Alþýðublaðið - 12.03.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
O-efið út af ^Llþýduflokkntuiii.
1921
Laugardaginn 12. marz.
59 tölubl.
Hverju megin er gerræðið?
Það er eðlilegt, að þeir útgerð-
armenn og heildsalar, sem halda
Morgunblaðinu út, !átí það halda
fram skoðunum, sem þeir álíta
bezt íyrir þá sjálfa að haldið sé
að almenningi.
Þáð þarf þvf engan að furða á
þvf, þó Morgunblaðið flytji í gær-
grein um verkbann togaraeigenda,
þar sem málinu er snnið við, og
það kallað gerrœðit að Alþbl.
skuli dyrfast að segja að það sé
rétt, sem allfr viðurkenaa, að tog-
araeigendtir hafi tapað hinum sið-
ferðilega rétti sínum til togaranna,
ef þeir ætla að láta þá liggja við
land yfir hábjargræðistímann. En
það er svo sem ekki gerræði f
augum Morgunblaðsins af togara-
eigendum, að binda togarana vlð
land. Blaðið segir að „ofbeldis og
ynrgangsandinn* ríki svo taum-
laust í Alþbl. að furðu sætt. En
það segir ekki eitt orð um þann
ofbeldis og yfirgangsanda sem út-
gerðarmenn eru haldnir af, að
ganga nú á samningans, sem þeir
era nýbúnir að gera við sjómanna-
félagið og gilda til hausts. Slíkt
sætir engri furðu hjá Morgunhlað
inul Það telur upp, sem dæmi
upp á yfirgangsandann, fyrst það,
að taka skipin af eigendumim (þó
þeir haldi þeim ekki út yfir ver-
fiðina og geri þar með tilraun til
þess að setja iandið á höfuðið
og tilraun til þess að helsvelta
verklýðinn). Annað, að ekki skuii
eiga að borga eigendunum fyr en
¦eftir hentugleikum. Þriðja, að það
eigi ekki að meta skipin meira en
þau raunverulega eru virði nú
(hálfvirði kallar Mgbl. það). í
fjórða iagi kallar Mgbl. það dæmi
upp á ofbeldis og yfirgangsanda,
að ^ríkið skuli eiga að standa
strausn af útgerðinni. En ekkí
verður séð á blaðinu hvort þetta
síðasta er ofbeldi gegn útgerðar-.
mönnum eða rfidnu.
Þó þessi umgetna grein Morg-
unblaðsins sé ekki löng, þá slær
samt út í fyrir greinarhöfundi, sem
auðsjáanlega er maður óvitrari en
S. Þ og er það þá sennilega J B.
sem skrifar greinina. Greinsrhöf-
undur segir sem sé, að Alþbl.
vilji láta „taka skipin fyrir sama
sem ekkert verð og skella öllu
tapi á ríkissjóð " Hverskilur þetta?
Hvernig getur það orðið tap fyrir
ríkissjóð að taka skipin fyrir sama
sem ekkert verð? Eða er það tap
togaraeigenda, sem Mgbl. heldur
að Alþýðublaðið vilji koma á
ríkissjóð?
Morgunblaðið segir að það komi
aldrei fyrir, að togararnir verði
gnrðir að þjóðareign, En-þvJ er
það þá að skrifa á móti þvf? Það
skyldi nu vera, að það væri ekki
einmitt af þvf að Mgbl. sjái fyrir
að togararnir verði gerðir að
þjóðareign, að það í vott um að
geta tafið það eitthvað er að
skrifa á móti því? Er ekki senni-
legra að það sé einmitt af því,
að Mgbl. s'é hrætt um að þetta
verði framkvæmt, að það skrifar
á móti? Jú, það er víst og áreið-
anlegt, og togaraeigendum og blaði
þeirra er óhætt að reiða sig á,
að þó það kunni að vera þeirra
hugsuu að togararnir verði b'undn-
ir við hafrtargarðinn til loka eða
lengur, nema kaup sjómanna sé
lækkað niður fyrir það sem þeir
geta Iifað af, þá verða þeir það
varla út mánuðinn. En vilji þeir
komast hjá óþægindum í þetta
sinn, þ'á er þeim bezt að leysa
skipin sem fyrst. eins og ekkert
hafi f skorist, halda samningana
sem þeir era nýbúnir að gera, og
reyna að verða sér nú ekki aftur
til skammair ti! foausts.
BragJ: Fœadrar og æfiag sunnw-
dagintt kl, 10. ,
Alþin gi«
(I fyrradag.)
Ifrl deild.
Frvarp til laga um einkaleyfi
handa Háskóla Sslands ttl útgáfta
almanaks var vísað til 2. umræðu.
Frumv. þetta er nýmæli og ekkerft
athugavert við það, að málið nái
fram að ganga, en hér, eins og
oftar, er byrjað á afturendanum.
Og er hálf broslegt að háskóli,
sem hvorki hefir verkfræðilega
deild tté hina minstu stjörnufræðÍH-
stöð, skuli eiga að gefa út aiman<
ak og fá til þess eiukaleyfi,
Neðri deUd.
Frum. til laga um breyting á
lögum um hæjarstjórn ísafjarðar
samþ. og afgr. til ed.
Frumv. til iaga um sölu á land-
spilda, tilheyrandi Þingeyraklaust-
urs prestakalli, til Blönduóshrepps
vísað til 2. umr. og landbúnaðar-
nefhdar.
Framhaldsumræða enn um \mú-
helgisgæzlumálin. Ógetið var aja
ræðumanna frá því siðast, þeirra
Gunnars Sigurðssonar og Jóns
Þorlákssonar. Að þessu sinni hóf
Bjarni frá Vogi máls Og tölnðn
auk hans: Fjármálaráðherra, Há-
kon í Haga, Gunnar Sigurðssoæ,
Jón A, Jónsson, forsætisráðh.,
Pétur Otteses. Jón Þorlákssos,
Magnús Jónssoa.
I gær voru engin merk mái á
dagskrá, nema kotnvörufrumvarp-
ið, sem afgreitt var frá þinginu
með rökstuddrí dagskfá og þar
með drepið.
Meirihluti þingmanna er mjög
óánægður með stjórnina, en senni-
lega fær hón þó að sitja ennþá,
vegna „dragsugs" þess, sem svo
oft ríkir meðal úrræðalausra smá-
menna.