Lögberg - 03.08.1905, Page 4
4
LOGBERG FIMTUDAGINN 3. ÁGÚST 1905
er gefið út hvern fimtudag af The Lögberg
JpRINTING & PUBLISHING Co., (löggilt), að
Cor, William Ave., og Nena St. Winnipeg,
Man.—Kostar 82.00 um árið (á Islandi 6
ttr. Borgist fyrirfram, Einstök nr. 5 cts.
Published every Thursday by the Lög-
oerg Printing and Publishing Co. (Incorpor-
ated), at Cor. William Avenue & Nena St.,
Winnipeg, Man—Subscription price $2.00
per year, payable in advarce. Single
copies 5 cts.
M. PADLSON, Edltor,
J 1 iLON'I) AL, Bus. Manager.
f t. ísingar.—Smá-auglýsingar í eitt
■} cent fyrir 1 þml. Á stærri auglýs-
,*ga33 am lengri tinaa, afsláttur eftir sam-
Jgi.
t,P, ,k.i» ». Kaupsuúa verOur að til-
,ycn sKriflega og géta um fyrverandi bú-
staðií-fnframt.
Utanáskrift til afgreiðslustofu blaðsius er:
The LÖGBEKG PHINTING át PL'BL. CcT
P.O, Box 135.. W'innipeg. Man.
lelephone 221.
I tanáskrift til ritstjórans er:
ditor Lögherg,
I t 1 t : t, V’ 1 t 1 eg,.Mn.
Samkvæmt landslögum er uppsögn kaup-
anda á blaði ógiíd nema hann sé skuldlaus
þegar hann segir upp.-Ef kaupandi, sera
er í skuld við blaðið, flytur vistferlum án
þess að tilkynna heimilisskiftin, þá er það
fyrir dómstólunum álitin sýnileg sönnun
fyrir prettvíslegum tilgangi.
Iðnaðarsýningin.
Wínnipeg iönaðarsýningunni er
íokið ,gestirnir flestir farnir heiai-
leiðis og alt búið að ná sinni eðli-
legu k\ rð og spekt í bænum. Sýn-
ingin hófst þann 20. og stóð þang-
að til að kveldi þess 28. Júlí, eða
átta virka daga, og aðsóknin var
meiri en hún hefir nokkurn tíma að
ur verið, nema í fyrrasumar; þá
var sýningin fyrir Canada í heild
slnnni, en nú ekki nema fyrir
Manitoba-fylki. Sýningin í fyrra
stóð í tíu daga virka og var sótt af
J57 ,583 gesturn ;í ár stóð hún tveim
dögum skemur og var sótt af 112,-
764 gestum.
Eins og aðsóknin áð sýningu
þessari var meiri en á undanförn-
um árum, þegar hún hefir einungis
verið fylkissýning, eins var það—
og jafnvel meira en að sama skapi
—meira og fullkomnara sent nú
var til sýnis af alls konar iðriaði.
Eini vegurinn til Jæss að fá
nokkurn veginn rétta hugmynd i
fljótu bragði um hinar stórstígu
framfarir Manitoba-fylkis er að
sækja svona sýningar og sjá og
skoða þa$, sent þar er til sýnis.
Mann rekur í rogastanz aö sjá
skepnurnar, hvað miklu er hægt til
leiðar að koma með kynbótum,
hvernig nautgripir, hestar, sauð-
fé, svín, alifuglar o. s. frv. ekki
á saman nema nafnið. Eins kem-
ur það flatt upp á mann hvað
verksmiðjuiðnaður er vel á veg
korninn í fylkinu svo ungt sem
það er og svo skamt sem liðið er
síðan þar var um nokkurn verk-
smiðjuiðnað að ræða. Þá er ekki
skömm að hannyrðum kvenna,sem
þar eru sýndar; eða sýnishorn af
því sem nnga fólkið hefir lært í
bamaskólunum: dráttlist, skrift,
smíði o. fl. Til þess’ að skofca alt
þetta vel og rækilega veitir manni:
ekki af tveitnur dögum frá því \
klukkan 9 árdegis og þangað til |
sýningunni er lokað aö kveldinu. |
C)g skoði maður vel, þá er mikið á j
þvi að græða.
