Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.08.1907, Page 1
Verð árgangsins (minnst
60 arTcir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50•
Borgist f-yrir júnlmán-
aöarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
— j= TuTTUGASTI OG FYRSTI ÁRGANGUR. =1' =—
■*—kitstjóki: skúli t,hor;oddsen. —♦—
I TJppsögn skrifleg, ógild
nema komið sétil útgef-
anda fyrir 30. dag júni-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninní
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 40. ||
Bessastöðum, 28. Agúst.
1907.
Heimkoma konungs til Danmerkur.
Kveðjusending til íslands,
Eptir að Friðrik konungur VIII. var
kominn heim til sín, sendi hann ráðheria
Islands, og alþingi, svo látandi hraðskeyti:
Bemstorf 21. ág. kl. 12.
Ráðherra Islands og alþingi!
Nýkominn heim til mín, sendi jeg Islandi
kveðju mína, og ítreícaðar þalckir. — Þökk
til allra. — Þökk fyrir allt.
Friðrik R.
XJtlönd.
Danmörk. Nýlega er ákveðið, að verja
21/,, millj. króna, til þess að útvega Kaup-
mannahöfn meira vatn, en hún nú hefir.
Svípjóð. 29. júlí héldu fulltrúar úr
ýmsum löndum fund í Stokkhólmi, til
þess að ræða um, hvaða ráð væru tiltæki-
legust, til þess að sporna við ófengis-
nautninni. — —
Frakkland. Dr. Doyen, læknir í París,
tjáist hafa fundið bakteríu, er valdi krabba-
meini, og búið til „serunú, er lækni þenna
voðalega sjúkdóm. —
Liklega er þó hæpið að byggja um
of á fregn þessari að svo stöddu. — —
Þýzkaland. Þar hafa nýlega verið
frainin þrjú hryllileg morð. — I Berlin
voru tvær telpur, önnur tólf ára, myrtar
á þann hátt, að þær voru ristar á kvið-
inn. — í Pressburg var og ung stúlka
myrt á sama hátt, og móðir hennar særð
voðasarum, þótt lífs T'æri hún enn, er
síðast fréttist.
Morðinginn náðist ekki, og er helzt
gizkað á, að hann muni vera vitfirrtur.
í borginni Heilbron gerðist sá atburð-
ur ný skeð, að 15 ára gamall skólapiltur,
sem eigi var talinn hæfur til uppflutn-
ings úr bekk, dró upp skammbyssu, og
skaut sig til bana. — —
Rúseland. I pólsku borgunum, Warschau
og Lodz, hættu ný skeð 52 þús. verk-
manna vinnu, 82 þús. í Warschau, en 20
þús. í Lodz, og olli það því, meðal ann-
ars, að sporvagnar stöðvuðust um hríð.
I Pétursborg varð nýlega uppvíst um
sainsæri gegn hermálaráðherranum, og
voru margir teknir fastir.
I borginni Eíga voru 7 úr stjórnar-
nefnd byltingamanna nýlega dæmdir til
dauða fyrir rán.
Ný skeð hefir það vitnazt, að rúss-
neskir byltingamenn hafa látið prenta
blöð, og flugrit, norðarlega i Noregi, og
hefir Dorska stjórain látið fara þar fram
húsrannsóknir, eptir áskorun Rússastjórnar.
Bandaríkin. Þar er nýlega dæmt mál,
sem vakið hefir mjög mikla eptirtekt, og
æsingar. — 20. des. 1905 var Stennenhery,
fyrrum landstjóri í Idahojmyrtur, og lýsti
morðinginn, Harry Orcliard, því yfir, að
foringjar verkmanna hefðu keypt hann,
til að fremja morðið, sem og morð nokk-
urra auðmanna, er hann kvaðst vera vald-
ur að. — Þrír af foringjum verkmanna
voru því teknir fastir, og er nú lokið
málinu gegn einum þeirra, Hayvood, sem
einna helzt féll grunur á, og var hann
sýknaður, og því talið víst, að félagar
hans verði einnig sýknaðir, enda eru tald-
ar mestar líkur á því, að Harry Orchard
sé eigi með fullu ráði.
Konungs-heimsóknin.
Koma ríkisþingsmannanna.
—<x§o—
XIV. Síðustu dagarnir í Reykjavík.
8. ág. kl. 1 e. h. hélt konungur bæj-
arstjórninni o. fl. veizlu, en nkisþings-
menn fóru þann dag sumir út í Viðey,
en sumir suður i Hafnarfjörð.
Kl. S1/^ e. h. hélt bæjarstjórn Reykja-
víkur dansskemmtun í barnaskólasalnum.
