Alþýðublaðið - 12.03.1921, Qupperneq 1
Alþýðublaðið
öefið tlt aí Alþýðaflekknum.
1921
Laugtrdaghm 12. marz.
59 tölubl.
Hverju meg’in er g'erræðið?
Það er eðlilegt, að þeir útgerð-
armenn og heildsalar, sem halda
Morgunblaðinu út, láti það halda
fram skoðunum, sem þeir álíta
bezt fyrir þá sjálfa að haldið sé
að almenningi.
Það þarf þvf engan að íurða á
þvf, þó Morgunblaðið flytji ( gær
grein um verkbann togaraeigenda,
þar sem málinu er snúið við, og
það kallað gerreeði, að Alþbl.
skuli dyrfast að segja að það sé
rétt, sem allir viðurkenna, að tog-
araeigendur hafl tapað hinum sið-
ferðilega rétti sínum til togaranna,
ef þeir ætla að láta þá liggja við
land yflr hábjargræðistímann. En
það er svo sem ekki gerræði í
augum Morgunblaðsins af togara-
eigendum, að binda togarana vlð
!and. Blaðið segir að „ofbeldis og
yflrgangsandinn* ríki svo taum-
laust í Alþbl. að furðu sæti. En
það segir ekki eitt orð um þann
ofbeldis og yflrgangsanda sem út-
gerðarmenn eru haldnir af, að
ganga nú á samningana, sem þeir
eru nýbúnir að gera við sjómanna-
félagið og gilda til hausts. Slfkt
sætir engri íurðu hjá Morgunblað
inul Það telur upp, sem dæmi
upp á yflrgangsandann, fyrst það,
að taka skipin af eigendunum (þó
þeir haldi þeim ekki út yfir ver-
síðina og geri þar með tilraun til
þess að setja landið á höfuðið
og tilraun til þess að helsvelta
verklýðinn). Annað, að ekki skuii
eiga að borga eigendunum fyr en
cftir hentugleikum. Þriðja, að það
eigi ekki að meta skipin meira en
þau raunverulega eru virði nú
(hálfvirði kallar Mgbl. það). I
fjórða lagi kallar Mgbi. það dæmi
upp á ofbeldis og yflrgangsanda,
að irtlúð skuli eiga að standa
straum af útgerðinni. En ekki
verður séð á biaðinu hvort þetta
síðasta er ofbeldi gegn útgerðar-
mönnum eða rfldnu.
Þó þessi umgetna grein Morg-
unbiaðsins sé ekki löng, þá slær
samt út f fyrir greinarhöfundi, sem
auðsjáanlega er maður óvitrari en
S Þ. og er það þá sennilegaj B.
sem skrifar greinina. Greinarhöf
undur segir sem sé, að Alþbl.
vilji iáta „taka skipin fyrir sama
sem ekkert verð og skella öllu
tspi á rfkissjóð “ Hverskilur þetta?
Hvernig getur það orðið tap íyrir
rfkissjóð að taka skipin fyrir sama
sem ekkert verð? Eða er það tap
togaraeigenda, sem Mgbl. heldur
að Alþýðublaðið vilji koma á
ríkissjóð?
Morgunblaðið segir að það komi
aldrei fyrir, að togararnir verði
gnrðir að þjóðareign. En þvf er
það þá að skrifa á móti því? Það
skyldi nú vera, að það væri ekki
einmitt af þvf að Mgbl. sjái fyrir
að togararnir verði gerðir að
þjóðareign, að það í voa um að
geta taflð það eitthvað er að
skrifa á móti þvf? Er ekki senni-
legra að það sé einmitt af því,
að Mgbl. sé hrætt um að þetta
verði framkvæmt, að það skrifar
á móti? Jú, það er víst og áreið-
anlegt, og togaraeigendum og blaði
þeirra er óhætt að reiða sig á,
að þó það kunni að vera þeirra
hugsuu að togararnir verði bundn-
ir við hafnargarðinn til loka eða
lengur, nema kaup sjómanna sé
lækkað niður fyrir það sem þeir
geta lifað af, þá verða þeir það
varla út mánuðinn. Evs vilji þeir
komast hjá óþægindum í þetta
sinn, þá er þeim bezt að leysa
skipin sem fyrst, eins og ekkerí
hafl f skorist, halda samningana
sem þeir eru nýbúnir að gera, og
reyna að verða sér nú ekki aftur
til skammar til hausts.
Bragí: Fundur og æfing sunnu-
daginn kl, 10.
Alþingi.
(I fyrradag.)
Efrl deild.
Frvarp til laga um einkaleyfl
handa Háskóla Islands til útgáfw
almanaks var vísað til 2. umræðu.
Frumv. þetta er nýmæli og ekkert
athugavert við það, að málið nái
fram að ganga, en hér, eins og
oftar, er byrjað á afturendanum.
Og er bálf broslegt að háskóli,
sem hvorki hefir verkfræðilegít,
deild né hina minstu stjörnufræðis-
stöð, skuli eiga að gefa út alman-
ak og fá til þess einkaleyfi.
Neðxi deild.
Frum. til laga um breyting é
lögum um bæjarstjórn ísafjarðar
samþ. og afgr. til ed.
Frumv. til laga um sölu á land-
spildu, tilheyrandi Þingeyraklaust-
urs prestakalli, til Blönduóshrepps
vfsað til 2. umr. og landbúnaðar-
nefndar.
Framhaldsumræða enn um lacd-
helgisgæzlumálin. Ógetið var 3ja
ræðumanna frá því siðast, þeirra
Gunnars Sigurðssonar óg J’óar
Þorlákssonar. Að þessu sinni hóf
Bjarni frá Vogi máls Og töluðu
auk hans: Fjármálaráðherra, Há-
kon í Haga, Gunnar Sigurðsson,
Jón A. Jönsson, forsætisráðh.,
Pétur Ottesea, Jóa Þorlákssos,
Magnús Jónsson.
I gær voru engin merk mál á
dagskrá, nema komvörufrumvarp-
ið, sem afgreitt var frá þinginu
með rökstuddrt dagskrá og þar
með drepið.
Meirihluti þingmanna er mjög
éánægður með stjórnina, en senni-
lega fær hún þó að sitja ennþá,
vegna „dragstógs” þess, sem svo
oft ríkir meðal úrræðalausra smá-
raenna.