Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1909, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1909, Síða 2
78 Þjósviljinn XXIII, 20. full samið, svo að þeir gæt.u gagnrýot það í nefndaráliti sinu, enda áttu þeir alls enga heimtingu á því, og gátu lýst sinni skoðun á málinu hvað sem nefndaráliti meiri hlutans leið. — því fór og fjarri, að þeir byðu 099, meirihlutamönnum, að sýna oss álitsskjal sitt, og gátu því eigi vænzt þess, eins og allri breytni þeirra í nefndinni hafði verið háttað frá öndverðu, að vér færum að breyta öðru vísi við þá, en þeir við oss. Eg hefi talið mér skylt, að láta þing- inu í tó þessa skýrslu um gang nefndar- starfanna, svo að ósannindi og aðdróttan- ir minni hluta nefndarinnar, til að hylja sínar eigin aðfarir, og banaráð við málið á þinginu, stæði eigi ómótmælt í skjala- parti þingtíðindanna, og það því síður, sem minni hlutinn, ofan á öll ósannindin og get9akirnar, vitnar til „guðs og sam- vizkunnar, sem reyndar virðist sofa svefni hins andvaralausa, að því er til ummæl- anna í álitsskjali hans kemur. Þessa var því fremur þörf, sem til- gangur minni hluta nefndarinnar leynir sér alls eigi. — Hann kemur til dyranna mjög sakleysislega, sem vandandi um dráttinn á málinu, beitir því fyrir sig hinu góða tii að geta þvi betur blekt þjóðina með ósanninda-aðdróttunum sínum. Yfirleitt ætti að mega vænta þess af þingmönnum, að þeir leyfi sér ekki þá ósvinnu, að bera fram bláber ósannindi í þingskjölum. — Slíkt sómir sér alstað- ar ílla, og þó hvergi ver en þar. Neðri deild alþingis 23. april 1909. 8hili Ihoroddsen íormaður sambandslaganefndarinnar LandsbanKinn. — RannsóKn siupuð. ÞRIGGJA MANNA NEFND. --O— Ráðherra hefir 26. april þ. á. gertsvo látandi ráðstöfun: „Stjórnarráðið felur yður, hr. skrifstofu- stjóri Indriði Einarswn. ásamt cand. ,jur. Karli Einarssyni, og kennara við kennara- skólann, Ólafi Danielssyni, samkvæmt 26. gr, i lögum 18. sopt. 1885, að rannsaka nú þeg- ar allan hag iandshankans, og eruð þér for- maður þoirrar rannsóknarnefndar. Nefndinn er falið sérstaklega, að aðgæta seðlafúlgu hankans, þar á meðal að hve miklu leyti gömlu seðlai'nir bafi verið dregnir inn, og hve mikið hefir verið getið vit af nýjum seðlum; að aðgæta þær skuldbindingar, víxla skuldabréf o. fl., sem bankinn hefir í hönd- um, eða veðdeild bankans, og gera sér grein fyrir gildi þeirra; að rannsaka, hvort viðlaga- j sjóður bankans, og varasjóður sparisjóðsins, j er tryggður að lögum, og sannreyna, hvort j sjóður bankans er fyrir hendi; að aðgæta hverjar, og hve miklar skuldbindingar bank- | ans eru, bæði við þá, sem lagt hafa fé í spari- sjóð bankans, og hina, sem eiga fé hjá bank- anum á annan hátt. Þér getið lagt fyrirspurnir fyrir banka- stjórnina, eða sérstaka menn úr henni, som skylt or að svara, krafist að yfirfara bækur bankans, og heimta yður sýnd öll þau skjöl, verðbréf, víxla eða skuldbindingar, sem bank- inn heíir í höndum, og sömuleiðis heimtað, að yður sé sýndir, og afhentir til gagnskoð- unar, allir reikniugar, sem bankann snerta, eða einhverja grein hans, eins þótt þeir séu frá umliðnum árum. Að loknu verki gefið þér félagar ráðherra íslands skýrslu um gerðir yðar. Þetta birtist hinni háttvirtu stjórnarnefnd hér með til leiðbeiningar. Björn Jónsson. Jon Hermannsson. Til stjórnar landsbankans.11 Eins og bréfið bendir á, or heimild stjórnarinnar til ráðstöfunar þessarar byggð á 26. gr. laga 18. sept. 1885, er svo segir: „Stjórn bankans er ávalt skyldug, að geta landshöfðingja allar þær upplýsingar um bank- ann, sem honum kann að þykja ástæða, til að heimta. Landshöfðingi getur og, hvenær sem er, látið rannsaka allan hag bankans11. Að hagnýta að eins fyrri lið greinar- innar hefir ráðherra, svosem bréfið sýnir, eigi talið nægja, og dylst eigi, hvað í því felst. Bréfið sýnir og að ganga á úr skugga um það, hvort nokkur óregla, eða óvar- kárni i útlánum hefir nokkuru sinni átt sér