Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.11.1909, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.11.1909, Page 3
XXIII, 52.-5.8 Þjóðviljinn 207 vaningsleg og lítils verð, eins og barna- fitl. Viðeyjarstofan tnun vera eízta hús, eem uppi steudur, en hún var reist á miðri 18. öld. Af mannvirkium fyrri tíma manna er ekkert eptir, annað en bjagaðar steinaraðir niðri í moldinni. Eng- inn veit, hvar Vífill reisti bú í Vífils- staðalandi fyrir þúsuDd árum. Frá land- námstíð er ekkert mannvirki til, er nái upp úr grasrótinni. Erum við föðurbetruDgar? Skyldu mörg okkar mannvirki geta staðizt tim- ans tönn í þúsund ár? Við vitum vel hvað verða mun; áður en þessi nýrunna öld er liðinn á enda, verða öll torfhúsin okkar fallin og ekk- ert eptir af timburhúsunum nema þá fá- einir kumbaldar, grautfúnir, skakkir og skældir, okkur til skammar. Og þessi fáu steinhús, sem til efu — þau kunnu að geta staðið af sér eina eða tvær aldir sum þeirra, ef vel lætur. En að 500 árum liðnum, eða 1000 ár- um liðnum — hvað verður þá eptir? Jeg veit eitt hús og ekki nema eitt, sem vænta má, að geti staðið í 1000 ár. Við höldum í dag upprisuhátíð hússins, upprisuhátíð heilsuhælisins á Vifilsstöðum. Jafntraust hús hefir aldrei verið reist hér á landi; það stendur á klöpp og er allt ein klöpp, í hólf og gólf, eiu steinstorka, svo trygg og traust, að henni er eflaust óhætt í þúsund ár, ef jörðin skekur hana ekki af sér, eða niðiar okkar hætta að unna henni sóma og viðhalds. Við metum hverja kynslóð þjóðarinn- ar eptir því, hvað hún hefir unnið og af- rekað til sóma, eða skammar, fyrir sjálfa i sig, til heiila, eða tjóns, fyrir niðja sína. Þegar aldir líða og við verðum lagðir á metin, mun það akki bregðast, að okk- ur, þessari aldamóta-kynslóð, verður talið til gildis, og má vera það mest til gildis, að við höfum reist þetta heilsuhæli. En það mun ekki verða talinn mestur sóm- inn, að húsið er traust, heidur hitt, að j íslenzk alþýða réðist í þetta þrekvirki af frjálsum vilja án lagaboðs, af heitri og einlægri ást á ættjörð sinni og viturlegri fyrirhyggju og uroönnuD fyrir komandi kynslóðum. Við höfum að undanförnu hugsað og talað ósköpin öll um alls konar réttindi, bæði þjóðarréttindi og réttindi hvers manns, karls og konu í þjóðfélaginu. Við höfum sjaldan minnst á skyldurn- ar — því miður. Beztu menn þjóðfélagsins eru ekki ! beir sem rnest hugsa um réttindi sín. Beztu menn hverrar þjóðar eru þeir, ; sem mest hugsa um skyldur sínar við þjóðfélagið. Heilsuhælið er einn hinn fegursti af- springur íslenzkrar ættjarðarástar. En margir spá því, að hann muni visna og deyja. Þess vegna er heilsuhælið hættulegt tiltæki, afar-hættulegt. Hvers vegna? Af því að allar framtíðarvonir hvers íslenzks manns spretta upp af þeirri trú og sannfæringu, að þjóðin í heild sinni | elski ættjörð sína. ------v- ~ ----- ----------f En ef það sannast, að alþýða manna fæst ekki til að leggja neitt i sölurnar af frjálsum vilja landinu til viðreisnar, jafn vel ekki svo tnikið, að nemi árlega 2 kr. á hvert heimili á landinu, — ef þetta sann- ast, þá er hætt við að margir missi trúna á framtíð landsins. Sú þjóð sem ekki elskar land sitt, á sér enga framtíðarvon, en ástina jverður að sína í verkunum, engu síður en trúna. Þess vegna er þetta mál mjög alvar- legt íhugunarefni fyrir íslenzku þjóðina. Heilsuhælið er eins konar eldraun ís- lenzkrar þjóðar, þeirrar kynslóðar sem nú er uppi. Vér treystum því, að ættjarðarást þjóð- arinnar standist þessa eldraun. 