Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.10.1910, Page 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.10.1910, Page 6
194 ÞJÓBVILJISN. XXIV., 48.-49. kall, í Skagafirði, og fluttist þangað árið eptir, en að Undirfelli 1876, og gegndi hann þar prestsembætti í þrjátíu ár eða þar til hann árið 1906 flutti til Reykja- víkur. Hann var prófaetur í HúnavatDspróf- aetsdæmi 1885—1906, og rnátti teljast einn af atkvæðameiri prestum lands vors, að minnsta kosti síðustu prestskaparárÍD. TvíkvæDtur var hann. — Hét fyrri kona hans Guðlaug Eyjólfsdóttir, bónda Jónssonar á Gíslastöðum, og kvæntist hann henni 1859. — Missti hann hennar 28. april 1884. — Börn þeirra eru: 1. Einar, fyrrum ritstjóri, skáld. 2. Sigurður, ritstjóri og læknir á Akur- eyri. 3. Jósep, er prestur var að Breiðabólsstað á Skógarströnd (f 6. maí 1903). En seinni kona síra Hjörleifs, er nú lifir hann, var Björg Einarsdóttir, bónda á Mæliíellsá Hannessonar, og gekk hann að eiga hana árið eptir lát fyrri konu sinnar. Börn þeirra hjónanna eru: 1. Iryggvi Guttormur, námsmaður í al- menna menntaskólanum í Reykjavík. 2. Guðlaug, hjá móður sinnn Hann var bindindisfrömuður alf-inikiil, kom á íót kristilegu ungmennaféiagi í söfnuði sinum o. fl. Jarðarför Hjörleifs heitins Einssonar fór fram 22. þ. m. (okt.) Mannalát. 15. júlí 1910, dó á Næfranesi í Dýra- firði gamalmennið Elín Jónsdóttir, fædd á Svartbamri í Álptafirði 9. október 1822, var hún lengi vinnukona í Vigur hjá Kn'stjáni dannebrogsmanni Guðmunds syni og giptist þaðan Árna Jónssyni, voru þau i hjónabandi 36 ár, og voru lengi í Önundarfirði og Isafirði og dó Arni þar 30. marz 1891. Af 5 börnum þeirra «ru tvö á lífi: Jón, faðir Jóns Ágústs bónda á Vatnsleysu í Biskups tungum og Þór, sem jafann fylgdi móð ur sinoi allt til þess hún dó. Nokkru eptir það Elín varð ekkja, flutti hún frá ísafirði vestur í Dýrafjörð og dvaldi þar síðustu 14 ár æfinnar í skjóii barna sinna, alit til þess hún dó á 89. aldursári. Elín var þrekmikil og iðju kona meðan kraptar leifðu, hugprúð og þolinmóð í öllum mót gangi, ttúkons mikil og trygglynd, en glc.ðvær og skemmtin og kunni frá mörgu að segja frá sinni löngu lífsleið. 24. september 1910. Sighv. Gr. Borgfirðingur. f Að morgni 15. okt. þ. á. andaðist í Isafjarðarkaupstað frú Þórdís Jensdóttir, kona Þorvaldar prófasts Jónssonar á Isa- firði. Hún var fædd 3. júlí 1849, og voru foreldrar hennar: Jens rector Sigurðsson og Ólöf Björnsdóttir, Ghmnlaugssonar, yf- kennara. 3. sept. 1875 giptist hún eptirlifandi manni sinum, Þorvaldi prófasti Jónssyni á ísafirði. — Voru þau nokkur ár að Set- bergi í Snæfellsnessýslu, unz síra Þor- valdi var veitt Eyrarprestakall i Skutils- firði, og bjuggu þau jafnan síðan í Isa- fjarðarkaupstað. Af' fjórum börnum þeirra hjóna (tveim sonum og tveim dætrum) er nú að eins ein dóttir á lífi, Kristin að nafni, gipt Sigurjóni barnaskólaforstöðumanni Jóns- syni á Isafirði. f 28. sept. þ. á. andaðist enn fremur í Isafjarðarkaupstað Friðfinnur Kjœrnested, trésmiður, fæddur 7. des. 1828. Hann kvæntist árið 1857 Rannveigu Magnúsdóttur, Árnasonar í Þjóðólfstungu í Bolungarvík, og eru sex börn þeirra hjóna á lífi, þar af fjögur i Ameríku, en tvö hér á landi: Elías, bóndi í Þverdal í Aðalvík í Norður-Isafjarðarsýslu, Og Mikkalína, koDa Kristjáns húsmauns Jó haDnssonar á ísafirð'. Friðfinnur heitinn var smiður góður, greindur vel, og margt vel um hann. REYKJAVÍK 24. okt. 15)10 Tíðin hagstæð hér syðra að undanförnu, en þó rigningar og hvassviðri nokkru síðustudagana. G-límuskóla hefir glímufólagið „Armann“ á- formað, að halda hér í hænum í vetur, frá 1. nóv. til 15. apríl næstk. Þar verður kenut unglingum, 12—16 ára að aldri. og er gjaldið 1 kr. 50 a. fyrir hvern. 