Lögberg - 27.09.1900, Qupperneq 1
* Air-Tight Oínar
fyr!r 'vid
____ . „ $3.00 og upp.
Rod & Blue Tr.'iding,8tamps.';í(.
ANDERSON&THOMAS,
538 Nain Str. é
v%%%%%%%%%%%%%%%%%%%~ai
f^% %%%%%%%% %%%%%%%%%%%%
■ Lampar^ Í
V ó h "»fum fengid n<tt upplag af nýjum Vtmp. v
nm fyrir tott ve d, « in verda seldir n j >g m
ódýrt komid og skodid þá. ^
Red & Blue Trading Stamps. ^
ANÖERSON & THOMAP, J
# Hardware Merchants. - 538 Main Str, é
i%. %%%%%%• %%%%%% %% %% % % %-i
13. AR.
Winnipeg, Man., ílmmtudaginn 27. scptember 1900
NR. 38.
*
The Northern Life
Assurance Company of Canada.
Adal-skrifstoka: London, Ont.
IIon- DAVID MILLS, Q C.,
Dómsmálarúdgjafl Canada,
forseti.
JOHN MILNE,
yflrumfyónarmadur.
LORD STRATHCONA,
medrádandi.
HÖFUDSTOLL: 1,000,000.
*
*
x
x
*
X
X
%
m
m
m
m
m
h
m
m
x
m
m
%
m
m
m
Lífsábyrgfarskírjeini NORTHERN LILE féhgsins ábyrgja hxndhöfum allan þann
IIAGNAÐ, öll þau RÉTTINDI og alt það UMVAL, sem nokkurt félag ce ur
staðið við að veita.
Félagið gefur öllum skirteinishöfuin
fult andvirði alls cr J>eir borga ]>ví.
Áíur en þér tryggið l'f yðar ættuð þér að biðja undirskrifaða um bækiing fé-
lagsins og lesa hann gaum&æfilega.
J. B. GARDINER j Provincial Manager,
507 McIntyre Blocr, WINNIPEG.
TH. ODDSON , Ceneral Agent
SELKIRK, MaNITOBA.
m
m
m
m
m
*
m
m
m
«
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
Fréttir.
tTLÖND.
Ófriðurinn í Snður-Afríku má
lieita á enda, þvi lið Búa er ýmist
tvístrað í smáflokka, hefur geflst
upp eða verið tekið til fanga. Bret-
ar hafa náð flestum eða Ollum fa.ll-
bissum Búa-liðsins, vögnum þeirra
og hjörðum, svo þessir flokkar, sem
enn eru eftir, eru bara flóttalið, sem
verður að lifa á ránum. þannig
náði Methuen nýlega af Búum einni
síðustu bissu þeirra, 80 vögnum,
8,000 nautgripum iog 4,000 sauðkind-
um. Um 700 af liði Búa flýðu mn
1 eignis Portugalsmanna. Kruger
er lagður á stað til 7/ollands, á her-
skipi sem stjórnin þar bauð honum,
og skifta Bretar sér ekkert af flótta
hans þangað. Steyn, fyrrum for-
seti í Orange-ríkinu, er nú að reyna
að flýja norður með flokk manna,
en Bretar munu ætla sér að sitja
fyrir honum og fanga hann. Marg-
ir kenna nú Steyn það meir en
Kruger, að Búar óPu inn í land
Breta og hófu ófriðinn með því:
Flest Canada-liðið er nú í þann veg-
inn að leggja af stað heimleiðis frá
Afríku, en þó ætla um 300 menn að
verPa eftir til leiksloka.
Engar sérlegar fréttk eru af ó-
friðnum í Kína. Friðarsamningai
eru ekki byrjaðir, en það virðist
vera í aðsígi að stórveldunum komi
saman um grundvöll fyrir að byija
að semja. í millitíðinni er Evrópu-
liðið að tvístra „Boxers," eyðileggja
kínversk virki, hergögn og skotfæri.
Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar segja
að „Boxers“ og fylgismenn þeirra
hafi í alt drepið 25,000 af kínversku
fólki, sem tekið hafði kaþólska trú.
