Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.10.1904, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.10.1904, Síða 2
158 xvm., 40 ið. Þá myndi hefjast nýtt auðmannaveldi á ís- landi. í líka átt og hér var áður, En þessi kaupmálagjörð og hjónalag minnir mig ásjálfrátt á það, sem Björnstjerne Björnson'lætur Óla gamla segja við dóttur sína, er honum þótti hún hafa helzt til mikil mök við „húsmannsdrengin11: „Það dugir fjandann ekki að byrja á ástinni“ o. s. frv. („Kátur piltur“). Köld heimshyggjan ræður þar lögum og lofum, líkt og þegar einhver stjórnin er að reisa sér „valdakastala“, sem lengi á að standa óbrotgjarn. En — „hásætið veltur, þá minnst varir alla“. segir Jón Ólafsson. 5. Ovinir œðarfuglsins. Eptir Guðm. Bárðarson. Það er góð hugvekja handa þeim, sem æðar- varp* stunda, og æðarvarpi vilja konla á. Helztu óvinir fuglsins eru: hafísinn, fuglavargurinn ósvartbakur, hrafn, kjói, örn, fálki, máfur og skúmur), skyttur og veiðimenn, tóan og ekki sízt — varpbændurnir sjálfir, með þvi að taka mjög egg frá fuglinum, svipta hann dúninura, áður en hann má missa hann, og fara -óþarfa ferðir í varplöndin, og gjöra honum ónæði. íxiðuri. Bjarni Jónsson. •..............e Fréttaþráður í vændum. Loks er nú svo langt komið, að Tnor- nena fr&ttaþráðarfélagið miklau hefir tekizt á hendur, ad leggja fréitaþráð frá Hjalt- landseyjum, yfir Færeyjar, til Austfjarða, annaðhvort til Seyðisfjarðar eða Reyðar- fjarðar, og á þráðurinn, ef eigi banna sérstök forföll, að vera full-lagður 1. okt. 1906. Samningur um þetta efni var undir- ritaður í Kaupmannahöfn 26. sept. síðastl., og er þar gert ráð fyrir þvi, að ríkissjóð- ur Dana veiti félaginu í þessu skyni 54 þús. kr. árlega í 20 ár, og landssjóðurís- lands 85 þús. á ári um jafn langt ára-bil, en félagið leggi á hinn bóginn fram 300 þús. króna til fréttaþráðariagningar frá Austfjörðum til Reykjavíkur, og mun það álíta, að það borgi sig betur, en að leggja sæsímann alla leið til Reykjavíkur. Að öðru leyti er Islendingum ætlað, að sjá að öllu leyti um lagningu frétta- þráðarins hór á landi, annast viðhald hans, og greiða kostnaðinn við rekstur hans. Þetta skrið, sem nú er loks komið á nauðsynjamál þetta, kvað vera afskiptum Breta stjórnar að þakka, er mælt er, að bundið hafi framlengingu einkaleyfis, er „norræna fréttaþráðarfélagið miklau hafði, að þvi er fréttaþráð milli Bretlands og Jótlandsskaga snertir, því skilyrði, að fé- lagið kæmi fréttaþræði til Islands, og er því bagalegt, að vér íslendingar skyldum nú ekki eiga oss ötulan talsmann erlend- is, er svona bar vel i veiði. Að vísu ber ofan nefndur samningur þa.ð með sér, að hr. H. Hafdeiu hefir verið þar nærstaddur, þar sem hann, auk danska samgöngumálaráðherrans, hr. Chr. Hage, og stjórnar „norræna fréttaþráðar- félagsins miklalí, hefir sett nafnsittund- ir hann; en afar-slœlega virðist hr. H. Hafstein hafa gætt þar hagsmuna lands vors, þar sem danska sumgöngumáluráð- herramnn er þur einum geymdar réttur til þess, að ákveða verð á hraðskeytum milli Islands og útlanda, án þess vér Islend- ingar eigum nokkurt atkvæði um það, ÞjÚf) Vif.JINN . enda þótt oss sé ætlað að