Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.06.1913, Side 1
Þ JÓÐVIL JINN.
25.-26. tbl.
Reykjavík 16. júní 1913
XXVII. árg.
Fallegar eru aöíarirnar!
Islenzk sérmál lögö fyrir
danskar ráöherra-samkomur.
Rannsóknarnefnd alsjálísögð.
Kynlegar fregnir voru það í meira
lagi, er nýlega bárust frá Danmörku, —
svo kynlegar, a-ð oss, og liklega flestum
öðrum, ef eigi öllum, er heyrðu, veitti
mjög örðugt, að trúa þeim.
»Skilabodin« (þ. e. „Grúturinn“ svo
nefndi), er núverandi ráðherra vor flutti
oss frá Danmörku á öndverðum síðastl.
vetri, og sem hann hóaði þá í mesta
skyndi ýmsum þingmönnum o. fl. saman,
til að heyra, og ræða með sér, týndu þad
ad visu, sem áður var eigi ókunnugt, að
annad er uídhe/na vorum betur gefid, en
ad vera hreinn og djarfur tal.srn adm Is-
lands, ei hann á ordastad vid stjórnmála-
menn Dana, um málefni lands vors.
Engu að siður var það þó vissulega
því líkast, sem verið væri að bera í
bakkafullan lækinn, er „Berlinga-tíðindin“
dönsku skýrðu frá því, 24. maí síðastl.,
að daginn áður (þ. e. 23. maí þ. á.) hefði
verið dönsk ráðherra-samkoma („Min-
istermöde11), et rádherta Islands hefdi og
tekid þátt i, og hefði mestur hluti ráð-
gjafafundarins þá gengið til þess, aö
ræða um málefni íslands.
En dönsku ráðherra-samkomurnar eru
fundir, er dönsku ráðherrarnir eiga æ
með sér öðru hvoru, og þar sem konung-
urinn eigi er viðstaddur, ems og á hmn
bóginn æ á sór stað, er um ríkisráðið
ræðir.
Á ráðherra-samkomunum eru þá rædd
öll málefni, er berast eiga síðar fram í
rikisráðinu, sem og ýms málefni önnur,
er eigi þurfa þangað að koma.
En ad því er ísl. sérmál snertir, þá
er dönsku rádherrunum. sem kunnugt er,
eigi œtlad, ad eiga neitt atkvœdi um þau,
°g nægir í því elni að skírskota til ákvæð-
anna í 1. gr. stjórnarskrárinnar frá 5.
janúar 1874, þar sem segir:
„í öllum þeim málefnum, sem sam-
kvæmt iögum um hina srjórnarlegu siöðu
íslands i rikinu, 2. janúar 1871, 3 gr.,
varðn íslav.d sérstaklega, hefir landið l'nggjnt
sína, og stjórn, «ít af fyrir sig.“
Af hálfu núverandi ráðlierra Islands,
hefir því og æ verið haldið fram hór á
landi — og talinn af honum vottur þess,
hve annt hann léti sér um sjálfstæði lands
vors —, að á danskar ráðherra-samkomur
kæmi ráðherra alls ekki, og að eigi væru
islenzk sérmál borin þar fram. ;
Eina ástæðan til þess, hve annt oss I
Islendingum er um það, að kippt sé burt
úr núgildandi stjórnskipunarlögum vorum
(frá. 3. okt. 19()3) „ríkisráðsákvæðinu“
svo nefnda, þ. e. ákvæðinu um það, að
„lög og mikilvægar stjórnarráðstafar.ir“
skuli borið upp fyrir konungi „i ríkis-
ráðinu“, húli er og einmitt sú, að vér
viljum á þann háttinn, sem allra glöggast,
slá því föstu, að dönskum ráðherrum sé
alls eigi ætlað, að hafa ein eða nein af-
skipti, af sérmálum Islands, hvað þá held-
ur. að eiga nokkurt atkvæði um þau.
Það eru tillögur islenzka ráðherrans
eins, sem þar eiga ad ráda, enda þrá-
sinnis — eigi hvað sizt, aö því er til
þjóðarsjálfstæðismálanna, og atvinnumál-
efnanna, kemur —, er hagsmunir Dana
og Ishndinga eigi fara saman.
En svo kemur nú alóvænt — sem l
þruma úr heiðskýru lopti — fregnin um
það, að núverandi ráðherra vor, hr. II.
Hafstein, sé nú farinn að meta íslenzka
þjóðarviljann í þessu efni svo mikils,
eda hitt þó heldur, ad hann sé farinn
ad sœkja danskar rádherra-samkomur, og
skeggrœda þar vid dönsku rádherrana um
íslenzk sérmál.
