Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.06.1913, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.06.1913, Qupperneq 1
Þ JÓÐVIL JINN. 25.-26. tbl. Reykjavík 16. júní 1913 XXVII. árg. Fallegar eru aöíarirnar! Islenzk sérmál lögö fyrir danskar ráöherra-samkomur. Rannsóknarnefnd alsjálísögð. Kynlegar fregnir voru það í meira lagi, er nýlega bárust frá Danmörku, — svo kynlegar, a-ð oss, og liklega flestum öðrum, ef eigi öllum, er heyrðu, veitti mjög örðugt, að trúa þeim. »Skilabodin« (þ. e. „Grúturinn“ svo nefndi), er núverandi ráðherra vor flutti oss frá Danmörku á öndverðum síðastl. vetri, og sem hann hóaði þá í mesta skyndi ýmsum þingmönnum o. fl. saman, til að heyra, og ræða með sér, týndu þad ad visu, sem áður var eigi ókunnugt, að annad er uídhe/na vorum betur gefid, en ad vera hreinn og djarfur tal.srn adm Is- lands, ei hann á ordastad vid stjórnmála- menn Dana, um málefni lands vors. Engu að siður var það þó vissulega því líkast, sem verið væri að bera í bakkafullan lækinn, er „Berlinga-tíðindin“ dönsku skýrðu frá því, 24. maí síðastl., að daginn áður (þ. e. 23. maí þ. á.) hefði verið dönsk ráðherra-samkoma („Min- istermöde11), et rádherta Islands hefdi og tekid þátt i, og hefði mestur hluti ráð- gjafafundarins þá gengið til þess, aö ræða um málefni íslands. En dönsku ráðherra-samkomurnar eru fundir, er dönsku ráðherrarnir eiga æ með sér öðru hvoru, og þar sem konung- urinn eigi er viðstaddur, ems og á hmn bóginn æ á sór stað, er um ríkisráðið ræðir. Á ráðherra-samkomunum eru þá rædd öll málefni, er berast eiga síðar fram í rikisráðinu, sem og ýms málefni önnur, er eigi þurfa þangað að koma. En ad því er ísl. sérmál snertir, þá er dönsku rádherrunum. sem kunnugt er, eigi œtlad, ad eiga neitt atkvœdi um þau, °g nægir í því elni að skírskota til ákvæð- anna í 1. gr. stjórnarskrárinnar frá 5. janúar 1874, þar sem segir: „í öllum þeim málefnum, sem sam- kvæmt iögum um hina srjórnarlegu siöðu íslands i rikinu, 2. janúar 1871, 3 gr., varðn íslav.d sérstaklega, hefir landið l'nggjnt sína, og stjórn, «ít af fyrir sig.“ Af hálfu núverandi ráðlierra Islands, hefir því og æ verið haldið fram hór á landi — og talinn af honum vottur þess, hve annt hann léti sér um sjálfstæði lands vors —, að á danskar ráðherra-samkomur kæmi ráðherra alls ekki, og að eigi væru islenzk sérmál borin þar fram. ; Eina ástæðan til þess, hve annt oss I Islendingum er um það, að kippt sé burt úr núgildandi stjórnskipunarlögum vorum (frá. 3. okt. 19()3) „ríkisráðsákvæðinu“ svo nefnda, þ. e. ákvæðinu um það, að „lög og mikilvægar stjórnarráðstafar.ir“ skuli borið upp fyrir konungi „i ríkis- ráðinu“, húli er og einmitt sú, að vér viljum á þann háttinn, sem allra glöggast, slá því föstu, að dönskum ráðherrum sé alls eigi ætlað, að hafa ein eða nein af- skipti, af sérmálum Islands, hvað þá held- ur. að eiga nokkurt atkvæði um þau. Það eru tillögur islenzka ráðherrans eins, sem þar eiga ad ráda, enda þrá- sinnis — eigi hvað sizt, aö því er til þjóðarsjálfstæðismálanna, og atvinnumál- efnanna, kemur —, er hagsmunir Dana og Ishndinga eigi fara saman. En svo kemur nú alóvænt — sem l þruma úr heiðskýru lopti — fregnin um það, að núverandi ráðherra vor, hr. II. Hafstein, sé nú farinn að meta íslenzka þjóðarviljann í þessu efni svo mikils, eda hitt þó heldur, ad hann sé farinn ad sœkja danskar rádherra-samkomur, og skeggrœda þar vid dönsku rádherrana um íslenzk sérmál. íslenzk sórmál, sem