Lögberg - 16.11.1905, Side 1
Byssur
og skotfæri. Takið yður frídag til þess að skjóta
andir og andarunga. Við höfum vopnin sem
með þarf. Við höfum fáeinar byssur til leigu
og skotfæri tilsölu. i
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main Str. Telept]one 339.
Steinolí uofnar,
í kveldkulinu er þægilegt að geta haft hlýtt í
herberginu sínu. Til þess að geta notið þeirra
þæginda ættuð þér að kaupa hjá okkur steinol-
íuofn. Verð $5 00 og þar yfir,
Ánderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638 Main Str, Telephone 338,
18 AR.
Fréttir.
Leo Tolstoi greifa hefir Witte,
stjórnarformaður á Rússlandi, nú
tekið í ráðaneyti sitt, og er Tolstoi
orðinn kenslumála-ráðgjafi.
Alexandra Englandsdrotning hefir
stofnað til samskota til iþess að
hjálpa fátæka vinnulausa fólkinu,
sem nóg er af núna á Englandi.
Sjálf gengur drotningin á undan
með góðu eftirdæmi og gefur tíu
þúsund dollara í samskotasjóðinn.
-----------------o-------
Við Athabasca ána er sagt að
fundnir séu vaxtarmiklir steinolíu-
brunnar, skamt frá McMurray í
Athabascá. Gas og asfalt kvað
einnig hafa fundist þar í jörðu, og
er álit manna að hvorutveggja sé
jþar í ríkulegum mæli.
Fram með járnbrautinni, skamt
frá brautarstöðinni í Kingsmill,Ont.
fanst lík af barni á fyrsta ári, klætt
í náttserk, síðastliðinn sunnudags-
morgun. Með því að ekkert hefir
verið gert aðvart um að neitt barn
hafi tapast á þessum slóðum, er svo
álitið, að farþegar á einhverri lest,
sem farið hafi þarna um, aðfaranótt
sunnudagsins, muni hafa losað sig
við barnið og fleygt því út úr lest-
inni.
Skamt frá heimili sínu í grend
við bæinn Nelson í Brit. Col., var
bóndi nokkur að fella tré í skógi
í vikunni sem leið. Dóttir hans, sex
ára gömul, var send til hans með
miðdagsmatinn, og kom hún að rétt
í því að eitt tréð féll. Varð stúlk-
an undir trénu og beið bana af
samstundis.
Um helgina sem leið varð hjón-
um nokkurum í bænum Los Angeles
í Californíu sundurorða út úr ein-
hverju smáræði. En þó tilefnið
væri ekki mikið endaði þó dcilan á
á þann hátt að maðurinn skaut
konuna til bana, með marghleyp-
unni sinni, og sjálfan sig á eftir.
Ræninginn Raisuli í Tangier í
Morocco, sem nafnkunnur varð fyr-
ir það í fyrra að ræna gríska
Bandaríkamanninum Perdicaris, og
láta borga sér sjötíu þúsund doll-
ara í lausnargjald fyrir hann, held-
ur áfram uppteknum hætti, enda
virðist mannaránið verða honum
ekki all-lítill gróðavegur. Fyrir
frakkneskan mann er hann rændi
í sumar sem leið, fékk hann þrjá-
tíu og fimm þúsund dollara í lausn-
argjald. Nú hefi hann nýlega náð
í merkan mann nokkurn í Tangier,
sem var þar í skjóli sendiherrans í
Belgíu, og heimtar enn peninga í
lausnargjald. Rasuli situr með
ræningjasveit sinni í ramlega víg-
girtum kastala skamt frá Tangier.
Kærir hann sig kollóttann, þó sold-
áninn í Morocco og sendiherranv
ir útlendu hóti honum hörðu, og
rænir mönnum til fjár hvenær sem
tækifæri gefst. Þykir ekki líklegt
að endir verði bundinn á þessa ó-
hæfu með öðru móti en að einhver
Norðurálfuþjóðin taki sér fram um
að senda hersveit á hendur hoaum,
til þess að rífa niður vígi hans og
konra honum í skilning um að þessi
atvinnugrein hans verði ekki fram-
vegis látin óátalin.
Horace H. Austin, fyrverandi
landstjóri í Minnesota, andaðist á
spítalanum í Minneapolis í vikunni
sem leið. Hafði þar verið gerður
á honum litilfjörlegur uppskurður
við hálseitlabólgu og urðu afleið-
ingar þess honum að bana.