En fyrirkomulagið á sýningunni!
er afskaple^a einkennilegt, og sæ-1
ist það bezt ef hægt væri að sýna:
uppdrátt af sýningarsvæðinu. A
bezta svæöinu, miðbiki garðsins, [
■sem allur fólksstraumurinn hlýtur j
fvrst að liggja inn á þegar inn fyr- |
ir hliðin kennir, standa leikhús og 1
sölubúðir, sem nsenn hafa borgað
forstööumönnum sýningarinnar
stórfé fyrir að mega reisa þar. Úti
fyrir hverju leikhúsi og hjá hverj-
um söluklefa standa menn hóandi,
argandi, grenjandi, til þess að
draga athygli gestanna frá öllii
öðru en sér. Og ekki einasta láta
vargar þessir rödd sína nægja,
heldur hafa þeir blístrur, horn og
alls konar uppfundníngar sem
framleiða • óútmálanlega ámátleg
hljóð og öskur. Þannig lætur ó-
argalið þetta dæluna ganga allan
liðlangan daginn og kveldið.
Til þess að hafa nokkurt veru-
legt gagn af sýningunni verður
maður að loka eyrum sínum fvrir
ógangi þessum og augunum fyrir
glisvöru prangaranna og létt-
klæddum dansmevjum sem upp er
stilt frammi fvrir leikhúsunum, og
troðast gegn um mannþyrpinguna
eftir mjórri gangstétt þangað til
kemur vestur í hinn óásjálegri
hluta svæðisins sem lokað er frá
útsýninu með háum vegg og
stólpagöngum. Þar í útjaðri sýn-
ingargarðsins eru sýndar skepn-
urnar og alls konar jarðyrkju og j
verksmiðjuiðnaður. En það er víst í
mestur hluti gestanna sem aldrei j
kemst svo langt, heldur nemur |
staðar hjá leikhúsunum og búðun-;
um og lætur þar fyrirberast þang- i
að til farið er inn í grcind stand. j
Magir fara svo þaðan, að þeir vita j
ekki að neitt annað eða merkilegra
hafi verið að sjá en sölubúðirnar og j
fánýta leiki, og svo tala þeir eðli-
'fega misjafnlega vel um sýninguna J
þegar út kemur.
Fyrirkomulag þetta álítum vér ■
óhafandi eigi iðnaðarsýningin' að j
verða að almennum notum, en ekki j
einungis féþúfa fvrir vissa menn
á kostnað alþýðu. Aukaatriðin — j
leikhúsin og sölubúðirnar með öll- j
um þeirra gauragangi — ættu að j
vera í útjöðrunum; þeim er treyst-
andi að láta til sin heyra, hvar sem
er í garðinum. Til þess aö komast j
Jjangað ætti leið manna að liggja j
fram lijá sjálfri sýningunni, en
henni ekki að vera bolað frá, út í I
horn, þar sem engir aðrir en kunn-
tigir menn geta fundið hana.
Á þessu hefir aldrei boriö jafn
tilfinnanlega og nú vegna þess C.
P. R. félagið flutti ekki fólk að
sýnSngunni og frá, og umferðin
um vesturgarðiun var engin.
-------o-----—
Toll-lækkun í Bandaríkjunum
Hinn 15. og 16. þ. m. verðui;
haldið þing í Chicago til þess þar
að ræða um gagnskiftaverzlun við
önnur lönd, og er svo ráð fyrir
gert, aö þing það skori á stjórnina
! í Washington að gera nauðsynleg-
| ar ráðstafanir til þess að Norður-
álfustjórnirnar ekki haldi áfram að
herða á tökunnm til þess að gera
Bandaríkjamönnum ómögulegt að
selja þar verksmiðjuiðnað sinn og
afrakstur jarðarinnar. Að þingi
þessu fylgi full alvara og, að það
sé líklegt til að hafa enhverja þýð-
ing, má af því marka, að fyrir því
gangast Chicago Board of Trade,
Millers’ Xational Federation og I
Ulinois** Manufacturers’ Associa-
tion. í umræðuntim um mál það,
sem þingið er kallað saman til að
ræða, hefir það komið frarn, að
verzlunar og framleiðslukraftar |
landsins skiftast í tvo aðalflokka. j
Annar 'er ósveigjanlega meö því, j
að innflutningstollar haldist ó- j
breyttir; hinn þykist sannfærður;
um, að toll-lögjöfin ætíi að yfir j
skoðast og töllarnir i mörgum1
grcinum aö lækka. Fvrnefndi flokk
urinn lætur leiöast af þeim sem1
gúkna yfir innlenda markaönum i í
skjóli tollanna og geta svo að segja !
