Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.03.1913, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.03.1913, Side 1
Þ JÓÐVIL JINN. 12. tbl. Rejkjavík 31. marz 1913. XXVll. ávg. Sterkbyggður bátur með 3 hesta mót- orvól, hentugur mjög til íiskiveiða á ■umrum og til ferðalaga. er til söiu fyrir ótrúlega lágt verð ef borgað er út í hönd. Menn snúi aér til undirritaðs. ísafirði 18. febrúar 1913. Jóu Hróbjartsson. Balkan-ófriðurinn. Nýjar hrakfarir Tyrkja. Búlgarar ná Adrianopel! Ekki hefir Tyrkjum viljað ganga bet- ur i ófriðinum, síðan er stjórnarbyltingin varð í Konstantínópel, sbr. 4.—6. nr. blaðs vors þ. á., og ófriðunnn blossaði upp að nýju. Borgin Janina — í Vestur-Albaníu (íbúar um 20—30 þús) —, er Grikkir höfðu lengi setið um, og eigi getað unn- ið, varð að lokam að gefast upp. Hæpið þó líklega, hvað hana snertir, að Grikkir fii að halda henni, er friður kemst á, þar sem lýðveldið nýja, Albanía, «r þar þá annars vegar. Símskeyti. London 26.3. kl. 123r, IJm fall Adrianopelborgar barst 26. roarz þ. á. svo látandi símfregn: Simad fr á Sofia, ad Adi ianopel sé fallin. Búlcjatai haldid inmeid i botgina. Hernadartœki Tyrkja sprengd i lopt upp. (Central Neics.) Þessi eru þá loks málalokin orðin, að því er Adrianopel snertir, þrátt fyrir afar- hraustlega vörn af háltu Tyrkja. Liklega vildu Tyrkir nú heldur, þar sem svona er komið, að tekið hefði verið friðarkostunum, sem þeir áttu kost á, meðan er vopnahléið stóð yfir, og hefir þeim stafað mikil óheill af því tiltæki Ænver bey, og félaga hans, að hrinda •tjórninm frá völdum, og verða valdir að drápi Nazini paseha, tyrkneska yfir- hershöfðingjans, og fleiri manna. Sennilegast að þeir missi nú einnig Konstantínopel, og verði algjörlega lirakt- ir burt úr norður-álfunni, nema stórveld- in taki rni þeim mun fljótar í taumana, Tyrkjum til einhverrar bjargar. Innlenda eimskipafélagið. Hérlendir strandbátar, — landn eign. í síðasta nr. blaðs vors, vikum vér stuttlega að áskoruninni um stofnun inn- lends eimskipafélags, og létum þá jafn framt þá von vora í Ijósi, að henni yrði sem bezt tekið af almenningi, svo að málið fengi sem greiðastan framgang. Naudsynin á innlendu eimskipafélagi — þótt eigi ætli sér í byrjunmni annað en að sinna millilandaferðunum, og það þó að eins að nokkru leyti —, dylst vœnt- anlega engum, eða þá fæstum, er litið er á kjörin, sem Islendingar hafa. átt — og verða enn — við að búa, hjá útlendu eimskipaf élögu num. Nægir í því efni að benda á flutn- inga- og farþega-gjöldm, hve óeðlilega há þau eru, miðað við það, sem annars staðar gerist. Það, að „Thore-fólagið“ reyndist að mun valtari í fjársökunum, en æskilegt hefði verið, og vænzt var, er við það var samið, bætir og sizt úr skák. Oánœgja manna, að því er tii „sam- einaöa gufuskipafélagsins“ kemur, hefii opt veiid tölm erd, og batnar þá vitaskuld ekki, er keppinautum þess fækkar, eða þeir verða máttminni, eins og Islending- ar hafa þegar að nokkru orðið að kenna á á þessu yfirstandandi ári. Þá er það og eigi síðnr landipu mjiig mikilsvarðandi, að viðskipti landsmanna, að því er kaupin á útlenda varningin- um snertir, — sem og að vísu einnig að mun, að því er til sölunnar á innlendu afurðunum kemur — þurfi eigi að mestu að vera bundin við Danmörku. Vegalengdin þangað