stað við landsbankann, þar sem jafn vel er, í niðurlagi bréfsins, mælt svo fyr- ir, nð leita skuli til umiiðinna ára. Það er boðið, að rannsaka eitt, og síð- an annað o. s. frv. Ef eigi þetta — þá hitt. Á hinn bóginn hefir ráðherra lýst því yfir á alþingi, að tilgangurinn sé að eins sá, að „kynna sér hag bankans“, er hann nú tekur við stjóroinni, og þá um leið við „ábyrgð á bankanum-1, án þess rann- sóknin sé sprottin af nokkrum „íllum grunu af hans hálfu. En hvað sem því líður, hefði þsð ver- ið heppilegra bæði frá sjónarmiði lands- sjóðs, sem er eigandi bankans, og frá sjónarmiði almennings, að ráðherrann hefði hagað svo til, að hann hefði „kynnt sér hag bankansu, án þess að gera það j heyrum kunnugt á þann hátt, sem orðið er. Hvorki sparisjóðs-innieigendur, né er- lendir lánveitendur bankans, geta vitað, hvort tilefni rannsóknarinnar er, og geta skapað sér einhverjar grýlur, þótt engin sé ástæða til. Yæntanlega nær skýrsla sú, er ráð- herra gaf alþingi, svo sem að framrn er á vikið, þó þeim tilgangi sínum, að friða hugi manna. Teljum vér og víst, að eigi sé nein ástæða til neinnar hræðslu, eða kvíða — þrátt fyrir ofan greinda stjórnarráð- stöfun — að því er til fjárhagslegu hiið- arinnar kemur. Hvað hitt atriðið snertir, hafi einhver óregla átt sér stað við landsbankann, fyr eða síðar — en um það er ritstjóra „Þjóðv.u auðvitaðjafn ókunnugt, sem almenningi—, þá kemur fyrst til etjórnarinnar kasta, að íhuga það atriði málsins, er rannsókninni er lokið Irá fijiklandi. fjioldán sviptur völdum. Eptir hryðjuverkin, dráp dómsmála- ráðherra o. fl., sem „Þjóðv.u hefir getið um, söfnuðu Ung-Tyrkir herliði úr ýms- um héruðum ríkisins, og hófu síðan um- sát um höfuðborgina, Konstantinbpel. Lauk svo, að því er símskeyti herma 27. apríl, að herlið soldáns varð loke að gefast upp. Mannfall kvað hafa orðið mikið. Soldán rekinn frá ríkisstjórn 27. apríl. Eptir aðfarir soldáns, og ýmsa klæki hans, fyr og síðar, mega öllum þykja tíð- indi þessi góð. hoiG-tilboðið. —O — Eptir útkomu síðasta nr. blaðs vors, lagði meiri hluti samgöngumálanefndar- innar það til, að frumvarpinu yrði breytt þannig, að 1. gr. þess væri orðuð svo: Landstjórninni veitist hoimild til að setja á stofn hlutafélag til að annast einskipaferðir landsins og verja til þess allt að 500 þús. kr., með þeim skilyrðum, seui bér fara á eptir: a. Hlutafé félagsins sé minnst. 800 þús. kr., en fari eigi fram úr 900 þús. kr. b. Hlutir landssjóðs skulu vera forgöngublutir, sem gefa 4°/n á undan öðrum og eigi má skerða fyr en þorrið er annað fé félagsins. c. Núverandi hlutböfum „Thore“-félagsin8 gefst forkaupsréttur að almennu hlutunum, 300 þús. kr. d. Félagið skal að minnsta kosti hafa fjögur hentug skip til að fara milli landa og tvo strandferðabáta. Kælirúm skulu vera í ekki færri en tveimur hinna fyrnefndu skipa. e. Landssjóður á rétt til að kaupa almennu hlutina fyrir ákvæðisverð hv6nær sem er. f. í lögum félagsins skulu vera öll þau ákvæði, sem nauðsynleg eru til þess, að tryggja rétt landssjóðs um forgönguhlutina. Ráðherra var dú og ætlað að starfa lauDalau9t í stjórn félagsios. Eíds og getið var í siðasta nr. blaðs vors, var málið sótt af miklu kappi, enda þótti kynlega við bregða, er tveir þing- menn, sem kunnugt var um, að málinu voru andvígir, hurfu af þingfundi, og tóku því eigi þátt í atkvæðagreiðslunni. Að lokum var með 12 atkv. gegn 11 samþykkt svo látaudi rökstudd dagskrá, er Skúli Thoroddaen bar fram: I trausti til þess, að landstjórnin afli sér glöggra skýrslna þekkingarfróðra manna um allt er að oimskipaútgerð lýtur,. som og um óskir landsmanna, að þvi or milli-landa- og strandferðir snertir, og leggi fyrir nœsta al- þingi, ásamt tillögum sínum um málið, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskránni. Atkvæðagreið9lan kom mjög flatt upp á fylgismenn málsins, en vel fór, sem fór að þessu sinni.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.