átt það algerlega í hendi sér hvað '
mikið þeir leggja á vöru sína;l
sem álíta það miklu hættulegra að 1
láta losa um böndin sem lögð hafa
verið á þjóðina með vemdartollun- j
um, heldur én þó höft séu lögð á j
solu á vörum Bandarikjamanna á
útlendum markað. Að vísu eru þeir
þyí sterklega meðmæltir, að út-
lendar hafnir og útlendur markað-
ur standi þeim ætíð opið, og láta
aldrei á sér standa að krefjast’
þefes; en hvað sem á gengur, þá á-
líta þeir sjálfsagt aö loka höfnum
og markaði Bandaríkjanna fyrir í
útlendri vöru;
Hinn flokkurinn er aðallega
jæir, eða lætur leiðast af þeim,sem
framleiða eða verzla meö vöru tfi
útflutnings og útlendi markaður-!
inn ræður verði á. Menn þeir j
eru nú farnir að reka sig á það,
að þeir bíða tvöfalt tjón af há-
tollúnum. Þeir verða ekki einasta
aö borga uppsprengt verð fyrir
innlenda vöru tollanna vegna.held-
ur spilla tollarnir fyrir sölunni á ;
vörum þeirra á útlenda markaðn-;
um. Þannig er því varið jafnvel j
í löndum þar sem engir tollar eru
á útlenda vöru lagðir og engin j
höft eru lögð á vöru innflutnng frá!
Bandaríkjunum; því að löndin,
sem kaupa, verða að borga nicð j
því, sem þau hafa til að selja, alt
sem lagt er á þaö, sem þau selja
feflur einnig á það,sem þau kaupa, |
og dregur úr viðskiftuhum; og
lendir byrði þessi ekki að svo j
litlu leyti á bóndanum. Yið þetta ;
bætist nú það, að ýfns Norður-
álfu-ríki hafa fyrir skömmu lagt
sérstakan skatt á vissar Banda-
ríkja vörur. Að vísu gerir skatt- j
tir sá löndum þeim, sem leggia
hann á, miklu meira tjón heldur j
en Bandaríkjunum, því að þeirra j
vegna hækkar helzta nauðsynja-
varan í verði og möguleikarnir til
að selja minka engu síður en í
möguleikarnir til að kaupa. En
táknanir þessar- gegn vöru út-j
flutningni frá Bandaríkjunum eru
hverjunt manni augsýnilegar, og
hafa miklu meiri áhrif á þjóðina
heldur en hinar, sem minna ber á
þótt í sjálfu sér séu langt um j
skaðlegri. Og þeir, sem þær
korna þingst niður á, ætla nú að
láta Washington-stjórnina, nauð-
tiga viljuga, rýma þeim burtu á
einn eður annan hátt.
Þetta er gott sýnishorn af því
hvernig verzlunarfrelsishugmynd-
irnar í Bandaríkjwnum eru. Á
meðan þjóðin álítur hátollana hag
fvrir sig og vill ekki hagga þeim
hið minsta netna gegn sams konar
eða helzt meiri toll-lækkun í öðr-
um löndum, þar sem þeir álíta
æskilegastan markað fvrir vöru
sina, þá er ekki við mikilli toll-
lækkun að búast. Á meðan þjóö-
in ekki áttar sig á því, að hátolla-
löggjöf sé sjálfri henni til tjóns,
án nokkurs tillits til viðskifta-
stefnu annarra þjóða, þá er ekki
við miklu að búast í fríverzlunar- j
áttina.
