Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.11.1907, Side 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.11.1907, Side 5
XXI., 51.-52. Þjóbviljinn. 205 Lítið bættu sýslubátsferðirnar hér úr sam- göngunum í sumar. — Báturinn hefir optast komið hingað eina ferð á sumri,' fram og aptur, «n nú varð ferðin ekki, nema hálf, að eins ein liér norður, og er oss lítil bót að slíkum sam- göngumu. Frá ísafirði er „Þjóðv.“ ritað 31. okt. þ. á.: „Síðan fyrir miðjan okt. hafa sjógæftir verið góðar, en frem- ur tregt um afla, og eru þó hæztu hlutir í Bol- •ungarvík, siðan í öndverðum okt., orðnir 80—90 kr.; en megnið af afianum er smáfiskur, og ísa, •og verðið á íiskinum flöttum, en ósöltuðum, 7 aur.j fyrir pd. af þorski'fsmáum, sem stórum), en -5 aur. fyrir pd. af ísunni“. Talsiininn til Hafnarfjarðar. Á fundi, sem eigendur nefnds talsíma héldu fyrir skömmu, var samþykkt, að selja . hlutafé- laginu P. J. TluyrsteinKSon & Co. talsímann milíi Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, fyrir 3 þús. króna^ sem er ákvæðisverð hlutabréfanna. IDrukknun. 2. nóv. þ. á. vildi það slys til, að maður datt útbyrðis af gufuskipinu „Eljan“, er lá við bryggju á Oddeyri, og varð honum ekki bjai-gað. — Maður þessi hót Hálfdnn Halldórsson ■og var úr Fáskrúðsfirði. Drukknun. 28. okt. síðastl. bvolfdi báti í grennd við Eng- ■ey, og drukknaði annar maðurinn, FAvar Ein- arsson að nafni, unglingsmaður frá Háholti, bróð- ursonur Quðm. sál. j^inarssonar í Nesi á Seltjarn- arnesi. — Tveir menn voru á bátnum, og voru á fuglaveiðum, en höfðu stígið báðir út í sama borðið, svo að bátnum hvolfdi. — Hinum mann- inum, sem hólt sér við bátinn, bjargaði Brynjúlf- ur bóndi Bjarnason í Engey. Maðurinn, sem bjargað var, hafði og haldið hinum á floti við bátinn, en hann var örendur, er hjálpin kom. Dönsk flskivciðaútgerð. Lauritzen, konsúll í Esbjærg í Danmörku, hef- ir nýlega keypt íshús að Sandgerði í Gullbringu- sýslu. sem var eign Konráðs kaupmanns Hjálm- arssonar, ásamt lóð þeirri, er því fylgdi, og kvað ætla að reisa þar hús, og hafa þaðan útgerð. Matthías skipstjóra Þörðarson hefir hann ráð- ið til þess að vera umsjónarmaður fiskiveiðaút- gerðarinnar. Ægissiðu-síminn. Á fundi 29. okt. síðastl. hafnaði sýslunefnd Árnesinga í einu hljóð’ að leggja fram 12 þús. króna til símalagningar frá Reykjavík austur á Ægissíðu. — Sýslunefnd Rangvellingasamþykkti, á hinn bóginn, með eins atkvæðis mun, að leggja fram áskilið 8 þús. króna tillag til símans. Eptir þessum úrslitum getur ekkert orðið úr símalagningunni, þar sem fjárveiting alþingis var bundin því skylyrði, að áskilin tillög frá sýslufélögunum fengjust. Frá Bíldudai (i Arnarfirði) eru helztu tíðindin 2. nóv. þ. á.: Mislingar bárust til Bíldudals með skipinu „Jón forseti11, er kom frá Roykjavík í öndverðum okt. — Var einn þeirra manna, er með skipinu voru, xnisl- ingaveikur, og voru mislingar komnir í fiest hús á Bíldudal um mánaðamótin okt.—nóv. — Enn fremur eru og mislingarnir komnir í Patreks- fjarðarverzlunarstað, og á nokkra bæi í Arnar- firði vestanverðum. Haustafli varð fremur óverulegur, í Arnar- firði, beggja mogin fjarðarins. Maður drukknar. Báti hvolfdi á Stöðvarfirði 20. okt. þ. á., og drukknaði annar maðurinn, sem á bátnum var, Jón Daníelsson að nafni, ungur maður, ókvænt- ur. Hinum manninum, Páli Skarphóðinssyni frá Hvalsnesi, var bjargað af kili. Misllngai'nir á Akureyri. Mislingarnir bárust til Akureyrar með stúlku, er kom þangað frá Reykjavfk 22. sept. síðastl., og hafa síðan bieiðzt þar út. Fundinn örendur. Maður frá Litia-Árskógssandi, Júlíus Jónsson að nafni, fannst örendur neðan til við Hafnar- stræti á Akureyri, 10. okt. síðastl., og telur „Norðri“ sennilogt, að hann hafi dottið fram af, og í sjóinn, sem fellur þar upp að: Briíðkvaddur. Maður nokkur, Narfi Sveinsson að nafni, varð bráðkvaddur á Eskifirði 26. okt. þ. á. —- Hann var kominn undir sjötugt. IVtannalát. 