Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.04.1909, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.04.1909, Blaðsíða 2
66 ÞjÓÐTI JLINN. XXIII., 17.-18. Ritsímaskeyti. til „Þjóðv.“ —o— Kaupnjannahöfn 13. apríl 1909. Frá Tyrklandi. Stjórnarbylting í Konstantínopel (Mikla- garði). Hermennum kringja þinghúsið. — Heimta hreina Mahómedstrú. — Óijóear fregnir segja stjórnmálaflokk Ung-Tyrkja í hættu. — Soldán talinn standa að baki tiltektunum. (Af fregnum þessum, þótt óljósar séu, virðist mega ráða, að Tyrkja-soldán ætli að reyna að beita þingið svipuðum tök- um, sem Persa-keisari beitti þing Persa fyrir skömmu, og er óskandi að jafn sví- virðilegar tiltektir lánist ekki). Frá Bretlandi. Skáldið Swinburne er dáið. — (Enska skáldið A. Ch. Swinburne var fætt B. apri 1837, og hefir því verið 72 ára. — Swinburne var nafnkunnasta skáld Breta, síðan er Tennyson féll frá). Kaupmannahöfn 16. apríl 1909. Hryðjuverk á Tyrklandi. Ung-Tyrkir afl-lausir. — Dómsmálaráð- herra myrtur o. fl. — Apturhaldsmenn teknir við stjórn. (Þar sem aðfarir þær, som getið er um í fyrra hraðskeytinu, sem prentað er í þessu nr. blaðs vors hafa valdið því, að íhaldsmenn eru komnir til valda á Tyrk- landi, þá er að líkindum lítill vafi á því, að soldán hefir átt meiri eða minniElut- deild í hin- um djöfullegu hryðjuverkurn^ sem hraðskeyti þetta getur um, þó eð glöggar fregnir séu enn ókomnar) TJtlöncX. —o— Helztu fréttir, er borizt hafa frá út- löndum, eru þessar: Danmörk. Bæjarfulltrúakosningar óru franr í Kaupmannahöfn 12. marz siðastl.^ og tóku þá konur í fyrsta skipti þátt í kosningunni. — Kosninga-rimman varð í harðara lagi, og urðu kosningarúrslitin pau, að kosnir voru: 20 jafnaðarmenn, B úr flokki frjálslyndari vinstrimanna, og 16, er hægrimenn, og umbótaflokkurinn, studdu í sameiningu til kosningar, og einn iir flokki innri trúboðsmanna. Meðal binna kjörnu eru 7 kvennmenn. f Dáinn er nýlega prófessor A. Row- ing, 8B ára að aldri. — Hann var i röð Jremri lækna í Kaupmannahöfn. Danska vísindafélagið í Kaupmanna- iiöfn kaus sér nýlega forseta, og hlaut Vilh. Thomsen kosningu. — Hefir hann mikið orð á sér fyrir þekkingu sína að því »>.’ tii samanburðar ýmsra tungumála kem- nr. — Hann er sú 67 ára að aldri. Sakamálsrannsókninni gegn Albertí, íyrrum dómsmálaráðherra, er enn hvergi -. ærri lokið. — Hefir hann kvartuð mjög yfir því, að hann gæti eigi sofið, af því að ljós væri hait hjá sér í fangaklefanum, loks hefir hann nú, samkvæmt ráðum læknis, verið fluttur í sjúkrahús fangels- isins. 22. marz var J. C. Christensen, fyrr- um forsætisráðherra, Sigurður Berg o. fl., er voru ráðherrar ásamt Albertí, yfirheyrð- ir, og kom það þá í ljós, að Christensen, forsætisráðherra, hafði verið aðvaraður, eða fengið bendingar, um ýmislegt grun- samlegt athæfi Albartí’s, þótt eigi sinnti hann því að neinu. Prívatbankinn hefir átt í máli við enska verzlunarfélagið Wilier & Biley, er stóð í sambandi við fjárbrall Albertis, og smjörútflutningafélagið, er hann stýrði og komst sá jöfnuður á, að verzlunarfélagið greiddi bankanura 832 þús., í stað 900 þús. króna, er hann gerði tilkall til. Blaðið „Politíken“ hefir vakið máls á því, að líkindi séu til þess, að verzlað hafi verið með orður og titla í ráðherra- tíð Albertí’s, menn, sem hégómagjarnir voru, fengnir til þess, að gefa stórfé til ýmsra líknarfyrirtækja, og heitið kross, eða nafnbót, fyrir, og hefir blaðið | nafngreint nokkra menn í þessu skyni, en talið vafasamt, að fénu hafi verið hald- ið öllu til skila. — Högsbro, dómsmála- ráðherra, hefir loks skipað opinbera rann- sókn um téð efni. Nú er í ráði, að Danir leggi fram fé, til þess að Einar Mihkelsen fari til Norður- Grænlands, og vitji dagbóka o. fl,, sem ætlað er, að Mylíus heitinn Erichsen hafi látið eptir sig við Danmerkur-fjörð. — Leggur Einar Mikkelsen af stað í júni- mánuði þ. á., og ráðgerir, að koma heim haustið 1910 Danska-austur-Asíu félagið, er rekur verzlun i Síam, og á Indlandi, hefir