Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.05.1904, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.05.1904, Page 1
Verð árgatigsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 awr.; erlendis 4 kr. 50 awr., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aiarlok. ÞJÓÐVILJINN. Át.TÁNBT ÁSftANGUIR. 1 -h-Sr*|=EITST,TÓEI: SKÚLI THOBODDSEN. Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni horgi skuld sína fyrir hlaðið. M 21. Bessastöðtjm, 21. MAÍ. II 19 0 4. Óeðlileg þjóðfrelsis-takmörkun. ---oiþo- Samkvæmt ákvæðum hinnar núgild- andi stjórnarskrár vorrar, eru alþingis- menn alls 40 að tölu, og eru 84 þeirra þjóðkjörnir, en 6 kveður konungur til þingsetu, Skipun konungkjörnu þingmannanna er, eins og hver önnur stjórnarráðstöfun, framkvæmd á ábyrgð íslenzka sórmála- ráðherrans, og má því ganga að því vísu, að í konungkjörnu þingsætin séu eigi skipaðir aðrir, en þeir, er ráðherrann, sem velur þá, telur vera sér fylgjandi í öllum meiri háttar þjóðmálefnum. Af þessu leiðir, að stjórnin þarf eigi að hafa fleiri en 15 þjóðkjörna þingmenn sér fylgjandi, til þess að geta haft afl at- kvæða í báðum deildum þingsins Þó að meiri hluti kjördæma landsins tjái sig stjóminni andvíg, svo að 19 þjóðkjörnir þingmenn teljist til andstæð- ingaflokksins, en að eins 15 séu stjórninni fylgjandi, getur stjórnin því setið ofur rólega við stjórnar-stýrið, sakir fylgis konungkjörnu þingmannanna, og stýrt málefnum þjóðarinnar þvert og öfugt við það, sem meiri hluti kjördæma landsins telur heppilegt, eða vill vera láta. Það verður þvi eigi sagt, að vér Is- lendingar njótum fullkomins þjóðræðis, meðan sú skipun alþingis er óhögguð, sem nú er. Eðlilegast væri, að stjórnin viki að sjálfsögðu frá völdum, ef hún eigi nyti trausts meiri hluta þjóðkjörinna þing- manna, því að stjórnin á að vera fram- kvæmandi þjóðarviljans, eins og hann lýsir sér við kosningar þjóðkjörinna þingmanna. Um fullkomið þjóðræði getur þvieigi verið að ræða hér á landi, meðan kon- ung- eða stjórn-kvaddir menn eiga sæti á alþingi. Vitaskuld væri það strax nokkur bót í máli, ef konungkjörnum þingmönnum væri fækkað, því að vér færðumst þá að því skapi nær fullkomnu þjóðfrelsi, sem þeir yrðu færri. En takmarkið, sem vér hljótum að keppa að, og náum óefað fyr eða síðar, hlýtur að vera, að einungis þjóðkjörnir alþingismenn sitji á þinginu. Þá fyrst er þjóðræðinu borgið frá þeirri hlið. Hitt er á hinn bóginn eigi efni þess- arar greinar, að minnast á það, hve afar- áriðandi það er þjóð og þingi, að vera á verði gegn því, að danskir ráðherrar sletti sér fram í íslenzk sérmál, eins og átti sér stað við ráðherraskipunina ný skeð. Af slíku ráðlagi er þjóðræði voru auð- vitað enn meiri háski búinn. Frá útlöndum, herfregnir o. fl. Fregnir, sem ná til 10. þ. m. segja að Japanar hafi 3. þ. m. girt fyrir hafn- armynnið á Port Arthur með þvi að sökkva þar 4 grjótbyrðingum. Er þar loku fyrir skotið, að stórskip geti þar um farið, það eru að eins tundurbátar og smákænur, sem fleytast þar yfir. 3—4 aðrir grjótbyrðingar, sem sömu leið áttu að fara, fórust af sprengingum og öðrum slysum. Margt manna misstu Japanar, er þeir unnu að verki þessu, og bar fleira en eitt til þess, bæði var afar mikið stór- viðri, og svo unnu þeir að þrekvirki þessu um bjartan dag, svo Rússuin veitti létt að miða á þá frá skotvirkjum sínum, enda munu þeir sízt hafa sparað að senda þeim kúlu. Japanar eru orðnir frægir mjög af verki þessu, sem þykir fáheyrt hreystiverk. 