Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.07.1913, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.07.1913, Qupperneq 1
✓ 29.-;í0. tbl. Reykjavík 10. jiilí 1913. XXVII. árg. Landsbankinn. Frá þessiun tlegi tekur Landsbankinn fyrst uin sinn forvexti af víxlnm og vexti af lánuni, öðrum en veð- deildarlánum, f> ' 2 °|o p- auk trainlengingargjalds. Frá sama tíma greiðir bankinn 41.2 °jo p- a. af fé, sem lagt verður inn gegn viðtökuskírteini, þegar upp- hæðin nemur 500 kr. og stendur ólireyfð (» mánuði. Reykjavík 5. júlí 1913. Bankastjórnin. íslandsbanki. Frá þessum degi tekur bankinn fyrst um sinn forvexti af víxlum og vexti aflánum öðr- um en fasteignarveðslánum með veðdeildar- kjörum 6 %% p. a. auk framlengingargjalds. Frá sama tíma greiðir bankinn 4' ■>% p. a. af fé, sem lagt verður á innlánskírteini, þegar upphæðin nemur 500 kr. og stendur óhreyfð í 6 mánuði. Reykjavík 5. júlí 1913. Stjórn íslandsbanka. Álþingi. Alþingi var sett þriðjudaginn 1. júli þ. á., — að undan genginni guðsþjón- ustugjörð í dómkirkjunni, þar sem síra Kiistinn Danielsson, 2. þm. Gullbringu- og Kjósar-sýsu, sté í stólinn. Ráðherra H. Hafsein las upp opið bréf konungs, er veit-ir honum heimild, til að setja þingið, og bar þinginu jafn- framt kveðju konungs, og góðar óskir hans, svo sem hann kvað konunginn hafa mælzt til siðasta kvöldið, er þeir voru saman (28. maí þ. á.) Lýsti hann því síðan yfir, í umhoði konungs, að alþingi væri sett. Þm. ísafjarðarkaupstaðar (síra big. Stef.) spratt þá upp úr sæti sinu, og hrópaði: „Lengi lifi konungur vor, Christ- ian hinn tíundi!“, og risu þingmenn þá úr sætum sínum, og tóku undir, með niföldu húrra-hrópi. Ráðherra skoraði síðan á eizta þing- manninn, Júl. Havsteen (1. kkj.), að ganga til forseta-sætis, og armast, sem aldinsfb?- seti, prófun kjörbréfa 5 nýrra þingmanna m. m., sem og að sjá um kosningu for- seta sameinaðs alþingis. Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar, sem skrifara: Þm. ísafjarðarkaupstaðar (síra Sig. Stef.) og 1. þm. Norðmýlinga (Jóh. Jóhannesson). Kjörbréf nýju þingmannanna voru síð- an prófuð, og kosningarnar allar teknar gildar, enda engin kæra fram komin. Tveir nýju þingmannanna, er eigi hafa áður setið á þingi, þ. e. þm. Barðstrend- inga (tlúkon Kristófersson), og 2. þm. Sunnmýlinga (Gudm. Eggerz) unnu síðan eið að stjórnarskránni. Þá er næst að geta embættismanna kosninganna á þinginu, og munum vér síðar skýra fiá því, sem þar dylst að baki. Kosningarnar fóru, sem hér segir: A. Sameinað alþingi. Lar var forseti kosinn: Jón Magnússon (þm. Vestm.) 20 atkv. (Næstur honum hlaut L. H. Bjarnason 18 atkv.) Þá var vara-forseti kjörinn: Sig. Stefánsson (þm. ísafjk.) 20 atkv. (Auðir seðlar voru 10, en atkvæðin dreifð að öðru leyti.) Að því loknu voru kosnir skrifarar sameinaðs alþingis: jóh. Jóhannesson (1. þm. Nmýl.) 22 atkv. (Jl. Briern (1. þm. Skagf.) . . 19 — (Auðir seðlar voru 15, en atkvæðin ella á víð og dreif.) Geta má þess, að forseti minntist, með fám orðum, þriggja látinna þing- manna (Björns ráðherra Jónssonar, síra Jens Pálssonar, og Jóns í Múla Jónsson- ar), — taldi þá alla mikilhæfa menn "vorið hafa o. s. frv. B. Neðri deild. Þar gekkst þingm. Mýramanna (sira Magnús Andrésson), sem aldui sforseti, fyrir forseta-kosningunni, og kvaddi sér í því skyni tvo til aðstoðar: 2. þm. Rangvell- inga (síra Eggert Pálsson), og 1. þm. Norðmýlinga (jóh. Jóhannesson). Kosninginn fór þannig: Forseti: Magnús Andrésson 15 atkv. (Næstui' honum hlaut Jon Olafsson 8 atkv., en þrír atkvæða-seðlar voru auðir.) Þá var kosinn: Fyrri vara-forseti. Við þá kosningu féllu atkvæðin fyrst þannig, að dr. Valtýr hlaut 8 atkv., en Jón Olafsson 6, og 7 atkvæða-miðar voru auðir, en eitt atkvæði féll á Stefán í Fagraskógi. Varð þá að kjósa aptur, þar sem eng- inn er rétt kjörinn, nema meira, en helm- ing atkvæða hljóti. Hlaut þá kosningu: Jón Ólafsson 14 atkv. (Dr. Valtýr hlaut 10). Þá fór fram kosning annars vara- forseta, og fór kosningin þannig: Auðir seðlar ... 13 Pétur Jónsson . . 7 dr. Valtýr .... 2 Sig. Sigurðsson . . 2 Hér virtist þá, sem farið væri að reglunni, að „betra“ væri „autt rúm, en ílla skipað“, og varð því að kjósa að nýju, og hlaut þá: Pétur 10 atkv. og dr. Valtýr 5

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.