BANPARlKlN.
Voðalegur fellihylur æddi yfir
l>æinn Morristown, í Minnesota-ríki,
um kl. 6 síðastl. mánudagskvöld og
eyðilagði noklcur hús og skemdi
tieiri. En hið sorglegasta er, að 10
inenn mistu lífið—8 í sama húsinu,
®r hrundi yfir þá.
Síðustu fréttir segja, að um
12,000 manns hafi farist í alt á suð-
urströnd Texas-ríkis í skaðræðis
Veðrinusem eyðilagði Galveston, og
að eignatjón nemi í alt frá 20—25
milj. doll. Ákafar rignii gar hafa
®g nýlega gengið í suðurhluta Tex-
us, svo fljót hafa flóð yfir bakka
s!na og eyðilagt eignir, en ekkert
Uianntjón orðið.
Ur bœnum
°g grendinni.
Vér viljum benda lesendum vor-
um & auglýsingu E. Thorwaldsonar,
M-mntain, N. D., & öðrum stað í þessu
blaöi.
Vér viljum biðja kaupendur Lög-
bergs, bæði liór I bænum og annars-
staðar, að muna eftir því, að láta oss
undir eins vita þegar peir skifta um
kústað, svo vór getum sóð um að
klaðið komi til hvers eins með skilum.
er ant um, að hver og einn kaup-
uudi fái blaðið og fái pað á iéttum
lítna, en pað er þvl að eins mögulegt,
&ð vér vitura með vissu utanáskrift
^vers eins í hvert skifti sem blaðið
kemur út.
Veðrátta hefur mátt heita mjög
úhagstæð yfir höfuð siðan blað vort
koui át síðsst. Að vísu var þurt veð-
ur og sólskio stðustu dtga vikur.nar
sem leið og á sunnudaginD, en á
m&nudagsmorgun fór að rigna og var
dynjaDdi brakviðri af austri, en hlýtt,
allan daginn. Síðan gekk vindur í
norður og vestur og kólnaði mikið,
en þó var meira og minna úrfelli í
fyrradag og framan af I gær. Vestur
f landinu féll allmikill snjór, og hér í
dalnum lá við fjúk í gærmorgun.
Frjálslyndir rr.enn f S-i'kirk-
kjördæmi hóldu fund hór í Winnipeg
f fyrradig (25. þ. ro.), í þvf skyni að
tilnefna þingmanDsefni til sambands-
þingsins við næstu almennar kosn-
ÍDgar. Hinn núverandi þingmaður
kjördæmisins, Mr. John A Macdon-
ell, hafði tilkynt forseta félags frj&lv-
lyndra manna fyrir Selkirk-kjördæmi
bréflega fyrir fundinn að hann gæti
ekki gefið kost & sér aftur, svo hann
var ekki I vali, þótt einnig væri
stungið upp & honum. Flest atkvæði
fengu þeir W. F. McCreary, innflutn-
inga ,,con missioDer11 hór 1 Winnipeg,
og F. W. Cololeugh, fiskiveiða-um-
sjónarmaður f Selkirk. Við sfðustu
atkvæðagreiðalu með seðlum fékk
Mr. McCreary 41 atkv., en Mr. Col-
cleugh 17. Samkvæmt uppástungu
var Mr. McCreary sfðan kosinn í einu
hljóði. Mr. McCreary bélt all-langa
og skorinyrta ræðu um leið og hann
If'sd yfir að hann tæki tilnefningunni.
!! nn hefur verið borgarstjóri hér í
XX’inn’peg og er g&faður og duglegur
roaður, og góður ræðumaður. Innan-
tlkisráðgjafi Sifton kom á fundinn
eftir tilnefninguna og hélt ágæta og
all langa ræðu. Því miður höfum vér
ekki pláss fyrir frekari skýrslu um
fundinn í þetta sino.