fyrir árið, sem leið, greitt hluthöfum 8"/0 í arð af hlutabréfum þeirra. Bulow, rikiskanzlari Þýzkalands, hélt nýlega ræðu, þar sem hann gat þess, að öll ríki yrðu sérstaklega að láta sér annt um þau héruð, er á landamærum rík- isins væru, og hefir sú ræða verið skilin, sem bending til Dana, að gera sér engar vonir um Norður-Slésvík, þar sem ræða þessi var haldin, er hann var staddur í öðru hinna gömlu dönsku hertogadæma. Eins og meiri hluti dönsku hervarn- arnefndarinnar hafði orðið ásáttur um, hefir það nú orðið að samkomulagi railli Neergaards, forsætisráðherra, og I. C. Christensens, að verja 31'/2 millj. króna til hervarna í eitt skipti fyrir öll, auk árlegra útgjalda.------— Noregur. Geðveikur sporvagnsstjóri í Kristianín, er bar kvíðboga fyrir, að lög- reglumenn tækju hann fastan, þar sem hann hafði af ógáti ekið ofan á mann rétt fyrir jólin síðustu, myrti nýskeð, að talið er í geðveikiskasti, konu sina, og þrjú börn þeirra hjóna, og kveikti hann síðan í húsinu, en eldurinn varð slökktur, áður en likin voru brunnin, og því varð uppvíst unr elæpinn. ý Látinn er nýskeð maður nokkur, Knud Oraah i ð nafni, 92 ára, verksmiðju- eigandi, er fyrstur kom á fót ullarvinnu- verksmiðju í Noregi. — Giaah var af- dönskum ættum, og hafði verið blindur nokkur síðustu ár æfinnar, en veitt verk- smiðjunni þó forstöðu til dánardægurs. Amundsen hefir nú valið sér förunauta í norðurför eína, og eru þeir allir Norð- menn. — Alls höfðu um þúsund manns boðið honum, að taka þátt í förinDÍ, þar á meðal fjöidi amerískra kvenna. Mörg verzlunarfélög hafa og boðið honum ókeypis vistir o. fl., er til farar- innar þarf. — — — Svíþjóð. Stjómin hefir nýlega lagfc fyrir þingið frumvarp um skipaskurð úr stöðuvatninu Yanern til Kattegats (Gauta- borgar), og'J er áætlað, að kostnaðurinn verði alls 22,800,000 kr., og verður skipa- skurðurinn“fjórir metrar á dýpt (frekar 6 álnir). Hlutafélag hefir nýlega verið myndað í Sviþjóð, er ætlar sér, að hagnýta sér gúmmískóga í rík'nu Peru, og er talið, að fyrirtækið verði mjög arðvænt. Tveir af ráðherrum Svía (landbúnaðar- og utaDríkisráðherranD) beiddust nýlega lausnar, með því að þeir fylgdu fram skoð- un frjálslyndarí flokksins á þingi, að því er snertir rétt þingsin9, til þess að heimta skýrslur af embættismönnum. — Bjugg- ust margir við, að Lindmann, forsætis- ráðherra, yrði að fara frá völdum, en honurn tókst, að fá aðra í skarðið, en mjög er nú ráðaneyti hans talið íhalds- samt í stjórnmálunum. Ymsir atvinnulausir menn gerðu verk- fall um sömu mundir, og urðu bæjarstjórn- ir. að verða við kröfum þeirra, og hækka verkalaunin. — — — Bretland. Megn „innfluenzu“-veíki gekk í Lundúnaborg um miðjan marz- mánuð, svo að þá lágu um tima yfir hundrað þingmenn veikir, og á öllum veitinga- og skemmtistöðum var óvana- lega fáförult. ý Dáinn er í marzmánuði Arnold Fo>‘- ster, brezkur stjórnmálamaður, B3 ára að aldri. — Hann varð hermálaráðherra 190& í ráðaneyti íhaldsmanna. — Hann hefir ritað nokkur sagnfræðisieg rit. í marz urðu miklar umræður á þingi Breta um aukningu herskipaflotans. — Flotamálaráðherrann, Mac Kenna, hefir borið saman flota Breta og Þjóðverja, og vill að Bretar byggi sem bráðast fjög- ur stór herskip, en Asquith, forsætisráð- herra, er sagður tregur til þess, enda geti Þjóðverjar jafn hraðan látið smíða sér jafn mörg herskip, og þýði keppnin því lítið. Ýmsir þingmenn eru á sanra máli, en þeir sem ákafastir eru, að því er aukn- ÍDgu herskipastólsins snertir, vilja jafn vel að byggð séu átta stórskip, og reyna að vekja æsingu hjá þjóðinni í þá átt. Nýja Zeeland vill gefa Bretum eitt, eða tvö herskip. Frumvarp hefir verið borið fram á þingi Breta þess efnis, að hver maður' 18 — 24 ára að aldri skuli vera skyldur til herþjónustu nokkra daga á ári hverju, en vonandi nær frumvarpið eigi fram að ganga, þó að Bretum virðist standa ær- inn stuggur af herbúnaði Þjóðverja um þessarímundir — — —

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.