Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.05.1907, Page 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.05.1907, Page 6
Þjóðviljínn XXI., 23.-24. 94 snn, 2. hepti. íslendinga saga, eptii- Boga Th. Melsted, II. bd. 2 h. — Ennfremur Safn til sngu íslands IV. bd. 1 h. og Æfiminning Willard FÍ8ke’s (í alþýðuritum deildarinnar.) Fánamálið. A fundum, sem haldnir hafa verið í Hvamms- hreppi í Dalasýslu (4. rnaí þ. á), í Keldunes- hreppi i Norðurþingoyjarsýslu (17. apríli, í Norð- fjarðarhreppi í Norður-Múlasýslu (b. aprílj, og í Presthólahreppi í Norður-Þingeyjarsýslu (18. apr- ílj, hafa menn tjáð sig því samþykka, að -8- land taki upp sérstakan fána, og aðhyflzt tillögu stúdentafélagsins í Reykjavík, að því or gerð fánans snertir. Mannalát. Eins og getið var um í síðasta ur. blaðs vor, andaðist síra Jön Jánsson, sið- ast pre9tur að Stað á Reykjanesi, í ísa- fjarðarkaupstað, 21. april þ. á. Hann var fæddur að Helgavatni í Húnavatnssýslu 22. ágúst 1829, og var þvi frekra 77 ára að aldri. — Foreldrar síra Jóns voru: síra Jón Jónsson, er síð- ast var prestur að Barði i Fljótum, og kooa lians Guðrún, dóttir Björns umboðs- raanns Olsen á Þingeyrum, og ólst bann upp bjá foroldrum sinum, unz hann flutt- ist til Þorsteins kaupmanns Kuld í Reykja- vik, er kostaði nám bans i skóla, og varð hann stúdent 1854. — Eptir það var bann vetrartíma hjá Jóni landlækni Hjaltalín, og kynntist þá nokkuð lækningum, sem og síðar hjá Jósepi lækni Skaptasyni á Hnausum, er kvæntur var Onnu, rnóður- systur bans. Arið 1864 kvæntist bann Sigríði Snorra- dóttnr frá Klömbrum, og bjuggu þau hjón síðan sex ár í Skagafjarðarsýslu, unz bon- um voru voitt Dýrafjarðarþing árið 1870, og gegndi bann þar prestsembætti, unz honum var veitt Staðarprestakall áReykja- nesi árið 1884, og var hann þar prestur til ársins 1895, er hann fékk lausn frá prestskap, sakir vanheilsu. — Eptir það dvaldi bann um hrið á Flateyri i ön- undarfirði; on síðan dvaldi bann bjá Mar- gréti, dóttnr sinni, konu Jóns Auð. Jóns sonar, sem nú er yfirfiskimatsmaður, og bankastarfsmaður, á Isafirði. Alls varð þeim hjónum fimm barna auðið, og eru nú þessi fjögur á lífi: A- giísta, ógipt á ísafirði, Ingunn gipt Gruðm. Snorra Björnssyni á Isafirði, síra Magnús Runólfur, prestur að Stað í Aðalvik, og Margrét, gipt Jóni Auð. Jónssyni á Isa- firði. Aður en sira Jón kvæntist, bafði baun og eignazt tvö börn: Jónu, sem gipt er Oddi bónda Gíslasyni á Sæbóli, og Hjálm- ar, sem dvelur i Ameríku. Ekkja sira Jóns lifir hann og er á ísa- firði. Síra Jón var að ýmsu bæfileikamaður, og einkar vol að sér í tungumálum, sér- staklega frakknesku. Jarðarför hans fór fram að Eyrarkirkju á ísafirði 29. apríl síðastl. Bessastaðir 24. maí 1907. Tíðin hefir að undanförnu verið fremur köld o-x brá eigi verulega til sumarhlýinda fyr en eptir hvítasunnuna. — Tún eru því að eins ný- lega farin að litkast. „Yesta“ kom til Reykavíkur 12. þ. m., norð- an og vestan um iand. — Meðal farþegja, er kom með skipinu, var Oddur læknir Jónsson í Miðhúsum á Reykjanesi, L. A. Snorrason, fyrr- um kaupmaður á ísafirði, kaupmennirnir Bjarni Sigurðsson og Sigurður Kristjánsson, báðir frá Isafirði. „Vesta“ lagði af stað vestur og norður um land 15. þ. m., og tóku þingmenn Húnvetninga Hermann Jónasarson og Jón Jakobsson, sér þá far með henni, og kvað hafa ætlað sér að halda þingmálafund í kjördæmi sínu. „Hólar“ komu úr fyrstu strandferðinni 12. þ. m., og lögðu af stað til útlanda á áætlunardegi, 14. þ. m. Faxaflóa-þilskipin komu flost inn um vetr- arvertíðarlokin, 11. þ. m., og hefir vetrarvertíðin því miður lánast. mjög illa, þar sem afli flestra varð að eins 10—15 þús. fiska. — Eitt skipið (skipherra Björn Ólafsson i Mýrarhúsum) ber langt af hinum, og hofir aflað ura 25 þús. ísl. botnvörpuveiðagufuskipið „Jón forseti11 kom frá fiskiveiðum 17. þ. m., og hafði fengið 32 þús. fiska. Með „Ceres11 11. þ. m. komu loks gullborunar- áhöldin, svo að væntanlega verður þess nú eigi langt að bíðn, að gengið yerði úr skugga um það. hvort málmar eru í Oskjuhlíðar mýrinni. Vélastjórinn Rostgaard, sem sigldi i vetur, til að læra að stjórna áhöldunum, var þvi miður veikur, er þau komu; en vonandi er, að veikindi hans valdi þó ekki iöngum drætti. 