Winnipeg, Man.. Fimtudaginn, 16. Nóvember
1905
NR. 46
í borginni Lewistown í Montana
voru nýlega þrír nafnkendir kaup-
menn, sem þar eiga lieima, sakaðir
um að hafa myrt Gyðing nokkurn
sem verzlaði þar í bænum með
gullstáss og demanta. Um það
leyti sem morðið' var framið var
það kunnugt að hann hafði í vörzí-
um sínum allmikið af demöntum.
Þegar líkið fanst var festur á það
miði sem á var ritað með blóði að
vígið hefði verið framið í hefndar-
skyni, og þykist lögreglan hafa í
höndum nægar sannanir fyrir að
menn þeir. sem teknir hafa vcrið
fastir séu vegendurnir.
Á landskrifstofu fylkisstjórnar-
innar í Ontario hefir nýlega komið
beiðni, frá samlags-félagi einu í
borginni Brussel í Belgíu, um all-
mikið landsvæði í Algoma eða
Parrysunds héruðunum. Vill félag-
ið fá samfelda spildu af landi,
handa landnemum til þess að setjast
að á i einum hóp, og er jafnframt
beðið um ýmisar undanþágur frá
gildandi lögum um skyldur þeirra,
seni taka sér heimilisréttarlönd.
Hvort fylkisstjórnin sér fært að
verða við kröfunum er ekki afráðið
enn.
Nálægt sjö hundruð þúsund
pund af hreinsuðu blýi voru unnin
úr blýnámunum hjá Nelson í Brit.
Columbia í síðastliðnum Október-
mánuði.
Á fundi, sem eigendur að þrjá-
tiu og sjö sögunarmylnum í Brit.
Columbia héldu með sér í vikunni
sem leið, var sú ákvörðun tekin að
hækka ekki viðarverðið að minsta
kosti þangað til þeir héldu hinn
vanalega aðalfund sinn, hinn 8. Jan.
i vetur.
Kona Galiciumanns nokkurs, sent
heima átti skamt frá Dauphin var
skotin til bana á sunnudaginn var,
af syni sínum tólf ára gömlum.
Rannsókn á að halda um það
hvernig þetta hafi að borið, þó
líklegt þyki að það hafi verið ó-
viljaverk.
Finim menn fórust í járnbrautar-
slýsi, sem varð skamt frá borginni
Wilkesbarre í Pennsylvaniu á mið-
vikudaginn var. Auk þess særðust
þar allmargir farþegar meira og
minna.
Hinir auðugu Gyðingar Roths-
cltild lávarður í London á Englandi
og Jacob H. Schiíf í New York
hafa, hvor um sig, scnt fimtíu þús-
und dollara til Pétursborgar á Rúss-
landi til styrktar Gyðingum þcim,
sem mist hafa aleigu sína í óeirð-
unttni og Gyðinga-ofsóknunum á
Rússlandi um undanfarið tímabil.
Tveir gamlir kunningjar í Buf-
falo i New Yorkríkinu, annár átta-
tiu og eins árs, hinn áttatíu og sjö
ára að aldri tóku sér það snjall-
ræði fyrir hendur að hengja sig,
báðir í sama herberginu, á þriðju-
daginn var. Neina sérstaka ástæðu
til þess að þeir tóku þetta fyrir
vissi enginn urta.
Huns Rcynolds.
Norskur rithöfundur og skáld,
Hans Reynolds að nafni, kom hing-
að til Winnipeg frá Bandarikjunum
í vikunni sem leið. Hefir hann ver-
ið að halda fyrirlestra þar, á meðal
landsmanna sinnai um endurreisn
Noregs setn sjálfstæðs rikis, og
hina sögulegu viðburði er í Noregi
hafa gerst á þessu ári. Auk þess
hcfir hr. Rcynolds ltaldið þar fyrir-
lestra um íslatid og Færeyjar og
sýnt fjölda af skriðljós-myndum
þaðan jafnframt. Eyrirlestur og
myndasýning hélt hr. Reynolds hér
í Winnijteg, á Northwest Hall, í
gærkveldi, og verður nákvæmar á
það minst í næsta blaði. í huga'
hefir hann, ef til vill, að fcrðast
eitthvað út um íslcnzku nýlendurnar
hér.
Úr ljóðabók cftir hr. Rcynolds,
sem prcntuð er í Kristjaníu í Nor-
egi nú í ár, setjum vér hér kvæði,
tii fróðleiks og skemtunar, og ætl-
utn vér að flestir Islcndingar muni
komast að cfninu.
