Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1905, Page 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1905, Page 2
98 í>jÓBVLJIIIf N. XIX., 25. Annar pistill til vÞjóðviljans“. (Uuldupistill). Jeg ætla að skrifa svolítinn pistil sð gamni um seinasta kvæðið, sem jeg hef lært. Þegar jeg iæri vísur eða kvæði, þá er jeg opt að raula þau með sjálfum mér lengi á eptir, búta úr þeim eða hending- ar; stundum nokkra daga, stundum vikur; auðvitað þó ekki í sífellu, heldur er eins Og þau vakni við og við en dotti svo á milli eða sofi, og þó er jeg hræddur um, að eimurinn af þeim vaki þá allt af ein- hvers staðar undir niðri, þangað til hann deyr af sjálfum sér eða eitthvað annað kemur, sem lætur hærra og þaggar hann eða felur. Svona hefir þetta verið siðan jeg man en þó einkanlega síðan jeg var um þrít- ugt, þegar það eins og rann upp fyrir mér einn dag, hvað gildi hefði fyrir mig í verkum annara manna og skildi sig eins og sjáifkrafa frá hinu, sem verðlaust var; eða í fám orðum sagt: allt frá þeim degi, sem jeg lærði að gera greinarmun góðs og ílls. Síðan hef jeg mátt reiða mig á það, að mér hefir varia nokkurn tíma seinna þótt koma til þeirra kvæða, sem jeg lærði ekki eitthvað úr í fyrsta sinn, sem jeg sá þau, hvort sem þau voru ný eða gömul. Núna í vor var orðið langt síðan að jeg hafði lært kvæði eptir nokkurn mann, síst heilt. Ymislegt laglegt hafðijegséð hér og hvar, en varla ein hending tollað í mér, þangað til jeg sá kvæðið, „Ljáðu mér vœngiu, eptir Huldu*. Jeg varð alveg hlessa þegar jeg sá kvæðið. Mér datt ekki í lifandi hug að þess konar kvæði yrði einu sinni ort nú á dögum. Meðferðin á efninu, hreimur- inn og rímið fannst mér allt vera komið úr öðrum heimi en þeim, sem jeg var vanur að sjá og bjóst við að sjá. Það var ekkert eða lítið í ætt við allan skáld- skap okkar hinna. Jeg hafði að eins við og við heyrt óma úr þessum heimi í ljóð- um islenzkra skálda, en jeg var strax alveg viss um, að jeg hafði aldrei heyrt úr þeim heimi eins innborinn og óbland- aðan hljóm á ævi minni eins og þennan. Mér fundust þessir tónar enn þá eigin- legri en samkyns tónar hjá .Jónasi og Guðmundi Guðmundssyni og fanst mér það þó líkast þeim, en hér fanst mér þetta standa enn þá dýpra. Mér fanst svo mikið af veru söngvarans vera í þess- ari og hinum þulunum í bókinni, meira en hjá þeim. Þeir voru eins og ferða- menn í þessum undralöndum. Mér fanst Hulda vera alin þar upp. Hver var þessi Hulda i rauninni? Jú, jeg vissi það reyndar. Hún hét Unnur og var dóttir Benedikts á Auðn- um í Laxárdal, sem er þjóðkunnur mað- ur. Jeg hafði líka séð stúlkuna og talað við hana og mér hafði getist vel að þessu rúmlega tvítuga, gáfaða, góðlátlega og '*) Það er prentað í Sumargjöf þeirra Bjarna Jónssonar frá Vogi. óframfærna barni. Jeg hafði lika lesið ljóðin hennar í „Ingólfi“ og sagt henni óaðspurt, að mér þætti ekki nema sumt gott í þeim og þó meira gott í þeim fyrri, þau síðari þætti mér lakari. Þetta vissi jeg nú um hana og hafði að vísu búist við góðu, jafnvel mjög góðu innanum, því jeg fann bæði í kvæð- unum og viðtali við hana, að hún aðgætti skarpt og að setningarnar hittu hvast og létt eins og jafnan er hjá .ókúguðum gáfubörnum, sem notið hafa menntandi 1 og þroskandi umgengni. En nú söng og suðaði þetta kvæði í mér: Langt 1 burt jeg llða vil, ; ljá mér samfylgd þína; enga vængi á jeg til utan löngun mína,' utan þrá og æskulöngun mína. Mér gramdist nærri þvi, að hafa ekki getað séð þetta fyrir. Það var að vísu satt, að það sem bezt var í kvæðunum, og jeg hafði lært, benti í þessa átt; þar var sama flugið sami j draumheima ómurinn, svo sem þetta: Jeg mæti þínum þöglu draumum, er þúsund blika daggartár; i árdagsgeisla undrastrauuium mér ótal fagna morgun-þrár. Jeg veit að önd þin vængi breiðir i vonarhimins bláum geim, og sál mín flýgur langar leiðir að leita þín í draumaheim. Þessi vísa var svo fögur, að hún hefði prýtt Friðþjófskvæði Tegnérs, ef hún hefði staðið