6. þ. m. höfðu Japanar komið land- her sínum norður í Eeng-huang-oheng, kom þá brátt los á Rússa og höfðu þeir sig sem skjótast á burtu, og er haldið að þeir staðnæmist fyrst vestur í Liuo-yang, sem er bær við járnbraut þá, er liggur suður frá Port Arthur, um 30 mílur út- norður frá Yalu-fljóti og 10 mílur fyrir sunnan Mukden, sem er höfuðborg Mand- sjurisins. 5.—7. tókst Japönum að skjóta her- liði (30,000) á land á þrem stöðum, á Liao-tung skaga, 10 þús. við Pitse-wo, sem er austan tii við Kóreuflóa og 20 þús. vestan vert við Petsjiliflóa, þar sem heitir Kinsjei og Fusja, 10 þús. á hvor- um stað. Rússar veittu þar enga mót- stöðu, með því að þeir áttu sér þar sízt Japana von, og voru því óviðbúnir heim- sókn þeirra. Japanar voru ekki seinir á sér að sprengja upp járnbraut þá, er ligg- ur norður eptir skaga þessum allt til Port Arthur. Þannig er nú Port Arthur einnig króuð landmegin, og eru nú allar bjarg- ir bannaðar fyrir Skrydlofl, hinum nýja aðmírál Rússa, að komast þangað, og taka við yfirstjóm skipahersins, eins og til var ætlast. Eystrasaltsflota sinn höfðu Rússar út- búið til austurfarar, en hættu við að senda hann eptir síðustu hrakfréttir. Fyrir skömmu hafa Rússar yfirgefið borgina Niutsvang, við botn Liao-tung- flóans Höfðu þó áður búizt þar um, til að varna Japönum landgöngu. Siðustu hraðfréttir að austan (10. þ.m.) segja Japana hafa unnið borgina Dalny, sem Rússar eiga á Liao-tungskaga fram- anverðum, nokkru norðar en Port Arthur. Það er því að eins Port Arthur sem Rússar enn þá myndast við að verja þar á skaganum. Alexieff jarl forðaði sór brott úr Port Arthur, áður síðustu tíðindi urðu þar, og fór norður til Charbin. Una Japanar því afar illa, með því þeim er mjög í nöp við hann, kenna fljótfærni hans og metn- aði að til ófriðar kom. Nýrri og greinilegri fregnir af orust- unni við Yalufljót, 1. þ. m., fullyrða að Rússar hafi þá misst ura 3000 mannaog 48 fallbyssur í stað 28. Það slys vildi þeim og til i bardaga þessum, að villast á einni af sinni eigin hersveitum og Japönum. Bárust þeir þar á banaspjótum, líkl. að nóttu til, og urðu fyrst varir við misgrip sín er fallnir voru af þeim 110 menn og 70 óvígir. Vilhjálmur Þyzkalandskeisari er sagð- ur lasinn mjög af hálsveiki þeirri, er hann hefir þjáðst af um hríð. Eru marg- ir hræddir um, að hér sé um krabbamein að ræða, þó ekki sé það i hámælum haft. Dánir eru: 5. þ. m. Maurice Jokai ungverska skáldið og 10. þ. m. Sir Henry M. Stanley, Afríkufarinn nafnkunni, sem margir munu kannast við. Væntanleg þingmannaefni. Alþingiskosningar eiga, svo sem kunn- ugt er, að fara fram í 5 kjördæmum í sept. næstk., og þarf víst eigi að óttast, að hörgull verði á frambjóðendum, þar sem mörgum þykir þingmanns staðan fýsi- leg, ekki sizt síðan stjórnin er farin að gjöra boð í þá, sem henni vilja fylgja að málum, og veita þeim ýmsa heiðurs- pósta. Enn er tími all-langur til stefnu, og er því eigi von, að full kunnugt só enn, hvaða þingmannaefni kunna að verða í kjöri, því að margt skipast opt á skémmri tíma; en engu að siður skulum vér þó skýra lesendum vorum frá því, sem oss hefir flogið fyrir eyru, að þvi er snertir væntanlega frambjóðendur. í Reykjamk mun mega telja víst, að yfirdómari Jón Jensson gefi kost á sér, en hitt óvissara, hvort ráðherra-flokkurinn fylkir sér um héraðslækni Guðm. Björns- son eða einhvern annan. — Allir jmáls- aðilar hafa þar enn fremur hljótt um sig, og munu telja ísjárvert, að hleypa sér út í óskapaganginn, sem kosninga-undirbún- inginum fylgir óefað, fyr en í síðustu forlög. — Á Seyðisfirði heyrist enn að eins eitt þingmannsefni nefnt: Jón Jónsson (frá Múla), og mun þeim gamla þinggarpi ó- efað þykja það leiðinlegra, ef hann fær engan, til að reyna sig við. —

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.