Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1909, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1909, Qupperneq 2
10 ÞjÓÐVLIjíN.V. XXIII., 3.-4. allir fnlltíða karlraenn skuli taka að sér vinnu, er verkföll ber að höndum, en hæpið, að tillaga þessi nái fram að ganga. Sænska stjórnin vill, að skipuð sé 7 manna rannsóknarnefnd, er þingdeildirn- ar kjósi menn í, til þess að rannsaka ýmislegt, er að hermálum ríkisins lýtur, og á hún að hafa vald til þess, að stefna á fund sinn, og heimta skýrslur hverra manna, sem eru. Mjög Tíiikil brögð voru að atvinnu- skorti í Svíþjóð í nóv., og í des., og hef- ir stjórnin því látið byrja að vinna að ýmsum meiri háttar mannvirkjum, til þess að bæta úr atvinnuleysinu. Sakir peninga-eklunnar hafa vöru-að- flutningar til Svíþjóðar síðastl. ár orðið töluvert minni, en árið 1907; í Stokk- hólmi varð aðflutningstollurinn t. d. 2 millj. minni, en árið 1907. I fjárlagafrumvarpi sænsku stjórnar- innar er gert ráð fyrir, að ríkistekjurnar verði 204 millj. króna, og er það 11 millj. króna meira, en árið sem leið. Háskólakennari í Lundi, K. Wicksell að nafni, hefir verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, sakir guðlasts.--------- Þýzkaland. Þýzk skáldkona er þiáð- ist af krabbameini, og átti heima i Sviss- aralandi, fékk 2. janúar þ. é. vinkonu sina til að ráða sér bana, og skaut vinkona hennar sjálfa sig á eptir. Mælt er, að Vilhjálnmr keisari vilji selja ýmsar konungshallir, sem ríkið á, með því að ráðist hafi verið í ýms kostn- aðarsöm byggingarfyrirtæki síðari árin. Málinu gegn Eulenberrj greifa er nú frestað um óákveðinn tíma, með því að nefnd lækna hefir lýst yfir því, að heilsa hans sé að þrotura komin. — Hann var sakaður um ýmiskonar saurlifnað. Maður nokkur, Racke að nafni, sonur þýzks rikisþingsmanns, myrti 26. des. síð- síðastl, föður sinn, og þrjár systur sínar, með þvi að faðir hans hafði neitað hon- um um peninga. — Grlæpurinn var fram- inn í borginni Mainz — — - - Frakkland. I des. varð voðalegt járn- brautarslys í grennd við Limoges. — Þar rákust járnbrautarvagnar á í jarðgöngum, og kviknaði í kolum o. fl. — Fáir kom- ust lífs af. Bæjarstjórnin í Nantes hefir samþykkt, að starfsmenn bæjarine, er hafi minna, en 2000 franka að launum, skuli fá 100 franka launahækkun, ef þeir kvongast, og 50 franka árlega með hverju barni, er þeir eignast, unz það sé 14 ára að aldri. Á jóladaginn, er FalHeres forseti Frakk- lands var á gangi, vatt maður sér snögg- lega að honum, tók fyrir kverkar honum, og reyndi, að reita af honum skeggið.— Maður þessi heitir Mattís, og tjáist vera konungs'inni (Orleanisti), og var hann handsamaður, áður en hann fengi unnið forsota nokkurt mein, er að kvæði. — Hann neitar því, að hann hafi ætlað sér að drepa forseta, en kveðst að eins hafa viljað bekkjast tíl við hann, sakir póli- tiskrar stefnu hans — — — Bretland Látinn er seint á f.h.Olen- esk lávarður, ritstjóri íhaldsblaðsins „Morn- ing Post“, 78 ára að aldri, og var hann í röð helztu blaðamanna á Bretlandi. — Hann varð aðal-ritstjóri blaðsins, er hann var að eins 23 ára að aldri. f Nýlega er látinn loddari í Lund- únum, Henry Barnatos að nafni, sem mælt er, að hafi látið eptir sig svo miklar eign- ir, að erfðafjárgjaldið til ríkissjóðs muni nema um 20 millj. króna. — — — Bússland. Nýlega hefir það orðið upp- víst, að ieýnilögreglumenn í Moskva hafa í staðið í sambandi við verstu þjófa þar i borginni, að minnsta kosti 6 siðustu árin, og ef til vill leDgur, og hafa jafn vel haft skóla, þar sem unglingura voru kennd ýms þjófabrögð. — Hafa leynilögreglu- menn síðan fengið ákveðinn hluta af þýfinú. Stjórn Bússlands hefir fallist áþátil- lögu stjórnarinnar i Austurríki, að óþarft j sé, að halda ríkjafund, að því er til á- j greiningsmála á Balkanskaganum kemur. j Svissaraland. Dr. Adolph Deucher hefir í einu hljóði verið kjörinn forseti á Sviss- aralandi, og er þó orðinn 77 ára. — Hann Hefir áður verið 4 sinnum forseti, og kvað vera all-ern, og ungur í anda. — Ítalía. Um landskjálftana á Sikiley og á Suður-Italíu, eru nú komnar gleggri fregnir. — í borginni Messína hófst jarð- skjálftinn með afar-snörpum kipp, er felldi fjölda