Lögberg - 09.11.1905, Síða 1
Byssur
og skotfæri. Takið yður frídag til þess að skjóta
andir og andarunga. Við höfum vopnin sem
með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu
og skotfæii tilsölu. i
Andcrson &. Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
S38 Main Str. Telephone 339.
Steinolí uofnar,
í kveldkulinu er þægilegt að geta haft hlýtt >
herberginu sinu. Til þess að geta notið þeirra
þæginda ættuð þér að kaupa hjá okkur steinol-
íuofn. Verð $5 00 og þar yfir,
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Main Str, Telephone 339.
18 AR.
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 9. Nóvember 1905.
NR. 45
Fréttir.
Stórkostleg hátíð, til þess að
heiðra minning fallinna hermanna,
var haldin í Tokio .höfuðborg Jap-
ansmanna um síðastliðin mánaða-
mót.
1 kolanámu nálægt Pittsburg í
Pennsylvaniu, fórust fimm menn um
fyrri helgi. Gasloftssprenging varð
þeim að bana.
Bóndi nokkur, að nafni Nyström,
nálægt Fargo í North Dakota, var
rændur á heimili sínu að kveldi fyrra
mánudags. Nyström var að gefa
hestunum sínum og kom þá að hon-
um grímuklæddur maður með spenta
sexhleypu í hendi. Neyddi grímu-
maðurinn Nyström til þess að koma
með sér inn í húsið og afhenda sér
þar þrjú hundruð dollara, sem hann
var búinn að draga saman. Á heirn-
ilinu var ekki annað heimafólk en
Nyström og kona hans og lokaði
ræninginn þau inni í húsinu áður en
hann fór á stað með peningana.
Maður nokkur í Brandon, John
Wright að nafni, sem haldið hefir
þar matsöluhús, var nýlega sektaður
um eitt hundrað dollara og máls-
kostnað, eða tveggja mánaða fang-
elsi ef sektin ekki væri greidd, fyrir
ólöglega vínsölu í liúsum sínurn.
Svo er nú ákveðið, að aukagrein-
ar út frá aðalbraut Grand Trunk
Pacific félagsins verði lagðar til
Calgary, Regina, Battleford, Prince
Albert og ef til vill til Yorkton.
Pessar aukagreinar verða bygðar
jafnframt aðalbrautinni til Edmon-
ton.
Skamt frá Kansas City, Mo., varð
járnbrautarslys fyrra mánudag. Fór-
ust þar þrettán manns, og yfir þrjá-
tiu urðu fyrir áverkum.
Járnbrautarslys varð nýl^ga á Can
Pac. járnbrautinni hjá Dinorwic, sem
er járnbrautarstöð eitt hundrað og
níutíu mílur í vestur frá Fort Willi-
am. Var það farangurslest er rakst
þar á innflytjendalest og fórust tveir
kvenmenn. Finun aðrir farþegar
urðu fyrir töluverðum meiðslum.
Óöld hin mesta ei nú á Rússlandi.
E-ppþot og jafnvel blóðugir bardag-
ar koma þar nú daglega fyrir i ýms-
um borgum ríkisins. Herlið hefir
viða orðið að koma til sögunnar og
skakka leikinn. 1 borginni Riga við
Biystrasalt skutu hermennirnir á
fjölda fólks, sem safnast hafði saman
þar á strætunum á mánudaginn var,
og drápu þar og særðu á annað
hundrað manna. Þessu líkar eru
fréttirnar frá ýmsum öðrum borgum
ríkisins.
Fjölment þing, sem ýmsir merkis-
menn brezka ríkisins skipa, er nú
verið að halda í London á Englandi,
og er umræðuefnið: varnarráðstaf-
anir gegpi tæringarveikinni. Heilsu-
bótarstofnun er ráðgert að byggja í
Kent héraðinu á Englandi, og er svo
ti! ætlast að hún muni kosta um tvö
hundruð og fimtíu þúsund dollara.
Gengst nefnd manna fyrir því að
safna fé saman. Edward konungur
tekur mjög mikinn þátt i því, að
greiða framgang þessa nauðsynja-
máls.
