Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.12.1909, Síða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 03.12.1909, Síða 4
216 ÞjÓÐYIIíJINN. XKIII., 54 -55 daglega starfað í honum í augsýn viðskipta- vina hans og þeir hafa verið allur almenn- ingur. Þó viljum vér hér með gera nokkra grein fyrir, hvernig störfum okkar við bankann heíir verið háttað. Eptir lögunum annast framkværndar- stjóri dagleg störf bankans og stýrirþeim undir umsjón gæzlustjóranna og með að- stoð þeirra. I sambandí við þetta stend- ur ákvæði reglugjörðarinnar (8 gr.) um, að bankastjórarnir átkljái í sameiningu, þau málefni, sem varða bankann. Þetta ákvæði hefir jafnan verið skilið svo og verður eigi skilið öðru vísi en svo, að hér sé að ræða um önnur störf en hin daglegu störf bankans, sem eru útlán, víxlakaup o. s. frv. Málefni þau, sem 8. gr. ræðir um, eru almenn ákvæði ura störf bankans, svo sem ákvarðanir um hversu mikið megi gera að iáaa n á h /erj um tíma, ákvaðning innláns- og útláns- vaxta og discontoar, kaup og sala verð- bréfa í stærri stíl, fasteignakaup og afsal, lántökur bankans, ákvæði um skulda- innheimtur, form skuldabrófa, ráðning starfsmannna o. m. fl. Þessum málefnum hefir ætíð verið ráðið til lykta á sórstökum fundum, er við höfum verið kallaðir til af framkvæmd- arstjóra, og höfum við vissulaga ekkí að forfallalausu vanrækt fundi þessa. Þeir hafa allajafna verið haldnir kl. ðjsíðd. Enn fremur hafa á tundum þessum verið teknar ákvarðanir um, hvað mikið skyldi lána út á virðingaverð veðs, eptir því hvað veðið væri og hvar það væri. Við hin daglegu störf, er framkvæmd- arstjóra einum ber að annast og stýra, höfum við ekki að eins aðstoðað hann, er hann hefir óskað þess, heldur hefir það einnig verið samkomulag milli fram- kvæmdarstjóra og okkar, að hann fylgdi þeirri reglu að veita ekki stærri lán til langs tíma, án þess að bera það undir að minnsta ko9ti annan hvorn okkar. Tii þess að geta aðstoðað framkvæmd- aratjóra í þessu efni þanniir, að viðskipta- menn bomkans þyrftu ekki að bíða baga af þ/í, að annar gæzlustjórinn, sá er lán- veitingu væri samþykkur ásamt fram- kvæmdarstjóra, væri eigi viðstaddur, þá höfum við jafnaðarlega báðir verið við- staddir á afgreiðslutímanum eina klukku- stund á dag og opt lengur. Með því höfum við gert meira en oss var skylt samkv. reglugjörð bankans, sem að eins heimtar að annar gæzlustjóranna sé bar viðstaddur í senn. En við þetta höfum við átt kost á að hafa fullkomn- ara og áhrifameira eptirlit með lánveit- ingum bankans en annars. Hvað saertir vixiakaup, smærri lán- veitingar og lán til skamms tíma, sem framkvæmdarstjóri hefir ekki leitað að- stoðar okkar við, höfum við haft eptirlit með þeim, með því að yfirfara bækur bankans á eptir. Að því er snertir bókfærsluna í bank- anum, höfum við haft eptirlit með henni, að hún væri fulltryggileg og greinileg að forminu til. En með því að eptirlit með starfsmönnum bankans er sérstaklega fal- ið framkvæmdarstjóra, þá höfum við ekki látið það til vor taka nema endur og eins. Að svo miklu leyti, sem ásakanir þær er okkur eru bornar á brýn, standa í sam- bandi við bankarannsókoina, sem staðið hefir yfir síðan næstliðið vor, þá viljum við skýra frá þeim atriðum, sem nefndin hefir óskað upplýsinga okkar um. Rannsóknarnefndin lét á sér skilja, að heimild skorti til þes3 að veðsetja verð- bréf tilheyrandi bankanum fyrir lini haada honum. En þetta er ekki rétt, því að bankastjórnin befir ekki að eins fulla heim- ild tii að veðsetja verðbréf fyrir láni, held- ur einnig að selja þau. Rannsóknarnefndin hefir fundið mjög