Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.05.1904, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.05.1904, Qupperneq 1
Verð árganqsins (minnst j 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; j erlendis 4 kr. 50 aur., og I í Ameríku doll. : 1.50. : Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. - |= AtJÁNDI ÁaöANGUB. =| .- ■ -»-BITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =Ie>œ£—<— | TJ'ppsögn skrifleg, ógild í nema komin sé til útgef- ! anda fyrir 30. dag júní- \ mánaðar, og kaupawli , samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 18. Bessastöðum. 3. MAÍ. 10 0 4. Árleg þing. --<^)o- - Það hefir opt verið vakið raáls á því í „Þjóðvú, að oss íslendingum myndi það eigi síður nauðsynlegt, en öðrum þjóðum, að halda alþingi á ári hverju, þar sem raunin hefir viljað vera sú, að politiskur áhugi dofnar mjög í landinu þau árin, sem þing er eigi haldið. Sjálfsagt vilja Islendingar einnig nota sem bezt hið aukna stjórnfrelsi, sem ný- lega er fengið, eptir ærna baráttu, til þess að kippa í lag ýmsu, sem ábótavant þykir, og veitir þá naumast af því, að þing sé haldið á hverju ári. Það er og auðsætt, að vald og áhrif þings og þjóðar gagnvart stjórninni, myndi og vaxa að miklum mun, efþing væri haldið á ári hverju, þar sem ella er hættara við því, að stjórnin geti orðið helzt til einráð, þegar aðhald þingsins nær eigi til hennar, nema annað hvort ár. En verði það ofan á, sem vér von- um, að naumast eigi mjög langt í land, að þing verði háð á ári hverju, þá ættu almennar kosningar til alþingis einnig að fara fram á þriggja ára fresti. Það eykur áhrif þjóðarinnar álöggjöf og landstjórn, og ætti það því að vera öllum frjálslyndum mönnum áhugamál, að fá kjörtímabilið stytt, svo sem hér er farið fram á. Háskólamálið. Fyrir nokkrum árum var háskólamál- ið orðið töluvert áhugamál hér á landi, þó að lítið hafi verið minnzt á það á seinni árum. En þetta mál þarf að vekja upp apt- ur, því að fátt myndi fremur auka álit vort meðal erlendra þjóða, en stofnun háskóla á landi voru, auk þess er slík visindaleg stofnun gæti á ýmsar lundir orðið landi voru til ómetanlegs gagns. í bráðina þyrfti háskólastofnunin alls eigi að verða landi voru neinn kostnað- arauki til muna, þar sem vér leggjum þegar fram fé til presta- og lækna-skóla, og höfum einnig staðráðið, að láta laga- skólann hefja starf sitt, áður en langt um líður. Allir þessir skólar yrðu auðvitað deildir háskólans, og þó að vér í bráðina létum oss nægja, að bæta við kennslu í sögu landsins, í íslenzkri tungu, og i ís'- lenzkum bókmenntum, ásamt kemiskri efnarannsóknastofu, mætti síðar auka við fleiri kennslugreinum, eptir því sem þjóð- inni yxu kraptar. Smáþjóð, eins og vér íslendingar er- um, getur lítil áhrif haft á heimsmenn- inguna, þar sem um verkleg fyrirtæki ræðir; en hver veit, hvað oss kynni að takast í vísindalegu tilliti, því að þar vorum vér fyrrum eigi eptirbátar annara. Sönn framfarastjórn. Flestir vilja heita framfaramenn á landi voru um þessar mundir, en fáir kjósa sér íhaldsnafnið, hvað sem starf- semi þeirra líður. En svo er að sjá, sem skoðanir manna séu enn talsvert á reiki um það, hvað til þess heimtist, að geta talizt sannur f ramf aram aður. A síðastl. alþingi báru „heimastjórn- armennirnir“ fram „gaddavirsfrumvarpiðu, um hálfa milj. til gaddavírskaupa, og sömuleiðis tillöguna um þegnskylduvinn- una, og þóttust þá tjá sig, sem meiri framfaramenn, en dæmi væru til hér á landi, þó að hvorttveggja miðaði tilhins mesta ófrelsis fyrir einstaklingana. Mjög almenn virðist sú skoðun einn- ig vera, að það sé aðal-einkenni fram- faramanna, og framfarastjómar, aðbruðla sem mestu fé til