Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.04.1904, Page 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.04.1904, Page 2
62 ÞjÓBTlfLJlM A xvm., 16. peningar séu í aðra hönd, og það í ríf- legum mæli, án tillita til þess, opt og eínatt, hvort vinnuveitandinn hefir nokk- ur ráð á þvi. Viðskipti Sunnlendinga og Austfirðinga nú á síðari árum sýna þetta. Það er alls ekki sagt með þessu, að peningar séu ekki góður hlutur i sjálfu sér; en hitt er víst, að þeir geta orðið til ógæfu, ef þeir svipta þjóðina því göfug- lyndi, og þeirri nœgjusemi, sem henni er ómissandi, til þess hún geti þrifizt í pm- ingasnauðu og fátæhu landi. Eg vil taka eitt til dæmis. Það hefir verið mjög að orðum gjört, hvað kjör bamakennaranna hér á landi væra pen- ingasnauð, og það sé sjálfsagt að bæta þau, því annars detti engum manni í hug, að gjöra barnakennslu að æfistarfi sínu. Þetta lítur nú vel út, þegar eingöngu er litið á hag kennaranna, og þetta láta margir, eða jafh vel flestir, sér að kenn- ingu verða, sem þá kennslu stunda. Þeir hætta við hana, og taka sér annað pen- ingavænlegra fyrir hendur, eða fara til Ameríku, þar sem menn hafa 5 dollara um daginn, að öllum jafnaði, að þeir segja. En er þá ekki leyfilegt, að líta snöggv- ast á hina hliðina. Eiga ekki félitlir bændur i hlut, eða að minnsta kosti pen- ingalitlir? Gjörir það ekkert til? Er barnakennslan þá stofnuð eingöngu til að veita kennuram góða atvinnu? Hefir henni ekki verið sett neitt æðra takmark, eða á það ekki að vera neitt annað? Ef enginn fæst til að gegna henni, kaup- gjaldsins vegna, á hún þá að leggjast algjörlega niður? Það er víst ekki langt frá því, að menn svari síðustu spurning- unni játandi. Það þykir víst sitja illa á mér, að úr- telja það, að bætt séu kjör kennara. Og eg gjöri það alls ekki. En eg vil, að kennarar sætti sig við þau kjör, sem ekki era ofvaxin fátækri alþýðu, með sérstöku tilliti til þess, að verkið er þess vert, að það sé unnið, hvað sem laununum líður. Af sömu ástæðu er það sómi hvers kenn- ara, að ieggja þann skerf, sem hann get- ur, til þess að kennslan geti farið sem bezt fram, þó að svo sJfölanefndirnar kynnu að gleyma sinni skyldu í því efni. Bamakennsla hér í landi má heita á byrjunarstigi enn, og enginn kennarimá ganga að því sjálfsögðu, að allt sé upp á það ákjósanlegasta, áhuginn á menntun æskulýðsins í hverju koti, og allt eptir þvi. En þrátt fyrir allt verður það af- farasælast. að sem flestir geti gjört barna- kennsluna að æfistarfi sínu; en til þess verða kennaraefnin að sætta sig við, að sníða sér stakkinn eptir vexti þeirrar þjóðar, sem þeir eru að vinna fyrir. I sambandi við þetta, vil eg benda á, að miklu meira mætti gjöra að því, en gjört er, að mennta börn fátækra manna til munns og handa. Gröfuglyndir menn og konur gætu sér að bagaiitlu veitt þeim kennslu í félagi, einkum siðari hluta vetrarins, og framan af sumri, (apr- íl og maí). Til þess þarf ekki annað, en göfuglyndi, bara góðan vilja, sanna mann- ást og föðurlandaást. Þessi böm eiga fyrir sér að verða borgarar í þjóðfélaginu, og það er þjóðfélaginu í heild sinni tjón, að vanrækja uppeldi þeirra. Þau geta þá orðið að lokum því sveitarfélaginu til byrði, sem ól þau upp, og það er tjón fyrir allt landið. Sama má segja um aJlan þann fjölda þurfamanna hér á landi, sem ekki þyrftu annað en mannúðlegt tillit annara, til þess að geta verið sjálfstæðir og frjáls- mannlegir. Það er íhugunarefni fyrir alla, og sérstaklega hreppsnefndimar hér á landi. Ætli sveitabúskapurinn væri ekki í meiri blóma núna, ef húsbændur og hjú hefðu tekið meira tillit til þess, hvemig ástæður beggja flokka era? Skyldi ekki sveitabóndanum búnast betur, ef hann hefði nægjusamt og trútt. vinnufólk, held- ur en þó hann fengi nokkrar „rúllur“ af gaddavír að láni? Nei, engin þjóð getur bætt sér það upp með lögum, ef hún hefir týnt göf- uglyndi sínu og nægjusemi. Vér Islend- ingar