ráðherrum Dana eru þó alóvíðkoinandi, er þá farið að skoða, sem aldönsk málefni, og farið að láta þau sæta alveg sömu meðferðinni(!). Hvað af íslenzku stjórnarfrumvörp- unum, sem ráðherrann hefir á prjónunum, finnur þá náð í augum dönsku ráðherr- anna, — eða hverjum þeirra dönsku ráð- herrarnir fá þá ráðherra vorn, til að stinga undir stólinn, eða fá hann þá til að víkja í það horfið, sem dönskum hagsmunum kann hentugra að þykja, verdur þá eigi sagt med vissu, þar sem núverandi ráð- herra vor fylgir þeirri reglunni, að láta oss Islendinga vera þess æ sem allra vandlegast dulda, hvaða frumvörp hann fer með út yfir pollinn, eða ætlar sér, er að heiman fer, að fá framgengt. En samkvæmt símskeyti, er oss barst rétt í þessum svifum, kvað danska blaðið „Nationalt,idende“ þó staðfesta skýrsluna í „Berlinga tíðmdunum“, er fyr getur, í öllum greinum. Það kvað hafa verið álislenzk mál- efni (atvinnu- og sveitarstjórnar-málefni o. fl. o. fl.), er hr. H. Hafstein lét dönsku ráðherrana fá sig til að skrafa ogskegg- ræða um við þá á danska ráðherra-fund- inum, 23. maí síðastl. Það er nú harla ólíkleg’t, að báðum blöðunum, „Berlinga“- og „National“- tíðindunum, segist rangt frá í þessu efni, eða að um misskilning sé, eða geti, á nokkurn hátt verið hér að ræða. En hvernig lízt þá Islendinguni á hlikuna? Yera má að vísu, að dönsku blöðin, er fyr er getið, hafi að þessu sinni fleypr- að því fram, er levnt áfti að fara. Hafi fleyprað því fram, er H. Haf- stein ætlaðist að minnsta kosti til, að leyndist innan fjögra veggja. En sé svo, að leynt hafi átt að fara, bætir það sízt úr skák. Skyldi nú annars eigi geta verið, að hér kenni einnar atíeiðingarinnar af í- stöðuleysinu, er dönsku ráðherrarnir ráku sig á hjá ráðherra vorum, er hann ræddi við þá um „bræðinginn“ á síðastl. hausti, og lét þá fá sig til að halda aptur heim- leiðis með „grútinn11? fáirdu skollanum litla tingurinn, reyn- ir hann tidast, vonum bráðar, ad ná i alla hendina. Og „grúturinn sýndi oss Islendingum það vissulega rajög greinilega, í hvaða horfið dönsku ráðherrarnir vilja, að nú sé haldið. I engslin vid Danmörku séu reyi d fast- ar og fastar. En þegar slíks verður vart, þá er þess og því fremur brýn þörfin, að standa sem allra blýfastastir á móti. Hvað núverandi ráðherra vorn snertir, þá er þó öðru nær, en honum sé það vel lagið. Hann er eigi bjargfasti kletturinn, en öllu fremur lausa mölin, er „Danskurinn“ er annars vegar. Það er bæði gömul, og ný saga.-------- Annars getur manni — er hugsað er til fregnanna í „Berlinga“- og „National“- tíðindunum — eigi annað, en flogið í huga, hvort hér sé um aleinstaklegt til- felli að ræða, eða þessari sömu reglunni hafi æ verið fylgt í ráðherratíð hr. H. Hafstein’s, þótt annað hafi hér á landi verið látið i veðri vaka. Daglega lífið sýnir oss það þvi miður eigi sjaldan, að jafn vel sumir „góðu drengirnir“, — sem svo eru nefndir, og svo vúja láta sig kalla — geta og haft þad til, að bregða stundum hinu og þessu fyrir sig, er á þykir.þurfa að halda, er ei sé með öllu hliðstætt við það, sem þeir hinir sömu kalla „fagran leik“. En hvað sem því nú líður, þá er hér um svo AÍi\v-alvarlegt og þýdingar-míkid málefni að ræða, að skylt er alþingi voru, að taka nú þegar sem allra rögg- samlegast í taurnara. Þingið verðui* að kreí'jast þess, að ráðherrann gefi því þegar, alvafninga- laust, seni glöggasta, og einlægasta, skýrslu um málið.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.