Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 04.04.1911, Qupperneq 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 04.04.1911, Qupperneq 6
66 ÞJÓBVILJINN. XXV., 16.-17 TTrskurðarvald sáttanefnda. Nefnd í efri deild: Ari Jódssoii, J. Havsteen og Kr. Jónsson. Samkomudagur alþingis. Nefndin, sero kosin var í neðrideild, til að íhuga frurovarp stjórnarinnar um samkomudag aiþingis (Sig. Gunnarsson, Jón Ólafsson og Þorleifur Jónsson) legg- ur það til, að samkomudagur reglulegs alþingis verði ákveðinn 1. júlí annað hvort ár, sem fyr ver! Telja mun mega vist, að þessi tillaga nefndarinnar nái þó eigi fram að ganga. Sjúkrasamlög. Tveir þingmenn (Stefán kennari og Aug. FlygenrÍDg) hata í efri deild borið fram frumvarp um sjúkrasamlög, en sjúkra- sarniag er það nefnt, er menn bindast fé- lagsskap í því skyni, að tryggja hver öðr- um, gegn tilteknum iðgjöldum, uppbót á því fjártjóni, sem veikindi valda. Sjúkrasamlögunum er ætlaður styrkur úr landssjóði, — tvær krónur á ári fyrír hvern félaga, sem árlangt hefir greitt iðgjald í samlagssjóð. Frumvarpið er mjög þarflegt nýmæli sem óskandi er, að fái góðar viðtökur á þinginu. Engin undanþága. Síra Björn Þorláksson hefir í neðri deild borið fram frumvarp þess efnis, að heimild sú, sem konum er veitt, til að skorast undan kosningu, er um bæja- sveita- og safnaðamál ræðir, skuli úr iö6- um nurnin. Brú á Jókulsá á Sólheimasandi. Alþra. Vestur-Skaptfellinga (Gunnar Ólafsson) hefur í efri deild borið fram frumvarp þess efnis, að verja allt að 78 þús. króna úr landsjóði, til að brúa Jök- ulsá á SólheimasaDdi. Hreindýrin. Frumvarp er borið fram í efrí deild (Steingr. Jónsson) þess efnis, að lengja friðunartíma hreindýra til 1. jan. 1917. Borgarstjórinn í BeykjavÍK. Þingmenn Reykvíkinga (dr, Jón Þor- kelsson og Magnús Blöndahl) hafa í neðri deild borið fram frmvarp þess efnis, að borgarstjórinn i Reykjávík skuii kosinn af öllum atkvæðisbærum kjósendum til 6 ára í senn. Fánamáiið. Fimm þingmenn í neðri deild (Ben. Sveínsson, Bjarni Jónsson, dr. Jón Þor- kelssoo, Jón frá Hvanná og Skúli Thor- oddsen) hafa í neðri deild borið fram frumvarp um sérstakan fána fyrir Island — bláan, með hvítum krossi. Islenzkum skipum jafnfram óheimil- að, að nota annan fána. Aukaútsvör. Síra Kristinn Daníelsson hefur i efri deild borið fram frumvarp um breytingu á sveitarstjórnarlögunum frá 10. nóv. 1905. Það eru, meðal annars, fellt burt á- kvæðið um það, að eigi megi leggja auka- útsvör á aðkomumenn, er bátfiski stunda ef útræðið sé við sama fjörð eða flóa. Vólgæzla á ísl. gufuskipum. Ag. Flygenring hefur i efri deild bor- ið frarn frumvarp um réttinn, til að vera vélstjóri á islenzkum gufuskipum. Löggilding verzlunarstaðar. Frumvarp um löggildinding verzlunar- staðar að Herdisarvík í Arnessýslu hefur Sig. Sigurðsson bo’ið fram i neðri deild Lendingasj óðirnir. Frumvarp þess efnis, að ákvæði tíski- veiðasamþykkta um greiðslu á lendingar- sjóði skuli og ná til þiljaðra vélbáta hef- ur Sk. Th. borið fram i neðri deild. Verzlunarlóðin í Vestmannaeyjum. Þm. Yestmenneyinga (Jón Magn.) ber í neðri deild fram