Lögberg - 14.12.1905, Side 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. DESEMBER 1905
Fréttir frá íslandi.
Akureyri, 4. Nóv. 1905.
Frá íslendingum í Khöfn: —
í fyrradag var þaö ákveöiö hér,aö
hlevpa nýju blaöi af stokkunum.
A í>að aö koma út Eskifiröi, og er
ráöinn ritstjóri þess cand. jur.
Ari Jónsson, frjálslyndur og efni-
legur maður og góður drengur.
Fylgir blað það fram nýrri land-
varriarpólitík — og verða flestir
beztu menn og þjóðræknustu á
meðal Hafnarstúdenta samverka-
menn þess. Verður ekkert til-
sparað að gera blaðið svo vel úr
garði sem framast má, og verður
:J>að einkar fjölbreytt að efni, þó
aðaJáherzlan verði lögð á pólitík.
tÞ.að verður óháð báðum flokkum
þings og mun gera sér far um að
dæma rétt á milli flokkanna, og
mun það hafa mikið við fram-
komu beggja að athuga. Það
verður á stærð við Isafold og
kemur fyrst um sinn út í hverri
viku. Þaö hefur göngu þína 1.
Jan. n. k.
Bjarni mag. Jónsson frá Vogi
er staddur hér í Höfn um þessar
mundir. Var honum haldið fjöl-
ment samkvæmi hér af gömlum
lærisveinum sínum og vel fagnað.
Kom það hér bezt í ljós, að B. J.
ei mjög vinsæll af þeim, enda er
það ,ekki ofmælt að enginn kenn-
ari við lærða skólann hefir í seinni
tíð látið sér jafn ant um nemend-
ur sina sem hann.
Hinn 22,Okt. andaðist að heim-
ili sínu, Haganesi í Fljótum, hús-
frú Jórunn Jónsdóttir. — Jórunn
sál. var mesta greindar- og merk-
iskona og var heimili hennar orð-
lagt fyrir gestrisni, og rétti hún
mörgum fátækum hjálparhönd; er
heunar því sárt saknað af öllum
sem hana þektu.—Ó. J.
I þýzku kirkjublaði „Die christ-
liche Welt,“ sem er gefið út í
Marburg, stendur grein eftir O*
P. Monrad, sem hér var á ferð
síðastliðið sumar, um Grundar-
kirkju, eða öllu heldur um kirkju-
bóndann Magnús kaupmann Sig-
urðsson. Er þar að maklegleik-
um lokið lofsorði á þeitta fagra
og ósérplægna verk hans og bent
á hverja þýðingu það eigi að hafa
í menningarlífi sveitarinnar .
Akureyri. n. Nóv. 1905.
Hotel Oddeyri hér í bæ, sem
lengi hefir verið í smíðum er nú
fullgert. Húsið lítur mjög vel út,
bæði utan og innan og geitur veitt
ferðamönnum hinar beztu viðtök-
ur. Tveir turnar eru á húsinu, og
þykir það nú nauðsynlegt á öllum
heldri veitingahúsum, nærri því
eins sjálfsagt og á kirkjunum.
Húsið geitur hýst fjölda manna,
líklega um 60 og er það gleðiefni J
fyrir bæinn, að hafa vissu fyrir !
að geta veitt gestum sinum húsa- i
skjól á nóttunni. Auk þess getur ;
það veitt ýms þægindi, t. d. heitt;
bað. Rafmagnsþræðir eru um alt ’
húsið og nóg af klukkum til að
hringja á. Stór og loftgóður sal-
ur er í húsinu og mun hann vera !
stærsti salur bæjarins. Borð eru
flest úr marmara. — Yfirsmiður
h'ussins var Sigftryggur Jóhann- |
esson.
i* ,
Jóhann Vigfússon konsúll and-,
aðist hér í bænum á fimtudags-
kvöldið 9. þ. m., varð bráðkýadd-
ur.—N orðurland.
Reykjavík, 4. Nóv. 1905.
Miklar stillur hafa verið hér svo
vikum 'skiftir, oft heiðríkja dag
eftir dag, með dálitlu frosti og
auðri jörð nema til fjalla. Haustið
alt óvenjulega hægviðrasamt.
Stauraflutningsskipið Moscow,
sem hingað kom fyrir hálfumí
mánuði með ritsimastaunabirgðir,
hefir verið að bjástra við síðan
að koma þeim á land hingað og
þangað, en gengið heldur illa,
þrátt fyrir gæðaveður lengst af.
