Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.02.1913, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.02.1913, Blaðsíða 2
14 ÞJÓÐVILJINN XXVII., 4.-Ö. ÞJÓÐVILJINN. Vorð árgaoffsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 a., erlendis 4 kr. 50 a. o«r í Ameríku doll.: 1,50. Borgist fyrir júnimánaðarlok. Uppsögn skrifleg ógiid nema komin sé til útgefanda fyrir 30. dag júnímánaðar og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuid sína yrir blaðið. Kosning þriggja þingmanna Hvað ráða verður. Eins og getið er um hér að framan, í þessu nr. blaðs vors, fara t’ram kosn- ing þriggja alþingismanna 13. maí næstk. Tvð tjördæmanna, er hór um ræðir (Gullbringu og Kjósarsýsla og Barða- strandasýsla), hafa að undanförnu verið eindregin sjálfstæðiskjördæmi. Þarf og væntanlega eigi að brýna það fyrir kjósendum þar, að bregðast nú eigi meVkinu, en kjósa eindregna sjálfstæðis- menn. Skylda þessi verður og kjördæmunum því fremur brýn, þar sem svo leidinlega tókst til, að því er þingmenn beggja þessara kjördæma snertir, síra Jens heit- inn Pálsson og Björn sáluga Jónsson, fyr ráðherra), að þeir voru bendlaðir við „bræðingtnn“, og gengu síðan í „sam- bandsflokkinn“, þ, e. hurfu frá stefn- unni, sem sjálfstæðisflokkurinn hafði áður fylgt fram. Einmitt þeirri stefnunm þarf nú að koma sem skýrast fram, að kjósendur vilji, að fyigt sé áfram, hiklaust og rögg- samlega, eins og gert var á þingunum 1909 og 1911. Að því er snertir Suður-Múlasýslu, þar sem kjósa á þriðja þingmanninn, i stað Jóns heitins Jónssonai í Múla, þá hefir hún, því miður að undanförnu verið ein af svörtu, ógeðslegu blettunum, að því er til sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar kemur. Kjósendum þar, þ. e. meiri hlutanum, enn aldrei orðið bað ljóst, að sú var þeim, sem öllum, skyldan brýnust, að fyigja fram þjóðarsjálfstæðinu. Sunn-Mýlingar ættu því að nota tæki- færið, og senda nú eindreginn sjálfstæðis- mann á þingið. Færi og eigi hvað sízt vel á þessu, er litið er á danska. „ný-bræðinginn“, sem ráðherrann kom /með úr siglingunni í vetur. Svarið, hvað hann snertir, ætti í öllum þrem kjördæmunum að verða eitt og sama, — að kosnir yrðu þeir einir, sem öruggir sjálstæðismenn eru. Suðiirlieiinsskautsf'aramir, sem lögðu af stað frá Hamborg, á skipinu „Deutscb - land“, 3. maí 1911, til þess að rannsaka suðurheimsskautslöndin, komu á öndverðu nýbyrjaða árinu (1913) til Buenos Aires í Suður-Ameríku. Foringi fararinnar var ofursti nokkur frá Baiern, dr. WUhelm bildmerzX) nat’ui, er áður h sfir ferðast í Thibet, og viðar, og ritað bækur um ferðir sínar. G-ert hafði verið ráð fyrir 3 lj., árs fjarveru, og búist við, að kostnaðurinn yrði nær milljón króna. Suðurfararnir telja árangur fararinnar orðinn góðan, — hafa fundið áður óþekkt land, er þeir nefndu: „Luitpolds konungs land“. — Enn fremur fundu þeir og ís eða jökulflæmi mikið, og nefndu land þetta, sem virðist í mcira lagi ógistilegt — ekkert annað, en jöklam þakið fjall- lendi — „Yilhjálm keisara II“. Utlönci. —o— Tii viðbótar útlendu fréttunum, sem getið var í síðasta nr. blaðs vors, má geta þessara tíðinda: Danmörk. Að kvöldi 6. des. siðastl. varð elds- voði í Terslev, og brunnu þar inni sex tugir nautgripa, fullorðinn hesturogtvö folöld. Yonandi, að reykjarsvæla hafi kæft gripina, áður en eldurinn náði þeim. Töluvert uppþot varð 6. des. síðastl., i einum fyrirlestrasalanna í háskólanum í Kaupmannahöfn, — pípnablástur og ryskingar. Tilefnið það, að dr. Kom ad Simonsen, er þá átti að halda fyrirlestur, þótti nokkru