Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.06.1910, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.06.1910, Blaðsíða 5
XXIV., 25.-26. J>JÓÐVILJiN K. 101 Lýsi. Verð á því er, sem hér segir: Xij’ost hákarlslysi á 82 kr., en dökkt á 28 kr. Þorskalysi, Ijóst á 31 kr., en dökkt á 27 kr., og meðala-lýsi á 65 kr. Verðið á lýsinu er miðað við 210 $>. Selskinn. Verðið 4 kr. fyrir hvert. Vorull. Horfur fremur góðar, að :því er sóð verður, þó að enn sé eigi auðið, að segja neitt ákveðið um verðið. — Æðardúnn selst á 12 kr. pd. — Útlendar vörur. Kaffi og sykur hefur hækkað i verði, og vonlítið um lækkun í bráð. Kornvara er á hinn bóginn eigi lík- legt, að í verði hækki. — Matreiösludeild kvennaskölans. 28. f. m. gafat bæjarbúum kostur á að sjá handtök og framreiðslu þeirra kvenna er stund- að böfðu hússtjórnarnám i kvennaskólanum síð- astl: vetur: Þar vorn dúkuð borð, alsettt ýmis konar köld- um kræsingum; í búri og eldhúsi unnu náms- naeyjarnar að ýmiskonar matargerð. Allur úthúnaður virtist þar vera fulikominn, og umgangur og framreiðsla hin ákjósaniegasta. Óskandi væri að skólinn hefði rýmra um höndur í fjárhagslegu tilliti; svo hann gæti íært svo út kviarnar að hann gæti haft auka nám- skeið í hússtjórn og matargerð að sumrinu, án þess að því fylgdi svo mikil útgjöld fyrir nem- endur, að ókleift væri fyrir efnalitlar konur að nota sór það. xJrV- Hciðurssamsæti. Heiðurssamsæti var hjónunum Lopti Oíslasyni á VatDsnesi í Arnessýslu og Margrcti Tdmasdóttur haldið 21. apríl þ. á: í minningu þess, að 9. des, síðastl. varð Loptur áttræður. Hann hefur verið bóndi i 52 ár, starfað mjög að jarðabótum, og þótti dugnaðarmaður. Samsætismenn gáfu Lopti silfurhúinn staf; er letrað var á nafn hans, aldur o. fl., og konu hans hrjóstnælu úr silfri. Fjiírskaðarnir i Norður-Múlasýslu, sem getið var í síðasta nr. blaðs vors, kvað hafa orðið öllu meiri, en þar er skýrt frá. Sagt, að alls hafi drepizt um 700 fjár í veðr- inu mikla, 7;—8. mai þ. á. Nýr livaiveiðabiitur. Nýjan bvalveiðagufubát hefur hr. Tl. Ellefsen hvalveiðamaður, látið smíða sér nýskeð. Nafn bátsins ei „Snorri11. Árstíðaskril heilsulnclisins. Grrein, er að ártíðaskrá heilsuhælisins laut, var nýslceð birt í blaði voru, og skal þess nú getið, að sú tilhögun, að geyma minningu láttinna ást- vina á þann hátt, sem ártíðaskrárgreinin gerir ráð fyrir, virðist munu fá góðan byr. í maímánuði síðastl. voru alls gefnar 33 minn- ingargjafir, og 20 látnir menn skrásettir. Gjafirnar hafa flestar numið 2—5 kr., nema ein 50 kr., og er upphæð þeirra samtals 219 kr. Landbúnaðarfélagið. Aðal-ársfundur þess var haldinn 10 maí þ. á: Á fundinum voru lagðir fram reikningar fé- lagsins fyrir árið 1909. Rætt var um stofnun kornforðabúra (til skepnu- fóðurs), og afskipti félagsins af þeim, en þó eng- in ályktun gerð. A fundinum skýrði og Emar garðyrkjumaður Helaason frá utanför sinni. Sýslunelnd Árnesinga lét síðastl. vetur safna skýrslum um það. hve margt fé vantað hefði af fjalli siðastl. haust, og kom þá í ljós, að vantað hafði alls um 1400 fjár. Hilskölapréf. Fyrri hluta háskólaprófs í lögfræði tók nýskeð í Kaupmannahöfn Skúli S. Thoroddsen, og hlaut fyrstu aðal-einkunn (53 stig). „Helgisiðabök11 er nafn nýju handbókarinnar, sem nú er ný- lega fullprentuð, og hagnýtt verður af prestum þjóðkirkjunnar, jafn skjótt er konungsstaðfesting er fengin. Ilurinulcgt slys. Þrjú hörn drukkna. 