Mikið af þeim átti að fara upp í
Borgarnies. En þar flaut skipið
ekki inn. Var þá nokkuð flutt á
land í Höfn í Borgarfirði, með
drjúgum kostnaði, en með hitt
farið til Reykjavikur aftur og
Faxaflóagufubáturinn beðinn fyr-
ir þpð upp eftir. Nú ætlar 'skipið
á norðurhafnir í kveld eða fyrra
málið, með það sem þangað á að
fara. — Ekki hafði stjórnin gert
ráð fyrir í ritsimaáætlun sinni 1
eyris kostnaði af afferming staur-
anna. En fróðlegt verður að sjá
reikning þann á sínum tíma.
Reykjavík, 11. Nóv. 1905.
Meiriháttar húsbruni varð hér í
nótt í bænum. Langstærsta bak-
aríið, Flensborgarbakaríið, með
tveimur bakarofnum, stórri gufu-
vél o. fl., brann til kaldra kola,
ásamt öllu því er þar var inni,
miklum mjölbirgðum o. fl. Enn
fremur brann íbúðarhús það, sem
bakaríinu fylgdi, við Amtmlanns-
stíg. Bálið var mikið, og var
uggað um latínuskólann, sem
stendur þar skamt frá. En vel
tókst að verja hann og meira að
segja bæði geymsluHús hans og
leikfimishús, sem miklu nær eru
bakariinu. Veður var blitt og
hægt, lítill andvari á austan, meö
nokkurri vætu. Enn kom það
fram sem fyr við þennan bruna,
að slökkvitól voru sum ékki í sem
beztu lagi, og slökkviliðið ‘sýni-
lega hvergi nærri svo verkinu
vanið sem skyldi. Nýfundin
slökkvivél Óláfs Hjaltested hafði
reynst mikið vel. Hún spýtir rúm-
um áttatiu tunnum vatrrs á kl.-
stund. — hafold.
Reykjavík, 29. Okt. 190$.
Frk. Elin Matthíasdóttir, dóttir
skáldsins Matth.Jochumssonar, er
nýkomin hingaö til bæjaríns. —
Undanfarin ár hefir hún dvalið í
Kaupmannahöfn og lært þar söng
og upplestur. Á miðvikudags-
kvöddið 25. þ. m. söng hún á
skemtifundi er Þjóðræknisfélagið
hélt í Bárubúð, og þótti flestum
unun á að heyra. Röddin er ekki
há, en fögur og vel vanin, og auð-
heyrt er að ungfrúin skylur vel
bæði lögin og kvæðin sem hún
syngur. Munum vér ekki til að
hafa Jieyrt kvæði eins og t. d.
„Sólskríkjan,“ „Sæla Friðþjófsi“
og „Eggert Ólafsson“ túlkuð meö
eins glöggum skilningi og tilfinn-
ingu. Ungfrú Elín mun hafa i
hyggju að halda hér samsöngva
og verða þeir vonandi vel sóttir,
ef vér kunnum réttilega að meta
góða list — sérstaklega góða ís-
lenzka list. J. G.
Reykjavik, 5. Nóv. 1904.
Úr Berufirði, 25. Okt. — Gras-
vöxtur var góður í sumar og nýt-
ing ágæt, því að þurkar voru ó-
munalega góðir hér á Austfjörð-
um í sumar.— Góður fiskafli var
framan af sumrinu, en lítill seinni
partinn hér í firðinum, eins og
viðar á Austfjöröum. — Flakkar-
ar hafa farið hér um í haust.
Komu tveir úr vestri og tveir úr
attötri. Fóru þeir á hvern bæ og
alla leið inn í baðstofu, án þess
að Jærja að dyrum, ef enginn var
úti, betluðu peninga alls staðar og
mat sums síaðar. Höfðu þeir
fyrtöldu víst góð daglaun stund-
um, t. d. einn dag hér um 16 kr.
Hinum var víst minna gefið hér.