Sænsk-norski sambandsfáninn var
dreginn niður alls staðar í Svíþjóð
hinn i. þ. m., og í stað hans aftur
dreginn upp samskonar fáni og Sví-
ar höfðu fyrir nálega eitt hundrað
árum síðan, áður en Noregur gekk í
samband við þá. Hátiðahöld voru
fánabreytingunni samfara viðsvegar
um land.
Alt að þvi áttatiu þúsund ekrur
af landi seldi Can. Pac. járnbrautar-
félagið í Manitoba, Saskatchewan og
Alberta í síðastliðnum Október mán-
uði. Verðið var fimm dollarar og
tuttugu cent, að meðaltali, fyrir ekru
hverja.
Fréttir hafa borist um það, að
fimm kristniboðar frá Bandaríkjun-
um hafi verið myrtir í Kína. Ná-
kvæmari fregnir ókomnar enn.
Constantine Pobiedonostsiff, æðsti
prestur og yfirmaður kirkjunnar á
Rússlandi, hefir lagt niður embætti
sitt. Er hann ákafur einveldissinni,
og kveðst ekki vilja þjóna þingbund-
inni stjórn.
Sagt er að Marconi loftskeytafé-
lagið ætli enn að breyta um stöðvar
til skeyta sendinga yfir Atlandshaf.
Stöðvarnar sem félagið lét reisa á
Cape Breton í Nova Scotia gera
ekki svipað því það gagn sem við
var búist. Segja þeir, sem stöðv-
anna gæta, að það sé mjög erfitt þar
að ná í skeyti þau, sem þajigað eru
send, þó hægt sé að senda skeyti
þaðan i burtu. Stöðina á nú að
færa um tuttugu og fimm milur frá
þeim stað þar sem hún er nú. Eitt
hundrað og fimtiu þúsundir dollara
hafði það kostað að reisa þessa stöð
á Cape Breton, er nú reynist vera
svo ónóg er til framkvæmdanna
kemur.
England. Bandaríkin, Rússland, ít-
alia, Sviss og Brasilía hafa nú þegar
viðurkent Noreg sem sjálfstætt riki.
Utanríkismála ráðgjafi Norðmanna
hefir tilkynt stjórnum ofannefndra
ríkja, ásamt öðrum, að sambandinu
milli Noregs og Svíþjóðar væri lok-
ið og Oscar konungur væri ekki
lengur konungur Norðmanna. Svör
ofannefndra ríkisstjórna, í tilefni af
tilkynningunni, eru mjög kurteislega
orðuð, og hjartanlegar heillaóskir til
Norðmanna, yfir því að þeir nú séu
orðnir sjálfsrtæð þjóð, eru innifakl-
ar í svari margra stjórnendanna.
Forstöðumaður einnar útihúsdeild-
ar Hamilton-bankans í Hamilton,
Ont., hefir nýlega verið tekinn fast-
ur fyrir það að hafa dregið undir sig
sjötíu þúsund dollara af fé bankans
og eytt í eigin þarfir. Fé þetta hefir
forstöðumaðurinn dregið sér smátt
og smátt á nokkurra ára tímabili, og
farið að því svo kænlega, að engan
htfir neitt grunað.
Manitoba-vatn er nú allagt, og er
það að minsta kosti mánuði fyr en
slikt hefir komið fyrir i mörg undan-
farin ár.
Rúmlega hundrað ára gamall
svertingi, Paul Brown afS nafni, í
St.Paul.Minn., brann til dauðs i rúm-
inu sinu í vikunni sem leið. Hafði
gamli maðurinn verið að reykja í
rúmi sinu og kveikt að óvörum í
sængurfötunum.
Tveir fangar, unglingsmenn, ann-
ar átján, hinn sextán ára, struku úr
fangclsinu í Portage la Prairie um
mánaðamótin og eru ófundnir enn.
Vart hefir orðið við það að epli,
scm send hafa verið frá Ontario til
sölu á Winnipeg-markaðinn, hafa
verið stórkostlega svikin. í tunnum,
sem merktar hafa verið þannig, að
í þeim væri aö eins bezta tegund
epla, og seldar fyrir þá vöru, hefir
orðið allmikið vart við að aðeins
efsta lagið í þeim hefir svarað til
vörumarksins, hitt alt verið ýmis-
konar úrgangur.