— Þar var konungur, Haraldur prinz,
ríkisþingsmenn, og fleiri útlendir gestir,
alþingismenn, fjöldi bæjarbúa o. fi. —
Konungur dansaði stöku sinnum. Menu
mötuðust og um kvöldið við borð, sem
voru í öðrum herbergjum barnaskólans,
og gekk hver þangað, er honum sýDdist,
— Var aliur viðbú.iaður mjög prýðilegur,
og bæjarfélaginu til sóma. Dansleiknum
var lokið kl. 1—2 um nóttina.
Pöstudaginn 9. ágúst hélt alþingi kon-
ungi, ríkisþingsmöunum o. fl., skilnaðar-
veizlu kl. 12 (á hádegi). — Fyrir minni
konungs mælti amt. Júl. Havsteen, en
kouungur þakkaði og mælti fyrir minni
íslands. — Bæjarfógeti Jöhannes Jöhann-
esson mælti fyrir minni Danmerkur, en
landlæknir Guðm. Björnsson, fyrir minni
rikisþingsins, og svaraði Ihomsen, forseti
fólksþingsins, þeirri ræðu, og mælti fyrir
alþingi. — Lector Þórhatlur Bjarnarson
mælti fyrir minni Cliristensen's, danska
forsætisráðherrans, og svaraði hann,. og
mælti fyrir góðu samkomulagi milliDan-
merkur og íslands. — Enn fremur mælti
ritstjóri Jón Otafsson fyrir danskri blaða-
menusku, eD Daht, fregDriti danskablaðs-
ins „Politíken", mælti mjög skörulega
fyrir sjálfstæðis- og frelsisþrá ísleDdinga.
Annar danskur maður, Poulsen, fregn-
riti danska blaðsins .Berlingske Tidende“,
mælti og fyrir minni íslenzkrar tungu,
og Stilling, ríkisþingsmaður, mælti fyrir
minni drottningar og kvortnþjóðarinnar.
Meðan á máltiðinni stóð ias síra Matt-
hías Jocliumsson upp kvæði, er hann hafði
ort, og er það svo látandi:
Við
burtför konungs
9. ágúst 1907.
Nú hallast sólin hafi nær
og hausta fer, er leiðum vær
vorn háa gest úr garði.
Hann har oss frið og hlíðu-vor
og hlessun draup i hvert hans spor
með sól og sumararði.
Því uni hjá oss ímynd hans
sem auðnumark vors fósturlands
og vísis mildur varði.
Vor göfga saga gullin-óð —
vor guðleg tunga Háva-ljóð
þeim vitra fylki fteri.
Hans koma táknar tímamót —
hún táknar nýja siðahót,
sem allir strengir stæri!
Ber falinn hátt, legg fjöll í kranz.
ó fóstra vor, og konung lands —
kveð svo það hjörtun hræri!
En Drottinn drotna, heyr vor hljóð,
sem hjóm og duft er sérhver þjóð,
sem guðshoð geymir eigi.
Alt maktarvald er voða-sær,
ó ver oss, ljóssins faðir, nær,
er hjá oss haliar degi.
Ó hlessa Guð vors iýðs og lands
vorn Ijúfa gram og drotning hans
og niðja á nótt og degi!
Og hlessa konungs lönd og lýð,
og ljá þeim stvrk, er heyja stríð
við allan sæg hins il!a.
Ó knýti, Guð, þín hægri hönd
með helgum samhug lönd %úð lönd;
sem metnað mættu stilla!
Lát vit og sannleik festa frið,
unz fólkið lærir réttan sið
alls frelsis upp að fylla!
Danski forsætisráðherrann las síðan-
upp þýðingu af kvæði þessu, Jer snúið
hafði verið á dönsku.
Þegar risið hafði verið frá borðum tók
ljósmynddsmiður Petur Brynjóilfsson ljós-
mynd af konungi, ríkisþingsmönnum, og
alþmgismönnum, í barnaskólagarðinum.
Svo var og tekin ljósmynd af stúlk-
unutn, sem um beina höfðu gengið.
XV. Burtför konungs
°g
ríkisþingsmanna.
Dansskemmtun á konungsskipinu.
9. ág. kl. 4 e. h. fór konungur, og
föruneyti hans á skip. - Á bæjarbryggj-
unni voru þá allir alþingismenn staddir,
og fjöldi manna. — Ráðherrann ávarpaði
konuug þá nokkrum orðum að skilnadi,
og mannfjöldinn hrópaði aptur og aptur
húrra fyrir konuDgi, en skothríðin dundi
frá herskipunum á höfninni.
Alþingismenn og ríkisþingsinonn söfn-
uðust siðan saman á hótel Reykjavík, og
voru þar mörg skilnaðarminni drukkin.
— Meðal annars mælti einn rikisþings-
mannanna, Rambuscli, þar nokkur orð á
íslenzku.
Kl. 4^/j e. h. fóru likisþingsmenn úr
/