Vér höfum orðið varir við eftir
fylff jaudi menn frá Nýja-íslandi hér í
bænu n vikuna sem leið og fyrripart
þessarar viku: Jóhannes Sigurðsson,
kaup-r. fráHnausum; Kristjón Finns
son, kaupm. frá Islendingafljóti; Svein
Thorvaldsson, kaupmann frá íslend-
ingafljóli; Tóœas Björnsson, bónda
frá Geysir; Sigurm. Sigurðsson, bónda
frá Geysir; Mr. Chr. Paulson, frá
Gimli; kaupmennina Guðna Thor-
steinsson, B. B. Olson og C. B Julias,
frá Gimli; og S. O. Eirfksson, bónda
frá Husavick.
Can. Pacific-j&rnbrautarfélagið
er nú búið að gera samning um að
láta byggja framlenging af Selkirk-
grein sinni norður að suðvestur horni
Winn peg-vatns, 22 mílur frá Selkirk
Blöðin kalla þetta Gimli-j&rnbraut, en
eins og allir kunnugir menn vita, þá
á þessi brautarstúfur ekki svo mikið
sem að ná að suður-takmörkum Ginili-
sveitar og verður Nýja-íslandi að
litlum notum, cinkum ef það er rét.t,
sem oss skilst, að brautarstúf þennan
eigi að nota einungis til skemtiferða
á sumrum að vatnsendanum, en ekki
láta lestir ganga eftir honum aðra
tíma ársins. I>að kvað eiga að undir-
búa 4 mflur af stúf þessum norður
frá Selkirk nú í haust undir lagniogu
teinanna-
Siæmi hausverkurinn
mundi fljótt hverfa undan Dr. Kings
New Life Pills. Þúsundir manna
eru búnar að reyna ágæti þeirra viö
höfuðverk, l>ær hreinsa blóðið, og
styrkja taugarnar og hressa mann all-
an upp. Gott að taka þær inn, reyn-
ið þær. Að oins 25c. Peningum skil-
að aftur ef þær lækna ekki. Allstað-
ar seldar._______________
Mr. Gísli Jónsson, póstmeistari
að Wi!d Oak, Man., kom hingað til
bæj8iius síðastl. mánudagskvöld og
býst við að fnra heimleiðis aftur I dag.
Hann kom hingað með dóttir sfna,
sem hann kom hér fyrir til að læra að
leika á orgel. Mr. Jónsson segir al-
mi nca heilbrigði og vellíðau úr sínu
bygðarlagi (ísl. bygðinni & vestur
strönd Manitoba-vatns), og að bænd-
ur þar blómgist efnalega með hverju
átinu.
Markverd lækning.
Mrs. Michael Curtain, Plainfield,
111. segist hafa fengið slæmt, kvef, er
settist að í lungunuin. Húd var und-
ir umsjón heimilis læknisins f meir en
máuð, en lakaði stöðugt. Hann
sagði henni að hún hefði tæring, sem
engin meðöl læknuðu. Lyfsalinn
ráðlagði Dr. King’s New Discovery
við tæring. Hún fjekk flösku og
skánaði við fyratu inntökuna. Hún
brúkaði sex flöskur og er nú eins
frfsk og nokkurntfma áður. Allstað
er scit fyrir 50c. og $1.00 flaskan.
Mr. Ólafur Ólafsson, lestarstjóri
á Can. Pscific-járnbrautinni, sem
heima á í Moose-jaw, kom hingað til
bæjarins um byrjun þessarar viku og
fór aftur heimleiðis f fyrrakvöld.
Eins og suma lesendur vora raun reka
minni til,gaf Mr.Ólafsson fyrir nokkr-
um árum silfurbikar handa fsleDzkx
,,hockey“-klúbbunum hér að keppa
um eftir vissum reglum. Mr. Ólafs-
son lofaði þ’1, að þegar búið væri að
vinna þann bikar samkvæmt þeim
reglum er hann setti, þá skyldi hann
gefa annan, Nú hefur skilyrðunum
viðvíkjandi fyrri bika’-num verið full-
nægt fyrir nokkru, svo Mr. Ólafsson
gerði sér nú þessa ferð til þess að
panta annan hæfílegan bikar handa
„hockey“-íélögunum að keppa um.