leggja fram alls 700 þús. til sæsímalagningarinnar. Slík frammistaðaaf hálfu ráðherra vors má því vissulega teljast allt annað, en glæsileg. Hitt furðar oss síður, enda skiptir það lítt máli, að samningur sá, er hr. H. Hafstein nú hefir undir ritað, t'er í þveröfuga átt við það, er hann barðist rnjög öflugloga fyrir á alþingi 1901, og síðan á síðasta alþingi, þar sem hann mátti þá oigi heyra annað nefnt, en að sæsíminn lægi alla leið til Reykjavíkur. Yitanlega verður og samningur þessi því að eins gildur, að alþingi samþykki hann, þar sem hann leggur landinu stórum meiri byrðar á herðar, en síðasta alþingi ætlaðist til. Að öðru leyti mun „Þjóðv.u siðar minnast nákvæmar á þetta mál. Ur Onundarlirði (í Vestur-ísafjarðarsýslu) er „Þjóðv.“ ritað 21. sept. síðasti.: „Tíðin hef- ir í þ. m. verið all-rysjótt; enda er það sízt að furða eptir öll góðviðrin, sem hér hafa haldizt frá hvítasunnu til ágúst-loka. — Heyskapur hef- ir í sumar yfirleitt orðið í betra meðallagi, svo að likur eru til þess, að fjársala verði í haust með minna móti. — Bátfiski varð fremur rírt hér á íirðinum síðastl. vorvertíð, þar sem bátar þeir, er frá Kálfeyri gengu, söltuðu að eins úr 7—12 tn. yfir vertíðina, frá sumarmálum til sláttar; en auk þess fengust um hundrað af stein- bít til hlutar. — Danskur maður, Thomsen ,að nafni, hefir stundað kolaveiðar hér á firðinum í sumar, og lánazt það all-vel. — Af rauðmaga var og stungið all-mikið hér á firðinum, á svæð- inu frá Veðrará að Holtsoddanum Frá Flateyrarverzlunarstað gengu í sumar að eins 8 þilskip til fiskiveiða, og aflaði „Stjarnan“, eign hr. Kjartans Rósinlcranzsonar, um 20 þús. þorska, en „Flateyrin“, skipstjóri Páll Rósin- kranzson, fékk 100 tn. hákarlslifrar, og rúm 12 þús. þot-ska, og „Greir“, skipstjóri Ingibjartur Sig- urðsson, um 500 tn. hákarlslifrar“. Sýslu m t* n n sein Ixett i ð í Rangát-vallasýslu er veitt yfirdómsmálfærslu- manrti Einari Benediktssyni frá 1. okt. síðastl., og er hann seztur að á Helluvaði, við Ttri- Rangá. Drukknuii. Báti hlekkist á í lendingu við Málmey á Skaga- firði 25. ágúst síðastl., og drukknuðu þar fimm menn, en þrem var bjargað. — Bátur þessi var frá G-rafarósi, og var í fiskiróðri. — Formaðurinn hét Þórður Baldvinsson. Frá ísafirði er „Þjóðv.“ ritað 1. okt. þ. á.: „Eptir að norð- anveðrinu, sem stóð fyrstu vikuna í september- mánuði, slotaði loks 8- sept., hélzt bærileg tíð í 3—4 daga. en síðan gerði hálfs-mánaðar suðvest- an hvassviðri, með sífelldum blotum, eða stór- rigningum, og loks kom svo ofsa-norðanhret síð- ustu daga septembermánaðar, or dyngdi niður miklum snjó, bæði á hæðum og iáglendi. — All- ur septembermánuður hefir því verið almenn- ingi mjög óhagstæður, ekki sízt þar sem menn hafa eigi getað leitað sér bjargar til sjávarins, og þar sem þeir munu nú vera sára fáir, er láns- traust hafa í verzlunum, þá eru horfur allt ann- að, en glæsilogar hjá almenningi, ef afli skyldi bregðast í vetur. Héraðsfundur var haldinn hér 24. sepit., til þess að fjalla um íiskiveiðasamþykktarbreyting- una, er samþykkt var á auka-sýslunefndarfund- inum 5. sept. Fundurinn varð mjög fámennur, sakir ótíðarinnar, og varð