18. dag nóvembermánaðar 1906 var heilsuhælisfélagið stofnað. 3 ár eru liðin. Nú er aptur 13. nóv- ember,og nú er heilsuhælið komið und- ir þak. Farnist því vel — Þessu veglega minnismerki núiifandi kynslóðar; standi það heilt á hófi öld eptir öld í þúsund ár, verði það jafnan athvarf þeirra sem sjúkir og bágstaddir eru, gefi það gæfan að húsið standi óhaggað 13. nóv. 2909 og þá verði uppi íslenzkir menn, okkar niðj- ar, er minnst geti raeð fögnuði umliðinna alda, en ekki með barmi, eins og við hljótum að gera. Sú er okkar ósk. Það er drengileg ósk. Við vitum að það er ósk allrar þjóð- arinnar. Lifum því og störfum í þeirri von, að hún rætist. 43 Með sjálfum sér vildi hann þó alls ekki við þetta kannaet“. Á hinD bóginn duldist honum þó eigi, að hann var orðinn töluvert bjartsýnni, en hann hafði verið. Ea nú heyrði hann, að Bertie var á ferðinni, og lagði því trá sér myndina. „Er Márehesa farin?“ mælti hann. „Svo var um talað, að við hittumst hér. —- En hún kemur þá liklega bráðum!“ Rétt á eptir kom unga stúlkan aptur, og Prescott setti þá mynd hennar á vinnuborð sitt. Hún starði á myndina, mjög hrifin. „llún er ágæt!“ mælti hún, „eða svo virðist mér“. „Sýnist yður það?“ mælti Prescott, fremur stuttur i spuna. „En er myndin nú eigi laglegri, en jeg er?“ mælti hún enn fremur. „Nei, það er hún ekki!“ mælti hann. „í rauD og veru eruð þér miklu fegri, en eg hefi getað gert, yður á myndinnni“. Roðinn læddist fram í kinnar henni; og hún leit hann þeiin augum, er eigi lýstu að eins þakklátsemi held- tir og enn æðri tilfinningu, sem^Preseott áttaði sig þegar fyllilega ó, og svaraði á svipaðan hátt. „Standið augnablik í sörou sporum, sem nú!“ mælti Proscott. Hún hlýddi, og hélt hann þá áfrm að 'mála, og var sem hena veitti henni þá alls enga eptirtekt. Unga stúlkan fór nú að svipast uHg. í herberginu, og virti fyrir sér ýmsa menjagripi, sem þar voru inni. En allt í einu rak hún upp dálítið vein. 32 Schatherton hrökk aptur á bak, en um seinan, með því að járnklumpurinn féll ofan á öxlina á honum. Hann hafði frelsað líf manns þess, er hann vildi myrða, en fallið í sina eigin gildru. Sagan má nú heita á enda. Læknarnir gáfu honum þegar litla von um‘ að lífi hans yrði borgið. Hann raknaði að vísu við til meðvitundar, en mælt- ist til þess, að enginn ætti tal við sig. Eptír þungbærar þjáuingar í viku, losaði dauðinn haon að lokum úr hinum jarðneska harmadal. Spádómurinn, er stóð í sambandi við „Khorbeyan“- gimsteininn hafði rætzt. Hálfum mánuði eptir fráfall Sehatherton’s var Teward lagður af stáð til Teheran, og hafði gimsteininn með sér Gimstein, sem í hans augum var margfalt dýrmæt- ari, átti hann í vændum, er hann kæmi heim aptur. —

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.