veldur því, að flutningskostnaðurinn getur eigi annað en orðið að rniklum rnun dýrari. en ef vér sæktum allar helztu nauðsvnjar vorar til Bretlands. Svo er og aðgætandi, að eigi fátt af varninginum, sem vér enn sækjum til Dana, eru vörnr, sem Danir hafa sjálfir keypt í Bretlandi, Þýzkalandi, eða ann- ars staðar, og kaupum vér þær því í Dan- mörku, að álögðum kostnaðinum við flutning vörunnar þangað m. m., sem og að viðbættum hagnaðinum, er dönsku gtórkaupmennirnir verða að reikna sér. En meðan vér ráðum eigi ad fullu og dHu yfir ferðum millilandaskipanna, en semjum um þær við Dani, svo að aðal- stöð skipanna verður í Kaupmannahöfn, og meðan er vér sameinum ferðirnar þar á ofan að meira *ða minna leyti við póst- ferðir þeira til Færeyja, þá styður þetta eigi all-lítið að því, að aðal-vezlunarvið- skipti vor haldi áfram að vera við Dan- mörku, í stað þess að færast í annað eðlilegra hort, er oss væri heppilegra. Það er því eigi fátt, er knýja ætti oss Islendinga til þess, að reyna sem fyrst, að eignast innleml eiinskip, sem tækju að sér vöru- póst- og farþegja- flutnmgana mil'i Islands og útlanda að einhverju leyti, og nytu þá og að sjálf- sögðu — öllum öðrum skipum fremur —• styrks til ferðanna úr landssjóði Islands. En þó að brýn þöri' sé á því, að innlendu eimskipafélagi verði komið á fót sem allra bráðast, og vonandi sé, að tilraunirnar, sem nú er verið að gera í þá áttina, lánist sem bezt, þá erum vér íslendingar þó að vísu enn ver staddir, að þvi er til strandferðanna kemur. Þetta stafar at þvi, að vöru-og fólks- flutningarnir miili íslands og annara landa, geta eigi annað, en borið sig, séu eigi viðkomustaðirnii hór á landi aðrir, en þeir, þar sem flutningaþörfin en mest. Hvað millilandaferðirnar snertir, leggst þvi æ eitthvað til með þær, þó að mjög miklu skipti að sjálfsögðu, eins og að ofan er bent á, í hvaða höndum þær eru. Allt ödru máli er á hinn bóginn ad gegna, ad þvi er til strandf'er danna kemur. Að því er viðkomustaði strandbátanna snertir, þá er almenningur, sem kunnugt er, oröinn afar -kr öfuhar dur, þar sem naum- ast getui' heitið, að til sé sá fjörður, vík eða vogur, sé þar einhver byggð, að eigi sé þá óskað, hve mikið, sem fámennið er, að strandbátarnir komi þar þó við, í fleiri eða færri íerðum, ef eigi í öllum. Þetta stafar af því, að atvinnurekst- ur manna er þegar, í sumum héruðum landsins, orðinn að mun við strandferð- irnar bundinn, auk þess hve mjög strand- bátarnir greiða að öðru leyti fyrirferða- lögum öllum, sem og fyrir vöruviðskipta- verzlaninni innan lands, — þar sem um eitthvað i þá áttina er að ræða. En víðast er flutningaþörfin enn litil, og á sumum viðkomustöðunum enda alls engin, — skipin yfirleitt meira notuð sem farþegaskip, og borga sig því alls eigi. Það er þvi engin von á því, að útlend gufuskipafélög séu fáanieg til þess, að taka strandferðirnar að sér, nema gegn því ríflegra fjárframlagi úr landssjóði, og hæpið þó æ öðrum þræði, að gufuskip, sem hentug eru, fáist. Landinu er það því afar-brýn nauð- syn, ad eignast sem fyrst nœgilega marga strandbáta, er um, str andfer ditnar annist, svo að eigi þurfi að liggja á bónbjörgum við útlendinga, að því er þær snertir. Eigi landið sjálft bátana, og kosti að

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.