25. ágúst síðastl. andaðizt í Búð 1 Hoifsdal ekkjan Margrét Knstjánsdöttir, 69 ára að aldri. Hún var fædd að Melgraseyri á Langa- dalsströnd 10. júlí 1838, og voru foreldr- ar hennar merkishjónin Kristján dbrm. Ebenezersson, er siðar bjó í Reykjarfirði í Norður-Isafjarðarsýslu, og kona hans Krist- ín Pálsdóttir, systir GuSm. bÓDda Pálssonar í Arnardal, og Maríu, er var móðir As- geirs eldra Asgeirssonar kaupmánns á Isa- firði, en Ebenezer faðir Kvistjáns, var GuSmundsson, ng bjó í Ármúla, og var albróðir Kristjáns bónda Guðmundssonar í Vigur, er kvæntur var Önnu Krist- inu Ebenezersdóttur, sýslumanns, systur Ingibjargar, konu KristjáDS kammerráðs á Skarði. Margrét ólst upp hjá foreldrum sín- um, og dvaldi hjá þeirn, uuz hún árið 1864 gekk að eiga SigurS bónda HaU- dórsson á Bjarnastöðum í Vatnsfjarðarsveit, nokkru eptir lát Helgu Þorsteinsdóttur, fyrri konu hans. — Bjuggu þau hjón síðan að Bjarnastöðum, unz Sigurður and- aðist í febr. 1894, og hafði hann þá verið blindur í nokkur ár. 12 Hann hélt sinni hendinni um hvora stöngina, og 'virtist stara beint út í myrkrið fram undan sér. Virtist mér það óþarfi af houum, að hafa opin augun, þar sem engir lampar voru í vagninum, og ebkert ljós nema það, sem lagði frá eldstaeðinu, sem var aptan til í vagninum. Mér brá mjög, er eg sá manDÍnn sleppa haldi af stöngunum, og fara að moka kolum í eldinn. Jeg hélt niðri í mér andanum, því að jeg bjóst við, að vagninn myndi þá og þegar steypast út af veginum En það var ekki þvílíkt! Bifreiðin þaut beint eptir miðjum veginum; og virtist auðsætt., að eigi þurfti að stjórna vélinni. , Jeg þreif í haDdlegginn á lávarðinum, og vakti at- bygli hans á þessu. — Hann fór að hlæja. „Taktu eptir reyknum“, mælti hann. „Hann er lika einkeDnilegur“. „Er hann ekki eins og anDar reykur?“ rnælti jeg. „Jeg get ekki séð betur“. „Finnið þér nokkra lykt af honum?“ mælti hann. Jeg þefaði, og gat þá enga reykjarlykt fundið, þó að við sætum inni í reykjarmekkinum, sem þaðan lagði. Mér fór að þykja þetta kynlegt. — Þetta blaut að vera eitthvað óeðlilegt, og fór mér þvi að þykja meir en nóg komið. „Er nú ekki réttast, að við snúum við, Beden lá- varður?“ mælti jeg vingjarnlega, og rétti fram hÖDdina til þess að stöðva vélina. „Ef þér ætlið að snúa við, Scott, varðar það Hfi yðar“. mælti hann stillilega. Ef þér blandið yður í það, ■.sem mig varðar. þá erum við ílla farnir. — Hraðinn er inú tíu mílur á kl. tímanium, og ef þér leiðið huga minn 5 Molluhiti hafði verið um daginn, og það var að eins hreifing á bifreiðinni, er olli andvaranum, er lagði fram- an í okkur. Við beygðum siðan inn á veginn, er liggur til Ox- minster, og er hann beinn mílu vegar, en gengur siðan í bugðum upp Oxbourne-brekkurnar, og svo inn í stór- an skóg. „Hvert er ferðinni heitið?“ spurði jeg, og hagræddi mér betur í sætinu. „Til Oxminster“, svaraði hann stuttlega. „Gerið mér þann greiða, að hafa opin augun, og segja mér, ef þér sjáið eitthvað á veginum“. Að svo mæltu jók hann að mun hraðann á bifreið- inni, svo að jeg hefði hrokkið aptur á bak úr sæti mínu, hefði eg eigi verið við þessu búinn. Trjám og runnum sást nú að eins bregða fyrir, sem örskoti, og rykið þyrlaðist upp í tunglskininu, sem smá- silfuragnir.' Að fimm minútum liðnum komum við að brekk- unni, og þutum upp eptir henni með voðalegum hraða. Oðar en varði, þutum við inn i skóginn, og naut tunglskinsins þá eigi, sakir þess, hve laufið var þétt, og lagði að eins ljósbjarma af lömpunum í bifreiðinni. Brattinn gjörðist nú brátt svo mikill, að við fórum að eins 2 milur á kl.stundinni. Beden lávarður hafði eigi mælt orð frá munni, sið- an hann sagði mér, hvert. ferðinni væri heitið. Mér féll þessi þögn hans ílla, sem og myrkrið, og sannast að ségja fór eg að efast um, hvort lávarðurinn væri með fullu viti. Timglskinið myndaði ýrasar kynlegar skuggamynd-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.