að því, að skriflegar skipanir um kaup og svo kallaðar framlengingar á ýmsum víxlum hafi vantað. Hór til er því að svara, að framkvæmdarstjóri hefir stund- um gefið skipun munnlega, þótt hitt hafi verið það venjulega, og hefir hann fuila heimild til þess. Rannsóknarnefndin hefir einnig fund- ið að því, að registur yfir sjálfskuldará- byrgðir manna hafi ekki verið haldið upp á síðkastið. Þar til er því að svara, að þótt það væri tekið upp um tíma að halda registur þetta, þá kom það ekki að þeim notum, sem við höfðum gert okkur von- ir um, og þótti okkur þv>' ekki svo áríð- andi að halda registri þessu áfram, að okkur þætti tilvinnandi að bæta manni við fyrir þá skuld. Rannsóknarnefndin hefir enn frernur látið á sór skilja, að eptir hennar áliti 45 „Þér eruð mjög brjóstgóður maður“, mælti hún lágt. „Vist er það“, svaraði hann stuttlega, en stóð síðan upp, beygði sig ofan að henni, og rnælti: „Jeg var hrædd- ur um að þér mynduð deyja! En eg elska yður!“ Blóðið sté fram í kinDarnar á henni, og hún hnó niður í stóran stól, all-einkennilegan, sem áður hafði ver- ið í dómhúsi nokkru í Venedig. „Jeg elska yður, Maríetta!“ mælti Prescott aptur. „Fyrirgefið, að eg veit ekki, hvort þér heitið nokkuð ann- að; en það nafn er grafið|í hjarta mér! En jeg veit vel, að jeg er heimskingi! En hvað, sem því líður, elska jeg yðnr!“ „Jeg er blásnauður maður“, mælti hann enn fremur, „og mér er það því ljóst, hver dirfska það er, að biðja yður, að taka þátt í fátækt minni! En ef til vill verður það þó eigi lakara, en að vera þar, sem þór eruð!“ „Frúin er mór mjög góð! Hún er brjóstgóð!“ mælti Maríetta mjög lágt, og all-niðurlút, en gaf honum þó hýrt auga. „Verra getur þó eigi hugsazt, en að lifa upp á henn- ar náð, og eiga allt undir brjóstgæðunum hennar“, mælti hann, enn fremur, „og þó að þér getið við það búið, vil eg þó biðja yður, að sýna greinda sjálfsafneitun, því að jeg elska yður, Maríetta“. „Annað get eg ekki sagt“, mælti hann enn fremur, „þó að jeg vildi segja meira. — Jeg er fátækur EDglend- ingur, og verð þó að dvelja hér í Venedig —; landið mitt er land auðuga fólksins — og þó get eg að eins boðið yður það sem þór vitið!“ Um leið og hann mælti þetta, leit hann kringum sig í stofunni* sem hann vann í, og var þar miður þrifalegt. 54 „Það var sem eg sagði“, mælti hann all-hróðugur. „Lefranc hefir eigi orðið þess áskynja, að neinn hafi komið“. „Það er mjög sennilegt“, svaraði Englendingurinn þurrlega. „Kln hvaðan kemur hringurinn, sem liggur þarna á borðinu?“ Roland — svo hót húsráðandinn — hrökk við, og skein út úr honum hræðslan. — Hann jafnaði sig þó brátt, og svaraði: „Hvernig get eg vitað það? Eigið þér hann ekki?“ „Nei, jeg á hann ekki!“ svaraði Leagrave. Hann hafði reyndar einu sinni átt hann, en kom það mjög ó- vænt, að reka sig á hann í herbergi sínu, er hann var staddur í ókunDU landi. „Nei, jeg á hann ekki!“ mælti hann aptur, og rétti hann að húsráðanda. „Jeg snerti hann ekki“, svaraði húsráðandi. „Mór er ílla við fundna rnuni, sem enginn kannast við“. „En þér hljótið að kannast við hann, Roland!“ svar- aði Englendingurinn, all-alvarlega. Roland hristi höfuðið. „Jeg veit ekkert, hvernig á hringnum stendur, — alls ekkert, og snerti hann ekki“. Að svo mæltu flýtti hann sór út, svo að Leagrave varð einn eptir. Leagrave leit á hringinn, en kastaði honum brátt frá sér. Hann minntist þess, að hann hafði einu sinni átt hringinn. og mundi glöggt eptir, hvernig hann fargaði hoDum. . Það ýfðust upp gömul sár, og hann fór að ganga fram og aptur í herberginu.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.