ýmislegra fyrirtækja, má ske misjafnlega nauðsynlegra; en þetta er í raun og veru allra mesti misskilningur, því að íhaldsmenn geta opt verið mjög bruðlsamir með fé lands- ins, t. d. til þess að kaupa sér þingfylgi, og framfaramennimir geta verið spar- samir, í samanburði við íhaldsstjórnir. Sönn framfarastjórn lýsir sér því eigi aðallega i mikilli fjáreyðslu, heldur er aðal-einkenni hennar i þvi fólgið, að auka sem mest einstaklingsfrelsið, gæta rétt- vísi hvivetna, og hafa opin augun fyrir þörfum hinna smáu, bágstöddu og aumu í þjóðfélaginu, eigi síður en fyrir þörf- um þeirra stétta, sem betur eru settar. tJtlöiid. Fregnir hafa borizt af austræna ófrið- inum, er ná til 16. apríl, og hafa Búss- ar enn farið verstu ófarir á sjó. — Jap- anar réðu 13. apríl á Port-Arthur, og lögðu ítússar þá skipum sinum út úr höfninni, og lögðu til orustu. — Tókstþá svo illa til, að rússneska aðmirálsskipið vPetropaulovsku, um 11 þús. smálestir að stærð, beið svo miklar skemmdir, af neðan sjávar sprengitundri, að það sökk, og tynd- ist skipshöfnin nœr öll, yfvr 600 manns. — Meðal þeirra, er fórust, voru aðmíralarnir Makaroff og Molas, og hafði hinn fyr- nefndi komið til ófriðarstöðvanna i marz- mán., og var yfirforingi alls sjóliðs Rússa þar eystra, og sagður mjög duglegur mað- ur. Meðal hinna fáu (um 30 af 700), er björguðust, var bræðrungur Nicolaj keis- ; ara, CyriU stórfursti. — Hann var stadd: ■ ur upp á stjórnpalli skipsins, er það sökk, j og þó að hann sogaðist nokkuð niður j með skipinu, tókst honum þó að bjarga sér á sundi, og 'ná i flak, er hann gat haldið sér i, unz honum var bjargað; en meiddur var hann á fótum, og hafði brunasár á andliti. Annað stórskip Rússa, „Pobieda“, 12- 700 smálostir að stærð, kvað einnig hafa eyðilagzt í sjóorustu þessari, en menn þó bjargast. Enn misstu Rússar og tundurbátinn „Best,rachníu, og björguðust þar að eins 4 menn af 90, er á skipinu voru. Japanar misstu á hinn bóginn ekkert skip í orustu þessari. Uchtomski heitir sá, er nú hefir tekið að sér æðstu flotastjórn Rússa þar eystra, siðan Makaroff féll. og hafa nú Japanar, sem stendur, nær þrefallt meira herskipa- stól, en Rússar hafa þar austur frá, þar sem Rússar hafa alls misst 16—17 skip, stærri og minni, siðan ófriðurinn hófst. Mælt er, að Nicolaj keisara hafi fall- ið mjög þungt, er hann frétti lát Makar- °ífs °g manna hans, og lét hann hirð- prest sinn þegar syngja ‘rnessu fyrir sál- um þeirra. ^TTTi i i i 1111 n i. i' i 'i'iii^ Enn um stjórnarskrárbrotið. Um fátt hefir mönnum orðið tiðrædd- ara hér syðra, en um lögleysu þá, er framin hefir verið, er nýi ráðherrann var skipaður. Almenningi skilst það ofur-vel, að enginn getur, samkvæmt stjórnarskránni, ritað undir ályktanir um sérmál íslands, með konunginum, nema islenzki sérmála- ráðherrann. Þetta er skýrt tekið fram í 2. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir, að kon- ungur^hafi hið æðsta vald yfir sérmálum íslands, og láti ráðherrann fyrir Island framkvœma það. auk þess er 1. gr. stjórn- arskrárinnar segir, að landið hafi löggjöf sína og stjórn „út af fýrir sigu. Enginn dönsku ráðherranna geturþví ritað undir neina ályktun um sérmál Is- lands, svo að gilt sé, enda var þetta tekið mjög skýrt fram á alþingi, jafnt af báð- um flokkum þingsins, og nýi ráðherrann lýsti því þá, meðal annars, yfir, að hann „gengi að þvi vísu“, sem og sjálfsagt var, að skipun isl. sérmálaráðherrans yrði undirrituð af ráðherra íslands, með kon- unginum. Það er því von, að almenningi þyki þaðstkynlegt, að skipun nýja ráðherrans skuli vera undirrituð af forsætisráðherra Dana, þótt stjómarskráin beri það með

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.