Þegar Laurief-stjórnin kom til!
valda í Canada-þá var til mikilla 1
1
muna færður niður tollur a brezk-
um vöruin. Margir héldu þvt þá
fram, að með því væri Bretlandi j
veitt mikilsverð hlunnindi, sem ó- j
sanngjarnt væri að fá ekki endur- j
borguð með sérstökum hlunnind- j
um fyrir Canada á brezka mark- j
aðnum. En þetta er stórkostleg- j
ur misskilningur. Hagur var
Bretum óneitanlega að áminstum j
hlunnindum; en fyrst og fremst j
og margfalt rneiri var hagurimi
fyrir Canada-menn. Möguletkar !
fyrir Breta til að selja i Canada
nmrgfölduðust þcgar tollinum j
var létt af; en gróði Canada-
man*ta vár tvöfaldur. Möguleiki
þeirra til að kaupa óx við þaö að
brezka varan lækkaði í verði við
afnám tollsins, og þeir gátu borg-
að vöruna me'ð því Sem þeir höfðu
til að selja; og þegar þannig fékst
aukinn markaðnr fyrir canadísku
vöruna, þá sté htjtn í verði, eins
og kunnugt er, og öll jarðyrkju
framleiðsla fór að borga sig marg-
falt betur.
------o-----
Friðarhorfurnar.
í gær áttu fulltrúar Rússa og
Japþnsmanna að halda fyrsta
fund sinn í Kittery. í Maine, í
Bandaríkjunum, og er það víst
samróma ósk flestra, að samkomú-
lag verði gott og fulltrúaþing
þetta leiði til sætta og varanlegs
friðar. En ekki fær maður séð,
því miður, að horfurnar séu sem
æskilegastar í því efni. Upp á síö-
kastið er hljóðiö í rússnesku blöð-
unum fjarri því að vera friðvæn-
legt. Sá flokkurinn, sem vill halda
striðinu áfram og ekki slaka fyrir
Japansmönnum í neinu, virðist eft-
ir því stækka, sem nær þinginu
til að fiska á vissum stað, án þess
að tilkvnna það stjórnum annarra
landa, J»á sétt útlend fiskiskip alls
ekki skyldug til að vita um slíkt
eða taka það til greina. Bretar
krefjast þess því, að skipstjórinn
sé látinn laus. Bandaríkjastjórn
hefir falið sendiherra sínum þar
syðra að beita áhrifum sínum til að
fá þptta jafnað á friðsamlegan
hátt, en Uruguay-stjórnin er ó-
sveigjanleg og lieldur manninum
og er jafnvel ófáanleg til að leggja
málið í gjörð,eins og brezka stjórn
in hefir farið fram á. Er nú helzt
gert ráð fyrirA að Bret’ar muni
neyðast til að senda herskip suður
þangað til þess að jafna leikinn.
------------o-----
Skemtiferð til
Winnipeg Beach
á miðvikudaginn kemur.
Meðlimir bandalaganna búast
við fjölmenni miklu á Winnipeg
Beach á miðvikudaginn, þann 9.
þ'. m., og hafa ýmsan v'iðbúnað til
þess að gera ferðina og dvölina
Hví skyldu menn
borga háa leigu inn í bænum.meö-
an hægt er að fá land örskamt frá
bænum fyrir gjafvirði ?
Eg hefi til sölu land í St. James
6 mílur frá pcsthúsinu, fram með
Portage avenue sporvagnabráut-.
sem menn geta eignast með $10
niðurborgun og $5 á mánuði.
Ekran að eins $150. Land þetta
er ágætt til garðræktar. Spor-
vagnar flytja mennjalla leið.
H. B. Harmon &Co.
•
Bakers Biock, 470 Main st.
WlNNIPEG.
N.B.—Skrifstofa mín er í sam-
bandi við skrifstofu landa yð-
ar, Páls M. Clemens, bygg-
ingarmeistara.
Fumerton dCo.
Meiri kjörkaup í
ÁGUSTMANUÐI.
dregur. Stjórnin hefir talið þjóð-
inni trú um, að rússneski lierinn í
Manchúríu undir forustu Line-
vitch sé í betra ásigkomulagi en
nokkuru sinni fyr og miklar líkur
til að hann sigri ef til stórorustu
dregur. 'Auk þess er nú þjóðin
pirruð upp með einhverri mála-
myndar stjórnbót.sem í augu henn-
ar'gengur og hlevpir í hana aukn-
um vígamóð. Þannig eru nú sem
stendur ekki miklar líkur til að
Rússar leggi mikið á sig til friðar.