niðurstaðan sú, að af- nema alla skelfisksbeitutakmörkun, og verður því að bera málefni þetta að nýju unáir samþykki sýslunefndarinnar. Mikil óánægja er hér í héraðinu, sem von er, út af vaxandi yfirgangi útlendra botnverpinga, er hvað eptir annað hafa gjör-sópað Aðalvíkina, og álkantana í utanverðu Djúpinu, með botn- vörpum sínum, án þess danska varðskipið veiti fiskiveiðum vorum minnstu vernd, og'er vonandi, að dansk-íslenzki „flökku-ráðherrann“ láti það málefni sem allra-bráðast til sín taka, og hlutist til um, að danska stjórnin sendi fallbyssubát, er öðru hvoru sé á vakki hér úti fyrir Yestfjörð- unum, svo að fiskiveiðar eyðileggist ekki, og menn neyðist jafn vel til þess, að fara að flýja landið“. Úr miltisbrandi andaðist nýlega Arni bóndi Arnason í Þorkels- gerði í Selvogi. — Hann hafði misst hest úr miltisbruna, og gert hann til, ásamt fleiri mönn- um, en með því að hann hafði bólu, eða rispu, á andliti, barst sóttkveikjan þangað, svo að and- litið bólgnaði allt upp, og beið Arni bana af. — Hann var maðurábezta skeiði, hafði verið hrepp- stjóri í Selvogshreppi, og þótt nýtur drengur. Útbú íslandsbanka á ísafirði, er tók til starfa 1. sept. síðastl., hefir þegar haft all-mikið að gjöra þann stutta tímann, sem liðinn er, og var eigi trútt um, að helzt væri kvartað undan því, að bankastjórnin H Reykjavík hefði feng- ið útbúinu of litið fé, til að byrja með; en úr þessu er nú að likindum þegar bætt, sem þörf er á. Meðal starfa þeirra, er útbúið hefir á hendi, en lítið mun enn hafa kveðið að, er sá einn, að taka á möti sparisjóðsinn- lögum til ávöxtunar, og er líklegt, að hér- aðsbúar veiti því einnig nokkuð að starfa í því tilliti. Samkvæmt upplýsingum, er forstjóri útbúsins, hr. Helgi Sveinsson, hefir góð- fúslega látið oss í té, greiðir útbúið 3 kr. 60 a. í ársvexti af hundraðinu, og verður þó rentan í raun og veru ögn hærri, þegar þess er gætt, að rentan er lögð við höfuðstólinn tvisvar á ári, 30. júní og 31. des. Kost eiga menn og á því, að taka út allt að 1000 kr. af sparisjóðsfé sínu i senn, án uppsagnar, og er það stórum frjálslegra, en tiðkazt hefir við sparisjóð- ina hér á landi. Kostur er það og einnig, að spari- sjóðsbókin er látin af hendi ókeypis, er menn leggja fyrst fé inn í útbúið, og það er eisri, fyr en menn taka út aptur alla innieign sína, og hætta viðskiptun- um við útbúið, að útbviið reiknar sér 25 aura fyrir bókina. Mannalát. Ný frétt er hingað lát frú Hölmfríðar Porsteinsdöttur, konu Arnljöts prests OJafsson&r á Sauðanesi. — Hún sigldi í surnar til útlanda, til að leita sér lækninga, og andaðist erlendis. 25 sept. síðastl. andaðist í ísafjarðar- kaupstað Magnús húsmaður Ouðhrands- son, maður á bezta skeiði, og lifir hann ekkja hans, Helgu Helgadóttir, og tvö börn þeirra hjóna i æsku. Banamein hans var berklaveiki (brjóst-tæring), og flýtti það fyrir dauða hans, að hann varð að ganga að vinnu, t:l að sjá sér og sín- um borgið, og var hanrr að lokum borinn til heimilis sins dauðvona, og er loitt, að hér á landi skuli eigi vora til neitt sjúkra- hæli, er liknað geti slikum sjirklingum.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.