Sögðust þeir vera Persar, ræntir
öllu sínu fé og frama af heiðingj-
um fTyrkjum), og þeir drepið
isuma sína nánustu vini. Hefðu
fyrir 10—15 sálum að sjá. Höfðu
þeir nneð sér meðmæli á þýzku,
ensku og íslenzku rituð. Þeir
sem seinna komu höfðu nú einnig
með sér nýja testamentið ritað á
grisku máli, og allir þóttust þeir
vel guðhræddir.— Flakkara þessa
ætti ekki að venja hingað með
gjöfum. Getur ekki landsstjórn-
stjórnin bannað þeim landgönguí
þessum erindum? Það ætti hún
að gera ef leyfilegt væri, því að
það er ósómi að þessu betli
þeirra; væri nær að styrkja eitt-
hvað innlent og einhverja inn-
lenda með gjöfum. G. S.
—Ingólfur.
Vörumar fást lánaðar, og með
vægum borgunarskilmálum.
New York.Furnishing House
Alls konar vörur, sem til hús-
búnaðar heyra.
Olíudúkur, linoleum, gólfdúk-
ar, gólfmottux, jhiggatjöld, og
myndir, kluklcur, lampar, borð,
dúkar, rúmstæði, dýnur, rúmteppi,
koddar, dinner sets, toilet sets,
þvottavindur og fleira.
JOSEPH HEIM.
eigandi.
Tel. 2590. 247 Port agt «vt
The Winnipeg Laundry Co.
Llaltoi.
DYERS, CLEANERS & SCOURERS. '
261 Nena »t.
^Ef þér þurfiö aö .láta lita eBa hreinsa
■ötin yOar eOa láta gera viö þau svo þau
verBi eins og ný af nálinnijþá kalliB upp
Tel. 966
og biBjiB um aB láta sækja fatnaöinn. ÞaB
er sama hvaB fíngert efniB er.
Gearhart’s prjónavélar
hinar nýju, eru
þær einu, sem
prjóna alt, hvort
heldur er lykkju-
snúiB, tvíbandaB
leSaalgengt prjón
ViB erum útsölu-
menn fyrir þær
og óskum eftir aB
þér snúiS yBur
_ __ tilokkar því viB
getura sparaB yður algerlega flutningsgjald
frá útsoluhúsunum, KomiB eBa skrifiB til
okkar eftir upplýsingum,
G. A. Vivatson, Svold, N. D.
-o—
MARKET HOTEL
146 Prlncess Street.
á móti markaSnum.
Eigandi - - P. O. Connell.
WINNEPEG.
Allar tegundir af vínföngum og
vindlum. VitSkynning gó5 og húsiö
endurbætt.
THE BLUE STORE.
EKKI ER HÆGT
að dæma um hinar AFARMIKLU birgöir vorar af LOÐSKINNAVÖRU, nema þér komið og
sjáið þær. Við höfum. UNDANTEKNINGARLAUST, MESTAR BIRGÐIR AF LOÐSKINNA-
VÖRU af öllum verzlunum í Vestur-Canada. KOMIÐ VIÐ í BLUE STORE.
Karlm. fatnaðir
sem líta vel út og eru hald-
góðir.
ViB höfum ekki rúm hér að lýsa hverri
tegund og verði, og getum heldur ekki gefið
yður hugmynd um hvað margar tegundir
við höfum að sýna. — Sjáið hve góð kaup
við höfum fyrir yður.
KARLM. D. B. FÖT—Heavy Scotch
Tweeds: góð föt $7.50, $8.50 og
Í9.50 virði. Stærðir 36 til 39. Nú
seld á....................$5.00
KARLM. GÓÐ TWEEDFÖT. $7.50
virði. Fyrir.............. 5.75
KARLM. BUSINESS FÖT ÚR
DÖKKU TWEED. $10.50 virði.
Fyrir......................8.75
KARLM. DRESS SERGE FÖT
812.50 virði. Fyrir....... 9.95
KARLM. ENGLISH WORSTED
FÖT. $16.50 virði. Fyrir..12.50
KARLM. FÍN SVÖRT FÖT, með
hvaða gerð af buxum sem óskað er.
$18.50 viröi. Fyrir.......14,00
Karlm. yfirfrakkar.
Hér getið þér fengið yfirfrakka sem eru
í alla staði boðlegir hverjum aðals-
manni; fara vel og eru búnir til eftir nýj-
ustu tísku.
KARLM. YFIRFRAKKAR. 50 þml.
langir, úr dökku Tweed og Frieze.