NORRÖNA-MAALET.
Eg stcmnde mod Vcst
yver saltan Sjo,
der Langskipi duvandc gjckk ....
—og Isafolds Tindar mcd Morgon-
glo
scg synte i Snjoglans fraan Dekk;
ho stiger so stolt den Fjellkona
blaa;
dcr Ecderne ruddc sig Bu,
ho eiger enno kvar cin Nordmann
si Traa
og lyser af Fridom og Tru!
Ja.minnest dei Frendcr derutc
i Hav,
der norrön er Titnga og Sed ■—
me tynte vaart Maal, so det nær
seig i Grav,
let Framandfolk skttsla i Frcd;
men Gutten derburte paa Snorre
si Öy
han ser, at det dagast i Sky,
for Norrönamaalct det kan inkje
döy,
det sigrar i Norcg aany.
-------O-------
Þorbjörn kólka.
Eftir Grím Thomscn.
(Áður óprentað.J
Á áttæringi einn hann reri,
ávalt sat á dýpstu miðuni,
seggur hafði’ ei segl á kneri,
seigutn treysti’ hanti axlaliðum;
énginn fleytu ýtti úr sandi,
ef að Þorbjörn sat í landi.
Yisu þeir að vcðurglögg-ttr
var hann eins og gamall skarfur,
hjálparþurfum hjálparsnöggttr,
i hættum kaldttr bæði og djarfur;
forustu garpsins fylgdu allir,
cn—flestir reru skemmra en
kallinn.
Spölur er út að Sporðagrunni,
Spákonufell til hafs þar vatnar
og hverfur sveit í svalar unnir;
sækja færri þangað skatnar. ■—
Einn þar færi um gildar greipar
í góðit veðri Þorbjörn keipar.
Sér hann upp að sorta drcgur
sttður yfir Kaldbakstindi,
hankar uppi, heim er vegur
helzt til langur móti vindi;
tekur Þorbjörn þá til ára;
þyknar loft og ýfist bára.
Á Olnbogamið er inn hann k«mtr,
ofsarok af landsynningi
sópar loft og sjóinn lentur
satnan og upp í skaflabyngi,—
ein þar hröklast ferðlaus ferja,
fyrðar uppgefnir að berja.
Tók hann skipið í togi’ á eftir,
tveimur árum hlýddtt bæði,
fótinn annatt fram hann réttir,
fleyin óðu’ á bægslum græði;
bólgnar skafl til beggja handa,
bognir menn í austri standa.
Annað skip með ýta þjáða
upp hann tók á Bjargamiði,
fram þá rétti’ hann fætur báða,
flutu þrjú með sama sniði.
Öll þau lentu heil á hófi,
en—heldur sár var Þorbjörns
lófi.
Margar fórust fiskisnekkjur
fyrir Skaga sama daginn,
margar konur urðu ekkjur;
vndi’ og stoð þær mistu í sæinn.
En—þar var ekki Þorbjörn nærri;
þær hefðu annars verið færri.
—Ódinn.
-------o------
Sanngjörn krafa.
Alþmikil óánægja cr í Nýja ís-
landi yfir þcirri aðferð Roblin-
stjórnarinnar, þcgar hún vcitir fé
til frantræslu og vegabóta þar, að
ganga algerlega fram hjá sveitar-
ráðinu með alt slíkt og1 láta það
vera í höndunt strangra flokks-
manna án tillits til þess hvort þeir
á nokktirn hátt eru verkinu vaxnir.
Engum er kunnttgra ttm það en
sveitarstjórninni hvar niest er þörf-
in á vcgabótum og hvar að beztum
notum kemur að verja fé í það og
>að skiftið.
Á síðasta sveitarráðs-fundi á
Gimli var t einu hljóði samþykt til-
Inga. sem fram á það fcr, að á
fyrirkomulagi þessu verði breyting
sú, að framvegis verði veitt fé til
vcgabóta og framræslu innan sveit-
arinnar samkvtémt ósk eða með-
mælum sveitarstjórnarinnar að eins
og hún látin liafa ltönd yfir verkinu.
Þctta er í alla staði sanngjörn
krafa, og fengist þingmaðurinn til
að taka tillit til hcnnar, mundi slikt
að öllum líkindum verða sveitinni
til mikils góðs. Og þingmaðurinn
sjálfur mundi fremur græða á þvi.