Sí og æ halda áfram að berast
frá Rússlandi sögur af hinum ótta-
legustu hryðjuverkum. Eru það
einkum Gyðingar, »em skríllinn nú
ræðst á og drepur í þúsundatali. í
borginni Odessa við Svartahafið
rændi og drap skríllinn nálægt því
sex þjúsund Gyðinga fyrstu þrjá
dagana af þessum mánuði. Er svo
sagt, að hermennirnir, er gæta áttu
reglu í borginni, hafi í stað þess að
vernda Gyðingana hjálpað skrílnum
til þess að ræna og myrða. Jafnt
konur og börn sem karlar hafa ver-
ið myrt. Frá borginni Kishineff
koma samskonar fréttir, að því við-
bættu, að þar hefir skríilinn kveikt í
húsum víðsvegar um borgina og lík-
legast talið, að hún verði brend til
ösku.
í Peterboro-héraðinu í Ontario
hefir bóulveikin nýlega gert all-al-
varlega vart við sig. Þrjátíu manns
liafa verið settir þar undir sérstaka
gæzlu og eru þeir allir meira og
minna þungt haldnir af sýkinni.
Maður nokkur í Portage la
Prairie, John O'Reilly að nafni,
hefir nýlega verið sektaður um eitt
hundrað dollara fyrir ólöglega vín-
sölu.
Vegna þess hvað trostin gengu
snemma i garð, liafa verkamenn-
irnir, sem unnið hafa að undirbún-
ingi á lagningu Grand Trunk braut-
arinnar frá Portage la Praire og
vestur, orðið að hætta við. Mr.
Strevel, sem tekið hafði að sér þrjá
tíu og sjö mílna kafla af þessari
lcið, var búinn að fullgera tuttugu
og átta mílur cr hann varð nú að
hætta. Verkið hefir gengið bæði
fljótt og vel.
Norska skáldið Henrik Ibsen er
sagður allmikið veikur unt þessar
mundir.
Atvinnuleysi í London á Eng-
landi er nú óvenjulega rnikið og
skortur og örbyrgð verkalýðsins
keyrir fram úr öllu hófi. Nýlcga
kom óvanaleg sendinefnd á fund
Balfours. stjórnarforseta í tilefni af
vandræðum þessum. \’oru það
konur hins vinnulausa karlmanna-
lýðs, og annað kvenfólk þcim á-
hangandi. Sögðu konurnar stjórn-
arforsetanum það) umsvifalaiust, að
nema bráður bugur yrði undinn að
því að ráða fram úr vandræðunum,
gæti tæpast hjá því farið, að alvar-
legar óeirðir og blóðsúthellingar
hlytust af. Varð stjórnarforsetanum
ógreitt um andsvör, að öðru leyti en
því, að bann kvaðst viðurkenna að
útlitið væri mjög ískyggilegt, og
hann vonaði að almenn góðgerða-
semi þeirra, sem bctur værtt taddir,
mundi bæta úr neyðinni. Ákaflega
fjölmennur fundur var haldinn er
sendinefndin kom aftur eftir viðtal-
ið við stjórnarforsetann. Einn af
þingmönnunum ensku, Crooks að
nafni, lýsti því þar yfir, að andsvör
Balfours væru ósæmandi stjórnar-
forseta eins voldugrar þjóðar og
Englendinga. Voru mjög margar
æsingaræður haldnar á fundinum,og
endaði hann með hinum mestu ó-
látum og gauragangi.
Uppboð á skólalöndum var haklið
í byrjun þessa mánaðar i Lacombe
og Innisfail í Alberta. 1 Lacombe
voru scldar fjögur þúsund ekrur af
landi, sem komust í hátt verð, eða
að meðaltali niu dollara ekran. I
Innisfail voru seldar sjö þýsund og
fimm hundruð ekrur og varð verðið
þar um átta dollara og fimtíu cent
ekran. Mest af þessu landi keyptu
bændur þar í nágrenninu og ætla að
bæta því við bújarðir sínar.
Nýlega hefir stjórnin í British
Columbia boðið að leggja hald á öll
dráttarskip, sem séu á ferð innan
endimarka fylkisins, fyrir þá sök
að þau bæði hafi verið að undan-
förnu og séu enn notuð til að flytja
timbur út yfir landamærin og til
Bayidaríkjanna; án þess að tollur
sé greiddur áf.