Þá eru Japansmenn ekki liklegir
til að gefa mikið eftir frá því sem
þeir álíta sanngjarnar bætur. Blaö-'
stjóri frá Tokio, einn í föruneyti
Japönsku fulltrúanna, fór þannig
orðum um hugi Japansmanna í við
tali við mann í New York fyrir fá-
um dögurn síðan: „Landar minir
líta þannig á. að enn þá sé ekki
kominn tími til að sættast. Yiö
verðum áður að ná Harbin og Vla-
divostock, því annars er hætt við,
að við verðum síðar að lenda út í
stríð. \'ið megum ekki hætta fyr
en gorgeirinn er algerlega úr
Rússum. \ ið viljum ekki þurfa
að berjast við Rússa eftir að einu
sinni hefir verið saminn friður.“
Og þegar blaðstjórinn var spurðltr
uni kröfur Japansmanna, þá fórust
honum þannig orð: „Eg ímynda
mér, að Japansmenn láti sér nægja
$2,500,000,000. En Sakhalín eyj-
unni verða Japansmenn einnig að
halda, fyrst og fremst vegna þess
að þegar hún gekk ttndir Rússa
fvri'r þrjátíu árum síöan, þá fengu
þeir hana í skiftum fyrir Chishíma
eyjaklasann, sem að réttu lagi
heyrði JapansmÖnnum til, en ekki
Rússum. Á þeim fímum stóð Jap-
ansmönnum ótti af Rússum og
þess vegna varð þetta að samning-
um.“
Nú er það látið berast út á með-
al rússnesku þjóðarinnar, að kosn-
ingar til þjóðþings fari fram 14.
Október næstkomandi og að þing
verði sett 14. Nóvember.
------o------
Bretar og Uruguay-menn
Fyrir nokkuru síðau var skip-
stjóra af canadísku skipi varpaö í
fangelsi í Uruguay í Suður-Ame-
ríku fyrir að fiska á óleyfilegum
stað. Bretar skárust í leikinn og
lögðu kröfur síttar um að maður-
inn yrði látinn laus fram fvrir ut-1
annkisraðherra Bandaríkjannn.
neöra sem allra skemtilegasta.
\'erður fjörugt og gott prógram
þar neðra: söngur, hljóðfæraslátt-
ur og nokkurar fimm-mínútna-
ræður,—og svo sports, sem ætlast
er til að öllum geti oröið til skemt-
| unar. Kapphlaup, kappsund, afl-
; raun á kaðli, kappróður, greesy-
! pole-walk, og fieira.—Agæt verð-
laun.
Járnbrautarlestin leggur á stað
frá C. P. R. stöðvunum á slaginu
klukkan 8 árdegis ýekki 8.30J.
Farseðlar fást hjá H. S. Bardal
bóksala og kosta $1.00 fyrir full-
orðna og 50C. fyrir börn innan 12
ára.
VARIÐ YÐUR A CATARRH SMIRSLUM.
sem kvikasilfur er í, af því að kvikasilfrið sljðfgar
áreiðanlega tilfinningunaog eyðileggur alia líkams-
bygginguna þegar það fer í gegnum slímhimnuna.
Slík meðöl skildi enginn nota uema samkvæmt
læknis íáði, því það tj<5n, sem þau orsaka, er tfu
sinnnoí meira en gagnið sem þau gera. Hall's Cat-
arrh Cure, sem F. J. Cheney & Co., Toledo, Ohio,
býr til, er ekki blandað kvikasilfri, og það er inn-
vortis meðal. hefir því bein áhrif á blóðið og slím-
himnuna. Þegar þér kaupið Hall’s Catarrn Cure,
þá fuilvissið yður um að þér fáið það ósvikið. Það
•er uotað sem innvortis meðal og P'.J.Cheney & Co.,
Toledo, býr til.
Selt í lyfjabúðum fyrir 75C.
G. Thomas,
596 Main st.
Uppboössölunni hér í búöinni
er nú lokið. Af vörunum er þó
enn eftir tíu þúsund dollara viröi
sem þarf að seljast sem allra fyrst
og veröa þær seldar meö pví verði
er alrnenningur setti á samskonar
vörur á uppþoðinu. Svo frjáls-
leg verzlunaraöferö er nýstárleg
og getur naumast komiö fyrir
nema einusinni á æfi manns.
