Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1908, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1908, Page 3
ÞJ0BYILJj.JNN 119 XXII., 30. Sektað botnv'órpuveíðaskip. Danska varðskipið tók nýiega enskan botnvörp- j ung, og fór með hann til Patreksfjarðar, og var |j skipstjórinn sektaður þar nm 450 kr. Barnaveiki. hefir stungið sér niður í Húnavatns- og Skaga- j fjarðarsýslu, og mælt, að veikinnar hafi einnig orðið vart í Húsavíkurverzlunarstað. I . eiðréttin g'. í ræðu eptir mig, sem stendur í „Þjóðviljanum", er komist svo að orði, sem bankinn geti gripið til landsjóðsfjár án vitundar landsjóðsins, þetta á sér ekki stað; hvor- ugur bankinn getur náð i meira af peningum landsjóðsins, en landstjórnin hefir látið leggja .þar inn. I sömu ræðu er sagt, að gufuskipin, sem koma til landsins, og annast flutninginn til og frá, vinni sér inn 180 þús. króna á ári, þetta á að vera 1800 þúsund krónur á ári. Virðingarfyllst Indr. Einarsson. M annalát. 7. maí þ. á. andaðist að Arbæ í Bol- ungarvíknrrerzlunarstoð húsfrú Halldbra ; Ar/ústa ólafsdottir, á 46. aldursári, fædd j að Ósi í Bolungarvík 21. ágúst 1862. Halldóra sáluga var dótt.ir Ólafs bónda j á Ósi í Bolungarvík, Œssurssonar, bónda ! í Selárdal í Súgandatirði, Þorvaldssonar, og var Ólafur um nokkur ár hreppstjóri og sýslunefndarmaður, Bolvíkinga; en móð- ir Halldóru, og kona Ólafs, er Kristín Pálsdóttir, bónda á Ósi Halldórssonar, bónda í Hnífsdal, Pálssonar, og er Krist- ín því systir Guðm. beykis Pálssonar á Isafirði. Halldóra heitin ólst upp að Ósi hjá foreldrum sinum, en fluttist til ísafjarð- arkaupstaðar, er hún var orðin fullorðin, og giptist þar 18. ágúst 1883 eptirlifandi eiginmanni sínum, Árna kaupmanni Árna- syni í Bolungarvik. — Bjuggu þau hjón- in siðan i Isafjarðarkaupstað, og var Árni verkstjóri við verzlun Á. Ásgeirssonar á ísafirði, og bæjarfulltrúi ísafjarðarkaup- staðar nokkur ár. — Hafði hann og jafn framt mjög mikinn sjávarútveg, bæði á opnum skipum og þiljubátum. Árið 1898 fluttust þau að Ósi í Bol- ungarvík, og bjuggu þar í 4 ár, en færð- ust síðan að Árbæ í Bolungarvik, og hef- ir Árni rekið þar all-mikla verzlun. Alls varð þeim hjónum 8 barna auð- ið, og eru 5 þeirra á lífi: 2 dætur og 3 synir. Halldóra sáluga var mjög mikilhæf kona, og heimili þeirra hjóna einatt mesta myndarheimili. — Má að henni telja mikla eptirsjá, eigi að eins nánustu ættingjum, og venzlamönnum, hennar, heldur og öðr- um, er ky/.ni höfðu af henni. — — — 13. júní andaðist i ísafjarðarkaupstað húsfrú Elín Helgadóttir, kona Jóns Hall- dórssonar, húseiganda á Isafirði. Bessastdðir S0. júní 1908. Tíðarfarið hlýinda-iítið, og freraur rosasamt. „Stei'ling11 lagði af stað til útlanda 28. þ. m. og tóku sér far með honum: frúrnar Anna Breið- fjörð Flóra Zimsen, Kjörboe og Petrea Jörgen- sen, bókhaldari Jón Guðbrandsson, Sig. Jónsson fyrrum fangavörður, frú hans, Sveinn kaupmað- ur Sigfússon o. fl. „Ceres“ kom frú útlöndum 23. þ. m.—Með- al farþegja voru: stúdentarnir Alex. Jóhannesson Asgeir Guuiilaugsson, Guðjón Baldvinsson, Júi. Havsteen, Pétur Halldórsson, Pétur Jónsson og Magnús Jónsson, kaupmaður P. J. Thorsteinsson, Ólafur Johnsen, fyrrum kennari í Odense, og yfirdómsmálaflutningsmaður Oddur Gíslason. — Ennfremur ungfrúrnar Björg Ólafsson, Ingibjörg Guðmundsdótt.ir, Kaaber,og Ragna Gunnarsdóttir frú Trolle, verzlunarmaður Jón Björnsson, og ýmsir útlendir ferðamenn. Ritstjóri blaðs þessa, og kona hans, komu og með skipinu. ý 24. þ. m. andaðist í Reykjavík síra Lárus Halldór Halldórsson, fyrrum fríkirkjuprestur; fæddur að Hofi i Vopnafirði 10, janúar 1851 — Foreldrar haus voru Halldór prófastur Jónsson á Hofi (ý 1881), og kona hans Gunnþórunn Gunnlögsdóttir, dómkirkjuprests Oddssonar. Síra Lárus varð stúdent 1870, og lauk embættis- prófi