hreppstjóri Guðm.
Á. Eiríksson á Þorfinnsstöðuin, Kristinn búfr.
Guðlaugsson á Núpi, síra Böðvar Bjarnason á
Rafnseyri, Matthías Ólafsson verzlunarstjóri í
Haukadal, Gísli bóndi Ásgeirsson á Alptamýri og
búfr. Sveinn Arnason, er talaði með „vanalegri
mælskulY!), og þvældi þau ósköp, að kjörstjórn-
in varð að taka af honum orðið, og sagði hann,
að sér þætti það hart/!).
Eptir að þingmannaefnin höfðu haldið ræður
sínar, og ýmsir af meðmælendum þeirra höfðu
tekið til máls, og eptir að beint hafði verið til
hr. Jóh. Ól. fyrirspurn þeirri, sem getið er um
á öðrum stað í blaði þessu, og hann svarað henni,
svo sem þar segir, var gengið til kosninga,r, og
féllu þá atkvæðin þannig:
Jóh. Ól. Sig. St.
Auðkúluhreppur..........12 „„
Þingeyrarhreppur........44 1
Mýra --------- ..... 10 16
Mosvalbi —— . . . 'r . 14 10
Suðureyrarlireppur .... „„ 16
80 42
Að kjósendur í Mýra- og Mosvalla-hrepþum,
er fylgdu framsóknarmönnum nær eindregið að
málum við kosningarnar í fyrra, snerust nú á
síðustu stundu gegn síra Sigurði Stefánssyni,
stafar óefað af þeirri skýru og eindregnu yfir-
lýsingu hr. Jóh. Ólafssonar á kjörfundinum, að
hann væri ekki stuðningsmaður hinnar núver-
andi innlendu stjórnar, en vildi stuðla að því,
að landið fengi framsóknarstjórn, og hafa menn
þá fremur kosið alþýðumanninn, en prestinn,
án þess að gæta þess, að þar sem þeir höfnuðu
síra Sig. Stefánssyni, þá höfnuðu þeir einum af
verkhæfustu og mikilmetnustu þingmönnum
landsins.
Má og fullyrða, að hefði sú yfirlýsing hr.
Jóh. Ól., er fram kom á kjörfundinum, áður ver-
ið kunn, þá myndi síra Sigurður eigi hafaboðið
sig fram; en hr. Jóh. Ól. hafði stutt kosningu
sýslumanns H. Hafstein's á undanförnum kjör-
fundum, og var því eðlilega, af oss og fleirum,
skoðaður, sem þingmannsefni landshöfðingjaliðs-
ins á þingi, enda studdur af „Vestra“, og öðrum
málgögnum þess flokksins.
^ ■ 'i "i i iiiiiiiii,i)ii;.niiiiiiHniiinnim^
ísafirði 9. júní 1903: „Síðasta vikutímann
hafa gerigið hér sífelldir sunnan-stormar, og stór-
felldar. rigningar, svo að snjó hefir leyst vel til
fjalla, og tún eru farin ögn að litkast. En þó
að tíðarfar þetta hafi verið hagkvæmt upp á land-
ið, þá hefir það verið sannköiluð vandræða-tíð til
sjávarins, þar sem síld veiðist ekki, meðan svona
viðrar, og ekki til neins að róa með aðra beitu í
Út-Djúpinu, þó að stöku sinnum gefi á sjóinn.
A hinn bóginn er enginn efi á þvi, að Djúp-
ið er fullt af síld og fiski, og aflahorfur því
góðar, ef tíð breyttist, og síld næðist, enda hefir
nú siðustu dagana aflazt mikið vel á skelbeitu
frá Snæfjallaströndinni, 3—4 hundruð með bát.
Mesti fjöldi sunnlenzkra fiskiskipa hefir leg-
ið aðgjörðalaus hér á firðinum, síðan um hvíta-
sunnu, til að biða eptir þvi, að síld kynni að
fást, enda hefir tíðin einnig verið mjög storma-
söm úti fyrir. — Mikið af þilskipastólnum hefir
því verið all-óarðvænleg eign nú um tíma, og
er stór furða, að þilskipamenn skuli engir afla
sér skelbeitu, þegar síld bregst, og tregt er um
afla á ljósa beitu, því að það er margreynt, að
kræklingur og kúfiskur er mjög veiðin beita,
svo að menn jafn vel taka þá beitu fram yfir
síldina í verstöðum innan Arnarness hér við
Djúp, enda er það kunnugt, að á fiskiskútum
Frakka hér við land er skelbeita mjög notuð.
Sakir hinna litlu aflabragða, þá hefir verið
óvanalega Jítið um kaupstaðarvinnu hér á Isa-
firði, og horfur manna því ekki sem beztar, ef
ekki réttist vonum bráðar úr.
Verzlunin „Edinborg11 í Reykjavík hefir nú
sett upp fasta verzlun hér á ísafirði, og hefir í
því skyni leigt verzlunarhús L. A. Snorrasonar
kaupmanns, sem hættur er við verzlun sína hér
á ísafirði. — Hr. P. Ward er tekinn að reisa
fiskitökuhús hér í kaupstaðnum, og kvað ætla
að reka hér verzlun. Hefir hann ný skeð keypt
hús og lóð Soph. J. Kíelsens, fyrrum verzlunar-
stjóra, og var kaupverðið 11 þús. króna.
Ekki befir qjin tekizt, að setja gufuvélina í
félagsbátnum „Heimastjórn11 svo saman, að hún
sé að notum, enda ketillinn talinn of lítill, svo
að ekki lítur út fyrir, að sú fleytan bæti í bráð-
ina úr hinu tilfinnanlega samgönguleysi hér um
Djúpið11.
Um kosninga-úrslitin
geymir „Þjóðv“. Dæsta nr. að tala, með
því að ritstjórinn, sem dvelur á ísafirði,
hefir enn eigi frétt um 4—5 kosningar,
er þetta er skrifað.
Landshöfðingjasveitin (landshöfðing-
inn, H. Hafstein, „dánumaður“, ogfélag-
ar þeirra), er ætlar sér að uppskera
„launin“, hefir þreytt kapphlaup éptir
atkvæðum kjósandanna, og fengið sína
„beztu menn“(!) kosna, — höfðingjana
sjálfa, gamla Tryggva, „Þjóðólfs“-mann
Oi fl.
Þjóðin hefir sýnt þeim þau brjóst-
gæðin, að lofa þeim að vera með, þegar
launin verða ákveðin á þinginu í sumar.