eram ekki eina þjóðin, sem sann- ar það. Já, eg sagði í fyrirlestri mínum, að það væri efst á baugi að „hafa eitthvað upp úr þvíu, og það var ekki ofsögum sagt, þó að eg fengi að heyra það úr ýmsum áttum, að sú aðfinnsla væri ó- makleg, því hvað yrði þá úr þjóðinni, ef hún hætti að „hafa upp úr þvíu. En ef það skyldi nú reynast farsælla fyrir þjóðina, að hver einstaklingur hugs- aði ekkert um að hafa upp úr þvi, fyrir sjálfan sig? Eg gæti bezt trúað, að bæði einstaklingarnir, og þjóðin í heild sinni, yrði þá ríkari, velmegunin jafnari. Og nú er komin ný stjórn. Hugsar hún ekkert um að hafa upp úr því, sjálfri sér til handa? Er hún bara að hugsa um það, að sníða sér stakkinn eptir efna- hag þjóðarinnar? Hvað sagði ekki ráð- herrann í ræðu sinni 1. febrúar? Var það ekki á þá leið, að nú ættu menn að „gjöra sér mat úru stjórnarbreytingunni? Hvað er það annað, en að hafa upp úr henni í peningalegu tilliti það, sem hægt er? Eg sé ekki betur, en allt ráðlag hinnar nýju stjómar bendi ótvírætt á það, að hún hafi gleymt, að hún á að stjórna fátækri þjóð. En eg vil þó ekkert fullyrða um þetta nú. Mér sýnist það vera áframhald af ó- heillastefnunni, sem eg var að lýsa í fyr- irlestri mínum. Eg vildi það væri ekki, því að þá getur verið úti um þessa þjóð. Það er göfuglynd, nœgjusöm og sparsem þjóð, sem getur búið hér bfu sínu. Eig- ingirnin, peningafíknin og eyðslusemin koma henni á klakann. Eg veit, að rnargir muni vera mér ó- samdóma um sitt hvað, sem eg hefi sagt í línum þessum. Jeg hefi meiraaðsegja rekið mig á, að þeir séu til, sem eiga erfitt með að skilja, að það sé annað, en heimska, að vinna fyrir lítið, eða ekk- ert, ef svo verður að vera. Þeim er göf- uglyndið óskiljanlegur hlutur. Og þetta á sér stað í kristnu landi — og vel krisfen- ir þykjast þeir vera, þó þeir gjöri aldrei nokkrum manni hagræði, nema fyrir fyllsta kaup, hver Bem í höggi á. Af allri trú er þetta versta trúin, og af öllu skiln- ingsleysi er þetta versta skilningsleysið. Svo vil jeg taka undir með R. Burns: „Þvi biðjum vér, sú verði tíð, og verða mun það, þrátt fyrir allt, að vit og drenglund sigri um síð í sannleiksstríði — þrátt fyrir allt, þrátt fyrir allt, og þrátt fyrir allt mun þetta verða um heimsból allt, að maður manni bindist blítt með bróðurhendi — þrátt fyrir alltu. (Stgr. Th.) Bjarni Jónsson. ♦B5BB551 • "i • - f Allt af er hjartað mitt ungt. Allt af er hjartað mitt ungt, þó örðugt sé lifið og þungt. En blóðið er heitt og lundin létt, svo lengi sem hjartað er ungt. A höfði mér hárið er grátt, sem hefði’ eg í lífstríði átt; en hlegið jeg get og hoppað enn, þó hárið sé löngu’ orðið grátt. Víst er jeg unglingur enn — ungur og gamall í senn. Hárið er grátt, en hjartað ungt. Jeg hlæ’ og jeg tárfelli enn. J. M. B. Drukknun. 5. apríl síðastl. hvolfdi báti í lendingu x svo nefndri Kollsvík í Barðastrandarsýslu, og drukknaði þar einn maður, Torji að nafni, bóndi i Kollsvík, kvæntur maður. -— Hinum, sem á bátnum voru, var bjargað. Báturinn var að koma úr kaupstaðarferð frá Patreksfirði, er slysið varð, og var brim mikið, og bvassviði’i, svo að ólendandi mátti beita í Kollsvik. Frá Yestmannaeyjum er að frétta hlaðfiski, fyrir og eptir páskana, svo að suma dagana var tví- og þrí-blaðið skammt frá eyjunum. Minni verzlunarfrelsLsins. Sungið á skemmtisamkomu skólapilta 15. apríl 1904 Lag: „Þú vorgyðja svifur“. Vér blessuru þaun dag, þegar landið varð laust úr læðing, sem þröngdi því sárast, þann dag, er vér öðluðumst aptur vort traust á oss, og vér hættuin að tárast. En laugvinn var þiaut vor, og margfallt vort rnein, og meira, sem þurfti’, eu að velta þeim stein. Vor þjóð hefir átt inarga ágæta stund, en óhappadagana fleiri. Jeg veit ekki, hvort hún er vöknuð af blund, en víst er, að skíman er rneiri; þótt kafþykkt sé loptið í austurátt enn, er ugglaust, að sólskinið kemur þó senn.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.