$9-5ovirði. Okkar verð....S7.50
YFIRFRAKKAR einhneftir; úr
Scotch Tweed, með flauelskraga og
belti að aftan. $12.50 virði. Okk-
ar verð ..................10.00
YFIRFRAKKAR $13.50 virði. Okkar
verð.......................11.50
YFIRFRAKKAR úr svörtu og bláu
Bever klæði. $12,50 virði. Okkar
verð......................10.50
STÓRKOSTLEG KJÖRKAUP áD.
B. Dark yfirfrökkum með storm-
kraga, úrsamaefni; 50 þml, löng.
$16.00 virði, Okkar verð.12.50
Karlm. loötatnaður.
í öllum tegundum—frá karlm. kápu til
kvenm. Ruffs—er Bláa búðin góðkaupa-
staðurinn.
Þú veist það og vinir þínir vita það, að
við ábirgjumst hvern þml. af loðskinna-
vöru, sem við mælum með.
BROWN SHEARED CAPE BUF-
FALO—$16.50 virði. Okkar verð $12.00
GREY COAT—$16.50 virði. Okkar
verð..................... 13.00
AFRICAN CLIPPED BUFFALO,
—$18.50 virði. Okkar verð.14.00
BUFFALO CALF—$31.50 virði.
Okkar Verð.............. 23.00
BULGARIAN LAMB og WOM-
BAT—$32.00 og $37.00 virði,
Okkar verð.............. 26.00
CANADIAN COON Nr. 2,-Okkar
verð.................... 48.00
CANADIAN COON—55.00 virði.
Okkar verð.............. 48.00
SlLVER COON —$80,00 virði.
Okkar verð.............. 65.00
Karlm. loðfóðraðir yíir-
frakkar.
LABRADOR SEAL LINED—Ger-
man Otter Kragi. $46.50 virði.
Okkar verð..............$37.50
LABRADOR SEAL LINED—X
Persian kragi. $48.50 virði.
Okkar verð.............. 38.50
RAT LINED—Otter kragi. $62.50
virði. Okkar verð........48.50
BEZTU LOÐFÓÐRAÐIR YFIR-
FRAKKAR með Otter eða Persian
kraga. $100 virði. Okkar verð.,.. 75.00
LOÐHÚFUR & $1.00 og upp.
LOÐVETLINGAR á $3.00 og upp.
LOÐKRAGAR af öllum tegundum
fyrir kvenfólk og karlmenn á $3.00
og upp.
FUR ROBES á................$7.00
og upp.
Kvenm. loðtatnaður.
Nýtísku snið. Agætar vörur.
Stórkostleg kjörkaup.
Þetta gerir loðskinnavöru okkar
útgengilega. í þessu kalda veðri
þarfnist þér loðfatnaðar. Því ekki að
hafa hann góðan fyrir lítið verð?
Komið og finnið okkur.
ASTRACHAN JACKETS 22 & t
23 fyrir............$18.00
WALLABY JACKETS, 24
þml. $21.50 virði.Okkar verð $15.00
WALLABY JACKETS, 36
þml. $30 virði. Okkarverð.. 23.00
ASTRACHAN JACKETS, 36
þml. $32 virði. Okkar verð.. 26.00
BULGARIAN LAMB JACK-
ETS. $38.50 virði. Okkar
verð................ 29.00
COON JACKETS. $40 virði.
Okkar verð.......... 35.00
ASTRACHAN, Nr. 1. Colared
Sable trimmed. $57.50 virði.
Okkar verð.......... 45.00
ELECTRIC SEAL, á $30, $35,
$4° °g.............. 45.00
X PERSIAN LAMB JACK-
ETS á............... 35-00
og upp.
RICH GREY LAMB JACK-
ETSá................ 35.00
og upp,
Sérstakt.
KVENM. LOÐFÓÐRAÐAR
YFIRHAFNIR alt frá...$45,00
KVENM. LOÐFÓÐRUÐ
HERÐASLÖG á......... 12.50
og upp.
KVENM. YFIRHAFNIR ÚR
BLACK PERSlAN, sléttar
eða skreyttar raeð mink eða
Sable.
KVENM. SEAL SKINN } F)R-
HAFNIR,
Merki: BLÁSTJARNA.
Chevrier & Son.
The Blue Store, Winnipeg.
452 Main St.
Á raóti pósthúsinu.
“EIMREIÐIN”
Fjölbreyttasta og skemtilegasta
tlmaritiS á Islenzku. RltgerSir, sög-
ur, kvæSi myndir. VerS 40c. hvert
heíti. Fæst hjá H. S. Bardal og S.