Hinn nýi bikar verður mjög fallegur,
og kostar um #30. Nú verðar þvf
aftur tækifæri fyrir „hockey“-félögin
að keppa um fallegan bikar í vetur.
,,Our Youcher“ er bezta
hveitimjölið. Milton Milling Co. &
byrgist hvern poka. 8é ekki gott
hveitið þegar arið er að reyea það,
þá má skila pokanum, þó búið sé að
opna hann, og f& aftur verðið. Reyn-
ið þetta góða hveitimjöl, ,,Our
Voucher“.
ftKEMTlSAMKOMfl
Verður haldin í TJALDBÚI)INNI
FIMTUDAGINN, 27. SEPT.
(í KVELD).
Byrjar kl, 8 á mínútunni.
Prooram:
1. Instrumental music,.. Mr.G. Anderson
Mrs. Murrell.
2. Solo.................Miss Johnson
3. Solo.............Henry Thompson
4. Ræða.............Séra Jón Jónsson
5. Solo..................S. Anderson
6. Recitation............Miss Bardsl
7. Solo..................Miss Hðrdal
8. Upplestur.......Séra B. Þórarinsson
9. Solo... .........H enry Thompson
10. Duett.....Misses /ohnson & Rolson
11. Tala..........Sig. Júl. Jóhannesson
12. Instr. music. .Anderson & Mis.Murrel
13 Solo...................S. Anderson
Aðgangur 25c. fyrir fullorðna ,og lfc.
fyrir börn.
fyrir
Átta strangar af 52 tumlungi (tvíbroiðu)
metallic röndóttu Farmer’s Sitin, með
dökkum, bláum eða grænura röndum á
milli. Þessar vörur eru afbtagð að gæð-
um og þola áreiðanlega þvott. Efni þe!tv
er sérleea hentugt í Blouses og millipils
á þessum tíma ársins (rétt á árstíðamótun-
um), og aldrei veri^ se’t fyrir minna e i
Þér getið valið úr því á meðan þ\ð »ndist,
sem ekki verður lsngi, fyrir
CARSLEY
& co.
344 MAIN ST. •
Islendingur vinnur í búðinni.
SAMKOMA
rpNCERT & OAN8.
MIÐVIKUD4GINN,
10. OKTOBER,
klukkan 8 síðdegis á
Canadian Forest.er’s Hall.
(á horninu á Main Str. og Alexander Ave.)
PROGRAM:
1. I’iano Solo............Miss Doyle
2. Solo...........Miss McKenzie
3. Ræða.......Séra Bj, Þórarinsson
4. Bnet.Misses McKenzie & P irker
5. Upplest ir.Kr. Á. Benidiktson
3. Solo...................Miss INrker
7' Óákveðið...S. JiU Jóhannes<on
8. Duet...Miss Lossie McKenzietfc
Master Robbie McKenzie
9. Solo...........M's8 McKenzie
10. Recitition....MissO. McKenzie
11. Duet ... Misses B. McKenzie & Parker
12. Piano Solo............Miss Doyle
Wigston.s stving band spilar fyrir d ins-
mn.
The J Ixeelsii ir Lik
i asuran eeCo.
Siv»úið yður fyrir um skírteini félags-
ins uppá dánargjald eðaborgun um ákveð-
inn tima. Það er bezta og ódýrasta fyrir-
komulagið, sem boðið er.
Veð bæði hjá sambandsstjórninni og
fylkisstjórnunum. Eiua lífsábyrgðarfc-
lagið, sem á þann hátttryggir sKírteinis-
hafa.
Æskt eftir umboðsmönnum allsstaðar
þar sem emrir umboðsmenn eru. Góðunv
umboðs.TK>nnum verða boðin góð kjör.
Snúið yður til
Wm. Harvey,
Manager for Manitoba & The North West
Territories
Cor. Main & Notre Dame, WINNIPEC.
S. J. JÓHANNESSON,
General Agent, WINNIPEG
S. G. THORARENSEN,
Special Agent, GIMLI, MAN,