Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.08.1909, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.08.1909, Page 3
XXIII., 38. Þjóðviljinn. 151 ríkissjóðsstyrfeinn allan og 5000 kr, frá íslandi, en Thorefélagið hinar 55000 kr., sem þá er eptir af fjárupphæð þeirri, er veitt var á fjarlögunum í þessu skyni. Þá kvað og Thorefélagið balda áfram ferðum símum umfram þær ferðir sem áskildar eru i samningi þessum. Styrkur. Landsstjórnin hefir veitt Ungmennafélagi Reyk.javíkur og ungmeyjafélaginu „Iðunn“ 225 kr. til skógræktunar af vöxtunum af styrktar- sjóði Priðriks konungs VIII. Fiskveiðafélag sænskt hefir sótt um 12000 kr. styrk úr rík- isjóði til þess að setja frvstivél í botnvörpung, er það gerir út til fiskveiða hér við land. Botn- vörpungur þessi heitir Island og á félagið heima i’Gautaborg. Biskup kom heim úr vísitazíuferð sinni i vikunni sem leið með „Ingólfi“ frá Borgarnesi. Trúimiladeilan vestan-iial's. Svo sem áður hefir verið frá skýrt hór i blaðinu, var sá endir á kirkjuþingi Vestur-ís- lendinga, að minni hlutinn gekk af því, nú hafa tveir söfnuðir þegar sagt sig úr kirkju- félaginu, annar en Tjaldbúðar-söfnuðurinn í "Winnipeg, söfnuður síra Friðriks Bergmann, og var úrsögnin þar samþykkt i nær einu hljóði hinn er Garðarssöfnuður sem síra Friðrik Berg- œann var prestur hjá áður fyr, þar var úrsögn- in samþykkt með, 115 atkv. 72, og hefir sá minnihluti þegar stofnað söfnuð. Prestur Garð- arsafnaðar, síra Kristinn Ólafsson, ermjögfylgj- andi meiri hlutanum, og sagði söfnuðinum þeg- ar upp þjónustu sinni, er úrsögnin hafði verið samþykkt. íslonzkt smjör. „ísafold“ birtir skýrslu frá P. V. Faber & Co. í Newcastle um sölu á íslenzku smjöri, þar sem segir að smjör það, er þeir hafi síðast fengið, hafi verið mjög misjafnt að gæðum, er muni stafa af því, hve langt líður frá því smjörið er tilreitt og þar til þaðkemurámarkaðinn, enda hafi smjörið verið gott þegar frá eru talin elztu ílátin, og selst á skömmum tima. Verðið misjafnt eptir gæðum, beztu tegund seldist á skipsfjöl á 83— 86 kr. Mestur hluti smjörsins hafði þó verið bezta tegundar, að endingu segir í skýrslunni: „Markaðurinn hefir verið daufur, en sýnist nú vera að batna, og osss virðist sem smjörið muni nú fara að hækka í verði. Dr. Knnd Berlin. kvað eiga að halda fyrirlestur um réttarstöðu íslands og kröfur íslendinga á námskeiði sem blaðamannafélagið danska lætur halda fyrir blaðamenn. Brunabðtarvirðinguna á safnahúsinu samþykkti bæjarstjórnin á fundi 5. þ. m. Húsið er virt á 195.984 kr. Grasmaðkii r hefir gjört viða mikinn skaða í vor og sumar. Kvað einna mest af þessum skemmdum i Gnúp- verjahreppi ofanverðum, Landmannasveit, ofan- verðum Kangárvöllum, og svo í Skaptártung- unni, Siðunni og Fljótshverfi { Vestur-Skapta- fellssýslu. Mest hefir borið á þessum maðki og eyði- leggingu hans á vallendi og heiðarlendi. Búfjár- hagar i Skaptártungunni víða hálf eyðiiagðir. — Einnig hefir maðkurinn farið í túnin sumstaðar og valdið miklu tjóni t. d. í Hvammi á Landi, Geirlandi og Mörk á Siðu, og víðar — Sagt er og, að á einum bæ, Finnstungu í Húnavatns- sýslu, hafi maðkur skemmt túnið. „Freyr“. Síldarafli befir verið góður i nætur á Austfjörðum. Fá- skrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði, en norðan- lands lakari, þó er reknetaaflinn í meðallagi, en mjög misjafn að því er þau skip snertir, er nota hringnætur, og að öllu samanlögðu er aflinn töluvert minni þar nú, en í fyrra sumar. Drukknun. Maður Friðrik Helgason að nafni, drukknaði seint i júlímánuði i vatninu í Ólafsfirði. Var hann að baða sig ásamt 2 öðrum mönnum, voru þeir ósyndir, en hann kunni lítið eitt að synda, en þegar hann hafði tekið nokkur sundtök, sökk hann, og kom eigi upp aptur, en líkið náðist. Látnir. 