Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1909, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.02.1909, Síða 2
26 Þ JÓÐ VILJINN. XXIII., 7. sönm stefnu í hervarnamálinu í öllu veru- legu, sem CTimíewsews-ráðaneytið, og hef- ir það leitt til þess, að urubótaflokkur- inn hefir klofnað; en sá flokkur hefir ver- ið stjórnarflokkur, siðan vinstrimannaráða- neytið var sett á laggirnar í Danmörku í júlí 1901). Sambandsmálið. Sambandslagafrumvarpið fram borið. — Neergaard fortekur breytingar. (Hér er átt við það, að frumvarp meiri hluta millilandanefndarinnar hafi verið lagt fyrir danska ííkisþingið, og hefir danski forsætisráðherrann þá jafn framt lýst þvi yfir, að ráðaneyti hans vildi, að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt, og mun það ef til vill eiga að herða á al- þingi, að hafDa eigi frumvarpinu, þar sem meira sé eigi fáanlegt. — En auðvitað fer alþingi sínu fram, þrátt fyrir slíkar yfirlýsingar). Stjórnarf rumvörpin. Frumvörp, sem stjórnin hefir lagt fyr- alþingi að þessu sinni, eru alls 19 að tölu, og eru þau þessi: I. Fjárlagafrumvarpið fyrir árin 1910 og 1911. II. Fjáraukalariafrnmvarp fyrir árin í 1906 og 1907. TTT. Fjáraukalagafrrtmvarp fyrir 1908 og 1909. IV. Frnmvarp um samþykld á lands- reikningnum fyrir árin 1906 og 1907. V. Frv. um skipun vara-biskups. Vara- biskupi er ætlað, að vígja biskup, er svo stendur á, að fráfarandi biskup getur eigi vígt eptirmann sinn. Svo getur hann og vígt presta, í forföllum bískups. Vara-biskupi eru ætlaðar 500 kr. að árslaunnm. Frumvarp þetta virðist ærið vanhugs- að, og má því líklega telja víst, að það nái ekki samþykki alþingisí þeirri mynd, sem stjórnin hefir veitt því. Dcuikirkjupresturinn í Reykjavik, eða prófasturinn í Kjalarnesþingum, ætti að geta framkvæmt starf það, sem vara- biskupi er ætiað, án kostoaðar fyrir lands- sjóð. VI. Frv. um löggilding verdunarstað- ar í Viðey í Kjósarsýslu. VII. Frv. um ríkisréttarsamband Dan- merkur og Islands. Frumvarp þetta er samhljóða rupp- kastinu“, er meiri hluti millilandanefnd' arinnar samþykkti, nema leiðrétt þýðing- arvilla í 8. gr. þess. Stjórnin vísar, að því er ástæður fyrir frumvarpinu snertir, að öllu leyti til á- lits mexri hluta millilandanefndarinnar, svo nú þarf enginn framar að efa, að xáðherra H. Hafstein er að öllu leyti á sama máli um wnppkastiðu, eins og þing- maðurinn H llafstein á þingmálafundum síðastl. sumar(!) VIII. Frumvaip til stjörnarskipunar- aga um breytiny á stjornarskrá um hin serstaklegu málefni Islands 5. jan. 1874 oy st'jórnarskipunarlögum 3. okt. 1903. Stjórnarskrá þessari er eigi ætlað að öðlast konungsstaðfestingu, fyr en í „gildi eru geDgin ný sambandslög um ríkis- réttarsamband Danmerkur og íslandsu, en það segir ráðherra, að rætti að geta orðið nokkru fyr en stjórnarskrárfrum- varpið gotur orðið samþykkt til fullnustu á nýkosnu aukaþingi“. En þegar þess er gætt, hve mikið brestur á, að uppkastið fullnægi sjélfstæð- iskröfum Islendinga, og þar sem ráðherr- ann hefir eigi séð sér fært, að bjóða nein betri kjör, verða ofangreind ummæli hans eigi skoðuð öðru vísi en sem markleysu- hjal, sem ráðherra hefði helzt átt að spara sér. Á helztu Dýmæli stjórnarskrárfrurn- varps þessa mun „Þjóðv.u minnast siðar Frumvarpið er í ýmsum greinum, t. d. um takmarkaðan kosDÍngarrétt og kjör- gensu til efri deildar, um synjun kosn- ingariéttar og kjörgengis kvenna. sem ráðherra þykir engin bráð þörf á, o. fl. miklum mun ófrjálslegra, og óaðgengi- legra, en stjórnarskrárbreytingarfrumvarp það, or stiórnarandstæðingar báru fram á alþingi 1907. IX. Frv. um styrktarsjbð handa barna- kennurum. I frumvarpi þessu, sem stjórn- in tjáist bera fram eptir ósk stjórnar hins íslenzka kennarafélags, er farið fram á, að stofnaður sé styrktarsjóður handa barna- kennurum landsÍDs, og leggi landssjóður 5 þús. krónur til hans til byrjunar, en