íslenzk sórmál, sem ráðherrum Dana
eru þó alóvíðkoinandi, er þá farið að
skoða, sem aldönsk málefni, og farið að
láta þau sæta alveg sömu meðferðinni(!).
Hvað af íslenzku stjórnarfrumvörp-
unum, sem ráðherrann hefir á prjónunum,
finnur þá náð í augum dönsku ráðherr-
anna, — eða hverjum þeirra dönsku ráð-
herrarnir fá þá ráðherra vorn, til að stinga
undir stólinn, eða fá hann þá til að víkja
í það horfið, sem dönskum hagsmunum
kann hentugra að þykja, verdur þá eigi
sagt med vissu, þar sem núverandi ráð-
herra vor fylgir þeirri reglunni, að láta
oss Islendinga vera þess æ sem allra
vandlegast dulda, hvaða frumvörp hann
fer með út yfir pollinn, eða ætlar sér, er
að heiman fer, að fá framgengt.
En samkvæmt símskeyti, er oss barst
rétt í þessum svifum, kvað danska blaðið
„Nationalt,idende“ þó staðfesta skýrsluna
í „Berlinga tíðmdunum“, er fyr getur, í
öllum greinum.
Það kvað hafa verið álislenzk mál-
efni (atvinnu- og sveitarstjórnar-málefni
o. fl. o. fl.), er hr. H. Hafstein lét dönsku
ráðherrana fá sig til að skrafa ogskegg-
ræða um við þá á danska ráðherra-fund-
inum, 23. maí síðastl.
Það er nú harla ólíkleg’t, að báðum
blöðunum, „Berlinga“- og „National“-
tíðindunum, segist rangt frá í þessu efni,
eða að um misskilning sé, eða geti, á
nokkurn hátt verið hér að ræða.
En hvernig lízt þá Islendinguni á
hlikuna?
Yera má að vísu, að dönsku blöðin,
er fyr er getið, hafi að þessu sinni fleypr-
að því fram, er levnt áfti að fara.
Hafi fleyprað því fram, er H. Haf-
stein ætlaðist að minnsta kosti til, að
leyndist innan fjögra veggja.
En sé svo, að leynt hafi átt að fara,
bætir það sízt úr skák.
Skyldi nú annars eigi geta verið, að
hér kenni einnar atíeiðingarinnar af í-
stöðuleysinu, er dönsku ráðherrarnir ráku
sig á hjá ráðherra vorum, er hann ræddi
við þá um „bræðinginn“ á síðastl. hausti,
og lét þá fá sig til að halda aptur heim-
leiðis með „grútinn11?
fáirdu skollanum litla tingurinn, reyn-
ir hann tidast, vonum bráðar, ad ná i
alla hendina.
Og „grúturinn sýndi oss Islendingum
það vissulega rajög greinilega, í hvaða
horfið dönsku ráðherrarnir vilja, að nú
sé haldið.
I engslin vid Danmörku séu reyi d fast-
ar og fastar.
En þegar slíks verður vart, þá er þess
og því fremur brýn þörfin, að standa
sem allra blýfastastir á móti.
Hvað núverandi ráðherra vorn snertir,
þá er þó öðru nær, en honum sé það vel
lagið.
Hann er eigi bjargfasti kletturinn, en
öllu fremur lausa mölin, er „Danskurinn“
er annars vegar.
Það er bæði gömul, og ný saga.--------
Annars getur manni — er hugsað er
til fregnanna í „Berlinga“- og „National“-
tíðindunum — eigi annað, en flogið í
huga, hvort hér sé um aleinstaklegt til-
felli að ræða, eða þessari sömu reglunni
hafi æ verið fylgt í ráðherratíð hr. H.
Hafstein’s, þótt annað hafi hér á landi
verið látið i veðri vaka.
Daglega lífið sýnir oss það þvi miður
eigi sjaldan, að jafn vel sumir „góðu
drengirnir“, — sem svo eru nefndir, og
svo vúja láta sig kalla — geta og haft
þad til, að bregða stundum hinu og þessu
fyrir sig, er á þykir.þurfa að halda, er
ei sé með öllu hliðstætt við það, sem þeir
hinir sömu kalla „fagran leik“.
En hvað sem því nú líður, þá er hér
um svo AÍi\v-alvarlegt og þýdingar-míkid
málefni að ræða, að skylt er alþingi
voru, að taka nú þegar sem allra rögg-
samlegast í taurnara.
Þingið verðui* að kreí'jast þess, að
ráðherrann gefi því þegar, alvafninga-
laust, seni glöggasta, og einlægasta,
skýrslu um málið.