Bergmann.
The Northern Bank.
Utibúdeildin á horninu á Nena
St. og William Ave.
Rentur borgaðar af innlögum. Ávísanir
gefnar á íslandsbanka og víðsvegar um
heim.
Höfuðstóll $2,000,000.
Aðalskrifstofa í Winnipeg,
THC ECANADIAN BANK
OP COMMCRCC.
& horninu á Hoss og Isabel
HöfuSstólI: $8,700,000.00.
VarasjóSur: $3,600,000.00
f SPAHISJóÐSDEn>DIN
Innlög $1.00 og þar yflr. Rentur
lagSar viS höíuBst. á sex mán. fresti.
Víxlar fást á F.nglarulsbanka,
sem eru borganlegir á fslandi.
AÐALSKRIFSTOFA 1 TORONTO.
Bankastjóri i Winnipeg er
o------JOHN AIRD---------o
THE DOMINION BANK.
á horninu á Notre Dame og Nena St.
Alls konar bankastörf af hendi
leyst.
Ávísanir seldar á útlenda banka.
Sparisjóösdeildin.
SparisjóSsdeildin tekur viS innlög-
ttni, frá $1.00 að upphæB og þar yfir.
Rentur borgaSar tvisvar á ári, I Júnl
og Desember.
Imperial BankofCanada
Höfuðstóll - - $3,500,000.00
Varasjóður - 3,500,000.00
’Algengar rentur borgaSar af öllum
innlögum. Avísanir seldar á bank-
ana á Islandi, útborganlegar i krón.
Otibú I Winnipeg eru:
ASalskrifstofan á horninu á Main st.
og Bannatyne Ave.
N. G. LESLIE, bankastj.
NorSurbæjar-deildin, á horninu á
Main st. og Selkirk ave.
F. P. JARVIS, bankastj.
Dp.M. halldobsson,
PARK RIVER. N. D.
Er aS hitta á hverjum miSvikudegi
í Grafton, N.D., frá kl. 5—6 e.m.
CABINET-MYNDIR
$3.00 TYLFTIN,
til loka Desember
mánaðar hjá
GOODALL’S
610Já Main st. Cor. Los;an ave.
ORKAR
MORRIS^PIANO
Tónninn og tilflnningin er fram-
leitt á hærra stig og meS meiri list
heldur en ánokkru öSru. Þau eru
seld meS góSum kjörum og ábyrgst
um óákveSinn tlma.
þaS ætti aS vera á hverju helmill.
S. Zi. BARROCLOUGH & CO.,
228 Portage ave., - Winnipeg.
LTFSALI.
H. E. CLOSE
prófgenginn lyfsali.
Allskonar lyf og Patent meSul. Rit-
föng o.s.frv.. Læknisforskriftum ná-
kvæmur gaumur geflnn.
MaþleLeafReDOvatingWorks
ViS erum nú fluttir aS 96 Albert st.
ASrar dyr norSur frá Mariaggi hót.
Föt lituS, hreinsuB, pressuS, bætt.
Tel. 482.
Dr. W. Clarence Morden,
Tannlæknir.
Cor. Logan ave og Main st.
620 Main st. - - ,’Phone 135.
Plate work og tennur dregnar úr
og fyltar fyrir sanngjarnt verS. —
Alt verk vel gert.
Thos. H. Johnson,
íslenzkur lögfræSingur og mála-
færslumaSur.
Skrifstofa:— Room 33 Canada Life
Block, suSaustur horni Portage
avenue og Main st.
Utanáskrift:—P. O. Box 1364.
Telefón: 423. Winnipeg, Man.
,4Huniö tftir
— því ad —
Edfly's Byggíngapapplr
heldur húsunum heitum* og varnar kulda. Skrífið eftir sýnishorn
um og verðskrá til
TEES & PERSSE, L^d.
áoENTS, WJNNIPEG.
Winmpeg Picture Fj-ame Factory,
Búð: 495 Alexander ave.
Vinnustofa: 246 Isabel st.
’Phone: 2789.
Allar tegundir af myndarömmum búnar til. — Stækkum myndir.
ViB þurfum umboösmenn víösvegar til að selja fyrir okkur.—
Heildsala og smásala.
P. Cook, Eigandi.
1 , A.ww, ^S^WVWWSrt/ rt^WS^WS^AA/SAA^WSAA.SA/SA/WSA/S/V