22. júlí andaðist á Suðureyri við Súgandafjörð bóndinn þar, Kristján Albertsson. Kristján heit- inn veitti og verzlun forstöðu jafn framt búskapn- um, enda var hann hinn mesti dugnaðar- og merkismaður. Þá lézt og 26. s. m. að Botni í Súgandafirði, Halldór Halldórsson, er lengi bjó að Hóli í Ön- undarfirði. Hann var um áttrætt. Sundpróf var haldið í Reykjarnesi við ísafjarðardjúp sunnudaginn 1. ágúst, fljótastur varð Daniel Benediktsson frá Valþjófsdal í Önundarfirði; hann synti 20 faðma á 36 sek. Alls hafa milli 30 og 40 drengir verið þar við sundnám í sumar. Slys. í ísafjarðarkaupstað vildi það slys til 2. þ. m., að drengur á þriðja ári, sonur hjónanna Páls Jósúasonar, skipstjóra og Arnfríðar Þorkelsdótt- ur, er var að vaða í fjörumálinu datt i sjóinn og með því vindur stóð af landi harst drengur- inn svo sem 20 faðma frá landi, áður menn tóku eptir því, var þegar skotið út báti og náðist drengurinn, en var þá dáinn, og reyndust allar lifgunartillraunir árangurslausar. 48 Mennirnir fóru að hlægja, og Muhamed fór að hæða hann 'á á ýmsar lundir, „Lítið áM, mælti hann. „Þetta á^að”heita karlmaður! Litið á! Hann hefir skegg, og er þó ekki stærri, en barn, og ekki hærri en riffillinn minn“. Maðurinn var sem sé smávaxinn, og þó eigi dreng- ur; en mun minni vexti en vér Zanagar erum. Muhamed hélt áfram að hæðast að honum ýtti öðru hvoru við honum með spjóti sínu, og hló, er hann valt um koll. Að lokum lá maðurinn grafkyrr, þó að hann væri stunginn til blóðs, unz Múhamed beygði sig ofan að honum, til að ná af honum pokanum. Þá spratt hann upp, aem elding, þreif hnífinn, er fyr var getið, og hefði rekið hann í Muhamed, inn á milli rifbeinanna, ef einn hinna befði eigi stjakað við honum fæti, svo hann datt. Hnífurinn var nú hrisstur úr höndinni á honum, hann bundinn, og settur á bak hestinum, er Muhamed reið, fyrir aptan hann. Menn riðu nú heimleiðis, gegnum eyðimörkina, og göbbuðu hann á leiðinni, og hæddu á ýmsar lundir. Muhamed, er fengið hafði óbeit á honum þegar í byrjuD, hvatti hest sinn sporum, í von um, að hinn dytti þá af baki, er hesturinn kæmist á stökk, og molaðist í honum hvert bein; en ókunni maðurinn sat þá sem fastast. Muhamed ýtti og olnbogunum aptur fyrir sig, til að hrinda honum á þann hátt af hestbaki, og reyndi enn fremur að særa hann með sporum sínum. En ókunni maðurinn hékk þó enn á hestsbaki, er reykinn frá tjaldstöðunum sást leggja milli Argan-trjánna. 45 hverju sinni, er vér á næturþeli sátum í kringum bál, er kynnt var, þar sem tjaldað var yfir nóttina. Jeg átti þá heirna í Suður-Marocoo, og þarf þess eigi að geta, hvernig stóð á veru minni þar. Einn dag höfðum vér riðið frá E1 Dara, sem var nokkrar milur burtu. Yér höfðum riðið yfir sandinn, í brennandi sólarhita og er vér höfðum tjaldað, og bundið hestana, og snætt kvöldverð, vindþurkað kindaket o. fl., ásamt geitamjólk og kaffi, lögðumst vér á ferða-ábreiður vorar, sem voru úr úlfaldaskinni, kveiktum í pípunum okkar, og eyddum tímanum í aðgerðarleysis móki. Selím el Albar Já reykjandi, fyrir framan mig, og sást að eins á hálft andlitið. Selím var fríður sínum, og bezti fylgdarmaður milli Tarfilet og Mogador, gæddur beztu hæfileikum, sem hjá íbúum eyðimerkurinnar, er til hans þjóðflokks teljast, eru til. Jeg sat, þreyttur og syfjaður, og horfði á bálköstinn Fylgdarmaður minn sat grafkyrr, og þegjandi, og heyrðist ekkert, nema sog hljóðið i pípunni. Allt í einu tók hann pípuna út úr sér, lypti upp höfðinu, og hlustaði með athygli „Hvað heyrirðu, Selim“ spurði jeg, og iitaðist um. „Mér heyrist eg heyra jó-dynM, mælti hann lágt. Jeg 8ettist upp. „Það er líklega þytur vindsins í Argan-trjánumu, mælti jeg. Hann hrissti höfuðið. „Nei, það var jó-dynur, sem eg heyrðiM, mælti Selim. «Nú heyrist hann apturM. Jeg hlustaði, og hélt fram fyrri skoðun minni. Hann lagði pípuna frá sér. „ímyndarðu þérM niælti

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.