Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.08.1909, Síða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.08.1909, Síða 4
152 Þjóðvijlinn. XXIII., 38. s s. iniHIIIIIIIIIHIIIIIIRIIIIinilHIIIIIIIIIIIHIiIIIHIU Otto Monsteds danska smjöriíki erbezt. Biðjið kaupœannÍDn yðar ura þessi merki: ,Sóleys ,Ingólfurs , 11 e k 1 Ji> eða ,ísafol d6. s AGENTER seges af et ferste Klasses sferre gammelt anerkendt Firma. Billigste Priser, stor G-aranti, stor Fortjeneste. Yi soger som Agenter Lærere, Haandværkere og Folk med stor Person- bekendtskaber. Billet mrk. Agenter modtager William Vangedál Colbjernsensgade 7 Kjeb- enhavn B. Þjóðhátíð héldu Austfirðingar á Seyðisfirði á sunnudag- inn var. REYKJAYÍK 18. ágúst 1909. Tfðin. Nú um helgina siðustu hreyttist veðr- áttan aptur til batnaðar og hefir verið bezta veð- ur síðustu dagana, hægviðri, sólskin og hiti. s/s „Sterling11 kom frá útiöndum 14. þ. m., að morgni, með marga farþegja, þar á meðal: Björn Kristjánsson, kaupmaður, Georg Ólafsson, cand. polyt., Jakoh Appel, lýðháskólastjóri frá Askov, Chr. Ericksen, stofnandi Hjálpræðishers- ins hér á íslandi, Páil Zophoníasson, búfræðis- kandidat, konsúJsfrú Brillouin, frú Kristjana Thorsteinsson, og margt þýzkra og enskra ferða- manna, þar á meðal 4 prófessorar frá Wiirtem- berg. s/s „Flora“ kom hingað til Reykjavikur 14. þ. m. norðan um land frá útlöndum (Noregi), meðal farþegja: Guðmundur Magnússon, docent, með frú og fósturdóttur, E. Schou, bankastjóri, Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri, og Sturla Jóns- son, kaupmaður. Fimleikamaður, 0. Scháfer að nafni, er ný kominn hingað, og sýndi hann iþróttir sínar í „Bárubúð11 á sunnudagskvöldið. s/s „Skálholt11 kom úr strandferð 12. þ. m. j að morgni. s/s „Vesta11 kom frá útlöndum norðan og vestan um land 14. þ. m., og fór hún til út- landa 16. þ. m. Með henni föru meðal annara: stúdentarnir Jakob Jóhannesson, Skúli S. Thor- oddsen og Þórarinn Kristjánsson. Lanöakoisslídlinn byrjar 15. September. Foreldrar barna á skólaskyldu-aldri, sem óska að láta börn sín ganga í nefndan skóla, þurfa ekki að sækja um undanþágu til skólanefndar Reykjavíkur, en eru vinsamlega beðnir að gefa sig frarn fyrir 1. September við undirritaðan eða Systurnar í Landakots- spítala. f. fervaes. Prentsmiðja Þjóðviljans. 46 hann, all-óþolinmóður, „að jeg, Selim Hassansson, getiekki gert greinarmun á þessu tvennu. — En mér er ílla við, að heyra þetta, því það er „Englendingurinn vitlausi“, serr nú er á ferðinni á næturþeli, enda réð eg Effend frá því, að tjalda hérna, og keimskur var jeg, að láta þá fá mig til þess, að tjalda svona nálægt ánni, og það rétt hjá þeim stað, þar sem hann sézt optast á reið.“ „Heyrðu Selim“, mælti jeg. „Jeg hefi heyrt mikið hljóðskraí um þenna mann, sem þú kallar „vitlausa Eng- lendinginn“. Segðu mér það, sem þú veizt um hann vitirðu á annað borð nokkuð“. „Viti eg nokkuð? Jeg Selim Hassansson, hvort eg viti nokkuð? Afi minn sá hann, eigin auguin, er hann var drengur, og sá hvað hann aðhafðist, er Ibrahim var höfðingi Zanaga-þjóðflokksins“. En þó að hann gerði það, sem eigi hafði áður bor- ið við í þessu landiu, mælti Selim enn fremur, „og sem eg alls eigi hafði lagt neinn trúnað á, hefði eg eigi heyrt Hassan, föður minn, segja sjálfan frá því; enda þótt mér óljúft, að skýra frá þvi, liversu hann, vantrúarmaðurinn, hæddi syni rett-trúaðra á hvert reipi, skal eg þó segja yður sögu „vitlausa Englendingsins“, fyrst þér mælist til þess “ „Hver hann var, hvaðan hann kom. eg hvert hann fór, veit eg ekki“, hélt Selim áfram máli sínu. „Jeg veit það eitt, að hóthljóð hestsins hans, heyrast enn á eyði- mörkinni, þó að einskis dauðlegs manns augu hafi séð hann, síðan hann hvarf. í þá tíð, áttum vór opt í ófriði við nábúa vora, þvi að Zanagar voru hneigðari fyrir ófrið., n akuryrkju; en nú eru bágir tímar, og þjóðflokkur vor farinn að leggja 47 stund á kvikfjárrækt, og kornyrkju, eins og íbúarnir í Taradunt, og jeg Selim, verð að hafa ofan af fyrir mér sem fylgdarmaður um eyðimörkina, þó að í æðum mér renni blóð hermannsins Hassan’s, og jafn vel blóð Hamel el Mansurs. — En þetta er guðsvilji! En svo að eg hverfi að sögunni, bar svo við í gamla daga, að hópur, sem fór um landið — Muhamed el Albar var fyrirliði hans; en það nafn þýðir: „hinn mikli“ — rakst á mann þenna, er gerði Zanaga-þjóðflokkinuin mestu háðung, rakst á hann hjá ánni, er þeir vötnuðu hestum sínum þar. Hann lá, og svaf, og hafði höfuðið þar, sem einir- berjakjarr veitti því forsælu. Hann var ræfilslega til fara, hálf-nakinn, og b’er- fættur eins og beiningamaður frá Mogador. Hann var og blóðrisa, og magur, eins og hann hefði eigi bragðað mat í marga daga. En þó hann væri að dauða kominn, og gæti varla staðið á fótunum, þá hélt hann þó dauðahaldi, þótt ótrú- legt megi þykja, i poka, með grjóti í, er hann hafði á bakinu. Annað hafði hann eigi meðferðis, nema stóran hníf, er hann hafði stungið undir mittisbelti sitt. Hann var í fasta svefni, og heyrði hvorki til mann- anna, né jó-duuinn. Hann hreyfði sig eigi, nó bærði neitt á sór, fyr en hópurinn hafði skipað sér umhverfis hann. Muhamed ýtti við honum raeð spjótinu sínu, og deplaði hann þá augunum, þreif í pokann sinn, og skreidd- ist á löpp, en valt þó jafo harðan um aptur, því að fæt- urnir voru, sem á nýfæddum kiðlingi.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.