stórhýsa, veitingahús, kirkjur o. fl. — Hafið skolaðist og yfir allan þann hluta borgarinnar, er lægra lá, og sópaði burt fjölda manna, er flúiJ höfðu til sjávar, til þess að reyna, að forða sér út á skip. — Hér við bættist og, að gass-framleiðslu- stöðin sprakk í lopt upp, og kviknaði þá í fjölda húsa, og eldurinn æddi um borg- ina, og læsti sig úr einu húsi í annað, svo að tii borgarinnar var að líta, sem í reyk- og eldhaf sæi. — Þjófar og þeir sem í typtunarhúsum voru, brugðu á kreik, og hugðu gott til rána, en héld- ust eigi við, og urðu að flýja. — Stjórn- in sendi þegar 1400 hermanna, til að hjálpa, og bjarga, og konungur ítala gaf 200 þús. lira, til að bæta úr neyðinni, og foreætisráðherrann svipaða upphæð. Þýzk, frakknesk, rússnesk og austur- risk herskip hafa og verið send til Sikil- eyjar, og Suður-Italíu, til að veita lið- sinni, og Italir, sem heimilisfastir eru í Lundúnum, hafa gengizt fyrir samskot- um, og hafa i fjölda landa verið skipaðar nefndir, til að gangast fyrir, að láta hin- um bágstöddu ýmis konar hjálp í té. Útborg Messínu Foro Glazirrí er horfin, sokkin, og gleypt af hafinu. — Hötn Messínuborgar er ónýt, og moginland beggja vegna viðMessínasundið gjörbreytt. — Þykja litlar likur til þess, að borgin rísi aptur úr rústum, að minnsta kosti í bráð. Lik hinna látnu hafa rotnað, og fyllt loptið með ódaun, raeð því að eigi hafa verið nein t A á, að jarða þau. — Hefir því veríð hol.t á þau olíu, og spíritus, og } au brennd, og hefir reykurinn blandast gráum, eiturkynjuðum gufum, er stíga upp úr jörðinni. Neyð, og bágindi hafa, sem eðlilegt er, keyrt úr öllu hófi. Sárir menn hafa verið fluttir til borg- anna Palermo, Napolí, og .fleiri borga, margar þúsundir daglega. Af ógnum þeim, er yfir hafa dunið, hafa sumir orðið óðir, og haldið að keims- 6nd.ir væri í nánd, . en sumir gengið í hópum, með dýrðlingamyndir, og heitið á þær sér til fulltingis. Bandaríkjastjórn sendir Atlantshafs flota sinn til Italíu, til að veita hjálp. — Serbía. Utanríkisráðherra Serba, Míto- wanowitsch, hélt nýskeð mjög harðorða ræðu á þingi í garð Austurríkismanna, og lá við að Austurríkismenn segðu Serb- um strið á hendur, og að sendiherra Aust- urrikiskeisara yrði kvaddur þaðan. — Ráðaneyti Serba sá þá ekki annan kost vænni, en að beiðast lausnar. — — — Búlgaría. Stjórn Búlgara hefir sent stórveldunum umkvörtunarbréf yfir þvi, að stjórn Tyrkja dragi alla samninga á langinn, til þess að fá sem bezta.i tíma til herbúnaðar, og er í bréfi þessu farið mjög hörðum orðum um soldán, og stjórn hans. — — — TyrkJand. í ráði er, að Tyrkir auki að mun herskipastól sinn, enda herskip þeirra flest gömul, og hernaðar-áhöid úr- elt orðin. — Hafa þeír falið enskum að- rníráli, Charles Henry Cross að nafni, að hafa alla yfirumsjá, er hér að lýtur. — Persaland. Rússar ogBretar hafa neytt Persakeisara, til að kveðja t'il þings að nýju, og hefir hann takmarkað mjög vald, þess, og kýs sjálfur alla þingmennina(l).. Þingfundi lætur hann að eins halda tvisvar í viku. — — — Haítí. Á eyujnni Haíti hefir verið uppreisn, og hafa uppreisnarmenn náð höfuðborginni, Port au Prince, á sitt vald og liefir Alexis, forseti, orðið að flýja úr landi. — Það var 3. des., er hann flýði, og komst undao á frakknesku heræfinga- skipi. Uppreisnarmenn gerðu nokkur spell- virki í höfuðborginni, en brátt komstþó- friður á. Forseti á Haítí hefir verið kjörinn Antoine Símon, hershöfðingi í suðurhéruð- unum, og hefir stjórn Bandaríkja viður- kennt kosningu hans. All-mikil oanægja er þó í norðurhér- uðum landsins, og því óvíst að friður haldist lengi. — — — Venezuela. Forsetinn í Venezuela, Castro að nafoi, brá sér til Frakklands og Þýzkalands sér til heilsubótar, að þvi er hann sagði, en á meðan reru mótstöðu- menn hans að því öllum árum, að steypa honum úr völdum, og fór svo að lokum, að Gomea vara-forseti, lýsti því yfir, að haun væri forsoti, en Castro sviptur völdum. — Mælt or að Gomez, og fylgismenn hans, þykist hafa gögn í höndum, er sanni, að Castro hafi skip- að vildarmönnum sínum i Caracas, að ráða hann o. fl. af dögum, og hafi Gfomez því orðið fyrri til, og handsamað flugu- mennina.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.