þar. En hún var svo svipuð Grön- dal, þar sem hann fer fegurst og léttast, að jeg vissi ekki nema hér væri stefntí áttina á eptir honum. Það var og satt, að það, sem mér hafði fundist dýpst og innilegast í kvæðum hennar, var ein- mitt systurlíf hennar við lækina, blómin, steinana, álfana og alla þá ástvini, sem djúp tilfinning og auðugur skáldandi get- ur átt um fagrar brekkur í kærum dal. Og einmitt það, sem auk hljómanna hafði laðað mig að ljóðum hennar, voru þessi smáu leyni, þessir smáu felustaðir hjá vinum hennar. bessir smáheimar, sem hún átti sér þar hér og hvar, og þaut á milli eins og fiðrildi eða huldustúlka. Og svo kallaði hún sig Huldu. Mátti ekkert sjá á því, eins og það var þó réttnefni? Jú, að vísu, en jeg gat ekki vitað hvort hún skildi sig sjálfa rétt, og hvað sem aðrir hafa séð, þá hafði þetta ekki reynst nóg i til þess, að jeg gæti vonast eptir slíkum vængjatökum. Jeg las nú upp aptur þau kvæði, sem jeg fann og mundi eptir í nIngólfi“. Nei, þar var ekkert, sem jeg hafði ekki fundið áður. Jeg kunni áður þessar 8 línur, sem jeg tók hér til og einmitt eru úr einu af fyrstu kvæðunum, og svo tvær og tvær hér og hvar. Jeg sá reyndar sumt glöggvar nú og fann fleira, sem stefndi í sömu áttina, en þó jeg hefði séð þar allt þá eins og jeg, sé það nú, þá hefði jeg aldrei getið til þess, að jeg ætti von á þessu kvæði. En til þess að það skiljist, sem mig langar til að segja hér meira, þá vona eg að höfundurinn og útgefendur Sum- argjafarinnar misvirði það ekki við mig að jeg set hér kvæðið eins og það er. Ljáðu. mér vængi. Grágæaanióðir! ljáðu mér vængi, sv° jeg geti svifið suður yfir höf. Bliknuð hallast blóm í gröf, byrgja ljósið skuggatröf, ein jeg hlýt að eiga töf eptir á köldum ströndum, ein jeg stend á auðum sumarströndum. Lang í burt jeg líða vil, Ijá mér samfylgd þína. Enga vængi á jeg til utan löngun mína, utan þrá og æskulöngun mína. Lof mér við þitt létta fley lítið far að binda, brimhvit höf jeg óttast ei eða stóra vinda. Okkar biður blómleg ey bak við sund og tinda, bak við sæ og silfurhvíta tinda. Eptir mér hún ekki beið — yzt við drangann háa sá jeg: hvar hún leið og leið langt i geiminn bláa, langt í geiminn vegalausa, bláa. Hvað er þá svo merkilegt í þessari lausrimuðu litlu þulu? Jeg skal stuttlega benda á sumt a£ því. Það eru yndisómarnir úr þulum okk- ar og þjóðkveðskap, þeir, sem allra sæt- ast hafa borgmálað í instu og viðkvæm- ustu hjartastrengjum okkar allra, sem höfum elskað þá, og þó man jeg hvergi eptir að jeg hafi heyrt þá svo hreina sem hér og lausa við alla truflandi auka- hljóma úr ósamræmi daglegs lífs. Skáld- ið segir grágæsamóður ekki einu sinni eitt beiskyrði þegar hún heldur burt á hafið og hefir ekki svo mikið sem litið við til þess að sjá, hver sat þar einn eptir á ströndinni og var að biðja svo vel, og þó átti lmn svo hægt með að lofa það, að binda við sig litla farið, eins og vængirnir voru stórir. Yið heyrum ekki á ströndinni eitt einasta kvein, ekki eitt bituryrði yfir sárleikni lifsins. Að eins í augunum sem horfa út á hafið, þangað, sem vængirnir eru að hverfa yzt við háa drangann, í þeim einum sjáum við livað löngunin er sár. Og uppgerð er það sannarlega ekki hjá litla söngvaranum, sem mænir burt af ströndinni; svo fagurt er landið hans bak við sæ og silfurhvita tinda og við sjáum á svipnum og heyrum á röddinni, að óhætt var grágæsamóður að lofa hon- um að vera með sér, því hann óttast hvorki brimhvít höf né stóra vinda. Grá- gæsamóðir gat farið, en geimurinn er vegalaus fyrir þann, sem á ekkí vængina. Þetta er einmitt þráin úr þulunum okkar og kvæðunum, þráin í ljós og yndi; en þar er hún óljós og búningurinn opt bágur, smekklaus og tötróttur. Hún er hvergi svona fríð og íallega búin. En engu að síður er opnaður hér glæsi- lega og með léttri hendi draumaheimur allra stóru og smáu bamanna, þessi frið- arheimur okkar, og liðið hér ásvoeterk-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.