frumvarp um það, hver takmörkin skub' vera, að því er snerti verzlunarlóðina í Vestmannaeyjum. Brúarstæði á Langadalsá. í neðri deild hefur Sk. Th. borið fram þingsályktunartillögu þess efnis, að skora á stjórnina, að láta raunsaka brúarstæði á Langadalsá í Nauteyrarhreppi i Norður- ísafjarðarsýslu. Um eptirlaun hafa þingmennirnir Sig. Sigurðsson og Einar Jónsson borið fram frumvarp í neðri deild. Ætlast þeir til, að eptirlaun séu 25 kr. fýrir hvert embættisár, en þó aldrei hærri, en 1000 kr. 113 „Jeg játa að þetta sýnist mjög sennilegt!" mælti Kenwood. „En málið skýrist enga vitund við það!“ „Ekki rétt!“ mælti Mallabar. „Hver drap þá Roaeh-Spicer?“ „Hvíekki einhver samsærismannanna?“ svaraði Malla- bar, brosandi. „ímyndum okkur, að Roach-Spicer hafi náð í peningana, og að einhver félaga hans, ef til vill sá, er stundaði haDn, hafi drepið hann, og siðan flúið með herfangið!“ „Maðurinn, sem stundaði hann veikan, var ekki einn í tölu samsærismannanna!“ „Ekki í byrjuninni!“ svaraði Mallabar, „od hann getur hafa orðið það síðar!“ „En ímyndið þér yður þá, að Ratray hafi og verið drepinn?“ „Já, því miður! Mér þykir leitt, að verða að játa það!“ „Það get eg aldrei fyrirgefið sjálfum mér!“ mælti Kenwood, og greip hÖDdunura fyrir apdlitið. „Takið nú ekki upp á þessari vitleysunni!“ „Líkið hefur ekki fundizt!“ mælti Kenwood. „Rétt er það, að lík Ratray’s hefur eigi fundist“, mælti Mallabar, „en sjálfsagt er, að ranneaka það! En þar»a kemur Swayne lögreglustjóri! Vertu nú þagmælskur drengur! Við látum lögreglumennina ekkert vita að svo stöddu XXII. Lögreglumennirnir leita málsgagna. Swayne var talinn lögreglustjóri í Craneboro, en 118 XXIII. Kenwood og Hallur. „Hvernig lízt yður nú á?“ spurði Kenwood Malla- bar fám kl.tímum síðar. er lögreglustjórinn var nýlega genginn út. „Lízt á? Það er engann veginn á að lítazt! Það verður að eins lítið byggt á ekki mikilvægari ástæðu!“ „En imyndið þér yður að þetta sé satt?“ „Að stúlkan hafi myrt manninn sinn — hví ekki? Að líkindurn hefur hann og átt það skilið! Jeg þekki margar konur, sem fegnar vildu losna við mennina sína en eru eigi svo hugmyndaríkar, að þær finni ráð tilþess!“ „Jeg átti ekki við morðið!“ mælti Kenwood. „Nú, þetta um Gregory - já, hví ekki? Það, að hún er gipt kona, þarf hvorugu þeirra að hafa aptrað! Hér er eigi um neitt nýtt að ræða! Eiginmenn ímynda sér einatt, að konurnar þeirra sé dyggðin sjálf, unz ann- að kernur upp úr dúrnum einn góðan veðurdaginn! En jag er hræddur um, að margir eiginmenn blekki sjálfa sig! Skiptir og Htlu, séu þeir óvitandi um það, sem fram fer!“ „Svo er að sjá, sem yður bresti sízr, reynzluna“, mælti Kenwood. „Hafið þér nokkuru sinní verið kvænt- ur maður?“ „Nei! Sem betur fer — ekki! Lífinu má líkja við fjall, og er nógu örðugt, að klifrast upp, þó að eigi hafi maður annan í eptirdragi! En þetta kemur ekki málinu við! Það er Ratray-málið, sem eg hefi hugann við!“ „En sé hitt satt“, mælti Kenwood, „þá felst ef til vill þar í skýringin á morðinu!“ „Auðvitað rannsaka eg þetta atriði eÍDnig“, mælti

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.