17. maí þ: á: vildi það sorglega slys til á Þor- brandsstöðum í Vopnafirði, að þrjú hörn bónd- ans, sem þar býr, og Þórður Þórðarson heitir, drukknuðu í krapa-hlá skammt frá bænum. Hið elzta barnanna kvað hafa verið 10—11 ára, og hin litlu yngri. JÞórður bóndi Þórðasson á Þorbrandsstöðum er bróðir sira Einars heitins Þdrðarsonar, alþm. Norðmýiinga. Heilsulieelið á Vifllsstöðum. Ráðskonu-starfið þar er nýlega veitt ungfrú Valgerði St.einsen, en yfirhjúkrunarkonan er dönsk, og heitir Karen Christensen. Húsbruni. 3. júní síðastl. brann íbúðarhús að Stóra-Hofi i Rangái vallasýslu, kviknaði út frá reykháfnum og hrann húsið til kaldra kola á rúmum tveim kl.stundum: Innanstokksmunum varð að mestu bjargað, sem og útbyggingum. Húsið var eign Guðm. bónda Þorhjörnssonar, er býr að Stór-Hofi, en þó jafnframt á jörðinni Hvoli. — En áður var húsið eign Einars sýslu- manns Benediktssonar. Húsið kvað hafa verið vátryggt í brunabóta- félaginu „Nordisk Branlforsikring11. Hafís. Nýlega befur fréttzt, að hafíshroði sé við vesfc- ur-kjálka landsins. 103 „Þetta á að gerast í Hnatri“, mælti jeg. 7,För- Qtn í nótt, og tekst okkur þá ef til vill, að sjá kon- Uua, og þegar við höfum sannfærzt um það, að hún sé geðveik, heimsækjum við hr. Harley, neyðum hanu, til að meðgangaw. 8. SEPTEMBER. Tilraun okkar mistókst. — Við Barstóne rerum til klaustursins, en gátum ekki fanð í land, með því að Jasper sat hjá þriðju eikinni, þar sem leynigöngin eru. Hann sat þar á stól, með reykjarpípu i munninum og vínflösku fyrir framan sig. Hann var þarna auðsjáanlega, sem vörður. — öet- ur verið, að frú Harley hafi verið venju fremur óstýrilát eða morðið hafi gert hr. Harley hræddan, svo að hann gæti þess nú vaudlega, að hún skreppi ekki út. En hversu sem þessu var háttað, þá sat nú Jasper þarna. Þetta sáum við úr bátnum, með því að glaða túngls- skin var, og jeg hafði tekið með mér sjónauka, sem betur fór því að ella hef?i Jasper líklega séð, hvert vér vorum að fara. Við urðum því að róa heim aptur. 0. SEPTEMBER. Jeg hitti Fay í morgun, og átt- við tal saman, og það um málefni, sem eigi eru þýðingarlítil. Jeg reri til klaustursins, með því að Barstone hafði öðrum störfum að sinna. Berði eg mér von um, að hitta Fay, og svo atvik- 96 En eignaði hr. Harly manni þessum morð sonar síns? Tresham þótti það.óskiljanlegt, því að Harley hafði óefað þótt vænt um son sinn, og hefði því orðið fyrstur manna, til að koma upp um glæpamanninn, nema — og það var aðal-atriði málsins — óþekkti maðurinn væri einhver, sem Harley sjálfs sin vegna varð að halda hlífi- skildi yfir. Þá var skiljanlegt, hvers vegna hann hafði eigi vísað lögreglumönnunum á kórhvelfinguna. Tresham þótti því sennilegt, að Harley, sjálfs sin vegna, þyrði eigi að hefna sonar síns. En hvað gat það verið í fortíð hr. Hariey’s, sem gat komið honum til þess, að veita morðingja húsaskjól? Sama kvöldið, sem Barstone og Gilbert, komust k enoðir um kórhvelfÍDguna, kom UDgfrú Carr frá útlöndum. Þar hafði hún frétt morð Feiixar, og brá sér rétt eptir heimkomuna á fund [Barstone’s, og bjóst við, að hitta hann oinan. Að Gilbert hafði verið eviptur keDnara-stöðunni, hatði hún eigi heyrt, og varð því mjög hissa, er Tres- ham skýrði henni frá því, hvernig á veru hans á heimili Barstone’s stæði. „Ekki spillir þetta", mælti hún. „Hér er jeg frjálsari“ „Heldur en í klaustrinu1*, mælti Gilbert, og lagði áherzlu á orðin. „Já! Munið þér, hvað við töluðum saman á dans- leiknum?“ „ímyndið þér yður, að eg hafi gleymt. því“, svaraði Gilbert. „Jeg hefi enga eyrð haft síðan, sakir forvitni“.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.