Almcnningur tekur þvi ekki með
þökkum af honum lengur að láta
fjárveitingu til vegabóta Icnda í
höndunt vissra manna sem ekkert
tillit taka til almenningsþarfa og
vcrja fénu þar, sem þaö kemur fá-
um eða cngttm að notum; eigum
vér hér meðal annars við mylnu-
brautar-vegabótina alræmdu.
Þegar Mr. Greenway var við
völdin hélt Heimskringla fratn að-
ferð þeirri, sem ntt kentur frant i
tillögu sveitarstjórnarinnar. Til
þess er því ætlandi, að krafan fái
góðar undirtektir hjá þingmannin-
um, sem algerlega á það í hendi
sér, hvernig fjárveitingum til sveit-
arinifar frá fylkisstjórninni er
hagað.
MvndarleK veizla,
Vestfold, 3. Nóv. 1905.
Herra ritstjóri,
Þar eð síðasta Lögberg hingað
komið flutti ekkcrt um seinustu
gifting í þcssu bygðarlagi skal þess
getið, að hinn 18. Nóv. síðastl. giftu
sig inni í Winnipcg þau Mr. Jón
Hannesson og Mrs. Guðrún Sæ-
mundsdóttir, bæði til heintilis að
Vestfold. Næsta dag koniu nýgiftu
hjónin til baka með eimlestinni til
Oak Point og náðu heim til sín um
kvöldið. En daginn eftir, þann 20.,
tóku þau á móti unt 20 boðsgestum
(nokkrir komu ekki) í hinu nýja
■nisi, er Mr. Hannesson lét byggja
síðastliðið vor, og var þar tilreidd
allra myndarlegasta veizla. Það er
sagt um Jón gantla, að hann geri
vel það sem hann geri, enda skorti
þar ekki neitt, cr líkamann mátti
endurnæra og sálina gleðja. Þar
var drukkið innlent vín og reyktir
íslenzkjr vindlar.
Samsæti þctta endaði ckki. fyr cn
í dögun næsta morgun, er allir
héldu hcim glaðir og ánægðir, eftir
að hafa árnað nýgiftu hjónunum
allra heilla og hamingju um ó-
kominn tíma.
Einn af bodsgcstunum.
Aths.—Það cr regla Lögbergs að
geta ekki ttm giftingar nenia sam-
kvæmt skýrslu frá hlutaðeigandi
piesti eða aðstandcndum. Boðsgest-
inum cruni vér að öðruleyti þakk-
látir fyrir fréttina sem oss er þvi
rneiri ánægja að flytja þar sem Mr.
Hannesson er góðkunningi ýmsra
aðstandcnda blaðsins. — Ritstj.
Skólanefndar fundur.
Fjárhaldsnefnd kirkjufélagsins,
sem á hendi hefir meðferð sameigin-
lega skólasjóðsins, hélt fund í Win-
nipeg á fimtudagskveldið var, þann
9. þ. m. í nefndinni cru Friðjón
Friðriksson, Hjálmar Bergman og
Magnús Paulson og mættu þeir all-
ir. Formaður nefndarinnar var
kosinn F. Friðriksson og féhirðir
og skrifari M. Paulson. Samþykt
var að leggja kapp á að innkalla
setn allra fyrst öll útistandandi lof-
orð i sjóðinn og enn fremur öll lán,
sem ekki eru trygð með fasteigna-
veði. Skifti nefndin þannig verkum
með sér, að Mr. Bergman hefir á
hendi innheimtu óborgaðra loforða
sunnan landamæranna, Mr.Friðriks-
son í Argyle-bygðinni, og Mr. Paul-
son í Winnipeg og annars staðar
Canada-megin (utan Argyle-bygö-
ar). Allir vextir af sjóðnum ganga
til styrktar íslcnzkttkenslunni við
Wesley og Gustavus Adolphus skól-
ana og getur hann því hér eftir
ekki aukist nema með peningagjöf-
um.sem vonast er eftir, að einhverj-
ar verði á árintt. Kennara-cmbætt-
in sunnan og norðan líminnar njóta
nú jafnt góðs af sjóðnum og fer
styrkur sá vaxandi eftir því setn
sjóðurinn eykst.
Dánarfreg'n.
Hinn 30. Sept. síðastl. andaðist á
heimili foreldra sinna, ekki alllangt
frá Gardar, N. D., stúlkan Sigur-
bjötrg Davið'sdóttir Johnson,
var jarðsungin af séra Kristin K.