áður hafa niðrað dr. Geoig B) and- es, eða eigí haldið virðingu hans svo á lopti, sem skyldi. Það var því áhangendum hans og Brandesat, sem saman lenti, og lauk svo, að dr. Simonsen gat eigi flutt fyrirlest- urinn, — kvaðst þá mundu gera það síðar. Aðfaranóttina 8. des. síðastl. var blikk- smiður nokkur í Holsteinsgöt.unni í Kaup- mannahöfn myrtur í rúmi sínu. Maður þessi hét Kock, og var kona hans, Anna Kock, þegar grunuð um glæp- inn, eða að hafa verið í vitorði um hann, — hljóp uppdubbuð á lögreglustöðina, án þess að hafa gert nokkrum i húsinu, er þau bjuggu í, aðvart um morðið. .Játaði hún þá og brátt, að maður nokkur, Jtansen- Vinding að nafni, er hún hafði fellt ákafan ástarhug til, hefði fram- ið morðið, í samráði við hana. Hansen-Vinding, er strokið hafði, náð- ist nokkru siðar, og varð þá og að kann- ast við glæp sinn. En að þvi er snerti þrjú þúsund krón- ur, er rænt, hafði verið frá þeim, er myrt- ur var, hélt hann því enn ftain, er síð- ast fréttist, að frú Anna Kock hefði gefið sér féð. Konan fremur barnaleg, og enginn vafi á því, að það er ástin, sem leitt hefir hana út í það, að gerast samsek, að því er morð bónda hennar snertir. Nokkru fyrir jólin gekkst blaðið „Poli- tiken“ fyrir því, að haldm var st/ning á bat naleikföngum, sem búin eru tiliDan- mörku. Kenndi þar margra grasa, og var sýn- ingin afar-fjölsótt. Ekki sízt varð börnunum, er þangað komu, starsýnt á margt, sem þar var, eins og geta má nærri, og hefir líklega mörg langað til að eiga sumt af því, er þau sáu. Um miðjan des. siðastl. voru ofsa- veður, og sjór gekk eigi óvíða á land upp við vesturstrendur Jótlands. Manntjón varð nokkuð, skemmdir töiu- verðar á hafnarvirkjunum í Esbjerg, o. fl. o. fl. Nýlega varð það uppvíst, að stúdent nokkur, sem verið hafði um tíma á hand- bókasafni konungs — geymt i Ch't istians VIII. höllinni í Kaupmannahöfn — hafði stolið þar ýmsum sjaldgæfum bókum o. fl., og gert sér fé úr. Mælt er, að honum verði þó eigi refs- að, en látinn koma sér undan til Ameríku. A nýársdaginn komst sú venja á eigi óviða í Danmörku, að tekið var að bæta tveim aurum á reikninga þeirra, er eitt- hvað kaupa í gistihúsum, eða öðrum greiðasölustöðum, og er tvíeyringurinn ætlaður fátækum börnum til glaðnings, eða styrktar. (fetur á þenna hátt safnast eigi all- litið fé árlega, og að því orðið góður styrkur, en enginn sá er á hótelli neytir einhvers, er jafn óverulega upphæð lætur sig nokkru muna. Líkt hefir áður verið reynt á Þýzka- landi, og ef til vill víðar, og þótt gefast þar vel. Grundvallarlagabreytingin, er áður hefir verið drepið á í blaði voru, hefir nú verið samþykkt í fólksþinginu, og nefnd verið skipuð í landsþinginu, til að íhuga málið. Hægrimenn þar tóku málinu mjög þunglega, og — meðal annara — hóf gamli Estrup þar andmæli gegn því. Vilja hægrimenn, að kosningarréttur- inn til fólksþingsins sé bundinn við 30 ára aldur, sem nú er, eígi rýmka þar til að neinu leyti, og að engmn hafi kosn- mgarrétt til landsþingsins, nema hann sé orðinn fertugur, og gjaldi einhverja ákveðna upphæð í tekju- eða eigna-skatt. Alóvíst því um rírslit málsins á þing- inu. En þá ætti Kl. Ber nteenVráðaneytið sízt að horfa í það, að rjúfa landsþingið tafarlaust, til að reyna að aptra því, að þyi takist til lengdar, að hepta jafn þarf- legar og sjálfsagðar umbætur, sem í frum- varpinu ræðir um. t .Jóladagsmorguninn (25. des. síðastl.) andaðist rithöfundurinn Helga Johansen, eða „Hannah Joel“, sem hún og nefndi sig- Hiín var fædd 1852.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.