Bóndi nokkur, sem heima átti
skamt frá Hamilton.Ont., drap konu
sína og barn með eldiviðarexi og
skar svo sjálfan sig á háls með
skegghníf, um siðastliðfia helgi.
Ekki var annað fólk á heimilinu en
hjónin og barn þeirra. Nágranni
þeirra einn, sem átti þar leið um,
tók eftir þvi að festur var bréfmiði
á húshurðina og fór að forvitnast
um hvað það væri, með því að
kyrð var á öllu í húsinu. Á bréf-
miðann voru skrifuð þessi orð:
„Við erum öll dauð hér inni. í
rúminu uppi á loftinu bíður hver^
þess sem þangað kemur hroðaleg
sjón.“ Nágrannarnir brutu upp
húsið, og í svefnherberginu uppi á
loftinu ftindu þeir húsbóndann skor
inn á háls og steindauðan. í rúm-
inu lágu lík konunnar og barnsins
og voru þau öll sundur höggin og
illa útleikin.
Af gasloftssprengingu eyðilagðist
marghýsi eitt í Detroit, Mich., á
sunnudaginn var. Fórust þar þrjú
börn og þrettán manns varð fyrir
hættulegum áverkum.
í Minneapolis, Minn., gengu í
gildi í vikunni sem lcið, lög, scm
banna stranglega alla vínsölu á
sunnudögum. Sá borgarstjórinn um,
að Iögunum væri stranglega fram-
fylgt og voru þvi öll hótel í borg-
í borginni harðlcga læst á sunnu-
daginn var. En borgarbúar voru
þyrstir, og með því að ekki eru
nema tiu mílur til St.Paul, og stræt-
isvagnafélagið sá um að bæta við
vanalega vagnatölu, sem gengur þar
á milli, tuttugu og fimm vögnum,
sent gcngu á ntilli nteð fimm mín-
útna millibili, þá lögðu allir hinir
þyrstu borgarbúar frá Minneapolis
á stað þangað. í St. Paul ertt fimm
ittndruð drykkjukrár.að þvi er sagt
er, og kvað þeim aldtei vera lokað
dag né nótt árið um kring. Svo er
áætlað, að eitt hundrað og fimtíu
þjtisund dollara virði af ölföngum
hafi gestirnir frá Minneapolis drukk
ið i St. Pattl þcnna sunnudag.
Maður nokkur í St. Paul, Minn.,
nýlega giftur í annað sinn, lenti í
illdeilum við konuna sína áður en
hann lagði á stað í vinntt siðastlið-
inn laugardagsmorgum Ekki var
annað fólk þar á heintilinu en hjón-
in og fjögur fyrri konti börn manns-
ins. Til þcss nú að hefna sín á
manni sínum tók konan til þeirra
örþrifráða að drepa börnin. Skaut
hún tvö þeirra til bana og særði hin
tvö svo ákaflega, að þeim er ekki
l'f ætlað. Að þvi búnu skaut hún
sjálfa sig í brjóstið vinstramegin og
er búist við að það sár leiði til
bana.
Sir Gcorgc Williams, stofnandi
hins fyrsta ..Kristilega félags ungra
manna“, andaðist í London á Eng-
landi á mánudaginn var, áttatiu og
fjögra ára að aldri.
í sjö ára fangelsi var ítalskur
maður nokkur í Kingston, Ont.,
nýlega dæmdur fyrir að brcyta töl-
unni í peninga-ávísun. sein honuni
hafði verið gefin, úr tveimur dollur-
um í tíu dollara.
Borgarstjóra kosningárnar í New
York, hinn 8. þ.m., lyktuðu þannig,
að McClellan borgarstjóri var end-
urkosinn með að eins þrjú þfcsund
atkvæðum frani yfir Hearst, gagn-
sækjanda sinn. Hearst kveðst ekki
vera yfirunninn, og heimtar hann að
atkvæðin séu talin á ný. Bregður
hann aðstoðarmönnum McClellans
um að hafa boitt brögðum við at-
kvæðatöluna. Wm. T. Jerome var
endurkosinn trict meðrney atto Gds
endurkosinn district attorney með
átta þúsund atkvæðum fram yfir
gagnsækjanda sinn.
Fréttabrcf.