15. þ. m. reyndu þeir með sér til fullnustu í Reykjnvík glímumennirnir Jóhannes Jósepsson og Norðmaðurinn Flaaten. — Þreyttu þeir með sér grísk-rómverska glímu, og urðu úrslitin þau, að Jóhannes felldi Norðmanninn tvívegis. Þingmenn Gullbringu- og Kjósarsýslu (Björn Kristjánsson og dr. Valtýr Guðmundssonj hafa auglýst þingmálafundi í þessum stöðum: í Kefla- vík 24. júní á hádegi, í Hafnarfirði 26. júni kl. 6 e. m., og í Kollafirði 27. júni á hádegi. w* Frk. KEISTIN IliöRLACIUS i Reykjavík er nú flutt, og býr á Bók- hlöðustíg nr. 10 í Reykjav'k. __________ Neytiö Kma-lífs-eiexírsins, sem jafnan innn reyn- ast ágætastnr. Arum ssman hefi eg þjáðst af andar- 196 inn vofði yfir oss öllum, bölvaði jeg gullgræðginni í mér, og sór og sárt við lagði, að snerta eigi þenna rauðgljá- andi málm, ef hann kæraist lifs af, þó að gullklumparn- ir lægju rétt við fæturna á mér. Vér áttum og öðrum óvini að mæta: bóluveikinni. — Sá, sem foringi vor hafði verið, hafði látiiit úr henni fýrir viku, og vöruðumst vér að koma nærri líki hans. Morguninn, sem eg gat um áðan, sýktist annar mað- ur, og það, sem vakti nú ríkast í huga vorura, var, bvort vér ættum að reyna, að klöngrast yfir fjöllin, eða biða þess, að eitthvað yrði oss annað til bjargar. Jeg vildi leggja af stað, og á sama máli var White, og maðurinn, 9em þarna stendur; en öðrum þótti það ó- ráð, með því að snjónum dyngdi niður, og eigi var rat- ljóst. En ætti að tefla á tvær hættur, og leggja af 9tað, þá vaið að fara strax. Niðurstaðan varð loks sú, að skipta sér í tvo flokka, og skyldu sex leggja af stað, en sex vera kyrrir, og var veiki maðurinn einn í þeirra tölu. Sonur minn var hinn kátasti, hljóp fram og aptur, og spurði glaðlega, í hvaða flokknum bann ætti að vera. En er eg ámælti honum fyrir þetta, og kallaði á bann, kom hann hlaupandi til min, og fleygði sér um hálsinn á mér. „ímyndaðirðu þér, að eg ætlaði að skilja við þig, pabbi“, mælti bann. „Jeg var að eins að gera að gamni minu, eins og jeg er vanur“. Af matvælunum, sem til voru, fékk hver okkar dá- lítið nesti, og fékk sonur minn minna, en honum bar, þótt eg létist þá ekki sjá það, enda skipti það nú ekki 201 ingi dýrmætara, og þvi verðum við að gæta þess sem bezt“. — Þetta var eina hugsuD þeirra beggja, jafn framt þvi er þeir fóru að gera ágizkun um það, hve lengi nestið myndi eDdast. Ofan kafaldið óx nú að mun, og hlóðst snjórinn fyrir framan kletta-skoruna, er þeir höfðu hreiðrað sig í. „Það birtir líklega upp í nótt, svo að við getum haldið áfram á morgun“, mælti annar maðurinn. „En hvað lizt þér? — Eigum við að segja nokkrum frá þess- um fundi okkar?“ „Neiu, svaraði hinn. „Við veiðum að vita þetta að eÍDS tveir. — Við höfum fundið þenna fjársjóð, og stofbað lifi okkar í hættu.“ „En þó 9læmt sé í tjaldinu, þá er okkur þó óhætt- ara þar, en hér, og nú verðurn við að gera allt, til þess að halda heihu og kröptum, unz hjálpin kemur. — Eig- um við að gerast fóstbræður í lífi og dauða?" „ Já, við verðum að vera, sem bræður“, svaraði hinn. „Og þrjóti nestið, lifum við á þvi, að horfa á gullið. Húrra, húrra!" En gleðin varð skammvinn, því að þrekni maður- inn mátti nú heita að þrotum kominD, hallaði hötðinu að brjósti hins mannsins, og sofnaði. Veðrið lægði nú brátt, og dauðakyrrð var á öllu. Ofankafaldið fór og óðum að þverra. Þrem dögum seinna komu menn þessir aptur til tjaldstöðvanna, og voru þá miklu veiklulegri, en er þeir fóru. En gull-græðgin hafði nú feDgið algjöit vald yfir þeim, svo að þeir höfðu eigi hugann á öðru, en gull- fundinum, hjá fjalla-klettinum11. j

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.