á prestaskólanum 1873, en var síðan biskups- skrifari um hrið, unz hann varð prestur að Val- þjófsstað 1877, og gegndi hann því embætti, unz hann fékk lausu 1883, með því að hann vildi eigiklæðastmessuskrúða, er hann framdiembættis verk. — Árið 1886 varð hann fríkirkjuprestur Reyðfirðinga, en 1899—1901 fríkirkjuprestur í Reykjavik. — Hann var alþingismaður Sunn- mýlinga árin 1886, 1887, 1889 og 1891. Síra Lárus var kvæntur Kristínu, dóttir Péturs Guðjohnsen’s organista, og lifir hún mann sinn. — Börn þeirra hjóna eru: 1. Halldór, hi-aðritari, sem látinn er fyrir nokkr- um árum. 2. Guðrún, gipt Sigurbirni Á. Gíslasyni, cand. theol. í Reykjavík. 3. Pétur, nótnasetjari, og 4. Valgerður. Síra Lárus var gáfumaður mikill. og ýmsum góðum hæfileikum gæddur. Kaupmaður í Reykjavík varð nýlega uppvís að ólöglegri áfengissölu, og tollsvikum, og var hann alls sektaður um 300 kr., og allar áfengar vörubirgðir hans gjörðar upptækar. — Áfengiú hafði hann keypt hjá brytanum á „Sterling“, og j var hann sektaður um 150 kr. 186 að hún, og maðurinn hennar, hefðu breytt ferða-áætlun fiiBni, er þan komu til New-York, þar hefði legið segl- skip, ferðbúið til Frakklands, og hefðu þau þá orðið ásátt um, að fara með því, í stað þess að taka sér far til Bennudas-eyjanna. Þetta bað hún mig að segja hr. Hatton, og kvaðst muDdi rita mér aptur, er þau væru komin yfir Atlants- hafið. Bréfið var skrifað í flýti, á póststofu nokkurri, á leiðinni á skipsfjöl. Með nokkrum línum gat hún þess og, að ferðin niður eptir fljótinu hefði haft ákjósanlegustu áhrif á heilsu sína, og kvaðst því vona, að kærustu vonir sínar rættust. Marah hafði þá drukknað, og Urquhart var á leið- yfir Atlantshafið. Mér var þá allt fyrirmunað, jafn vel hefndin. Heimurinn gat nú ekki boðið mór neitt, er eg þráði og ásetti eg mór þvi, að segja skilið við hann, ekki á þann hátt, að eg gjörðist sjálfsmorðingi, heldur á þann hátt, að fela mig í skógar-greinunum. Þessari fyrirætlun minni hafði enginn neitt á móti og lét jeg því eigi dragast, að framkvæma hana. En tiUþess að yður skiljist; hve frábitinn eg var orðinn heiminum, og öllu sem í honurn gerist, get eg þess, að þegar eg hafði lokað húsi mínn, og lagði af stað til skógar, heyrði jbg, að kallað var á torginu. „Frelsi! Frelsi! Englendingar flýja; sveitamenn frá Lexington hafa skotið á hermenn konungs/* 183 Jeg var alveg örvinglaður yfir því, að eg myndl aldrei sjá hana framar í þessum heimi, hné lómagna á gólfið, og lá þar til næsta morguns. Eu er eg vaknaði morguninn eptir, og litaðist um í herberginu, kom eg auga á bréf, er lá á gólfinu undir opnurn glugga. Bréfið var svo hljóðandi: „Kæri, marg-hrjáði vinur! Þegar þú lest þessar línur, þá er Marah ekki leng- ur í tölu hinna lifandi. — Eptir allt, sem gjörzt hefir — brúðkaupið okkar, sem fórst fyrir, og burtför jungfrú Dudleigh —, er tilverau orðin mér óþolandi. — Jeg hugði að þér myndi það ljúfara, að vita mig dauða, en lifa í eymd, og þess vegna rita eg þér þessar línur, og bið þig að fyrirgefa mér, þegar jeg eg er dáin. Jeg elskaði hann. — Það er næg skýring. Þín örvinglaða. Marah Leighton.“ Jeg rak upp vein, og æddi út úr húsinu. — Marah í dauðanum -- Marah dáin —; það má eklci verða! Fyrir utan búsið mitt hitti eg Cæsar, og þóttistþá vita, að allt inyndi um seinan, og — slysið orðið kunn- ugt i borginni. „Jeg ætlaði inn til yðar, en þorði það ekki og hefi því beðið hór i kl.tima. — Hatturinn hennar hefir sézt á floti á ánni, og þar sem eg vissi, að þér mynduð frétta þetta, hvort sem var, þótti mér róttast að færa yður fregn- ina; en —“ „Hvenær, og hvar, hefir hatturinn fundizt?“ spurði eg. „í morgun, í dögun“, svaraði hann. — „Hattband- *) Hér er átt við byrjunina á frelsisstríói Bandamanna.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.