16 veitt því eptirtekt, áður en hann afhenti það þeim, er bar út bréfin. Það var farið með það úr pósthúsinu að kvöldi dags. Morguninn eptir — 4. dag júnímánaðar — heim- ■ótti dr. Lana ungfrú Morton, og áttu þau lengi tal saman. Veittu menn því þá eptirtekt, að hann var mjög æstur. En ungfrú Morton fór eigi út úr herberginu allan dagÍDn, og sá vinnukonan opt, að hún var að gráta. Seinna í vikunni varð það hljóðbært í þorpinu, að trúlofuDÍn væri búin að vera, að dr. Lana hefði farizt smánarlega við ungu stúlkuna, og að Arthur Morton, bróð- ur hennar, hefðu farizt orð í þá átt, að rétt væri, að láta svipuna jafna á hryggnum á honurn. Að hverju leyti lækninum hefði farist ílla við hana var mönnum ókunnugt, og gátu menn ýmist upp á hinu eða þessu. En vottur þótti það samvizkubits, að hann gekk fremur á sig margra kílómetra krók, en að ganga frara hjá gluggunum á Leigh-höfðÍDgjasetrinu. Hann var hættur að fara í kirkju á sunnudögum, enda gat hann vænzt þess, að hann rækist á hana þar Á hinn bóginn birtist augiýsing í blaðinu „Lancet“ þess efnis, að lækDÍr vildi selja réttinn, til að sinna lækn- isstörfum, sem hann hefði haft á hendi, og datt mönnum þá í hug Bishops Crossing, þó að nafn væri eigi nefnt, og að dr. Lana væri á förum, þótt vel hefði vegnað. Svona var málinu komið 21. júní. — En þágerðist sá atburður, er breytti þvi, sem til þessa eigi hafði farið út fyrir þorpið, í sorgarleik, serri vakti athygli allrar þjóðarinnar. 21 dyrnar, sáust spor eptir óhrein stígvél, sem að öllum lik- indun. stafaði frá morðingjanum. Það var vafalaust, að hann hafði farið inn um dyrnar á líkskurðarstofunni, dropið læknirinn, og flúið svo, án þess hann sæist. Auðsætt virðist, að morðinginn hofði verið karl- maður, þegar iitið var á sporin á^gólfábreiðunni, og á það, hversu sárunum var háttað. Annað, eða meira, þótti jlögreguraanninum örðugt að dæma um. Ekki sáust nein merki þess, að rán hefði verið framið og gull-úrið læknisins var í vasa hans. ÞuDg peningaskrína var í herberginu. — Hún var læst, en engir peningar i henui. Frú Woods þóttist hafa veitt því eptirtekt, að hann geymdi þar optast mikið fé, en hann hafði borgað háan reikning daginn árið, og það sannaðist, að það var þetta en eigi rán, sem olli því, að skrínan var tóm. Að eins einn hlutur var horfinn úr herberginu, og loit það grunsamlega út. Myndin af ungfrú MortoD, sem einatt hafði staðið 4 skrifborðinu, hafði verið tekin úr umgjörðinni, og var horfin. Frú Woods hafði séð haoa, er hún kom inn til feúsbónda síns um kvöldið, og nú var hún horfin. Á hinn bóginn fundust á gólfinu grænar augnhlíf- ar, sem ráðskonan mundi eigi eptir, að hún hefði séð fyr. Vel gat þó hugsast, að læknir hefði átt slíkan mun •og varð því eigi af fundi þessum ráðið neitt um glæpinn. GruDurinn gat að oíds fallið á einn mann, og Arthur Morton var því þegar tekinn fastur.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.