Kafli úr bréfi frá Westbournc,
6.NÓV. 1905:—„Sú frétt barst
hingað og er talin sönn, að Arnþór,
sonur Sigurgeirs Péturssonar við
Narrows, hafi druknað ofan um ís
á Manitoba-vatni þann 26. f. m.—
Hann var hinn efnilegasti maður.
í næstl. mánuði vildi einnig til
þaö slys, að vörubátur hlaðinn sökk
á Manitoba-vatni, og varð þar Mr.
'Björn Metúsalemsson fyrir tilfinn-
anlegu tjóni og fleiri bændur. Eng-
inn var maður i bátnum, sem var í
dragi á gftir gufubát Helga Einars-
sonar við Narrows.
Sléttueldur gerði stórtjón við
Big Grass fyrir skömmu. Urðu þar
margir bændur fyrir stórskaða á
heyi, t. a. m. Vigfús Þorsteinsson,
sem misti yfir hundrað tonn af lieyi.
Heilsufar yfirleitt fremur gott
hér úti. Að öðru leyti tíðindalitið.
S. Baldvinsson."
Fréttirfrá Islandi.
Reykjavík, 13. Okt. 1905.
Séj-a Magnús Helgason, kennari
við Flensborgarskólann, fótbrotnaði
hér i bænum á laugardagkvöldið var
og stóðu brotin út úr fætinum þeg-
ar mannhjálp kom. Hann hefir ver-
ið furðulega hress, siðan er slysiö
vildi til.
Iðnskólinn í Reykjavik hefir gefið
út skýrslu, yfir starf sitt siðastliðið
ár. Nemendur voru 82, en sumir
þeiHa voru ekki í skólanum allan
veturinn; nokkurir komu ekki íyr
en í Nóvember og Desember, og
eins fóm nokkurir burt úr bænum
íyrir lok skólaársins til að stunda
atvinnu sina. — í skólanum var
kcnd teikning fjón Þorláksson verk
ftæðingur), íslenzka fséra Ólafur
ÓlafssonJ, rcikningur (mag. Ól.
Daníelsson) og danska (Þorst. Er-
lingsson skáld). Forstöðumaður
skólans cr Jón Þorláksson vcrk-'
fræðingr.r.— Nú eru komnir i skól-
ann 67 nemendur, og þeim er skift
í 4 deildir (3 í fyrraj. — Nú er
Iðnaðarmannafélagið, sem rekur
skólann undir yfirumsjón lands-
stjórnarinnar, að reisa hús mikið
handa skólanunt á horninu áTjarn-
argötu og Vonarstræti. Svo er til
ætlast, að unt verði að fara að
nota húsið unt nýár, en vanséð að
það takist.
• Aðsókn að Flensborgarskólanunt
er' mjög nvikil á þcssu hausti. Yfir
90 hafa sókt um skólavist þar, en
nýlega voru þeir milli 70 og 80. sem
þangað voru komnir.
I Revkjavikur harnaskóla eru nú
börnin orðin nokkuð á fimta hundr-
að, en þeim fjölgar nú með hverjum
degi; búist er við að þau verði
450. Þau eru í 16 deildum, og cru
kennarar 29.
t kvennaskóla Rvikur eru komnar
36 námsmeyjar, en von er á fleirum.
Skólinn er í 4 deildum.
t hinum alntenna mentaskólá
verðia nemendur i vetur 62, þjrír i
6. bekk, fimm í 5., sex í 4., níu í 3.,
sextán i 2. og tuttugu og þrir í 1.
bekk. Tímakennarar við skólann
cru Arni ‘Þorvaldsson magister (í
enskuJ, Ágúst Bjarnason magister
( iþýzku og dönsku), Pétur Hjalt-
*ted kandídat (í dönskuj og Þórar-
inn B. Þorláksson málari (1 teikn-
un).
Ein af mestu merkiskonum lands-
ins, Sigurlaug Gunnarsdóttir, kona
Ólafs dbrm. Sigurðssonar í Ási í
Hegranesi og móðir Björns augn-
læknis og þeirra systkina, andaðist
fyrir nokkrtt eftir langvinnan sjúk-
dóm. — Fjallk.
Seyðisfrrði, 19. Sept. 1905.