síð- an 1000 kr. árloga, og greiða barnakenn- arar í sjóðinn l°/0 af launum sínum árlega. Meðan sjóðurinn nemur eigi 20 þús. króna, skai að eins verja vöxtum hans til styrkveitinga, en síðan 3/a af öllum árstekjunum. „Því að eins getur kennari fengið styrk úr sjóðnum, að hann sé styrkþurfi, haDn skal og hafa verið barnakennari í 10 ár, og hafa greitt tillag til sjóðsins að minnsta kosti í 8 ár, nema hann hafi orðið að láta af kennslustörfum, sakir heilsubilunar". Frumvarp þetta fær að líkindum góð- an byr á þingi, þótt breytt krmni að verða ýmsum ákvæðum þess. X. Frv. um bváðabirgðaluekkun á að- ftutningsgjcddi. Auk þess er frumvarpið ger- ir ráð fyrir, að toll-aukinn sem greiddur hefir verið, síðan sumarið 1905, haldist óbreyttur, þá er og farið fram á toll- hækkun á brennivíni, og öðru áfengi (t. d. 48 aur. á 8° brennivíni á hverjum potti), sem og 35 aur. tollhækkun á tó- bakspundinu, 11 aura á tegrasi, 12 aur. á súkkulaði, og einn eyri á brjóstsykri, og öðrum konfekttegundum. öerir stjórnin ráð fyrir, að tollhækk- un þessi nemi alls 240 þús króna á ári, eða um 480 þús. á fjárhagstímabili. XI. Frv. um fiskimat. Ákveðið, að yfirfiskimatsraenn"skuli alls vera fimm, þ. e. einn í Reykjavík, annar á Isafirði, þriðji á Akureyri, fjórði á Seyðisfirði, og fimmti í VestmaDnaeyjum. — Að árslaun- urn eru þeim ætluð: 2 þús. kr., 1800 kr., 1600 kr., 1600 kr. og 800 kr. Allur saltfiskur, sern fluttur er héðan af landi, og fara á til Spánar eða Italíu, skal metinn, og flokkaður eptir gæðum, af fiskimatsmönnum, undir umsjón yfir fiskirnatsiiianna. Yfirfiskimatsmönnum er og ætlað, að. ferðast um í umdæmum sínurn, til að leiðbeina mönnurn í fiskimeðferð. — En umdæmi hvers um sig eru tiltekin í frumvarpinu. XII. Frv. um friðun skóga og kjarrs, og friðun á lyngi o. fi. XIII. Frv. um breyting á 2. gr. í lögum 20. okt. 1905 um stofnun bygging- arsjóðs og bygging opinberra bygginga. (Heimilað að selja hverja feralin af Arn- arhólslóð fyrir minnst 2 kr. 50 a.). XIV. Frv. um dánarskýrshir. XV. Frv. um breyting á 26. gr. 1. liði í lögum 16. nov. 1907, um laun sbkn- arpresta. XVI. Frv. um stofnun háskbla. I há- skólanum er ætlast til, að þessar fjórar deildir verði: guðfræðisdeild, lagadeild, læknadeild og heimspekisdeild. XVII. Frv um laun háskolakennara. XVIII. Frv. um stofnun vátvygging- aríélags fyrir fiskiskip. Landsjóði er ætl- að ábyrgjast með allt sð 200 þús. króna, að félagið fullnægi skuldbindÍDgum sínum. XIX. Frv. um a\ mennan eWistyrk. — Nær óbreytt samhljóða f rumvarpi, er stjórn- in lagði fyrir alþingi 1907. Gjaldskyldir ailir, sem eru 18—60 ára, nema, þeir, sem þiggja af sveit, sæta hegningarvinnu, eru félausir, og hafa fyr- ir ómaga að sjá, eða hafa tryggt sér minnst 150 kr. á ári eptir 60 ára aldur. KarlmönDum ætlað að greiða árlega 2 kr. til sjóðsins, en kvennmönnum 1 kr, (í stað þess er alþýðustyrktarsjóðsgjöldin eru nú að eins 1 kr. fyrir karlmenn og 30 aurar fyrir kvennmenn, og gjaldskyld- ir þeir einir, sem í verkmannastétt eru). Að öðru leyti getur nÞjóðv.“ stjórn- arfrumvarpanna væntanlega, að meira eða minna leyti, síðar. þingmálafundup 9 Ifiorður-Isfirðinqa. —o— Árið 1909 föstudaginn 5. febrúarmán- aðar var þingmálafundur fyrir Norður- Isafjarðarsýslu, settur og haldinn af hin- um kjörna alþingismanni Skúla Thorodd- sen. Fundurinn var haldinn í Goodtempl- arahúsinu á Isafirði. — Mættir voru kjörn- ir fulltrúar úr: Hólshreppi, Eyrarhreppi, Súðavíkurhreppi,Grunnavíkurhreppi,Snæ- fjallabreppi.* *) Fulltrúi var og mættur úr Ögurhreppi.— Á fundinum, sem haldinn var í samkomusal Goodtemplara á ísafirði, var og fjöldi karla og kvenna úr ísafjarðarkaupstað, svo að húsfyllir var. — Yar og öllum veitt málfrelsi, sem á fund- inum voru, þó að kjósendur úr Norður-ísafjarð- arsvslu greiddu einir atkvæði. BITSTJ.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.