TAKIÐ EFTIR:
Verkamanna Waltham úr í
nikkel kassa, áöur á $8.00 nú á
$4.50. Waltham gangverk í
gyltum kassa meö tuttugu ára á-
byrgð, ganga í 17 steinum; áður
seld á $18.00 nú á $10.50. Ivven-
úr, Waltham gangverk í gyltun)
kassa; áöur $12.00 nú $7.50.
Klukkurnar alþektu, átta daga
gangverk, áöur á $4.00 nú á
$2.25. Vekjaraklukkur áöur á
$1.25 nú á 6oc. Egta gullhring-
ar áður á 2,00 nú á 7 50. $4.00
hringar á $2.00. $3.50 úrfestar
á $i.5o.
Þaö yröi oflangt mál aö fara aö
telja upp hér öll kjörkaupin sem
völ er á. Bezta ráöið er aö koma
og skoöa vörurnar og fá aö vita
um veröiö. Allir rnunu þá fall-
ast á aö hér sé um verulega kjör-
kaupasölu aö ræöa.
Wrappers úr sirzf.
$i.oo\Vrappersúrmisl. sirzi$0.8o
1.25 “ “ “ “ 0.95
1.50 “ “ “ “ 1.15
1-75 “ “ “ “ f-35
2.00 “ ýmisl. skreyttir 1.55
2.50 “ úrsirzi ogmuslin 1.90
Nærfatnaður:
Allir þurfa á nærfatnaði að
haida, hvort sem þeir eru heima
eöa aö heiman. A laugardaginn
kemur byrjar hjá okkur einnar
viku útsala á öllum nærfatnaöi,
sem til er í búðinni. Þeir sem
fyrstir koma geta valiö úr. Því
er bezt aö flýta sér.
H\ ÍT PILS,’ ýmislega skreytt,
áöur á $2. 50. Söluverö $1.90
HVTÍT PILS, áðurá$2.oo. Sölu-
verö $1.55.
HV7ÍT PILS, áöur á $1.50 Sölu-
verð $1.15.
HVÍT CORSET covers,áöur75c.
Söluverð nú 6oc.
“ “ áöur 65C.
Söluverð nú 50C.
“ “ áöur á 50C.
Söluverð nú 4OC.
“ “ áöur á 35C.
Söluverö nú 25C.
DRENGJA BLOUSES úr duck,
svörtu satín og sirzi, veröa seld-
ar meö miklurn afslætti,
Silki og satin blouses með nið-
ursettu veröi.
Heilir hlaöar af svörtum, hvít-
um og mislitum blwuses úr silki og
satin, vel saumaðar og ýmislega
skreyttar.
$7.50 blouses $5.00. $6.00 blous.
$3.85. $5-50 blouses á $3.65.
$5.ooblouses á$3.35. $4.ooblous.
á$2.5o. $15.00 pils úr Taffeta
silki svörtu, á $11.25. $20.00
pils úr sama efni á $13.75.
Fatasalan okkar heldur áfrarn í
eina viku enn. Allir eru forviða á
veröinu. Kjörkaupineru óviðjafn-
anleg og allir fara héöan ánægöir.
Treyjurog vesti.sem þola þvott,
búin til úr hvítu og mislitu efni.
Treyjur $1.75. Vesti$i.50
Gott verð á groceries.
Bláber ioc. kannan. 2 glös af
hunangi á 25C. 25 pd. kassar af
þurknðum eplum á $2.25. Fínt
salt nýkomiö á $2.25. Gróft salt
einnig nýkomið.
Hin mikla kjörkaupabúö.
J. F. FUMERTÖN& CO.
Qlenboro, Man,
Úrið þittþarf hreinsunar.
Hafðu það með þér þegarþú sækir
sýninguna, og láttu mig gera við
og hreinsa það meðan þú dvelur
hér. Vandaðar úr-viðgerðir og
sanngjarnt verð á öllu. Ef þú þarft
að kaupa áreiðanlegt úr eða gull-
stáss af einhverri tegund, þá tal-
aðu um það við mig.—Munið eftir
staðnum.
Héldu Jteir því fram, aö þó Uru- j
guay-menn hafi mcö prívat-samn-1
ingtim veitt vissu félagi einkaleyfi
G. THOMAS,
596 MAIN ST.
C.IN GJ ÁLDSON,
WATCHMAKER& JEWELER
2 0 9 J A M E S S T .