Vígsla Lagarfljótsbrúa,rinnar fór
fram þann 14. þ. m.. Var þar sam-
an komið margt manna, en þó til-
tölulega fáir Héraðsbúar, sem mun
liafa orsakast af því að þetta var
eigi heppilegur tími fyrir bændur,
sökum heyanna. — Hófst hátið-
i:i með því að flokkur manna söng
„Ó guö vors lands.“ Þá sté land-
ritarinn Klemenz Jónsson í ræðu-
stólinn og hélt þar snjalla ræðu,
scm birt er hér að framan í blaðinu.
Þá var sungið „Eldgamla ísafokU*
Var þá gengið í prósessíu yfir brúna
sem var fagurlega skreytt með
blómum og yfir hliðinu letrað úr
blómsveigum: Lagarfljótsbrú 14.
Sept. 1905. — Fremstur gekk séra
Þórarinn á Valþjófsstað með is-
lenzka fánann, þá landritari og Jóh.
Jóhannesson og svo hver af öðrum.
Þegar yfir brúna kom hélt sýslum.
stutta ræðu og bað menn að hrópa
þrefalt húrra fyrir brúnni og bauð
hann síðan öllum þingheimi að
Þ’ggja góðgerðir í tjaldi miklu, er
reist var norðan verðu við brúna.
lalið var að yfir brúna hefðu geng-
iö í prósessiu um 450 manns, en það
mun ekki hafa verið meira.en tveir
þriðju af fóiki því er þar var saman
komið. Tjöld voru reist báðum
megin við fljótið og gátu menn
kcypt þar alls konar góðgreti. Inni
í tjöldunum fóru fram nokkur
ræðuhöld, sem fáir áttu kost á að
hevra. Um miðaftan var samkom-
unni slitið.
Ný dáin er eftir barnsburð ein
helzta konan í Mjóafirði, Sesselja
Jónsdóttir í Firði, kona Óskars
bónda Ólafssonar en dóttir Jóns sál.
bónda a Úlísstöðum í Loðmundar-
firði. Hún var valkvendi og ölluin
hugþekk.
Tiðarfarið er mjög óstöðugt. A5
kveldi hins 14. gerði ofsarok af
sunnanátt, sleit þá upp og hrakti
fjölda bata. Tveir mótorbátar hér í
firðinum löskuðust talsvert.
i '
Seyðisfirði, 2. Okt. 1905.
Eins og kunnugt cr, þá tók Sam-
einaða gufuskipa fél. að sér flutning
ritsímastauranna hingað til lands.
hær það 1 kr. og 50 a. í flutnings-
gjald fyrir hvern staur. Fór það
fyrst fram á margfalt hærra gjald,
en það var stórkaupmaður Thor E.
Tulinius sem gerði undirboð,. svo
hið sameinaða gerði loks þetta til-
boð til þess að hreppa flutninginn.
A Tulinius meiri þakkir skyldar en
honum hafa vcrið sýndar fyrir það
hvc vel liann hefir þreytt kapp við
,hið sameinaða* í sumar og með því
sparað landinu margar þúsundir
króna.—Nú þann 25. f. m. koni
gufuskipið ,.Jolantha“ hingað með
ritsimastaura, er fara áttú til þeirra
staða, sem hér segir: Til Héraðs-
standa 1,000. Yopnafjarðar 430, Ax-
arfjarðar 460. BIönduóss200, Reykja
i Hrútafirði 400, Geithóla 265 og
Staðar 850. — Uppskipunin á Hér-
aðssandi gekk hið ákjósanlegasta:
var lokið á 11 tímum ;enda var veð-
ur hið bezta og útbúnaður hinn full-
komnasti. Umsjónarmenn flutnings-
ins voru þeir Stefán Th. Jónsson
kaupm. og Jón Stefánsson pöntunar-
sljóri.
Halldór Vilhjálmsson búfræðfs—
kandídat liefir Búnaðarfélag íslands
ráðið sem ráðanaut sinn hér á Aust-
urlandi. Halldór verður einnig í
vetur annar kennari við Eiðaskóla-
Heyskaðar kvað hafa orðið tölu-
verðir víða á Héraði i veðrinu 15—
16. f. mán.
Norskur bátur fórst nýlega á
Reyðarfirði með 3 mönnum frá Lo-
fc4en í Noregi. — Austri.