Ólafsyni 2. Október. Hún var fædd
6. Marz árið 1865 á Reynhólum i
Húnavatnssýslu. Árið 1876 fluttist
hún með foreldrum sinum, Davíð
Jónssyni og Þórdísi Guðmundsdótt-
ur, vestur um haf og til Nýja ís-
lands. Hún fór mjög ung að vinna
i vistum hjá hérlendu fólki, og kom
sér alls staðar vel mjög, og mest-
öllu því er hún innvann sér, varði
hún til að bæta hag foreldra sinna,
sem þá voru fremur fátæk. Nokkru
‘eftir að foreldrar hennar fluttu
hingað sttður til N. Dak. kom hún
alfarin suður,og var lengst af heima
hjá foreldrum og systkinum sínum,
og starfaði af alúð fyrir heill og
framför heimilisins; henni var mjög
umhugað ttm að prýða það og laga.
Sigttrbjörg var alla æfi fremur veik-
bygð til heilsu, en skyldurækni og
öflugur viljakraftur , til alls þesser
gott var, héldust í hendur hjá henni
alla hennar lifstið. Sérílagi annað-
ist hún systur sína, Sigríði, er dó»
síðastliðið vor, með mikilli um-
hyggju og nákvæntni, og aðstoðaði*
með þvi aldraða og þrevtta móðw
þeirra. — Sigurbjörg var frcmur
glaðlynd og skemtileg að náíttúrir-
fari, en stilt og geðgóð hversdags-
lega. Það er því raunalega stórt
skarð fyrir skildi, á þcssu heimfli;
að hafa á siðastliðnu sumri orðið1
að sjá á bak báðum þessum systr-
ttm. Við burtför Sigurbjargar var
opnuð ný sorgarund, í hjörtum for-
eldranna, systkinanna, vinanna og
nágrannanna, áður en hin var gróin.
Þessir allir kveðja nú hina látnu
með svo hljóðandi hugleiðingum:
Minningin lifir þó maðurinn deyi,
og minningin þin er svo hugljúf
og blið;
þú skyldunnar gættir og gekst á
þeini vegi, ,
scm gjörði þér léttbært að sigra
hvert stríð;
burt ertu héðan til ljésheima liðin,
og lengur þér blæðir ei sorganna
und,
þú hefir öðlast þann eilífa friðinn,
sem aldregi breytist á komandi
stund.
V inur.
Iljálp fyrir börnin.
Það er viðurkent, að ungbörn—
og aukheldur börn á öllum aldri—,
þurfa eitthvert sérstakt meðal. Og
læknarnir viðurkenna líka, að sum
rneðttl geri barninu nteira ilt en
gott; flest þesskonar meðul inni-
halda ópíum,sem sefar þau en lækn-
ar ekki sjúkdóm þeirra.
Baby’s Own Tablets er nútíðar-
rncðal fyrtr börnin, og er selt með
þeirri ábyrgð, að það innihaldi
hvorki ópíunt né nein þesskonar
cfni, sem kynni að baka barninit
mein. Það læknar ntagaveiki, og er
ágætt við tanntöku, og með cigin-
legleikum sínum eykur það bæði
svefn og værð. Það gerir börnire
hcilbrigð, og viðheldur þeim þann-
ig. Mrs. W.E.AnselI, Ayer's Flat,
Oue., segir: ,,Eg vil ráðleggja
hverri móður, sem á vcikt og ergi-
legt barn, að brúka Baby’s Own
Tablets. Þær haía reynst bezta
nieðalið, sent eg hefi nokkurn tima
brúkað, og ertt afleiðingarnar að-
dáanlegar."
Þessar Tablets fást hjá öllum
meðalakaupmönnum. og svo einníg
með því að skrifa og senda 25C.
fyrir öskjuna, til „Dr. Williams’
Medicine Co., Brockville, Ont.
-------0-------
Tólakort á íslenzku.
Eg hefi ásett taér að gefa út ís-
lenzk jólakort, með mynd af Fyrstu
lút. kirkjtt í Winnipeg, og kannske
fleiri iBynduni. Þau verða til sölu
fyrir jólin og nýárið í búð minni,
172 Nena st..
Einnig geta þeir sem vilja fengið'
jólakort með íslenzku lesmáli og
nafninu sinu á, séu þau pöntuð i
tíma.
Kortin eru til sýnis í búðinni og
er þar úr mörgu að velja.
Þeir sem vilja sinna þessu eru á-
mintir um að gera það sent allra
fyrst, svo þeir verði búnir að fá
kortin fyrir jólin.
H. S. Bardal.
--------O-------